Ægir

Árgangur

Ægir - 2020, Blaðsíða 20

Ægir - 2020, Blaðsíða 20
20 „Þáttur okkar hjá Völku var mjög stór í nýja húsinu á Dalvík og við erum gríðarlega stolt af því að Samherji hafi treyst okkur fyrir svona mikil- vægum þætti í þessu hátæknivædda húsi. Sjálfvirkni er meiri en áður hef- ur sést í bolfiskvinnslu og enginn vafi að húsið er mikið framfaraskref fyrir íslenskan fiskiðnað. Um leið er þetta stærsta vinnslukerfið sem við hjá Völku höfum tekið að okkur. Það var stór stund fyrir okkur að sjá vinnsl- una hefjast á Dalvík nú í ágúst og full ástæða til að hrósa öllu starfsfólki Samherja á Dalvík fyrir hvernig það mætti nýrri tækni, nýjum störfum og starfsumhverfi af áhuga og fag- mennsku,“ segir Guðjón Ingi Guðjóns- son, sölustjóri tæknifyrirtækisins Völku ehf. sem framleiddi stóran hluta búnaðar í nýju hátæknivinnslunni hjá Samherja á Dalvík. Nýjungar í tæknibúnaði Segja má að í aðalatriðum taki vinnslu- kerfið frá Völku ehf. við þegar búið er að hausa, flaka og roðfletta fiskinn og skili tilbúnum afurðum, frosnum eða fersk- um. Allt með sjálfvirkum hætti. „Kerfið inniheldur fjórar vinnslulínur sem hver um sig er með forsnyrtilínu, flakaþvottavél, vatnsskurðarvél með fimm skurðarróbótum, myndgreiningar- tæki, búnaði til að fjarlægja beingarð og bitaflokkara sem stýrir bitunum áfram í vinnslunni eftir því sem óskað er, hvort heldur er í pökkun á ferskum afurðum eða lausfrystingu. Pökkunarróbótarnir fyrir ferskar afurðir eru einnig frá okk- ■ Guðjón Ingi Guðjónsson, sölustjóri Völku ehf. ■ Í vinnslusal hússins á Dalvík er mikið af búnaði frá Völku. Vinstra megin og fjær á myndinni sér í snyrtilínur en þaðan fer fiskurinn í vatnsskurðarvélarnar fjórar. Eftir að hafa farið í gegnum sjálvirka bitaflokkara fara bitarnir ýmist í lausfrystana eða í pökkun á ferskum bitum sem sést hér næst á myndinni. Sjálfvirknin er mikil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.