Ægir - 2020, Qupperneq 6
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík
Nýtt fiskveiðiár er gengið í garð með hefðbundinni úthlutun
aflaheimilda og eru henni að vanda gerð skil í þessari útgáfu
Ægis. Áramótunum er fagnað á sinn hátt í sjávarútvegi og
vissulega eru þau nýtt upphaf fyrir þær útgerðir sem hafa verið
orðnar kvótalitlar þegar að tímamótunum kom. Hins vegar er
það orðið þannig í þessu þrautreynda kerfi að útgerðir stýra
sinni sókn jafnan þannig að kvótinn dreifist vel á árið þó vissu-
lega geti komið tímabil þegar hraðar gengur á kvótann vegna
mikillar fiskgengdar eða þá hærra verðs á afurðamörkuðum og
aukinnar eftirspurnar.
Staðan núna í sjávarútvegsgreininni er hins vegar sérstök
vegna Covid faraldursins og vonandi verður langt þangað til við
upplifum eitthvað hliðstætt. Því betur hefur vel tekist til í útgerð
og fiskvinnslu hvað smitvarnir varðar og lítið um að röskun hafi
orðið á starfsemi vegna veirusmita. Það eru hins vegar hin víð-
tæku áhrif faraldursins út um allan heim sem skila sér hingað
heim og beint inn í þessa atvinnugrein. Líf fólks í okkar helstu
markaðslöndum hefur gengið úr skorðum, neysluvenjur eru með
öðrum hætti nú um stundir, mikil röskun er á starfsemi veitinga-
staða víða um heim og þannig mætti áfram telja. Þetta kemur
beint niður á sölu sjávarafurða þó vissulega opnist að hluta til
líka ný tækifæri á mörkuðum. En við þetta þarf sjávarútvegs-
greinin að búa og vinna með stöðuna næstu mánuðina, hið
minnsta. Það er þá ekki í fyrsta sinn sem verulega reynir á að-
lögunarhæfni og þol íslensks sjávarútvegs sem hingað til hefur
alltaf getað brugðist við þegar á hefur þurft að halda.
Þó úthlutað aflamark hafi dregist saman í sumum tegundum
en aukist í öðrum þá er heildarmyndin með svipuðum hætti.
Vissulega áhrifaríkast þegar samdráttur verður í aflamarksút-
hlutun í þorski en svo er líka vert að hafa í huga að vonir eru
bundnar við að nú verði loks loðnuvertíð eftir loðnuleysi síðustu
tveggja ára. Það væri mikið fagnaðarefni og í anda þess sem
Ólafur H. Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma hf. og formað-
ur stjórnar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi bendir á í viðtali
hér í blaðinu að besta viðspyrnan við kreppunni sé sú að við
framleiðum okkur út úr henni. Þar getur sjávarútegurinn skipt
sköpum.
Líkt og kemur fram í umfjölluninni um aflamarksúthlutunina
eru 50 stærstu fyrirtækin með rúmlega 90% heimildanna. Þetta
er áframhald þróunar margra undanfarinna ára. Fyrirtækin í
sjávarútvegi eru færri og stærri. Sama má segja um skipastól-
inn. Það þarf færri skip og báta til að sækja aflann. Þessi tæki
eru til muna öflugri en áður auk þess sem öll önnur tækni í
kringum veiðarnar er í sífelldri framför. Þetta eykur hagkvæmn-
ina og er vel. Þróun á afurðamörkuðum er líka hröð og hún er
aðal drifkraftur ýmissa þeirra breytinga sem við sjáum birtast í
bæði skipunum og ekki síður nýjustu fiskvinnslunnum, líkt og
fjallað er um hér í blaðinu. Við viljum ekki og ætlum ekki að sitja
eftir í samkeppninni úti á hinum víðfeðmum afurðalendum og
þess vegna er þróunin stöðug, hvort sem okkur líkar það betur
eða verr.
Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar
Áramótin í sjávarútvegi
Út gef andi:
Ritform ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Ritform ehf. Brekkutröð 4, 605 Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
GSM 899-9865.
Net fang: johann@ritform.is
Aug lýs ing ar:
Inga Ágústsdóttir.
Net fang: inga@ritform.is
Hönnun & umbrot:
Ritform ehf.
Ármúla 4-6, 108 Reykjavík.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 7100 kr.
Áskriftar sími 515-5215.
Forsíða:
Trollið tekið á togaranum Ljósafelli
Mynd: Þorgeir Baldursson
Af Ægi koma út 10 tölublöð á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
Leiðari
6