Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar OpinN handavinnuhópur kl. 12-16.. Sögustund af hljóðbók kl. 10.30. Hugarþjálfun, leikir og spjall kl. 13.30. Velkomin. S. 411-2600. Boðinn Gönguhópur kl. 10.30. Bingó kl. 13. Sundleikfimi kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Hádeg- ismatur kl. 11.30-12.30. Handavinnuhorn kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum eftir Samfélagssáttmálanum, og þannig tryggjum góðan árangur áfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Jónshús/ félags- og íþróttastarf, s. 512-1501: Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8:30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Félag eldri borgara í Garðabæ, s. 565-6627, skrifstofa opin miðvikudaga kl. 13.30-15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Stólaleikfimi kl. 13.30. Kaffi- sala frá kl. 14.30-15.30. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum og Grafarvogskirkju. Petan með Ráðhildi og Magnúsi kl. 13 við Gufunesbæ. Hádegisverður og kaffi- tímar á sínum stað. Minnum á skráningu í Korpúlfaferðir í sumar, þátttökulistar liggja frammi í Borgum. Seltjarnarnes Gler og leir kl. 9 og 13. Búið að opna fyrir alla sem skráðir eru. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í sanum á Skólabraut kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Virðum samfélagssáttmálann. Höldum áfram að þvo hendur og spritta og virðum fjarlægðarmörk. Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera     ! Atvinnuauglýsingar Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Jón Þór Þor-bergsson fædd- ist í Hraunbæ í Álftaveri 27. apríl 1937. Hann lést 23. maí 2020 á hjúkr- unarheimilinu Klausturhólum. Foreldrar hans voru Þorbergur Bjarnason frá Efri- Ey í Meðallandi, f. 4.5. 1902, d. 22.11. 1994, og Guðlaug Marta Gísla- dóttir frá Norðurhjáleigu í Álftaveri, f. 4.9. 1903, d. 2.9. 1989. Jón var níundi í röð þeirra þrettán systkina sem komust á legg, eitt fæddist andvana og eru sex þeirra á lífi. Systkini Jóns eru: Þóra Þorbergsdóttir, f. 6.7. 1927, d. 28.5. 2018, maki Hjálmar Böðv- arsson, d. Bjarni Þorbergsson, f. 4.8. 1928, d. 19.6. 2016. Gísli Guðni Þorbergsson, f. 15.11. 1929, d. 26.6. 2010, maki Sig- urbjörg Valmundsdóttir. Vil- hjálmur Þór Þorbergsson, f. 4.8. 1931, d. 17.2. 1992, maki María Henley. Guðrún Erla Þorbergsdóttir, f. 1.7. 1933, maki Albert Jóhannsson, d. Einar Þorbergsson, f. 25.10. 1934, maki Arnþrúður Hall- dórsdóttir, d. Fjóla Þorbergs- dóttir, f. 25.10. 1934, maki Ás- geir P. Jónsson, d. Guðlaug Þorbergsdóttir, f. 7.12. 1935, maki Böðvar Kristjánsson, d. 1961 vann hann hjá Vegagerð ríkisins. Frá vori 1962 til 1964 starfaði hann hjá Kaupfélagi Skaftfellinga og hjá Austurleið 1961-1969. Jón hóf nám í lög- regluskólanum í nóvember 1969 og tók lokapróf þar í maí 1972, hann starfaði í lögregl- unni í Reykjavík frá 1969 og síðan skipaður varðstjóri þar 4. apríl 1986. Þann 11. mars árið 1967 kvæntist Jón Margréti Maríu Guðmundsdóttur, f. 29.7. 1944, Reykjavíkurmey. Hún er dóttir hjónanna Hólmfríðar Brynjólfs- dóttur og Guðmundar Magn- ússonar. Saman eignuðust þau 4 börn en áttu bæði eitt barn fyrir. Margrét átti fyrir 1) Hólmfríði Jónsdóttur, f. 21.8. 1963, d. 5.2. 