Morgunblaðið - 09.06.2020, Side 24

Morgunblaðið - 09.06.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðar- gjafir eru meðal efnis í blaðinu. - meira fyrir áskrifendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir kl. 12, mánudaginn 15. júní. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is BRÚÐKAUPSBLAÐ Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 19. júní SÉRBLAÐ 40 ára Sigtryggur er úr Kópavogi en býr í Reykjavík. Hann er lög- fræðingur að mennt frá HR og er löglærður fulltrúi í rannsóknar- deild hjá Skattinum. Maki: Valgerður Sig- urðardóttir, f. 1986, viðskiptafræðingur og deildarstjóri afgreiðslu og þjónustu hjá Skattinum. Börn: Tómas Ari, f. 2003, og stjúpbörn eru Júlía Mekkín Guðjónsdóttir, f. 2008, og Egill Kári Guðjónsson, f. 2013. Foreldrar: Kolbeinn Gíslason, f. 1955, bæklunarskósmiður, bús. í Ottawa, Kan- ada, og Ingibjörg Sigtryggsdóttir, f. 1956, vinnur hjá Stoð, búsett í Kópavogi. Sigtryggur Kolbeinsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú geislar af krafti og ert tilbúinn til að hefjast handa hvort sem er í starfi eða einkalífi. Reyndu svo að áætla betur framhaldið. 20. apríl - 20. maí  Naut Leitaðu ánægjunnar í öllum hlutum, líka þeim litlu sem virðast ekki hafa upp á margt að bjóða. Slakaðu á og vertu skyn- samur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu þér ekki bregða þótt margt óvænt gerist í dag og þú eignist jábræður sem þú hafðir allra síst átt von á. Vertu ekki of óþolinmóður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gætir átt erfitt með að ná sam- komulagi við einhvern í dag. Leystu litlu vandamálin á meðan þau eru enn lítil. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er betra að eiga sér góðan trún- aðarvin en byrgja allt innra með sér, því það getur verið skaðlegt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú átt umfram allt að stefna að því að láta drauminn rætast, hversu fjarlægt sem takmarkið virðist í upphafi. Leggðu inn í gleðibankann líka. 23. sept. - 22. okt.  Vog Stundum er betra að láta kjurt liggja og það skaltu hafa í huga þegar þú hittir fólk sem hefur gert eitthvað á þinn hlut. Gefðu þér líka góðan tíma. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt hlutirnir gangi eitthvað skrykkjótt fyrir sig. Taktu áhættu í nýrri leið til fjáröflunar. Láttu fara vel um þig, svo öðrum líði vel með þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hvort sem þér líkar betur eða verr þá muntu sennilega vekja athygli ann- arra með einhverjum hætti í dag. Aukin ábyrgð krefst nákvæmari skipulagningar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ekki allt gull sem glóir og margt reynist eftirsókn eftir vindi. Tal- aðu við maka, viðskiptavini eða aðra um það sem þig langar til þess að áorka. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það hefst ekkert nema menn séu reiðubúnir til þess að sækja hlutina. Einbeittu þér að fjölskyldunni í dag. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þetta er undirbúningstími í lífi þínu. Sjálfsöryggi og þolinmæði skiptir miklu máli þegar þú leysir úr vanda- málum. inn einn úr hverfinu, eins og sagt er.