Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Tólf konur sem stunda atvinnu-rekstur í og við Miðbæ Reykja-
víkur rituðu grein í Morgunblaðið
fyrir helgi og sögðu þar að ein-
hverra hluta vegna hefðu „borgaryf-
irvöld undanfarinn áratug kosið að
fara með ófriði gegn rekstraraðilum
við Laugaveg og neðanverðan
Skólavörðustíg“. Þær bættu því við
að herferðin væri gegn vilja rekstr-
araðila og líka gegn vilja borgarbúa,
og vitnuðu í því sambandi í nýlega
skoðanakönnun.
Konurnar tólf lýstu því hvílíkuviðhorfi þær mættu hjá meiri-
hlutanum í borginni, þar sem Dóra
Björt Guðjónsdóttir pírati hefði til
dæmis kallað málflutning þeirra
„fortíðarskvaldur“ og segði þær
klappstýrur afturhaldsins með
„sveittar krumlur fortíðar“!
Konurnar furðuðu sig á þessu,sem von er, og sögðu að þær
hefðu „seint trúað því að skæðasti
andstæðingur okkar yrði meirihluti
borgarstjórnar (meirihluti borgar-
stjórnar sem situr í skjóli minnihluta
atkvæða)“.
Í lok greinarinnar var svo ákall tilborgaryfirvalda: „Látið Lauga-
veg og Skólavörðustíg í friði og
hlustið á vilja afgerandi meirihluta
rekstraraðila.“
Því miður er hægt að fullyrða aðnúverandi meirihluti borgar-
stjórnar mun ekkert hlusta á þetta
ákall frekar en önnur frá rekstrar-
aðilum í Miðbænum. Andúðin á
einkabílnum tekur öllu öðru fram.
Engu skal eirt til að leggja steina í
götu hans og þvinga fólk til að nota
aðra ferðamáta en þann sem það kýs.
12 konur sem
borgin mun hunsa
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Aron Þórður Albertsson
Kristján H. Johannessen
Fari Reykjavíkurborg ekki að fyrir-
mælum Vinnueftirlitsins innan
settra tímamarka hefur stofnunin
heimild til að leggja á dagsektir þar
til úrbætur hafa verið gerðar. Þetta
kemur fram í skriflegu svari Vinnu-
eftirlitsins við fyrirspurn Morgun-
blaðsins.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá framkvæmdi Vinnueftir-
litið svokallaða takmarkaða úttekt á
skrifstofuhúsnæði Reykjavíkur-
borgar 14. september 2019. Í kjöl-
farið var borginni gert að kynja-
skipta salernum þar á ný og fékk til
þess frest til 14. október. Frestur
til úrbóta hefur síðan þá verið
framlengdur í nokkur skipti, síðast
til 29. maí síðastliðins. Nú síðast
ákvað Reykjavíkurborg að kæra
ákvörðun Vinnueftirlitsins til
félagsmálaráðuneytisins.
Að því er fram kemur í svari
Vinnueftirlitsins hefur engin til-
kynning borist eftirlitinu um úrbæt-
ur og er nú næsta skref að taka
ákvörðun um ítrekunarferli. Í slík-
um tilvikum, þar sem send eru
ítrekunarbréf, eru atvinnurekendur
hvattir til að fara að fyrirmælum
Vinnueftirlitsins. Er þeim jafnframt
veitt tækifæri til að koma á fram-
færi skriflegum athugasemdum.
Fari svo að atvinnurekendur fylgi
ekki umræddum fyrirmælum er
hægt að grípa til þess þvingunar-
úrræðis að leggja á dagsektir þar
til úrbætur er gerðar.
Skylt að fylgja fyrirmælum
Á fundi mannréttinda-, nýsköp-
unar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur-
borgar, sem haldinn var 28. maí sl.,
samþykktu fulltrúar Samfylkingar,
Viðreisnar, Pírata og Sósíalista-
flokks Íslands að ráðast ekki í að
merkja salerni í stjórnsýsluhúsum
Reykjavíkurborgar fyrr en ákvörð-
un félagsmálaráðuneytisins lægi
fyrir um fyrrgreinda kæru. Tillaga
ráðsins um ókyngreind salerni er í
kærunni sögð byggjast á mannrétt-
indastefnu borgarinnar og
áherslum hennar að vinna gegn
mismunun borgaranna. Að því er
fram kemur í svari Vinnueftirlitsins
er atvinnurekendum skylt að fara
að fyrirmælum eftirlitsins og ber
þeim jafnframt að tilkynna stofn-
uninni þegar úrbótum er formlega
lokið.
Geti lagt dagsektir
á Reykjavíkurborg
Borgin fór ekki að fyrirmælum
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta er í takt við það sem er að ger-
ast í Evrópu. Við áttum von á þessu,“
segir Óðinn Valdimarsson, verk-
efnastjóri hjá Bílgreinasambandinu,
um sölutölur nýrra fólksbifreiða í maí-
mánuði. Heildarsalan í mánuðinum
dróst saman um 74,4% samanborið
við sama mánuð í fyrra. Munaði þar
mest um samdrátt í sölu til bílaleiga
og helgast það nær eingöngu af áhrif-
um faraldurs kórónuveiru.
Þrátt fyrir framangreindan sam-
drátt stóð sala til einstaklinga að
mestu leyti í stað. Þá voru svokallaðir
nýorkubílar rétt um 67,8% af sölunni.
Aðspurður kveðst Óðinn bjartsýnn á
að heildarsalan muni taka við sér síð-
ar á árinu. Þá sé óbreytt sala til ein-
staklinga mjög jákvæð tíðindi. „Ef at-
vinnuleysisstig verður með sama
hætti gæti þetta auðvitað orðið þungt.
Við erum hins vegar bjartsýn og telj-
um að seinni partur ársins verði góð-
ur,“ segir Óðinn og bætir við að áður
en áhrifa kórónuveiru tók að gæta hér
á landi hafi sölutölur fyrir árið litið vel
út.
„Áður en þetta kom upp vorum við
að spá lítillegri söluaukningu frá síð-
asta ári. Nú er þetta auðvitað bara al-
gjör óvissa. En sala til einstaklinga
gefur okkur von um að seinni hluti
ársins verði góður.“
Sala á nýjum bifreiðum hrundi í maí
Sala til einstaklinga stóð í stað milli ára Samdráttur í sölu til bílaleiga
Morgunblaðið/Árni
Bílar Kórónuveiran hafði áhrif.