1995. Hún var kjördóttir Jóns en er fædd Gylfa Gunnarssyni. Jón átti 2) Guðbjörgu Rut Pálmadóttur, f. 1966, með Heiðrúnu Rútsdótt- ur, hún ólst upp hjá móður sinni og kjörföður, Pálma Frí- mannssyni. Guðbjörg á tvo syni og býr nú með Einari Ólafi Karlssyni. Saman áttu Jón og Margrét 3) Guðmund, f. 1967, hann á tvö börn og eitt barna- barn. Sambýliskona hans er Valgerður Sveinsdóttir. 4) Guð- laug Þóra, f. 1969, hún á eina dóttur. 5) Ragnhildur Hrund, f. 1973, hún á eina dóttur og eina fósturdóttur, eiginmaður henn- ar er Einar Kristinn Stefáns- son. 6) Þorbergur Bjarni, f. 1982, hann á 2 börn og 3 fóst- urbörn, eiginkona hans er Guð- ný Lára Egilsdóttir. Jón Þór verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju 9. júní 2020 klukkan 13. Anna Sigríður Þor- bergsdóttir, f. 23.7. 1938, d. 10.1. 2013, maki Guðgeir Sumarliðason. Guðrún Þorbergs- dóttir, f. 25.3. 1941, d. 17.3. 1997, maki Metúsalem Björnsson, d. Kjartan Þorbergs- son, f. 17.10. 1944, maki Ingveldur Ásta Hjaltadóttir. Sigurveig Jóna Þorbergsdóttir, f. 23.12. 1945, maki Kristján Hálfdán- arson. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum í Hraunbæ og bjó þar til vorsins 1954. Fór þá til starfa fjarri heimahögum og var lang- dvölum að heiman eftir það, en hafði lögheimili í Hraunbæ allt til ársins 1967. Hann lauk grunnskólaprófi í barnaskól- anum á Herjólfsstöðum í Álfta- veri. Jón starfaði frá 10 ára aldri sem vörslumaður á sumr- in við mæðiveikigirðinguna á Mýrdalssandi, með föður sínum og systkinum, eða frá árinu 1947 til haustsins 1953. Hann hóf störf hjá Landssíma Íslands vorið 1954 (línuflokki Júlíusar Jónssonar, sem fór um Vest- firði og víðar það sumar og það næsta en Júlíus hætti þá störf- um hjá LÍ) og vann þar og hjá Bæjarsíma Reykjavíkur með hléum til 1961. Sumrin 1960 og Elsku afi, nú ertu loksins bú- inn að fá hvíldina frá þjáning- arstríði. Dagsverkinu er lokið og þú mátt vera stoltur af verki þínu. Mikið afskaplega er það sárt en minningarnar eru marg- ar og góðar. Afi minn var mikið hreysti- menni og dugnaðarforkur en ró- legri menn eru vandfundnir. Hann var fær um að gera allt, fór það á þrjóskunni, oft voru verkin erfið og tímafrek, en þegar allt var yfirstaðið, sama á hverju hafði gengið, þá var afi vanur að segja: „ja, þetta gekk nú vel“. Mínar fyrstu minningar um afa eru reiðtúrarnir á Kjóavöll- um, ég var einungis tveggja ára og minningin óljós, hann reiddi mig fyrir framan sig á hnakk- nefinu, fórum við hring á Kjóa- völlunum á honum Laxa. Síðan eru það ótal hestaferðir og stússið í kringum hrossin, ferðir í Efri-Rot og Hraunbæ. Eitt sinn þurftum við mamma að koma hrossum úr Skaftártungu og niður í Meðalland, afi ætlaði að hjálpa okkur og búið var að ákveða dag. Þennan tiltekna dag var leiðndaferðaveður, rok og skúragangur, en afa var ekki haggað, það var búið að ákveða að fara með hrossin þennan dag. Mamma og afi skiptust á að keyra bílinn og ég reið alla leið því ég var ekki komin með bílpróf. Ég man hvernig regn- droparnir börðu andlitið, ég hélt mér í hnakknefið til að fjúka ekki af, lokaði augunum og skýldi andlitinu. En á leið- arenda komumst við og þá sagði afi: „Þetta gekk nú vel“. Afi var ekki bara hestamað- ur, hann var líka mikill nátt- úruunandi. Eitt sinn fór hann gangandi með mig og Hlyn frænda