“ Þór flutti heim til Íslands 1997 og hóf störf á tölfræðisviði Seðlabanka Íslands sem deildarstjóri við upp- setningu á gagnagrunnskerfi fyrir tölfræðigögn Seðlabankans, fjár- málaráðuneytisins og Þjóðhagsstofn- unar. Þór lauk og námi til kenn- araréttinda á framhaldsskólastigi við Háskólann á Akureyri árið 2000 og kenndi í hlutastarfi þjóðhagfræði og rekstrarhagfræði við Tækniskólann. Eftir fimm ár í Seðlabankanum lá leið Þórs til Lánasýslu ríkisins þar sem hann starfaði sem deildarstjóri yfir Ríkisábygðasjóði. Samhliða því var Þór í virku samstarfi Lánasýsl- unnar og OECD í París sem sérfræð- ingur í skuldastýringu ríkissjóða og þegar Lánasýslan var lögð niður árið 2007 fór Þór alfarið til starfa fyrir OECD og var meðal annars að- alráðgjafi OECD í samstarfsverkefni OECD og Afríkuríkja um skuldastýr- ingu ríkissjóða í Afríku. „Íslenska stjórnsýslan var um margt langt á eftir þeirri stjórnsýslu sem ég kynntist í Bandaríkjunum, vinnubrögðin ekki eins öguð og skipulögð og allt og allir virtist vera undir einhvers konar pólitískum járn- hæl þannig að starfsfólkið sem margt var mjög fært fékk ekki almennilega að njóta sín. Ég kynntist þó mörgu frábæru fólki og þetta var mjög áhugaverð reynsla. Starfið hjá OECD var svo af allt öðru og miklu Sameinuðu þjóðanna þar sem hann ritstýrði einum árgangi af U.N. Stat- istical Yearbook, stærstu útgáfu sam- takanna. „New York var frábær. Ég bjó öll sex árin í Greenwich Village, fyrst eitt ár í West Village sem kallað var en svo í East Village sem einnig gekk undir nafninu Lower East Side eða Alphabet City. Þar í kringum Avenue A og B var lífið heldur betur skraut- legt og hver dagur í raun sem ný bíó- mynd um leið og maður kom út fyrir hússins dyr. Mannlífið í New York er engu líkt og þrátt fyrir hörkulegt útlit og orðspor voru íbúarnir alveg ynd- islegt fólk, um leið og maður er orð- Þ ór Saari fæddist 9. júní 1960 á Miami Beach í Flórída í Bandaríkjunum og ólst þar upp til sex ára aldurs er hann fluttist ásamt móður og systur til Íslands. Þar tóku við Ísaksskóli, Æfingadeild Kennaraskólans, Austurbæjarskól- inn og svo landspróf frá Gagnfræða- skóla Austurbæjar (Vörðuskóla). Þór fór til sjós 16 ára á skip Eim- skipafélagsins og var þar háseti og bátsmaður á skipum félagsins í ára- tug. „Siglingarnar voru mikill reynslubanki og þó mest væri siglt á Evrópu komum við oft til sjaldséðari staða í Austur-Evrópu og lönd eins og Sovétríkin, Eystrasaltsríkin, Pólland og Austur-Þýskaland voru sem annar heimur á þeim tíma. Lengst komst ég þó með Ms. Mánafossi til Nýju- Kaledóníu í Suður-Kyrrahafinu er hann var seldur þangað.“ Eftir áratug til sjós söðlaði Þór um og hóf nám í markaðsfræði við Rík- isháskólann í Suður-Karólínuríki í Bandaríkjunum og útskrifaðist þaðan með láði árið 1991. „Þetta var Am- eríka sem maður sá ekki almennt í fjölmiðlum, afturhaldssamt samfélag þar sem aðskilnaður kynþátta var enn við lýði þótt óformlega væri. Þarna var líka ótrúlega mikil fátækt um leið og komið var skammt út fyrir helstu þjóðleiðir gegnum fylkið. En fólkið var almennt vingjarnlegt og hæglátur Suðurríkja-lífsmátinn var enn ríkjandi.