Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020
Í miðbænum Sumarið er gengið í garð með hlýrra veðri og lífi í miðbæ Reykjavíkur. Þessi kona virti mannlífið fyrir sér af bekk á horni Klapparstígs og Skólavörðustígs.
Eggert
Jin Zhijian, sendi-
herra Kína, skrifar
grein í Mbl. 4. júní til
varnar ákvörðun
Kommúnistaflokks
Kína að svíkja samn-
inginn um „Eitt land,
tvö kerfi“ sem Kína
lofaði í sameiginlegri
yfirlýsingu 1984 og
átti að tryggja sjálf-
stjórn Hong Kong án
þvingandi komm-
únisma eftir afhendingu Hong
Kong til Kína 1997. Núna ganga
kommúnistar á bak orða sinna með
lögum um „tryggingu þjóðarör-
yggis“ sem samþykkt var á nýaf-
stöðnu þingi Kommúnistaflokks
Kína. Kommúnistar ætla að þvinga
Hong Kong undir einræði kín-
verska kommúnistaflokksins til að
fylgja einræðisreglu flokksins „Eitt
land, eitt kerfi“. Christopher Pat-
ten, fyrrum samningamaður Bret-
lands vegna afhendingar Hong
Kong, segir að heimurinn sjái nú
framan í hið „nýja einræði í Kína-
“.Samningurinn „Eitt land, tvö
kerfi“ átti að tryggja stjórn-
málalegt og efnahagslegt frelsi í
Hong Kong fram til ársins 2047.
Það hefur sjálfsagt
ekki verið nein til-
viljun af hálfu kín-
verska sendiherrans
að birta greinina á 31.
árs afmælisdegi blóð-
baðsins á Torgi „him-
neska friðarins“ í Pek-
ing, þegar þúsundir
vopnlausra náms-
manna voru drepnar
fyrir að færa fram
sanngjarnar kröfur um
málfrelsi og lýðræði.
Það eru þögul skilaboð
um að beiting vopna er
hluti valdakerfis kínverskra komm-
únista bæði innanlands sem erlend-
is. Mbl. skrifaði í leiðara 6. júní
1989 að „Alþýðuhernum kínverska
hefur nú verið beitt gegn alþýðu
eigin lands af hóflausri grimmd“. Á
sama hátt ætlar kommúnistaflokk-
urinn að ógna og berja íbúa Hong
Kong til hlýðni við sig með nýju
lögunum um „þjóðaröryggi“.
Íbúar Hong Kong eru sviknir af
kommúnistum, sem kalla sann-
gjarnar kröfur um lýðræði og sjálf-
stjórn „hryðjuverk og erlenda íhlut-
un“. Sú grimmd sem í vændum er
verður ekki falleg og mun bætast á
þegar blóðugar hendur kínverskra
kommúnista. Vonandi munu ríkis-
stjórnir fleiri landa en Ástralíu,
Kanada, Bandaríkjanna og Bret-
lands bætast í hóp þeirra lýðræðis-
ríkja sem mótmæla og fylkja liði
gegn þessu samningsbroti sem
stríðir gegn vilja íbúanna í Hong
Kong og öllum viðteknum og
traustum lýðræðislegum sam-
skiptum í heiminum. Bretar munu
rækja skyldur sínar og tengsl við
íbúa Hong Kong og hafa þegar boð-
ið á þriðju milljón Hong Kong-búa
bresk skilríki. Fyrir Ísland sem eitt
af elstu lýðræðisríkjum heims verð-
ur það sjálfsagður hlutur að styðja
lýðræði og mannréttindi hvar sem
er í heiminum og standa með
tveimur helstu bandamönnum sín-
um Bandaríkjunum og Bretum og
mótmæla valdníðslu Kína á frið-
sömum íbúum Hong Kong.
Það er skiljanlegt að jörðin
brenni undir kínverska komm-
únistaflokknum eftir framkomu við
eigin landsmenn, starfsmenn
sjúkrahúsa, smitsjúkdómasérfræð-
inga og vísindamanna í því skyni að
fela upplýsingar um veiruútbrotið í
Wuhan bæði innanlands og utan.
Ákvarðanir forráðamanna kommún-
istaflokksins, þegar smituðu fólki
var leyft að ferðast frá Wuhan eftir
áramótafagnað og dreifa smiti út
um allan heim, eru glæpur gegn
mannkyni sem kostað hefur hundr-
uð þúsunda mannslífa og skapað
djúpa efnahagskreppu um allan
heim. Það þýðir lítið að fylgja eftir í
spor veirunnar og nýta sér sviðna
jörð hennar til að breiða yfirráð
kommúnismans út um heiminn.
Mörg lönd sjá þegar í gegnum lyga-
vef kínverskra kommúnista eins og
ákvörðun um rannsókn á uppruna
og meðhöndlun á útbroti veirunnar
sýnir. Mörg lönd eins og t.d. Ástr-
alía og Svíþjóð hafa sett sérstaka
löggjöf til að koma í veg fyrir upp-
kaup stórra kínverskra ríkisfyrir-
tækja á þýðingarmiklum fyrir-
tækjum landa sinna, en það virðist
vera markmið kínverskra komm-
únista að komast inn í öryggis-
búnað sérhvers ríkis Vesturlanda.
Fjöldi ríkja flytur framleiðslu frá
Kína til heimalandanna. En í stað
þess að vinna með þeim sem hafa
stutt þá á legg og leggja gögnin á
borðið eyðileggja kínverskir komm-
únistar sönnunargögn um veiru-
rannsóknir í Wuhan og neita al-
þjóðasamstarfi um rannsókn á
uppruna veirunnar. Allt þetta sýnir
að mannslíf skipta kínverska
kommúnista ekki máli heldur hefur
kommúnistaflokkurinn sett í hærri
gír vígbúnaðarkapphlaups og
heimsyfirráða sem beinist gegn
Vesturlöndum og þá sérstaklega
Bandaríkjunum sem Kommúnista-
flokkurinn í Kína telur vera höfuð-
óvin sinn.
Íslendingar þurfa að athuga og
endurskoða núverandi utanríkis-
stefnu vegna gjörbreytts ástands í
heimsmálunum vegna hernaðar- og
heimsyfirráðastefnu kínverska
Kommúnistaflokksins. Kína er líkt
og tígrishvolpur sem núna er orð-
inn nógu stór til að éta uppalanda
sinn.
Hafi einhver trúað því að hægt
væri að „kaupa kommúnista“ til að
breytast í lýðræðissinna, þá er slíkt
misskilningur eins og svo margir
eru að fá bitra reynslu af um þessar
mundir. Íslendingar þurfa að vera
varkárir og gæta þess að dauðans
beitt stálkló kínverska tígrisdýrsins
slái ekki til og sundri landi okkar,
þegar kommúnistar reyna að hefna
sín á þeim sem einungis vilja lifa í
friði og ráða málum sínum sjálfir
rétt eins og þeir eru að gera gagn-
vart vinum okkar í Hong Kong.
Eftir Gústaf Adolf
Skúlason »Kína er líkt og tígris-
hvolpur sem núna er
orðinn nógu stór til að
éta uppalanda sinn
Gústaf Adolf
Skúlason
Höfundur er fv. ritari Evrópska
smáfyrirtækjabandalagsins.
Heimsyfirráðastefna kínverska kommúnismans
kallar á breytta utanríkisstefnu Íslands