Morgunblaðið - 09.06.2020, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 09.06.2020, Qupperneq 9
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is VORPERLUR Vefuppboð nr. 484 Lýkur 10. júní Nína Tryggvadóttir vefuppboð á uppbod.is Úrval góðra verka Eyborg Guðmundsdóttir FRÉTTIR 9innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 Kjaraviðræður Landssambands lög- reglumanna við íslenska ríkið ganga „mjög hægt og í rauninni ekki neitt“, að sögn Snorra Magnússonar, for- manns sambandsins. „Það hefur nátt- úrulega verið samið um stærri atriði eins og vinnutímastyttingu og annað þvíumlíkt á heildarsamtakaborðinu, en gagnvart okkur lögreglumönnum ein- um gengur þetta mjög hægt og nánast bara ekki neitt,“ segir Snorri. Hann segir þolinmæði stéttarinnar á þrotum. „Menn eru orðnir langþreyttir á því að fá ekki samning í hús. Þolinmæði stétt- arinnar er bara löngu þrotin.“ Snorri segir lögreglumenn vilja fá útkljáðar bókanir frá síðustu kjara- samningum áður en hægt verði að ræða af alvöru um lífskjarasamning- inn. „Að stærstum hluta virðast við- ræðurnar stoppa á þessu, en svo er- um við líka í vandræðum sem lúta að stofnanasamningi hjá okkur sem hef- ur verið allt öðruvísi en svona samn- ingar eiga að vera. Við fórum í þá veg- ferð líka 2015 og miðuðum að því að klára hana með kjarasamningum 2019 en það gekk ekki eftir heldur. Það kemur á óvart því það var alveg klár vilji ríkisins að stofnanasamning- ar séu gerðir og það er skrítið að eiga við það að ekki sé hægt að landa því fyrr. Sér í lagi vegna þess að við vor- um klár með okkar hluta í þessu en svo strandar þetta hinum megin,“ segir Snorri. Allt of fáir lögreglumenn Í skriflegu svari dómsmálaráð- herra við fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar á Alþingi kemur fram að alls starfa nú 662 menntaðir lögreglu- menn um land allt. Ákall eftir fjölgun í stéttinni hefur verið hávært meðal lögreglumanna undanfarin ár og seg- ir Snorri að lögreglumönnum hafi í raun fækkað á meðan álagið hafi auk- ist. „Þetta eru allt of fáir lögreglu- menn og við höfum gagnrýnt það lengi og mikið.“ Árið 2007 störfuðu 678 lögreglumenn um land allt, árið 2006 voru þeir 697 og árið 2003 voru þeir 702. Þá gerðu áætlanir í mannaflagreiningu lögreglustjóra frá árinu 2007 ráð fyrir því að árið 2012 yrðu lögreglumenn að minnsta kosti 804. „Núna átta árum síðar erum við talsvert undir því,“ segir Snorri. Hann segir enga fjölgun hafa orðið í stéttinni samhliða fjölgun ferða- manna hér á landi og auknu álagi sem því fylgir. „Það hefur ekki verið nein fjölgun, engin. Samt gefur það auka leið að álagið hefur aukist.“ Þá segir Snorri að miðað við mannaflagrein- inguna frá 2007 megi ætla að lög- reglumenn ættu í dag að vera að minnsta kosti 900 talsins. „Við erum að horfa upp á það að það vanti ein- hverja 200 til 300 lögreglumenn til starfa.“Að öllu óbreyttu má gera ráð fyrir því að næsti samningafundur lögreglumanna við ríkið verði á fimmtudaginn. Snorri segir viðræð- urnar vera í algjörri pattstöðu eins og er. „Við höfum ekki verkfallsréttindi og getum þar af leiðandi ekki beitt neinum ráðum. Það eina sem við get- um gert er að biðla til stjórnvalda um að ganga frá þessum samningum al- mennilega í eitt skipti fyrir öll og standa við gefin loforð.“ Þolinmæðin löngu þrotin  Vilja að ríkið standi við gefin loforð Morgunblaðið/Eggert Fáliðaðir Snorri segir 200 til 300 lögreglumenn vanta í stéttina í dag. Þeim hefur raunað fækkað á síðustu árum og álagið aukist á sama tíma. ÓBREYTT VERÐ Opel Ampera-e – til afgreiðslu strax! Birtm eð fyrirvara um m ynd-og textabrengl. OPELGOES ELECTRIC Reykjavík Krókhálsi 9 Sími: 590 2020 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opið Virka daga 9–18 Laugardaga 12–16 Opið Virka daga 12–17 *Samkvæmt wltp staðli. Kynntu þér þína drægni á opel.is • Kemst lengra en þú heldur • Rúmarmeira en þú heldur • Er sneggri en þú heldur • 60 kWh batterý • Allt að 423 km. drægni* • 204 hestöfl, 360 Nm OPEL AMPERA-E ER 100% RAFMAGN Ampera-e Innovation - 60 kWh Verð 4.790.000 Sigurður Böðv- arsson, yfir- læknir göngu- og lyflækninga- deildar við Heilbrigðis- stofnun Suður- lands (HSU), mun sinna starfi framkvæmda- stjóra lækninga í fjarveru Hjartar Kristjánssonar, sem er nú kominn í ársleyfi. Sigurður hefur starfað á HSU síðan 1. desember 2018. Þar áður starfaði hann sem sérfræðingur í krabbameinslækningum í Gunder- sen Health System, La Crosse í Wis- consin, Green Bay Oncology, Green Bay, Wisconsin og sem sérfræð- ingur í krabbameinslækningum við Landspítala. Sigurður er sérfræð- ingur í krabbameinslækningum og hefur áralanga reynslu af meðferð krabbameinssjúklinga, rann- sóknum, kennslu og stjórnun, var um tíma formaður Læknafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Lækna- félags Íslands. Framkvæmdastjóri lækninga á Suðurlandi Sigurður Böðvarsson Mikil fjölgun var á umsóknum um kennaranám í háskólum á Íslandi í ár. Á Menntavísindasviði Háskóla Íslands fjölgar umsóknum um framhaldsnám leikskólakennara um 118% frá því í fyrra, umsóknum um grunnskólakennaranám um 85%, framhaldsskólakennaranám um 47% og 67% í íþróttakennara- námið. Umsóknum um nám við list- kennsludeild Listaháskólans heldur áfram að fjölga. Fjölgunin nam 122% í fyrra og um 12% nú. Mikil ásókn í leik- skólakennaranám

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.