Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 29

Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 29
Meistaraverk Grímuklæddan starfsmann Prado-safnsins ber við Las Meninas eftir Velazquez sem gestir geta nú barið augum að nýju. Verkið málaði meistarinn 1656 og er það að margra mati stórkostlegasta málverk sögunnar. AFP Á meginlandi Evrópu eru dyr hverrar menn- ingarstofnunarinnar á fætur annarri nú opn- aðar gestum að nýju, eftir langvinna lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Forsendur eru breyttar, mun færri gestir en áður fá aðgang að myndverkum, fjarlægðarkröfur hafa fækk- að sætum í tónleikasölum og grímur fyrir vit- um eru staðalbúnaður, á starfsmönnum sem gestum. Á sama tíma og stjórnendur sem gest- ir fagna því að geta notið listanna í stofnunum að nýju hafa stjórnendur víða áhyggjur af rekstrarafkomunni, í fjarveru erlendra gesta. Listaverkin aftur sýnileg Í tónlistarborginni Wiener Konzerthaus, hin fræga tónlistarhöll í Vínarborg, er aftur opin gestum en fáir mættu um helgina. Mæjurnar Einsamall gestur rýnir í hið fræga málverkapar eftir Francisco Goya, Klædda Maja og Nakta Maja (1795-1807). Í Prado Spænskur ráðherra skoðar Dauða- syndirnar sjö eftir Hieronymus Bosch (1505). MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI. JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA. Kvikmyndahátíðin í Cannes, sem haldin er á vorin, var blásin af í ár vegna kórónuveirufaraldursins. Í stað þess að láta árið líða án nokk- urrar aðkomu að vali á áhugaverð- um og vönduðum nýjum kvikmynd- um hefur listrænn stjórnandi Cannes-hátíðarinnar, Thierry Frémaux, kynnt lista með 56 kvik- myndum sem hefðu keppt um aðal- verðlaun hátíðarinnar, Gull- pálmann, eða um önnur verðlaun sem standa til boða. Munu mynd- irnar verða merktar með heiti Cannes-hátíðarinnar og sérstak- lega kynntar á öðrum kvikmynda- hátíðum síðar á árinu. Frémaux segir það „aldrei hafa staðið til boða“ að láta árið líða án þess að setja mark sitt með ein- hverjum hætti á val á framúrskar- andi myndum. Meðal kvikmynda á listanum eru tvær eftir leikstjórann Steve McQueen, Lovers Rock og Man- grove, báðar úr samstarfsverkefni með BBC þar sem sjónum er beint að innflytjendum frá Vestur- Indíum í London. Nýjasta mynd Wes Andersons er á listanum, The French Dispatch, en í henni leika Bill Murray, Tilda Swinton og Beni- cio del Toro. Frumraun Viggos Mortensens sem leikstjóra, Falling, er valin sem og til að mynda kvik- myndir eftir Francis Lee – sem Kate Winslet leikur í, Thomas Vin- terberg, Jonathan Nossiter, Fern- ando Trueba, Emmanuel Mouret, Peter Dourountzis, Ben Sharrock og Elie Wajeman. Glamúr Eitt árið steig Quentin Tarantino dans á rauða dreglinum í Cannes. Cannes-hátíðin kynnir úrval kvikmynda Í Drouot-uppboðshúsinu í París verður eftir rúma viku boðið upp merkilegt listsögulegt sendibréf, það eina sem vitað er um sem lista- mennirnir Vincent van Gogh og Paul Gauguin skrifuðu saman, en móttakandinn var vinur þeirra í listinni, málarinn Emile Bernard. Samkvæmt The Art Newspaper er gert ráð fyrir að allt að 250 þús- und evrur fáist fyrir bréfið, eða 37 milljónir króna. Þrjár síður eru skrifaðar af van Gogh og ein af Gauguin. Bréfið sendu félagarnir til Bernard 1. eða 2. nóvember árið 1888, viku eftir að Gauguin hafði komið til Arles að dvelja með van Gogh í „Gula hús- inu“ eins og frægt er úr sögunni. Og sendibréfið þykir mikilvægt fyrir ýmissa hluta sakir, meðal ann- ars fyrir hispurslausa en gaman- sama lýsingu van Goghs á gesti sínum. Hann segir Gauguin vera „óspillta veru með eðlisávísun villi- dýrs en í Gauguin leggja blóð og kynlíf metnaðinn að velli,“ skrifar hann. Þá segir van Gogh þá félaga hafa farið í „könnunarleiðangra í vændishúsin og það er líklegt að við eigum eftir að fara þangað aft- ur til að vinna,“ og átti hann þá vitaskuld við að mála myndir. Gauguin skrif- ar að í framtíð- inni ættu lista- menn helst að starfa í hitabelt- inu. Bréfið var síðast selt árið 2012 fyrir nær 60 milljónir króna en er nú selt aftur þar sem eigandinn er gjaldþrota. Skissa Van Gogh málaði senu úr vændis- húsi í Arles einni viku eftir bréfaskrifin. Bréf frá Gauguin og van Gogh boðið upp Síða úr sendibréfi listamannanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.