Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Opinn fundur um skipulagsmál með áherslu áGrafarvog verður
haldinn í kvöld, þriðjudaginn 9. júní, kl. 19.00 í félagsheimili FSG
aðHverafold 3. Meðal umfjöllunarefna verðaBorgarlínan,
Sundabraut og skipulag í norðanverðum Grafarvogi.
Framsögu hafa EyþórArnalds,Valgerður Sigurðardóttir og
Ólafur Guðmundsson. Gestur fundarins verðurGuðlaugur
Þór Þórðarson. — Allir velkomnir! Boðið verður upp á súpu og
brauð frá Ostabúðinni.
Skipulagsmál í
Grafarvogi
— opinn fundur í kvöld
SJÁLFSTÆÐISMENN Í GRAFARVOGI
Fundinumverður jafnframt streymt frá Facebook-síðu Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Ugla er eina fyrirtækið sem hef-
ur orðið fyrir þessu og Ugla virð-
ist eiga að vera öðrum víti til
varnaðar svo þeir fari ekki að
gefa út í streymi hjá Storytel,“
segir Jakob F. Ásgeirsson, stofn-
andi og eigandi bókaútgáfunnar
Uglu.
Allar bækur útgáfunnar, 25 titl-
ar á fjórum vörubrettum, voru
endursendar frá Pennanum Ey-
mundsson til Uglu á dögunum.
Jakob segir að vörustjóri Penn-
ans hafi útskýrt ákvörðunina með
því að allar bækur sem séu jafn-
framt í streymi hjá hljóðbókaveit-
unni Storytel séu teknar úr sölu
hjá Pennanum. Bækur Uglu eru
flestallar til í streymi hjá Story-
tel.
Penninn lífæð útgefenda
Hingað til hefur Penninn tekið
við bókum frá öllum, að sögn
Heiðars Inga Svanssonar, for-
manns Félags íslenskra bókaút-
gefenda. Hann hefur einungis
heyrt hlið Jakobs á málinu en
segir að ef rétt reynist sé það
stórmál fyrir bransann ef ein-
hverjar breytingar séu á því fyr-
irkomulagi að verslunin taki við
öllum bókum. Félagið skiptir sér
þó ekki af viðskiptum einstaka fé-
lagsmanna sinna, að sögn Heiðars.
„Yfir ákveðinn hluta af árinu er
Penninn Eymundsson þó lífæð ís-
lenskra bókaútgefenda,“ segir
Heiðar.
Ingimar Jónsson, forstjóri Penn-
ans, ritaði bréf til ráðamanna fyrr
í ár þar sem hann gagnrýndi
Storytel og sagði félagið skjóta sér
undan skattgreiðslum. Jakob telur
að með því að taka allar bækur
Uglu úr sölu reyni Penninn að
fæla aðrar útgáfur frá því að koma
bókum sínum í streymi hjá Story-
tel.
„Núna ætlar Eymundsson sem
sagt að drepa þetta fyrirtæki,
Uglu, til þess að koma í veg fyrir
að nýjar bækur fari í streymi hjá
Storytel. Þá er hann náttúrulega
að takmarka úrval þess sem boðið
er upp á í streymi. Það kemur auð-
vitað mjög illa við margt áhugafólk
og lesendur hljóðbóka.“
Ingimar Jónsson, forstjóri Penn-
ans, segir að það sé ekki stefna
fyrirtækisins að taka bækur sem
eru í streymi hjá Storytel úr sölu.
Spurður hver sé þá ástæðan fyrir
því að Penninn Eymundsson hafi
tekið allar bækur Uglu úr sölu
segir Ingimar:
„Þetta er á milli okkar og ein-
staka aðila. Við þurfum einfaldlega
að meta það hvaða bækur við tök-
um inn og hvaða bækur ekki.“
Jakob segir ekki nóg með að
Penninn taki bækur Uglu úr sölu
heldur gefi Penninn viðskiptavin-
um sínum þau skilaboð að bækur
Uglu séu ófáanlegar.
„Það sem er verst af öllu er að
þegar fólk spyr um bækurnar í
búðunum er sagt að þær séu upp-
seldar. Þetta hefur aldrei gerst hér
í bóksölu eða bókaútgáfu hér á Ís-
landi, að það hafi verið gerð svona
aðför að einu útgáfufyrirtæki.“
Ugla verði öðrum víti til varnaðar
Allar bækur Uglu teknar úr sölu hjá Pennanum Útgefandinn telur að fyrirtækið reyni að fæla
aðra útgefendur frá útgáfu á Storytel Forstjóri Pennans segir ekkert til í því og fyrirtækið hafi val
Ljósmynd/Jakob F. Ásgeirsson
Bækur Hér má sjá sumar þeirra bóka sem voru endursendar en á brettin vantar fimm kassa sem komu frá Akureyri.
Sjö fastráðnum starfsmönnum
Þjóðgarðsins á Þingvöllum í þjón-
ustumiðstöðinni á Leirum og í
versluninni í
gestastofunni á
Hakinu hefur
verið sagt upp
störfum. Þetta er
vegna endur-
skipulagningar,
en algjört stopp
á gestakomum
síðustu mánuði
vegna kórónu-
veirunnar hefur
gjörbreytt að-
stæðum í rekstri þjóðgarðsins.
„Þessar uppsagnir eru erfiðar
aðgerðir en óumflýjanlegar,“ sagði
Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðs-
vörður í samtali við Morgunblaðið.
„Hingað á Þingvelli hefur komið á
aðra milljón gesta á síðustu árum
og svo er það allt hrunið. Starf-
semina hér höfum við að stórum
hluta byggt á sértekjum; svo sem
af sölu minjagripa og annars slíks.
