Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 26

Morgunblaðið - 09.06.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 hafa sett svip sinn á deildina undan- farin ár. Sérstaklega Stephany, sem hefur verið einn albesti leikmaður hennar síðustu fjögur ár. Hún skilur eftir sig vandfyllt skarð. Lára Kristín Pedersen, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir eru allar farnar, sem og markvörðurinn reyndi Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir. Þetta er gríðarleg blóðtaka og Andri Hjörvar Albertsson, sem nú stígur fram sem aðalþjálfari eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari undan- farin ár, þarf að glíma við það verk- efni að byggja liðið upp að nýju. Arna Sif Ásgrímsdóttir, Lára Einarsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir verða algjörir burðarásar í ungu liði og vonir eru bundnar við að Gabriela Guillén, landsliðskona Kostaríka, bætist í þann hóp ásamt markverð- inum Laurie Allen. Þór/KA býr að því að eiga mikinn efnivið og hefur unnið meistaratitil 2. flokks þrisvar á síðustu fjórum árum. Nú þurfa margar efnilegar stúlkur að gera sig gildandi. Akur- eyringar þurfa þó líklega að sætta sig við að horfa á aðra slást um topp- sætin að þessu sinni og gætu í fyrsta sinn frá 2007 lent í neðri hlutanum. Vanmetnir Hafnfirðingar? Nýliðarnir í FH eru kannski van- metnir fyrir þetta Íslandsmót. Hafnarfjarðarliðið rétt skreið upp úr 1. deildinni en hefur viðað að sér reyndum leikmönnum í vetur. Þær Sigríður Lára Garðarsdóttir, Andr- ea Mist Pálsdóttir og Hrafnhildur Hauksdóttir hafa allar leikið með A- landsliði Íslands og eru kærkomin viðbót við efnilegan hóp uppalinna FH-inga. Þótt margar FH-stúlknanna séu ungar eru þær komnar með tals- verða reynslu af efstu deild og í ár gætu leikmenn eins og Birta Georgsdóttir, sem skoraði 11 mörk í 1. deild í fyrra, Helena Ósk Hálf- dánardóttir og Úlfa Dís Kreye sprungið út sem lykilmenn í efstu deild. Þá ræður miklu hvernig banda- rísku leikmennirnir falla inn í liðið. FH fór upp án útlendings í fyrra, sem er alltaf sterkt, en Taylor Se- kyra á að styrkja varnarleikinn og Maddy Gonzalez á að skora mörk. Flestir virðast reikna með erfiðri fallbaráttu hjá FH en liðið gæti hæglega gert betur en það. Óskrifað blað í Eyjum Ef einhvern tíma hefur verið erfitt að átta sig á liði í byrjun Íslands- mótsins þá er það liðið sem ÍBV tefl- ir fram í ár. Átta burðarásar frá síð- asta tímabili eru horfnir á braut, nánast hjartað úr liðinu. Sigríður Lára Garðarsdóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir, Clara Sigurðardóttir, Sesselja Líf Valgeirsdóttir, Caroline Van Slambrouck, Cloé Lacasse, Brenna Lovera og Emma Kelly eru allar farnar. Andri Ólafsson hefur fengið það verkefni í miðjum kórónuveiru- faraldri, á fyrsta tímabili sínu sem aðalþjálfari liðs, að búa til nýtt lið með átta nýjum útlendingum, tveim- ur ungum lánsmönnum og þeim kjarna af ungum Eyjastúlkum sem eftir er í leikmannahópnum. Erlendu leikmennirnir eru nánast óskrifað blað, nema Fatma Kara, tyrkneska landsliðskonan, sem á að baki tvö tímabil í deildinni með HK/ Víkingi. ÍBV þarf að treysta á að þær standi flestar undir nafni því þetta eru jafnframt elstu og reynd- ustu leikmennirnir í hópnum. Þar á meðal eru þrjár lettneskar landsliðs- konur, Grace Hancock frá Banda- ríkjunum sem á að fylla skarð Car- oline Van Slambrouck í vörninni og þær Miyah Watford frá Bandaríkj- unum og Danielle Tolmais frá Frakklandi sem eiga að skora mörk- in sem Cloé Lacasse og Brenna Lo- vera sáu að mestu um í fyrra. En lið sem fær skell gegn 1. deildarliði rétt áður en Íslandsmót hefst má búast við erfiðu tímabili. Besta lið í sögu Þróttar? Þróttur hefur aldrei náð að leika tvö ár í röð í efstu deild eftir að hafa unnið sig upp og það er kannski ástæðan fyrir því að meisturum 1. deildar frá 2019 