Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
AFP
Minneapolis Þessi mótmælandi minntist George Floyds á sunnudaginn.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Borgarfulltrúar í Minneapolis til-
kynntu í fyrrinótt að þeir hygðust
leggja niður lögreglulið borgarinn-
ar í núverandi mynd. Ákvörðunin er
tekin í kjölfar mótmæla gegn kyn-
þáttahyggju innan lögreglunnar,
sem nú hafa staðið yfir í tvær vikur
um gervöll Bandaríkin eftir að
George Floyd var myrtur í haldi
fjögurra lögreglumanna frá Minn-
eapolis.
„Við samþykktum að taka í sund-
ur lögvörslu eins og við þekkjum
hana í Minneapolisborg og byggja
upp á nýtt með samfélaginu nýja
fyrirmynd í almannaöryggi, sem
ver samfélagið okkar í reynd,“ sagði
Lisa Bender, forseti borgarstjórnar
Minneapolis, við CNN-fréttastof-
una. Jacob Frey, borgarstjóri
Minneapolis, hefur hins vegar lagst
gegn áformum um að leggja lög-
reglu borgarinnar niður, en baulað
var á hann á mótmælum helgarinn-
ar þegar hann sagðist vera mótfall-
inn þeim hugmyndum. Frey sagði
við fjölmiðla að hann styddi umbæt-
ur til að vinna gegn kerfislægri kyn-
þáttahyggju innan lögreglunnar en
ekki að leggja hana alfarið niður.
Lögreglumenn beri ábyrgð
Krafa um að leggja niður eða
draga verulega úr fjárframlögum til
lögreglunnar hefur verið áberandi í
mótmælunum til þessa, en undir-
tektirnar hafa verið misjafnar. Bill
de Blasio, borgarstjóri New York-
borgar, lofaði því á sunnudaginn að
skera niður fjárframlög til lögregl-
unnar þar í borg, og sum önnur
sveitarfélög hyggjast banna notkun
táragass og gúmmíkúlna til þess að
hafa hemil á mótmælum.
Samtök svartra þingmanna á
Bandaríkjaþingi hugðust hins vegar
leggja fram frumvarp í fulltrúa-
deildinni í gær, sem á að gera það
auðveldara að ákæra lögreglumenn
fyrir manndráp og banna handtöku-
aðferðir sem leitt geti til andnauðar
líkt og í tilfelli George Floyds. Þá
vilja þingmennirnir láta setja upp
gagnagrunn, þar sem lögreglu-
ofbeldi verði skráð.
Óvíst er hins vegar hvort frum-
varpið muni njóta stuðnings innan
öldungadeildarinnar, þar sem repú-
blikanar eru með meirihluta, eða
hvort Donald Trump Bandaríkja-
forseti myndi beita neitunarvaldi
sínu á frumvarpið.
Niðurrifið „glæpsamlegt“
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, gagnrýndi framferði
sumra mótmælenda þar í landi um
helgina og sagði þá hafa grafið und-
an mótmælunum með „fantaskap“.
Allt að fjórtán lögreglumenn hlutu
áverka eftir mótmæli helgarinnar
og ókvæðisorð voru máluð á styttu
Winstons Churchills við breska
þinghúsið.
Þá gagnrýndu bæði Johnson og
Keir Starmer mótmælendur fyrir
að hafa rifið niður í leyfisleysi
styttu af Edward Colston, kaup-
sýslumanni frá 17. öld í Bristol, en
hann lét flytja um 100.000 þræla frá
Afríku vestur um haf, og er talið að
um 20.000 af þeim hafi ekki lifað
ferðalagið af. Styttunni var svo rúll-
að að höfn borgarinnar og varpað í
sjóinn.
Sagðist Johnson skilja tilfinning-
ar þeirra sem rifu niður styttuna en
það væri samt sem áður glæpsam-
legt athæfi og að lögreglan myndi
vilja ákæra þá sem bæru ábyrgðina
á því.
Flestir í Bretlandi virðast þó
sammála um að ekki eigi að reisa
styttuna aftur á sama stað. Marvin
Rees, borgarstjóri Bristol, sagði að
styttan hefði ávallt verið móðgandi
fyrir sig og aðra íbúa borgarinnar
af svipuðum uppruna, en faðir Rees
er frá Jamaíku. Sagði Rees að stytt-
an yrði á endanum veidd upp úr
höfninni og sett á safn.
Vilja leggja niður lögregluna
Borgarfulltrúar í Minneapolis vilja huga að öðrum háttum við löggæslu Boris Johnson segir
„fantaskap“ hafa grafið undan mótmælunum í Bretlandi Styttan af þrælasalanum verður flutt á safn
Powell ætlar
að kjósa
Joe Biden
Colin Powell,
hershöfðingi og
fyrrverandi utan-
ríkisráðherra
George W. Bush,
sagði í fyrrinótt
að hann myndi
kjósa demókrat-
ann Joe Biden í
forsetakosning-
unum í haus. Sak-
aði hann Donald Trump Bandaríkja-
forseta um að hafa vikið frá
grundvallargildum stjórnarskrár
Bandaríkjanna og gagnrýndi repú-
blíkana harðlega fyrir að hafa ekki
látið Trump bera ábyrgð. „Hann
lýgur um hluti og kemst upp með
það, því fólk vill ekki gera hann
ábyrgan orða sinna,“ sagði Powell
og gagnrýndi Trump fyrir að hafa
móðgað „hér um bil alla í heim-
inum,“ sér í lagi nána bandamenn
Bandaríkjanna.
Powell var á sínum tíma fyrsti
svarti hershöfðinginn til þess að
vera skipaður formaður herráðs
Bandaríkjanna, undir forsæti
George Bush eldri.
Colin Powell
Trump hafi vikið
frá stjórnarskránni
Bandarísk yfirvöld hafa farið þess á
leit við Breta að þau fái að yfir-
heyra Andrés Bretaprins vegna
tengsla hans við barnaníðinginn
Jeffrey Epstein.
Andrés hefur hingað til neitað að
svara spurningum saksóknara í
New York vegna glæparannsóknar
í tengslum við Epstein, sem tók eig-
ið líf síðasta haust eftir að hafa ver-
ið handtekinn.
Eitt af fórnarlömbum Epstein,
Virginia Roberts Giuffre, sakar
Andrés um að hafa haft samræði
þrisvar við sig á árunum 2001-2002,
þar af tvisvar meðan hún var undir
lögaldri. Andrés neitar allri sök.
Andrés lét af konunglegum emb-
ættisskyldum sínum á síðasta ári
eftir að viðtal hans við BBC-
sjónvarpsstöðina, þar sem hann
reyndi að hreinsa sig af ávirðing-
unum, þótti misheppnast.
Vilja yfirheyra prins-
inn vegna Epstein
BRETLAND
AFP
Epstein Andrés Bretaprins verður
mögulega yfirheyrður vegna Epstein.
Stuðningsmaður Jair Bolsonaro, forseta Brasilíu, lagar
hér andlitsgrímu með mynd af forsetanum í ofur-
hetjubúningi, á stuðningsfundi sem haldinn var á Copa-
cabana-ströndinni frægu í Rio de Janeiro.
Fjölmenni var á götum allra helstu borga Brasilíu í
gær og mættu bæði stuðningsmenn og andstæðingar
Bolsonaros til þess að segja skoðun sinni á forsetanum
umdeilda og viðbrögðum hans við heimsfaraldrinum.
AFP
Fjölmenni á mótmælum í Brasilíu