Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 1
Frá og með gærdeginum eru framdyr strætis-
vagna opnar farþegum og engar fjöldatakmark-
anir eða fjarlægðarmörk í gildi. Framdyr strætó
voru lokaðar í mars vegna faraldurs kórónuveir-
unnar. Guðmundur Heiðar Helgason, upplýs-
ingafulltrúi Strætó, segir framkvæmdina hafa
gengið þokkalega. „Eftir að við lokuðum fyrst
fannst okkur fólk borga fargjöldin sóma-
samlega. Þegar það fór svo að líða á varð fólk
kannski aðeins afslappaðra og reiddi ekki endi-
lega alltaf fram rétt fargjald. Það hefur verið
svo miklu minna eftirlit en hefðbundið er hingað
til og erfitt fyrir vagnstjóra að fylgjast með
þessu. Það eina sem þeir sjá í rauninni er í bak-
sýnisspeglinum. Vonandi förum við að sjá aðeins
meiri tekjur í kassann núna, samhliða því að við
opnum framdyrnar aftur.“ Áfram verður í stræt-
isvögnum sérstakt svæði fyrir þá farþega sem
kjósa að halda fjarlægð frá öðrum. Guðmundur
segir að fremstu stöku sætin í vögnunum verði
notuð fyrir þá einstaklinga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framdyr strætó opnaðar á ný eftir kórónuveiru
Þ R I Ð J U D A G U R 9. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 134. tölublað 108. árgangur
HUGAÐ AÐ
MERKUM
FLUGMINJUM PRJÓNUÐ EINKENNISFÖT
HÓGVÆR HEIÐ-
URSBORGARI Í
BOLUNGARVÍK
LANDVERÐIR Í LOPAPEYSUM 11 HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR 2VILJA FRIÐLÝSA 14
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Svo virðist sem að mestu hafi
skrúfast fyrir ný sjóðfélagalán hjá
lífeyrissjóðunum í aprílmánuði.
Þetta sýna nýjar tölur Seðlabank-
ans sem birtar voru í gær. Námu
ný útlán þeirra í mánuðinum aðeins
893 milljónum króna og hafa ekki
verið lægri í einum mánuði frá því
undir lok árs 2015. Frá þeim tíma
hafa lífeyrissjóðirnir gert sig sífellt
meira gildandi á þessum lánamark-
aði.
Hefur sú aukna þátttaka bæði
birst í sífellt hagstæðari lánakjör-
um og einnig fjölbreyttari lánakost-
um, m.a. óverðtryggðum lánum,
breytilegum og með föstum vöxt-
um. Ný útlán sjóðanna í aprílmán-
uði drógust saman um 5,7 milljarða
frá fyrri mánuði. Þá fækkaði úti-
standandi lánum sjóðfélaga hjá
sjóðunum einnig og voru þau 40.362
talsins. Hefur þeim ekki fækkað
milli mánaða síðan í desember 2017.
Á sama tíma og mikill afturkipp-
ur hefur orðið í útlánum lífeyris-
sjóðanna í aprílmánuði virðast
bankarnir halda sínu striki. Voru
ný útlán þeirra til fasteignakaupa
að teknu tilliti til umfram- og upp-
greiðslna tæpir 12,8 milljarðar í
aprílmánuði. Eru þær lánveitingar
svipaðar að umfangi og verið hefur
hjá bönkunum á undanförnum
misserum.
Samkeppnishæfari vaxtakjör
Ekki eru einhlítar skýringar á
þeim umskiptum sem urðu á mark-
aðnum í apríl, en lífeyrissjóðirnir
hafa gert sig sífellt meira gildandi á
honum á síðustu árum. Hins vegar
hafa vaxtakjör bankanna á húsnæð-
islánum orðið samkeppnishæfari á
síðustu mánuðum samhliða vaxta-
lækkunum Seðlabankans þar sem
bankarnir hafa lækkað vexti sína á
slíkum lánum umfram það sem al-
mennt hefur sést hjá sjóðunum.