er spáð afgerandi falli úr deildinni. En þetta gæti verið sterkasta lið sem Þróttur hefur teflt fram og Nik Chamberlain hefur verið að byggja það upp síðustu árin. Í liðinu sem vann mjög sannfærandi sigur í 1. deildinni voru m.a. þær Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir og Margrét Sveinsdóttir, sem hafa mikla reynslu úr efstu deild, Margrét skoraði 11 mörk í fyrra, og hinar bráðefnilegu unglingalandsliðskonur Linda Líf Boama og Andrea Rut Bjarnadóttir. Linda skoraði 22 mörk í 1. deildinni í fyrra. Lauren Wade, sem gerði 20 mörk í fyrra, fór til Glasgow City í Skot- landi og um hana munar. En Þróttur hefur fengið fjóra erlenda leikmenn í staðinn og sú sem á að skora er Stephanie Ribeiro, sem hefur leikið í norsku úrvalsdeildinni síðustu tvö árin. Sóley María Steinarsdóttir kemur aftur í Laugardalinn, í láni frá Breiðabliki, og styrkir varnarleik Köttara. Þá er hin unga og efnilega Ólöf Sigríður Kristinsdóttir komin í láni frá Val og gæti sprungið út í sóknarleiknum hjá Nik. Þróttarkonur hefja leiktíðina í Eyjum á sunnudaginn og það gæti verið afar áhugaverður leikur, ekki síst ef tekið er mið af spánni góðu. Það ætti að vera Þrótturum í hag að mæta ÍBV strax í fyrstu umferðinni.  Leikmannahópa liðanna fimm og allar breytingar á liðunum má sjá á mbl.is/sport. Í fyrsta skipti í neðri hluta í þrettán ár?  Umbrotatímar hjá Þór/KA  Liðs- auki hjá KR og FH  Átta nýir útlend- ingar í Vestmannaeyjum  Heldur Þróttur sér uppi í fyrsta sinn? Ljósmynd/Þórir Tryggvason Reyndar Arna Sif Ásgrímsdóttir úr Þór/KA og Katrín Ómarsdóttir úr KR eru í stórum hlutverkum í sínum liðum sem spáð er 6. og 7. sætinu. KONURNAR 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Liðin fimm sem spáð er sætum í neðri hluta Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta af sérfræðingum Árvakurs (sjá bls. 27) eru KR, Þór/ KA, FH, ÍBV og Þróttur. Af þessum fimm liðum er ljóst að KR og Þór/KA gera sterkt tilkall til þess að vera ofar en spáin segir til um. Sérstaklega KR-ingar, sem hafa styrkt lið sitt talsvert á meðan Akur- eyrarliðið hefur misst marga lykil- menn. Fyrir FH, ÍBV og Þrótt ætti baráttan fyrst og fremst að snúast um að halda sæti sínu í deildinni. Landsliðskonur í Vesturbæinn KR hækkar um eitt sæti frá því í fyrra ef spáin gengur eftir en nokk- uð ljóst er að Vesturbæingar ætla sér ofar en það. Lið þeirra er talsvert breytt en liðsaukinn er öflugur. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Lára Kristín Pedersen og Katrín Ásbjörnsdóttir eiga allar A-landsleiki að baki og þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Ana Cate eru með mikla reynslu í efstu deild. Hins vegar fór Betsy Hassett í Stjörnuna og munar um minna, ásamt því að Grace Maher og Gloria Douglas hurfu af landi brott, Lilja Dögg Valþórsdóttir er hætt og Ásdís Karen Halldórsdóttir fór aftur í Val. Þær Katrín Ómarsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir og Tijana Krstic eru þrautreyndar og markvarslan er í góðum höndum hjá Ingibjörgu Val- geirsdóttur og Birnu Kristjáns- dóttur. KR er því með hóp sem á að geta gert betur en spáin segir til um og raunhæft markmið er líkast til að slást um fjórða sætið, hugsanlega það þriðja ef allt gengur upp. Ár uppbyggingar á Akureyri Þór/KA hefur verið í baráttunni í efri hluta deildarinnar undanfarin tólf ár og tvisvar orðið Íslandsmeist- ari á þeim tíma. Nú eru hins vegar blikur á lofti á Akureyri því sex leik- menn sem jafnan voru í byrjunarlið- inu í fyrra eru horfnir á braut. Þar munar heldur betur um Stephany Mayor og Biöncu Sierra, sem fóru heim til Mexíkó eftir að Sigvaldi Björn Guðjónsson, lands- liðsmaður í handknattleik, hefur verið valinn besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar 2019-20, en hann varð tvöfaldur meistari með Elverum á tímabilinu. Þá lék hann einnig afar vel