minn að Strútslaug, eft- ir það fékk hann viðurnefnið sjö mílna afi, því hann tók svo stór skref og fór hraðar yfir en við. Við stoppuðum reyndar ört til að tína steina, honum fannst við drolla heldur mikið en hafði ekki orð á því heldur labbaði hann þangað til við nánast hurf- um úr augsýn og beið svo þar til við vorum farin að nálgast, þá tók hann aftur á rás. Afi byrjaði líka langt á undan sinni samtíð að kolefnisjafna og það er bókað mál að hann skilur ekki eftir sig kolefnisspor á þessari jörð og trúlega er hann búin að kolefnisjafna fyrir okk- ur afkomendurna líka. Hann gróðursetti mikið og var byrj- aður að plokka áður en það orð var farið að heyrast í okkar tungumáli. Afi átti það til að stoppa bílinn jafnvel á Mýrdals- sandi til að fara út og tína upp rusl, en þá aðallega dósir, og þegar hann var orðinn of stirður sjálfur sökum aldurs sendi hann okkur Hólmfríði úr bílnum að tína upp. Ég man eitt skiptið þótti okkur Hólmfríði það frekar vandræðalegt, þá tók afi u-beygju, stoppaði á bíla- plani fyrir utan búðina og sendi okkur út að taka upp flösku sem hann sá þar. Afi greindist svo með Lewy body-heilabilun og þurfti að ganga í gegnum ýmislegt sem erfitt er að gera sér grein fyrir. Hann missti hreyfigetu, átti erf- itt með að tala og tjá sig og minnið sveik af og til. En það sem karlinn tæklaði sjúkdóminn vel, hann var með einstakt geðslag. Takk afi. Ég er þakklát fyrir samfylgd þína frá því ég fæddist og til dagsins í dag, ég ætla að reyna að verða eins og þú. Minning þín lifir í hjarta mínu. Hulda Jónsdóttir. Höfðinginn Jón Þór Þor- bergsson frá Hraunbæ í Álfta- veri, hefur kvatt þetta jarðlíf. Ég kynntist Jóni árið 1983 þegar við Guðmundur sonur hans urðum miklir vinir. Það var hestamennska sem var áhugamál okkar og fórum við nafnarnir margar ferðir með Jóni austur í Skaftafellssýslu á hestum. Voru þetta miklar skemmtiferðir, þar sem Jón naut sín vel á heimaslóðum, af- ar traustur og góður ferðafélagi sem passaði upp á allt hjá okk- ur ungu mönnunum. Það var farið í heimsóknir á bæi og þar urðu til skemmtilegar sögur sem lifa enn og eru oft sagðar, mikið hlegið og alltaf gaman. Jón var harðduglegur og árið 1985 tók hann að sér að rífa öll mannvirki á Melavellinum. Þar var hann í essinu sínu og náði að nýta flesta hluti sem til féllu og sendi heilu vörubílsfarmana af byggingarefni austur í Skaftafellssýslu sem bændur nýttu til húsbygginga og fleira. Það var gaman að vinna með Jóni og sá maður vel hvað hann var hraustur og vinnusamur. Alltaf var stutt í húmorinn. Jón hafði mikinn áhuga á hrossarækt og þar komu skoð- anir hans vel í ljós og var hon- um ekki haggað þar. Af stóð- hestum stóð Gáski 920 frá Hofsstöðum alltaf upp úr sem uppáhaldshestur Jóns og rækt- aði hann út af honum með góð- um árangri. Elsku Margrét, Gummi, Gulla, Ragga, Þorbergur og fjölskyldur. Innilegar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Guðmundur Gíslason. Jón Þór Þorbergsson Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Ég var þremur og hálfu ári eldri enn Ægir-Ib og var litla mamman hans frá fæðingu til 9 ára aldurs, eftir það var ég Syst- ir, og það var sagt eins og ég væri mjög elskuð systir. Margar og góðar eru bernskuminning- arnar. Alt frá göngutúrum í hrauninu