Morgunblaðið - 09.06.2020, Side 12

Morgunblaðið - 09.06.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Samhliða miklum vaxtalækkunum Seðlabanka Íslands hafa vextir á sjóðfélagalánum lækkað talsvert. Hins vegar hefur meiri lækkun orðið á lánakjörum þeim sem bankarnir veita til húsnæðiskaupa og hefur hlutdeild þeirra á markaðnum aukist hratt í kjölfarið. Hefur með því snú- ist við þróun síðustu ára þar sem líf- eyrissjóðir gerðust sífellt atkvæða- meiri á markaðnum. Nýlegar tölur Seðlabankans yfir ný útlán bankanna með veði í fast- eignum einstaklinga, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum, sýna að þar hafa sviptingaranr ekki orðið nándar nærri eins miklar og hjá líf- eyrissjóðunum. Í nýliðnum apríl- mánuði námu útlánin hjá bönkunum 12,8 milljörðum og jukust lítillega milli mánaða. Í apríl í fyrra voru ný útlán til fasteignakaupa eða endur- fjármögnunar á húsnæði 10,2 millj- arðar. Það sem af er ári nema ný útlán af þessum toga hjá bönkunum 44,4 milljörðum króna en voru 39,1 millj- arður yfir sama tímabil í fyrra. Hjá lífeyrissjóðunum er samdrátturinn hins vegar um 2 milljarðar króna og námu ný útlán þeirra til sjóðfélaga tæpum 26,6 milljörðum á fyrstu fjór- um mánuðum ársins. Eins og áður getur komu þær lánveitingar að nær öllu leyti fram á fyrstu þremur mán- uðum ársins. Skrúfast fyrir lánveitingar  Algjört hrun varð í veitingu nýrra sjóðfélagalána hjá lífeyrissjóðum í aprílmánuði  Bankarnir halda sínu striki  Vaxtakjörin hafa breyst mikið að undanförnu Morgunblaðið/Eggert Breyting Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur aukið umsvif sín á húsnæðislánamarkaði en nú verður breyting á. SVIÐSLJÓS Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Algjört hrun varð í veitingu nýrra sjóðfélagalána hjá lífeyrissjóðunum í aprílmánuði. Þetta sýna nýjar tölur frá Seðlabanka Íslands. Þannig námu ný útlán að teknu tilliti til upp- og umframgreiðslna aðeins 893 milljónum króna. Drógust þau sam- an um ríflega 5,7 milljarða króna frá marsmánuði þegar þau námu rúm- um 6,6 milljörðum króna. Hafa ný útlán sjóðanna ekki verið jafn tak- mörkuð frá því í október 2015 þegar þau voru 467 milljónir króna. Frá þeim tíma hafa þau aukist mjög að vöxtum og náðu hápunkti í október síðastliðnum þegar þau voru tæpir 14 milljarðar króna. Sprenging í útlánum sjóðanna Á liðnum misserum hefur hlut- deild sjóðfélagalána af eignasöfnum sjóðanna aukist talsvert. Sem dæmi má nefna að í lok síðasta árs var hlut- fall sjóðfélagalána af innlendu skuldabréfasafni Lífeyrissjóðs versl- unarmanna 32% en hafði verið 27% tólf mánuðum fyrr. Vegna mikillar aðsóknar í sjóðfélagalán hafa sjóð- irnir í ákveðnum tilvikum þrengt lánaskilmála sína, lækkað hámarks- fjárhæð lána og einnig takmarkað meira en áður hverjir teljast gjald- gengir til að taka lán hjá sjóðunum. ur á gönguskíði. Þó myndi ég ætla að seldar gisti- nætur verði um helmingi færri en í fyrra. Veltan í maí var 30% af veltunni í fyrra. Þá er nóttin á miklu lægra verði en hefur verið,“ segir Daníel um eftirspurnina. Hann bendir svo á að eitt hótel af þremur hjá fyrirtækinu verði lokað í sumar, sem dragi úr framboðinu. „Við erum samt sem áður með 90 herbergi í sölu í sumar á hverjum degi og það er uppbókað í þrjá eða fjóra daga,“ segir Daníel og víkur að tekjustreyminu yfir árið. Hótelið skili hagnaði fjóra mánuði á ári, sé rekið á núlli tvo mánuði en með tapi hina mánuðina sex. Sjálfbær yfir sumarið „Það hefur í för með sér að við erum sjálfbær yfir sumarið. Manni sýnist að það muni vanta 130 milljónir af alls 300 milljóna veltu í ár,“ segir Daníel. Vegna tekjufallsins muni hótelið þurfa aðstoð næsta vetur. Leigusali og banki muni koma til móts við hótelið. Þá hafi hlutabætur komið sér vel í apríl og maí. Nú séu hins vegar allir