Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 11

Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 Verið velkomin Við póstsendum um allt land • Sími 568 5170 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Nýjar glæsilegar SUMARVÖRUR Kjólar • Blússur • Bolir • Peysur • Buxur • Töskur Túnikur • Silkislæður • Plíseruð buxnapils Vinsælu heima- og velúrgallarnir alltaf til í mörgum litum og í stærðum S-4XL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu í gærmorgun að þau myndu hætta öllum samskiptum sínum við Suður-Kóreumenn. Bandaríkjastjórn lýsti í gær yfir vonbrigðum sínum með ákvörðun Norður- Kóreumanna og hvatti þá til þess að hefja á ný við- ræður við nágranna sína í suðri. Sérfræðingar í málefnum Norður-Kóreu telja að aðgerðinni sé ætlað að skapa þrýsting á Banda- ríkjamenn og Suður-Kóreu, sem geti tryggt ríkinu frekari ívilnanir síðar. Tilkynning Norður-Kóreumanna kemur í kjöl- far þess að stjórnvöld í Pyongyang kvörtuðu í síð- ustu viku undan því að aðgerðasinnar í suðri væru að senda bæklinga um ógnarstjórnina í norðri yfir landamærin. Samningaviðræður við Norður-Kóreu um kjarnorkuafvopnun Kóreuskagans sigldu í strand á síðasta ári, eftir að leiðtogafundi Kims Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í Hanoi, höfuðborg Víetnam, lauk án árangurs. Greindi leiðtogana á um hvaða skref Norður-Kóreumenn þyrftu að stíga í átt að afvopnun áður en refsiaðgerðum alþjóðasam- félagsins vegna kjarnorkuvopnaáætlunar landsins yrði aflétt. Með ákvörðuninni hefur verið slitið al- gjörlega á öll samskipti milli norðurs og suðurs, en sérstakur sími var tengdur á milli ríkjanna árið 2018 eftir sögulegan fund Kims með Moon Dae- un, forseta Suður-Kóreu. Hefur verið venjan að hringt sé í hann tvisvar sinnum á dag. Þá hefur „rauður sími“ sem tengir saman leiðtoga Norður- Kóreu og forseta Suður-Kóreu verið aftengdur í bili, ásamt öðrum samskiptalínum milli herja Kóreuríkjanna. Talið er að Kim Yo-jong, systir Kims Jong-un og helsti ráðgjafi hans, hafi verið helsti hvata- maðurinn að ákvörðuninni, en völd hennar og áhrif við stjórn landsins hafa farið ört vaxandi á undan- förnum mánuðum. Shin Beom-chul, sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu, sagði við AFP-frétta- stofuna að hann teldi þetta ekki vera einangrað til- felli, þar sem Kim Yo-jong þyrfti að „sýna tenn- urnar“ og reyna að hrista upp í stefnu Suður-Kóreumanna gagnvart norðri. Tæknilega séð ríkir enn styrjöld milli ríkjanna á Kóreuskaganum, en Kóreustríðinu lauk árið 1953 með vopnahléssamkomulagi. Slitu öll tengsl við S-Kóreu  Ákvörðunin sögð tilraun til þess að búa til þrýsting á Bandaríkin og S-Kóreu AFP Norður-Kórea Kim Jong-un sótti miðstjórnar- fund Kommúnistaflokks N-Kóreu um helgina. Útför George Floyds fór fram í gær í Houston, heimaborg hans. Lík- menn og útfararstjóri sjást hér bera kistu Floyds til kirkju fyrir at- höfnina, en um sex þúsund manns vottuðu Floyd virðingu sína í fyrra- dag. Um fimmhundruð manns sóttu sjálfa athöfnina í gær, þar á meðal hnefaleikakappinn Floyd May- weather, sem greiddi allan útfarar- kostnað fyrir fjölskyldu Floyds. Joe Biden, forsetaframbjóðandi demókrata, heimsótti fjölskylduna á mánudaginn til þess að votta sam- úð sína. Sagði Biden að andlát Floyds yrði einn af vendipunktun- um í sögu Bandaríkjanna hvað varðaði virðingu fyrir lýðréttindum borgaranna. Vísaði Biden til þess að sjö ára gömul dóttir Floyds hefði sagt að pabbi sinn myndi breyta heiminum. „Og ég held að pabbi hennar muni breyta heiminum.