Mosfellingur - 08.10.2020, Síða 19

Mosfellingur - 08.10.2020, Síða 19
www.mosfellingur.is - 19 Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Skipulagsmál í vinnslu Mosfellsbær hefur undanfarið kynnt tvær skipulagslýsingar að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi í sveitar-félaginu. Málin eru að ólíkum toga og eru eftir auglýsingu til úrvinnslu á skipulagssviði. Þar sem ekki er kostur að halda íbúafundi vegna sóttvarna minnum við íbúa og hagsmunaaðila á að fylgjast vel með auglýstum tillögum bæði á vef sveitarfélagsins, mos.is, sem og í blöðum. Spurningum má alltaf beina til starfsmanna í símatíma eða með pósti á skipulag@mos.is. Formlegar athugasemdir skulu einnig berast á téð netfang þegar óskað er eftir þeim á auglýsingatíma. Tjaldanes deiliskipulag Nýtt deiliskipulag fyrir Tjaldanes, norðan Þingvalla-vegar, L125059, 3,6 ha. að stærð. Svæðið er bæði innan landbúnaðarsvæðis 205- L og þjónustusvæðis 226-V. Á Tjaldanesi standa 5 byggingar er hýsa gisti- og íbúðarrými, markmið með nýju skipulagi er að fjölga húsum um 6 á jafn mörgum lóðum. Staðsetning húsa má sjá á mynd en stærðir taka mið af þeirri byggð sem fyrir er á svæðinu. Lýsingin var kynnt frá 27. júní til 18. júlí 2018. Dalland aðalskipulag Aðalskipulagsbreyting fyrir löndin L195745 og L123625 fjallar um að stækka landbúnaðarsvæði Dalland 524-L um 6,1 ha. til austurs. Svæðið er óbyggt í dag. Lýsingin er enn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar. Uppdrátt að fyrirhugaðri stækkun má sjá á mynd og munu ákvæði falla að gildandi aðalskipulagi. Lýsingin var kynnt frá 6. júlí til 4. ágúst 2020. Ofangreind mál munu vera tekin fyrir á seinni stigum í skipulagsnefnd og bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Þau verða auglýst og kynnt eins og skipulagslög nr. 123/2010 segja til um. Íbúum formlegar athugasemdir. Auglýstar skipulagstillögur má alltaf skoða á mos.is/skipulagsauglysingar. Kristinn Pálsson Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar Ungdómskór fyrir 10 – 14 ára kóræfingar á mánudögum kl. 15 – 16.15. Barnakór fyrir 7 – 9 ára, kóræfingar á mánudögum kl. 16.30 – 17.30. Æfingar verða í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3. Nánari upplýsingar og skráning er inn á lagafellskirkja.is. Kórstjóri er Þórdís Sævarsdóttir, söngkona og tónmenntakennari og Þórður Sigurðsson, organisti sér um undirleik. Kórskóli Lágafellskirkju Æfingar hefjast mánudaginn 12. október: H öf un du r k ro ss gá tu : B ra gi V . B er gm an n - b ra gi @ fr em ri. is Mikil sala Ég vil vinna fyrir þig! - fagleg og persónuleg þjónusta Hringdu í 897-1533 davíð Ólafsson lög. fast. david@fastborg.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.