í fullu starfi. Mark- miðið sé að standa af sér storminn. Hótel Ísafjörður hf. rekur gist- ingu á fimm stöðum. Hótel Ísafjörð- ur er á tveimur stöðum, sem og Gamla Gistihúsið. Síðan rekur fyrir- tækið Torfnes hótel, sem var áður Eddu-hótel, en það er lokað í sumar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Daníel Jakobsson, annar tveggja hótelstjóra á Hótel Ísafirði, segir ánægjuefni hversu vel Íslendingar hafi tekið við sér í sumar. „Íslendingurinn hefur tekið mjög vel við sér. Hann ætlar greinilega að ferðast innanlands í sumar. Það er skemmtilegt að fá Íslendinga, enda hafa alltof fáir komið vestur. Þá hjálpaði það mikið hvað Íslendingar voru duglegir að koma vestur sl. vet- Aukin eftirspurn frá Íslendingum  Hótelstjóri á Hótel Ísafirði segir verð á gistingu hafa lækkað mikið milli ára Daníel Jakobsson 9. júní 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 131.47 Sterlingspund 166.01 Kanadadalur 97.48 Dönsk króna 19.971 Norsk króna 14.11 Sænsk króna 14.287 Svissn. franki 137.2 Japanskt jen 1.2033 SDR 181.6 Evra 148.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.4827 Hrávöruverð Gull 1709.55 ($/únsa) Ál 1553.5 ($/tonn) LME Hráolía 39.84 ($/fatið) Brent ● KKV Investment Management Ltd., dótturfélag Kvika Securities Ltd., sem er dótturfélag Kviku banka hf. í Bretlandi, hefur formlega gengið frá samningum um stýringu á tveimur breskum veðlána- sjóðum. Í tilkynningu frá bankanum segir að hrein eign sjóðanna sé samtals rúmlega 70 milljarða króna virði. Sjóðirnir heita annarsvegar KKV Secured Loan Fund, og eru hlutabréf hans skráð á aðallista kauphallarinnar í London, og hinsvegar SQN Secured In- come Fund. Hlutabréf þess sjóðs eru einnig skráð í kauphöllinni í London. Í tilkynningu Kviku segir að í tengslum við yfirtöku samninganna muni KKV ráða um 18 sérfræðinga en meirihluti þeirra hefur unnið við stýr- ingu sjóðanna undanfarin ár. Spenntur yfir tækifærinu Gunnar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Kvika Securities Ltd., segist í til- kynningunni vera afar ánægður með að hafa lokið samningunum. „Við erum spennt yfir því mikla tækifæri sem KKV stendur frammi fyrir.“ Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka hf., segir í tilkynningunni að rekstur Kviku í Bretlandi hafi gengið vel og hafi skilað hagnaði á síðasta ári. „Þeir nýju samningar sem KKV hefur nú gert um stýringu tveggja sjóða sem skráðir eru í Kauphöllinni í London eru því sérstaklega ánægjuleg skref fyrir starfsemi okkar í Bretlandi og fellur vel að þeirri stefnu Kviku að leggja áherslu á eigna- og sjóðastýringu.“ Stýra 70 milljörðum króna í Bretlandi Stýring Kvika starfar í Bretlandi. STUTT ● Samkvæmt tilraunatölfræði Hag- stofu Íslands, sem birt er á vef stofn- unarinnar, voru 88 fyrirtæki sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins tekin til gjaldþrotaskipta í apríl síðastliðnum. Af þeim voru 48 virk á fyrra ári, þ.e. annaðhvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, eða 60% fleiri en í sama mánuði fyrra árs. Í tölfræðinni segir einnig að af þeim 48 fyrirtækjum sem tekin voru til gjald- þrotaskipta í apríl 2020 og voru virk ár- ið 2019 voru 16 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 4 í heild- og smásölu- verslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. Átján voru í einkennandi greinum ferðaþjónustu og 10 í öðrum atvinnugreinum. 467 launþegar Fyrirtæki sem tekin voru til gjald- þrotaskipta í apríl voru með 467 laun- þega að meðaltali yfir árið 2019 og 3,4 milljarða króna veltu. Þar af voru 276 launþegar hjá fyrirtækjum í einkenn- andi greinum ferðaþjónustu og var velta þeirra um 2,2 milljarðar króna. 88 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í apríl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.