“ Frá Bandaríkjunum lá leið Þórs til Barselóna þar sem hann kenndi ensku á háskólastigi við hótel- og ferðamálaskólann Euroaula og hjá Centre D‘Estudis Catalunyia. Að loknu tæpu ári þar hóf Þór MA-nám í hagfræði við New York University á Manhattan og útskrifaðist þaðan 1994. Samhliða náminu starfaði hann í fjármálageiranum sem hagfræð- ingur hjá The Brenner Group sem þá var til húsa á 47. hæð í World Trade Center II byggingunni. Þaðan fór Þór til The Conference Board sem er helsta fagráð atvinnulífsins í Banda- ríkjunum og starfaði meðal annars með bandaríska viðskipta- ráðuneytinu við yfirfærslu verkefna þaðan til TCB. Síðan lá leið Þórs til skemmtilegra kalíberi þar sem full- komin fagmennska réð ríkjum í öllu sem gert var.“ Þingmennskan var hakkavél Í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar í janúar 2009 eftir að hafa mótmælt með fjöldanum í sex fallega janúar- daga fyrir utan Alþingishúsið varð Þór einn af stofnendum Borgara- hreyfingarinnar, síðar Hreyfing- arinnar, sem bauð fram í kosning- unum á apríl 2009 og var Þór kosinn á Alþingi fyrir Suðvesturkjördæmi. Á Alþingi átti Þór sæti í efnahags- og skattanefnd, fjárlaganefnd, sérnefnd um stjórnarskrármál, allsherjar- nefnd, atvinnuveganefnd, Íslands- deild Vestnorræna ráðsins og var áheyrnarfulltrúi í forsætisnefnd. Þór var á kjörtímabilinu 2009-2013 flutn- ingsmaður með þingmönnum Hreyf- ingarinnar að 62 þingmálum, þar af 32 frumvörpum og 29 þingsályktun- artillögum. „Þingmennskan og atið í kringum hana var í raun alger hakkavél þar sem maður var í vinnunni sjö daga vikunnar í fjögur ár. Þetta voru krefj- andi tímar þar sem reynt var að tjasla saman hrundu samfélagi og stjórn- málum með öllum þeim átökum sem því fylgdu. Aðspurður hef ég lýst þessu þannig að þingstarfið hafi verið mjög áhugavert. Það hafi verið merkileg og mikilvæg reynsla og gert mér kleift að kynnast fólki, landi, þjóð, stjórnsýslu og stjórnskipan á nýju og dýpra plani en áður og líka kennt mér að hægt er að eiga í sam- skiptum við annað fólk við furðuleg- ustu aðstæður. Það fylgir þó með að íslensk stjórnmál eru jafnframt án vafa ömurlegasta vinnuumhverfi sem ég hef nokkurn tíma unnið í.“ Að lokinni veru á Alþingi og eftir alllangt tímabil atvinnuleysis stofn- setti Þór ferðaþjónustuna Hlidsnes Holiday Homes á Álftanesinu sem samanstóð af gistiaðstöðu í tveimur samliggjandi einbýlishúsum og sem ár eftir ár hlaut hæstu einkunn ís- lenskra gististaða frá gestum bók- unarsíðunnar Booking.com. Hann skrifaði líka bók um árin á þingi, „Hvað er eiginlega að þessu Alþingi?“ sem kom út árið 2016 á vegum bóka- Þór Saari, hagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður – 60 ára Úr þingsal Þungt hugsandi þingmenn að takast á við hrunið. Aktívisti frá sextán ára aldri Feðginin Þór og Hildigunnur í óbyggðum S-Afríku 2017. 30 ára Tanja er Reyk- víkingur, ólst upp í Grafarvogi en býr í Mosfellsbæ. Hún er hárgreiðslusveinn að mennt og er í meist- aranámi í hárgreiðslu hjá Tækniskólanum. Tanja hefur einnig lokið förðunarnámi. Dóttir: Gabríela Tara Hafsteinsdóttir, f. 2014. Foreldrar: Aðalheiður Bjarnadóttir, f. 1964, húsmóðir í Mosfellsbæ, og Sig- urður Kristinn Guðfinnsson, f. 1963, mál- ari og söngvari, búsettur í Keflavík. Stjúpfaðir er Kristján Þór Ingvarsson, f. 1965, kvikmyndagerðarmaður. Tanja Dagbjört Sigurðardóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.