Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 32

Morgunblaðið - 09.06.2020, Síða 32
fékk Steindór Hilmar Örn Hilm- arsson, vin sinn, til að stjórna upp- tökum. Við erum mjög stolt af þessu og útgáfan er fyrst og fremst óeigin- gjarnri velvild Steindórs að þakka.“ Hún bætir við að útgáfan sé ekki síður mikilvæg tenging við heimilin. „Við sáum þessum fræjum inn á heimilin, færum kveðskapinn heim, sem er mjög dýrmætt og gaman.“ Mikilvægt er að viðhalda þekk- ingu á kveðskap og rímum, að sögn Jensínu. Hún bendir á að um 115 börn séu í skólanum á hverju skóla- ári. Töluverður fjöldi barna á aldr- inum tveggja til sex ára hafi því fengið þessa kennslu í kveðskap. Í þessu sambandi segir hún að á Þjóðminjasafninu megi hlusta á gamlan kveðskap. „Eitt sinn kom barn frá okkur á Þjóðminjasafnið og þegar byrjað var að spila vísurnar á bandi tók barnið undir, það kunni að kveða vísurnar. Þetta hafði starfs- fólk safnsins ekki upplifað áður; að barn kæmi og kynni að syngja gleymdan og grafinn þjóðlegan arf.“ Til stóð að kynna söngheftið og diskinn á sérstökum viðburði á Barnamenningarhátíðinni en vegna kórónuveirufaraldursins verður há- tíðin með mjög breyttu sniði í ár. „Útgáfan er okkar framlag til Barnamenningarhátíðarinnar og til að byrja með verður efnið í boði inn- an Hjallastefnunnar,“ segir Jensína. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Starfsfólk leikskólans Laufásborgar í Reykjavík hefur í samvinnu við Steindór Andersen kvæðamann kennt börnum kvæði og að kveða rímur undanfarin tólf ár. Afrakst- urinn hefur nú verið gefinn út í sönghefti og á geisladiski með það í huga að deila efninu með fjöl- skyldum og vinafólki. Jensína Edda Hermannsdóttir og Matthildur Laufey Her- mannsdóttir eru leikskólastýrur Laufásborgar. Jensína segir að þær hafi beðið Steindór að koma í skólann og miðla af fróðleik sínum á þorranum 2008. „Hann tók boðinu heilshugar og var meira en tilbúinn að leggja sitt lóð á vogarskálarnar,“ segir Jensína. „Þannig hófst þetta skemmtilega samstarf. Mikil og sterk sönghefð er á Laufásborg og sameiginlegur áhugi okkar og Stein- dórs á þjóðlegum arfi leiddi okkur saman.“ Þjóðlegur arfur Á Laufásborg er unnið með kveð- skap og þjóðlegan arf á þorranum og góunni. Bára Grímsdóttir og fleiri kvæðakonur hafa komið á gó- unni og undanfarin tólf ár hefur Steindór komið einu sinni eða tvisv- ar á hverju tímabili með efni, sungið og kveðið vísur fyrir börnin og starfsfólkið auk þess sem foreldrum hefur verið boðið að fylgjast með. „Við höfum átt afskaplega skemmti- lega stund saman ár eftir ár. Við höfum gripið boltann á lofti frá Steindóri, æft okkur og kennt börn- unum kveðskapinn. Þannig við- höldum við arfinum og bætum ofan á grunninn á hverju ári með þeim árangri að börnin á Laufásborg kunna að kveða rímur.“ Jensína leggur áherslu á að sam- starfið sé mjög dýrmætt. „Það er gagnkvæmur áhugi og ástríða á þessu verkefni og þegar við ákváðum að ráðast í það metn- aðarfulla verkefni sem útgáfan er Börnin kveða rímur  Laufásborg í samvinnu við Steindór Andersen kvæða- mann gefur út sönghefti og geisladisk  Tólf ára samstarf Laufásborg Steindór Andersen kennir áhugasömum börnum kveðskap. ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 161. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valur verður Íslandsmeistari karla og Breiðablik Ís- landsmeistari kvenna í knattspyrnu árið 2020. Það verður í það minnsta niðurstaðan ef spá Árvakurs um Pepsi Max-deildirnar gengur eftir. Fjallað er ítarlega um spána á íþróttasíðum blaðsins í dag og enn fremur er fjallað um þau fimm lið sem spáð er að verði í neðri hluta Pepsi Max-deildar kvenna, en það eru KR, Þór/ KA, FH, ÍBV og Þróttur. »26-27 Valur og Breiðablik verða Íslandsmeistarar 2020 ÍÞRÓTTIR MENNING „Þetta leggst mjög vel í mig og ég er þakklát fyrir traustið,“ segir Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Ís- lenska dansflokksins (Íd), en skip- un hennar í embætti hefur verið framlengd til næstu fimm ára frá og með 1. ágúst. Segir hún síðustu árin með Íd hafa verið mjög lær- dómsrík. „Þetta hefur verið mikil og góð óvissuferð. Ég hlakka til að takast á við framtíðina og vinna áfram með dásamlegu fólki að þróun danslistarinnar á þessum erfiðu, en vonandi góðu tímum,“ segir Erna og tekur fram að næsta starfsár verði „rosalegt“. „Hluti þess fer í að sýna þau verk sem fresta varð vegna kófs- ins. Við munum sýna inni og úti, í litlum plássum og stórum, sinna nýsköpun og eldri verkum í bland,“ segir Erna, en Íd mun vinna samstarfsverkefni með Sinfóníu- hljómsveitum Íslands og Norðurlands, Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Listahátíð. „Lögð verður áhersla á landsbyggðina auk þess sem við vonum að sýningar- ferðir erlendis geti hafist aftur á næsta sýningarári.“ Skipun framlengd til fimm ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.