Bankarnir og sjóðirnir
hafa hlutverkaskipti
Sjóðfélagalán dragast verulega saman milli mánaða
MSkrúfast fyrir lánveitingar »12
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Atvinnulíf Ný sjóðfélagalán lífeyris-
sjóðanna drógust saman í apríl.
Allar bækur
bókaútgáfunnar
Uglu, 25 titlar á
fjórum vöru-
brettum, voru
endursendar frá
Pennanum Ey-
mundsson til
Uglu á dög-
unum. Jakob F.
Ásgeirsson,
stofnandi og eig-
andi útgáfunnar, segir að sér hafi
verið gefnar upp þær ástæður fyr-
ir endursendingunni að allar nýjar
og nýlegar bækur sem séu jafn-
framt í streymi hjá hljóðbókaveit-
unni Storytel séu teknar úr sölu
hjá Pennanum.
Forstjóri Pennans segir að það
sé ekki stefna fyrirtækisins að
taka bækur sem eru í streymi hjá
Storytel úr sölu. Nokkrir útgef-
endur sem Morgunblaðið ræddi
við könnuðust við málið en höfðu
ekki hug á að ræða það opin-
berlega.
Jakob hefur leitað til Sam-
keppniseftirlitsins vegna málsins,
en 90% af sölu Uglu fara fram í
gegnum Pennann tíu mánuði árs-
ins og er því um að ræða áfall fyr-
ir útgáfuna. »4
Allar
bækurnar
úr sölu
Áfall fyrir Uglu
Jakob F.
Ásgeirsson
Formaður Landssambands lög-
reglumanna segir allt of fáa lög-
reglumenn vera í stéttinni.
Lögreglumönnum hefur ekki fjölg-
að samhliða fjölgun ferðamanna
hér á landi og álagið aukist á sama
tíma. Alls voru lögreglumenn 662
talsins 1. febrúar síðastliðinn.
Kjaraviðræður lögreglumanna við
íslenska ríkið ganga afar hægt og
þolinmæði stéttarinnar er þrotin.
Lögreglumenn biðla til stjórnvalda
að ganga frá kjarasamningum og
standa við gefin loforð. »9
Stjórnvöld standi
við gefin loforð
Umferðarmerkingar eru nú einu
hindranirnar sem standa í vegi fyr-
ir því að ökumenn aki um göngu-
götur í miðborginni og hafa margir
ökumenn undanfarið keyrt um
göngugötur þó að það sé óheimilt.
„Í sjálfu sér sjáum við enga aðra
lausn en að ökumenn framfylgi
þessu,“ segir Árni Friðleifsson, að-
alvarðstjóri umferðardeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan sektaði átta ökumenn
um helgina vegna aksturs um
göngugötur. »2
Umferðarmerkingar
eina hindrunin
Vopnið sem not-
að var til að
myrða Olof
Palme, forsætis-
ráðherra Sví-
þjóðar, er talið
fundið. Sænska
ríkisútvarpið
SVT greindi frá
þessu í gær en
héraðssaksókn-
ari mun kynna niðurstöður rann-
sóknar sinnar á sérstökum kynning-
arfundi á morgun. Heimildir
ríkisútvarpsins herma að á fund-
inum eigi að greina frá þessum tíð-
indum.
Palme var skotinn til bana í febr-
úar 1986 er hann var að koma úr
kvikmyndahúsi með konu sinni og
hafa yfir 10.000 manns verið yfir-
heyrðir í tengslum við rannsóknina
á morðinu.
Palme-rannsóknarnefndin hefur
undanfarin ár haft tvö vopn til próf-
unar – vopn sem sögð eru mjög lík-
lega koma úr safni byssusafnara.
Telja
vopnið
fundið
Nýjar vendingar
í máli Olofs Palme
Olof Palme