“ AFP Fjölmenni sótti útför Floyds Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna, höfuð- borgar Bret- lands, sagði í gær að styttur af fólki sem tengst hefði þrælasölu ættu ekki að fá að standa. Hefur Khan skipað nefnd sem á að fara yfir minnis- merki borgarinnar til að tryggja að þau endurspegli fjölbreytni borg- arinnar. Ákvörðunin er tekin í kjöl- far þess að mótmælendur í Bristol rifu niður styttu af þrælasalanum Edward Colston og vörpuðu í höfn- ina á sunnudaginn. Khan tók sérstaklega fram að hann liti ekki svo á að fjarlægja ætti styttu af Winston Churchill við breska þinghúsið, sem krotað var á um helgina. Sagði Khan að fræða þyrfti um bæði góðar og slæmar hliðar mikilmenna sögunnar. Vilja rífa niður stytt- ur með þrælatengsl Sadiq Khan BRETLAND Stjórnvöld í Búr- úndí tilkynntu í gær að forseti landsins, Pierre Nkurunziza, hefði látist úr hjartaáfalli á mánudaginn. Nkurunziza, sem var 55 ára gamall, var flutt- ur á sjúkrahús á laugardaginn vegna vanlíðanar en virtist á bata- vegi þar til hjartaáfallið reið yfir. Nkurunziza var forseti Búrúndí í 15 ár, en þriðja og síðasta kjör- tímabili hans átti að ljúka í ágúst. Fjölmenn mótmæli voru þegar hann bauð sig fram í þriðja sinn ár- ið 2015, og létust minnst 1.200 manns í óeirðum. Eftirmaður hans, Evariste Ndayishimiye, var sagður hafa verið handvalinn af Nkur- unziza, en hann hlaut 71,45% at- kvæða í kosningum sem haldnar voru í maí á þessu ári. Forsetinn látinn úr hjartaáfalli Pierre Nkurunziza BÚRÚNDÍ Rússnesk stjórnvöld staðfestu í gær að þau ætluðu að hefja viðræður við Bandaríkjastjórn um að framlengja nýja START-afvopnunarsamkomu- lagið, sem undirritað var í apríl 2010. Sagði í tilkynningu Rússa að að- stoðarutanríkisráðherra Rússlands, Sergei Ryabkov, myndi funda með Marshall Billingsley, sérstökum sendimanni Bandaríkjastjórnar, í Vínarborg 22. júní næstkomandi. Samkomulagið sem um ræðir var undirritað af Barack Obama, þáver- andi Bandaríkjaforseta, og Dímítrí Medvedev, þáverandi forseta Rúss- lands, en með því skuldbundu þeir ríki sín til þess að fækka um helming langdrægum eldflaugum sem borið geta kjarnorkuvopn. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur í forsetatíð sinni slitið nokkr- um samningnum sem Bandaríkja- menn og Rússar hafa gert, þar sem hann hefur sakað Rússa um að hafa ekki staðið við sinn hlut í þeim. Trump hefur þó gefið til kynna að hann telji vert að halda í nýja START-samkomulagið, en á sama tíma hefur hann óskað eindregið eft- ir því að Kínverjar verði einnig fengnir að samningaborðinu. Ryabkov sagði hins vegar í gær að hann teldi ómögulegt að Kínverjar myndu vilja taka þátt í afvopnunar- viðræðunum, og að það gæti teflt samkomulaginu í hættu ef Banda- ríkjastjórn vildi gera þátttöku Kín- verja að úrslitaatriði. Gaf Ryabkov einnig til kynna að Bretar og Frakkar ættu þá að taka þátt í afvopnunarviðræðunum, þar sem erfiðara yrði að horfa framhjá kjarnorkuvopnabúrum þessara ríkja eftir því sem meira fækkaði í vopna- búrum Bandaríkjamanna og Rússa. Vilja fram- lengja START  Rússar og Bandaríkjamenn munu funda í Vín AFP START Obama og Medvedev við undirritunina 2010 í Prag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.