fyrir Elverum í Meistaradeildinni, en hann gekk til liðs við norska félagið frá Århus sumarið 2018. Sigvaldi, sem er 25 ára gamall, hefur unnið sér sæti í íslenska landsliðinu síðustu ár, en hann samdi við pólska stórliðið Kielce síðasta vetur og gengur til liðs við félagið í sumar. Kveður Noreg sem sá besti Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Bestur Sigvaldi Björn Guðjónsson kveður Elverum í sumar. Fylkismenn bíða eftir svörum frá indónesíska knattspyrnufélaginu Persib Bandung um hvort þeir fái hollenska framherjann Geoffrey Castillion lánaðan í sumar. Fylkir var með hann í láni frá FH á síðasta ári og hann skoraði 10 mörk á Ís- landsmótinu en fór síðan til Indóne- síu. Á mbl.is kemur fram að búið sé að semja við Castillion sjálfan en Persib bíði staðfestingar frá knatt- spyrnusambandi sínu um hvort það geti kallað hann til baka úr láni hvenær sem er. Castillion lék áður með Víkingi og FH. Bíða svara um Castillion Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Markaskorari Geoffrey Castillion gæti snúið aftur í Árbæinn.  Birgitta Hallgrímsdóttir úr Grinda- vík var leikmaður gærkvöldsins í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk liðsins í 5:0 sigri á Fram í 1. umferð keppninnar þegar liðin áttust við á Framvellinum. Bæði liðin leika í 2. deild en Grindavík féll þangað í fyrra og Fram stofnaði meistaraflokk kvenna á nýjan leik í vetur. Afturelding úr 1. deild vann HK úr 2. deild 3:0 í Mosfellsbæ þar sem Ragna Guðrún Guðmundsdóttir skoraði tvö mörk og Alda Ólafsdóttir eitt. Vík- ingur úr Reykjavík vann Gróttu 5:3 í uppgjöri 1. deildar liðanna á Seltjarn- arnesi, þar sem Grótta komst í 2:0 og 3:2 en Víkingur hafði betur í framleng- ingu. Nadía Atladóttir skoraði þrennu fyrir Víking og María Lovísa Jónas- dóttir gerði tvö marka Gróttu. Vík- ingur mætir Haukum í 2. umferð. Augnablik vann auðveldan 5:0 sigur á Fjölni í öðrum slag 1. deildar liða í Grafarvogi. Vigdís Lilja Kristjáns- dóttir skoraði tvö marka Kópavogs- liðsins.  Hamar frá Hveragerði greindi frá því á Facebook í gær að félagið hefði samið við spænskan leikstjórnanda, Jose Medina að nafni, en liðið leikur í næstefstu deild karla. Medina lék í b- deildinni í Þýskalandi á síðustu leiktíð en hefur lengst af leikið í b-deildinni á Spáni. Hann er 27 ára gamall. Hamar barðist um sæti í efstu deild á næsta tímabili síðasta vetur en missti naumlega af því þegar kórónuveiran batt enda á Íslandsmótið.  Knattspyrnumaðurinn Arnór Borg Guðjohnsen, hálfbróðir Eiðs Smára, leikur líklega með Fylki í sumar. Arnór Borg, sem er 19 ára gamall, er samn- ingsbundinn velska félaginu Swansea City en Hrafnkell Helgi Helgason, for- maður meistaraflokksráðs Fylkis, staðfesti við Morgunblaðið að beðið væri eftir því að Arnór semdi um starfslok við Swansea. Hann hefði æft með Fylkisliðinu undanfarnar vikur.  Hrunamenn verða með lið í 1. deild karla í körfuknattleik á komandi keppnistímabili. Vesturbæjarfélagið KV hafði þegið sætið eftir að hafa end- að í þriðja sæti 2. deildar, á eftir B- liðum KR og Vals, en hefur nú gefið það frá sér. Hrunamenn höfnuðu í fjórða sæti og KKÍ tilkynnti í gær að þeir hefðu þegið boð sambandsins um að leika í 1. deildinni næsta vetur.  Luis Suárez er orðinn leikfær og getur því beitt sér með Barcelona þeg- ar boltinn rúllar á ný á Spáni um næstu helgi. Suárez gekkst undir að- gerð á hné 12. janúar og lék síð- ast í undanúrslitum í bik- arnum gegn Atlético Madríd í upphafi árs. Suárez hóf æf- ingar á ný í byrjun maí en læknateymi Barcelona hefur nú gefið honum grænt ljós á að spila. Barcelona mætir Mallorka á laug- ardaginn. Suárez hefur verið drjúgur á tímabilinu til þessa og skorað 14 mörk í 23 leikj- um, þar af 11 í deildinni. Auk þess hefur hann gefið sjö stoðsendingar í leikjum í deildinni. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.