Þetta hefur skilað um 300-400
milljónum króna í kassann á ári en
nú er þetta á núlli. Sama er að
segja um tekjustofn, svipaðan að
stærð, sem er bílastæðagjöld,
tjaldsvæði, köfunargjald í Silfru og
sala veiðileyfa í Þingvallavatni. Við
þurfum því algjörlega að stokka
upp reksturinn og bregðast þannig
við aðstæðum sem upp eru komn-
ar.“
Uppsögnunum fylgir að stefnt
er að útvistun á verslunarrekstri
og veitingasölu á Þingvöllum, sem
miðað er við að komi til fram-
kvæmda með haustinu. Auk starfs-
mannanna sjö ná uppsagnirnar til
lausráðins fólks með tímabundna
starfssamninga. Önnur starfsemi á
Þingvöllum verður óbreytt að svo
komnu máli, en fjárveitingar til
þjóðgarðsins eru nú í endurskoðun
í umhverfisráðuneytinu. sbs@mbl.is
Sjö sagt upp starfi
Endurskipulagt á Þingvöllum Sér-
tekjur á núll Gestastofan og Leirur
Einar Á.E.
Sæmundsen
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
„Ég tel að þetta sé réttasta og besta
leiðin til að koma okkur út úr CO-
VID,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir á blaðamannafundi
vegna heimsfaraldurs kórónuveiru í
Ráðherrabústaðnum við Tjarnar-
götu í gær. Yfirvöld kynntu þar þær
breytingar sem verða á reglum um
komur ferðamanna til Íslands frá og
með 15. júní nk. og útskýrðu nánar
hvernig staðið verður að skimun á
landamærum landsins.
Þórólfur sagði að með skimuninni
væri verið að gera allt sem hægt
væri að gera til að lágmarka áhætt-
una á því að kórónuveiran komi aft-
ur inn í íslenskt samfélag. Á sama
tíma myndi skimunin hjálpa til við
að koma atvinnulífinu af stað á nýjan
leik.
Framkvæmdin verður með þeim
hætti að áður en farþegi leggur af
stað til Íslands þarf hann að fylla út
forskráningarform með helstu upp-
lýsingum um sig. Á landamærum
landsins mun heilsugæslan sjá um
sýnatökur. Eftir að farþegi hefur
farið í sýnatöku verður honum heim-
ilt að fara á sinn áfangastað uns nið-
urstöður eru tilkynntar með rafræn-
um hætti.
Farþegum verður ekki gert að
fara í sóttkví þar til niðurstaða úr
sýnatökunni liggur fyrir en verður
ráðlagt að fara varlega þangað til.
Komi smit í ljós fer af stað hefð-
bundið ferli þar sem hringt verður í
viðkomandi, hann boðaður í blóð-
prufu, m.a. til að ganga úr skugga
um hvort hann sé smitandi og hvort
grípa þurfi til ráðstafana varðandi
smitrakningu og fjarheilbrigðis-
þjónustu.
Greining sýna verður fyrst um
sinn hjá Íslenskri erfðagreiningu
sem hefur boðist til að lána tæki sín
og aðstöðu. Sýkla- og veirufræði-
deild Landspítalans mun einbeita
sér að því að greina klínísk sýni og
vera í viðbragðsstöðu vegna þess.
Fyrirhugað er að efla tækjabúnað og
aðstöðu á deildinni þannig að hún
geti sinnt verkefni af þessum toga.
Áætlað er að unnt verði að greina að
hámarki 2.000 sýni á sólarhring.
Óvissa vegna verkfalls
Fyrirhugað verkfall hjúkrunar-
fræðinga er ógn við heilbrigðiskerf-
ið, sem verður ekki rekið án hjúkr-
unarfræðinga. Þetta sagði Alma D.
Möller landlæknir á blaðamanna-
fundi í gær. Ef verður af verkfallinu,
sem hefst að óbreyttu 22. júní, mun
það setja verkefnið um skimun á
landamærum landsins í uppnám.
Skimun lágmarkar
áhættu á annarri bylgju
Ekki í sóttkví eftir
sýnatöku Grein-
ingargeta 2.000 sýni
á sólarhring
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Blaðamannafundur Útfærsla skimunar á landamærum og breytingar á reglum
um komur ferðamanna til landsins voru kynntar á blaðamannafundi í gær.
Fallið hefur verið
frá þeim áform-
um að taka við
heilbrigðisvott-
orðum frá far-
þegum sem
koma hingað til
lands eftir 15.
júní eins og stað-
ið hefur til.
Þetta kom
fram í máli Þórólfs Guðnasonar
sóttvarnalæknis á blaðamanna-
fundi í gær. Hann hefur áður lýst
því yfir að slík vottorð væru ein
leið til að stýra umferð inn í land-
ið. Þannig gæti einstaklingur, sem
greinst hefur með kórónuveiruna
og náð bata, framvísað slíku vott-
orði við komu til landsins og kom-
ist hjá sóttkví.
Fram kom í máli Þórólfs að eftir
nánari umhugsun hefði það ekki
reynst hægt að treysta slíkum
vottorðum þar sem ekki væru til
alþjóðleg vottorð um slík veikindi
og mælingar og því væri erfitt að
meta þau og treysta.
Sú niðurstaða verður þó, eins og
annað er varðar komur farþega
hingað til lands eftir 15. júní, í sí-
felldri endurskoðun.
Alþjóðleg vottorð eru ekki til
HEILBRIGÐISVOTTORÐ UM FYRRI VEIKINDI EKKI TEKIN GILD
Þórólfur
Guðnason