eða niður að sjó, yfir í þriggja vikna tjaldferðalag, þar sem hver einasti dagur endaði með göngutúr, ostabrauðsneið sem var dýft í heitt súkkulaði og Ægir-Ib Wessman ✝ Ægir-IbWessman fæddist 12. sept- ember 1963. Hann fórst ásamt konu sinni Ellen Dahl Wessman og syni Jon Emil Wess- man 9. júní 2019. Útför þeirra fór fram 21. júní 2019. svo í svefnpokann þar sem var talað og hlegið áður en við sofnuðum. Í ökutúrum, hvort sem þeir voru stutt- ir eða langir, söng öll fjölskyldan há- stöfum. Sumarfríin voru að öllum lík- indum meðvirkandi að bróðir byrjaði í skátunum. Mörg hafa trúnaðarsamtölin verið milli okkar systkinanna. Öll mál- efni voru til umræðu sem við höfðum þörf fyrir stuðning eða skoðun á. Foreldrar okkar lögðu grundvöllinn fyrir samheldni, umhyggju og kærleika. Eftir að við systkinin fluttum að heiman og fengum okkar eigin fjöl- skyldu, höfum við notað hvert tækifæri til að hittast. Annað- hvort með fjölskyldum okkar eða bara við fimm. Samveru- stundirnar þar sem við vorum bara við systkinin og foreldrar okkar voru sérstakar og gáfu endurnæringu á kærleikanum og samheldninni sem hefur alltaf verið á milli okkar. Slíka sam- verustund höfðum við fimm fjór- tán dögum fyrir slysið. Bróðir minn var verklaginn, vandvirkur og framkvæmda- samur. Hann var alltaf með eitt eða tvö verkefni í gangi. Ég nefni sem dæmi fulla endurnýj- un á heimilinu þeirra í Thorkils- rud, teiknaði og kom upp ein- býlishúsinu í Holbæk, flugvallarskýlið á Reykjarvíkur- flugelli og bygginguna sem var í gangi í Múlakoti. Ægir-Ib var með algjöra véladellu. Hann keypti gamla bíla og mótorhjól og gerði upp. Hann stefndi á flugið frá unga aldri. Hefði hann hugsjón eða draum var það framkvæmt. Hann fékk flugpróf sem einka- flugmaður áður en hann náði aldri til að fá ökuskírteini. Tím- inn í WOW voru bestu atvinnu- árin hans. Hann var yfir sig hrif- inn af viðmóti og starfsanda. Ægir-Ib var ekki að flýta sér að skrifa undir nýjan vinnusamn- ing eftir gjaldþrot WOW air. Því eins og hann sagði; ég er búinn að fljúga öllum þeim flugvélum sem mig langar að fljúga, ég er búinn að hafa stórkostlega vinnustaði og við viljum búa á Íslandi. Ægir-Ib átti ekki auðvelt með að gefa sig. Meiningar hans voru sterkar bæði í orði og verki. Honum lá hátt rómur og hann fór ekki í felur með skoðanir sín- ar og gekk beint til verks. Alltaf sjálfum sér samkvæmur. Bróðir var mikil tilfinninga- maður og sýndi það. Hann gaf í ríkum mæli fjölskyldu og vinum kærleika, umhyggju og tryggð. Hann elskaði samverustundir með fjölskyldunni og vinum. Hann var alltaf hrókur alls fagn- aðar þegar það voru veislur. Hann var mikill ævintýramaður og framkvæmdi drauma sína. Elskulega fjölskyldan okkar á Grettisgötu lifði lífinu og naut stundarinnar. Við sem vorum lífsförunautar Ægir-Ibs, Ellenar og Jón Emils erum orðin fátækari og heimur- inn kaldari eftir að þau hurfu af sjónarsviðinu. Elsku bróðir, mágkona og litli frændi, takk fyrir alltof stutta samfylgd, kærleika og yndisleg- ar samverustundir. Elska ykkur og sakna ykkar. Systir. Innilegt þakklæti til ykkar allra sem hafið veitt mér og mín- um, stuðning og umhyggju síð- astliðið ár. Bergþóra Laila Wessman Søreide. Meira: mbl.is/andlat.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.