Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 13

Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 Við Reykjavíkurhöfn Það var fallegt veður á höfuðborgarsvæðinu í gær og margir nutu útiverunnar. Við Reykjavíkurhöfn fögnuðu skipverjar á Dögun því eflaust að fá smá byr í seglin. Eggert Útgjaldasinnar hugsa með hryllingi til þess að róttæk upp- stokkun verði á skipu- lagi ríkisins. Hagræð- ing og endurskipu- lagning ríkisrekstrar veldur útgjaldasinnum (sem finnast í flestum stjórnmálaflokkum) pólitískri ógleði. Kannski er það skilj- anlegt þegar haft er í huga að þeir trúa því að hægt sé að leysa flest vandamál samfélagsins með aukn- um útgjöldum. Ekkert vandamál er svo lítið eða stórt að ekki sé hægt að leysa það með því að opna fjár- hirslur ríkisins betur. Ef þær reyn- ast tómar er alltaf hægt að gefa út víxla á framtíðina – velta kostnað- inum yfir á komandi kynslóðir. Tímabundnar efnahagsþrenging- ar vegna kórónuveirunnar breyta lífsviðhorfi útgjaldasinna í engu. Ef eitthvað er styrkjast þeir í trúnni á áhrifamátt síhækkandi útgjalda og umsvifa ríkisins. Útgjaldasinnar eru samkvæmir sjálfum sér í a.m.k. einu: Þeir eru skattaglaðari en aðr- ir – alltaf tilbúnir með tillögur um auknar álögur á fyrirtæki og heim- ili. Og hvernig má annað vera? Skattaglaðir útgjaldasinnar telja sig vita að ríkið sé upphaf og endir flestra lífsgæða. Aukin umsvif rík- isins og annarra opinberra aðila eru því ekki aðeins æski- leg heldur beinlínis nauðsynlegt markmið til að auka velsæld. Í velferðarríki skattaglaðra útgjalda- sinna skiptir stærð þjóðarkökunnar (landsframleiðslunnar) ekki mestu heldur hversu stóra skeið hið opinbera sker af henni og tekur til sín. Í hug- arheimi þeirra er vel- ferðin meiri þegar sneið ríkis og sveitarfélaga er 50% af 2.000 milljarða þjóðarköku en ef hún er 40% af 3.000 milljörðum. Engu skiptir þótt minni sneiðin sé í raun 200 milljörðum stærri. Hlut- fallsleg stærð ríkissamneyslunnar skiptir mestu en ekki verðmæti kökusneiðarinnar. Það á því ekki að koma á óvart að meiri áhersla sé lögð á að stækka sneið hins opinbera af þjóðar- kökunni en að baka stærri köku – auka landsframleiðsluna – tryggja meiri verðmætasköpun. Harðari átök Hér skal því haldið fram að póli- tísk átök – markalínur stjórnmál- anna – muni á komandi árum fyrst og síðast snúast um viðhorf út- gjaldasinna og talsmanna aðhalds í opinberum fjármálum – milli skattagleðinnar og hófsemdar í álögum á fyrirtæki og heimili. Þessi átök hafa alltaf verið til staðar en flest bendir til að þau harðni í að- draganda kosninga á komandi ári og í eftirleik þeirra. Í einfaldleika sínum er hægt að segja að tekist verði á um þjóð- félagsgerðina – um lífskjör almenn- ings til langrar framtíðar. Við sem stöndum andspænis skattaglöðum útgjaldasinnum og viljum stíga á útgjaldabremsuna höfum átt í vök að verjast. Við glímum við andstæðinga sem njóta dyggs stuðnings sérhagsmuna sem telja hagsmunum sínum best borg- ið með að kerfið þenjist út – að hlutfallslega kökusneiðin sé stærri þótt kakan sjálf kunni að vera minni. Það þarf sterk bein og pólitískt þrek til að standast þann þrýsting sem gæslumenn sérhagsmuna beita. Og þrýstingurinn kemur ekki síst frá þeim sem betur eru settir í samfélaginu. Þeir sem lakast eru settir eru ekki háværastir. Hóf- semd í kröfugerð um aukin útgjöld fer ekki eftir fjárhagsstöðu. Áskorun Sjálfstæðisflokksins Það skiptir miklu að stjórnmála- menn og -flokkar sem berjast fyrir hagkvæmari ríkisrekstri og nýt- ingu almannafjár nái kjósendum (skattgreiðendum) á sitt band. Færa verður rök fyrir því hvernig hagræðing í ríkisrekstri sé vörn ís- lenska velferðarkerfisins til lengri tíma, gefi möguleika á að efla menntakerfið, byggja undir lög- gæslu og styrkja byggðir landsins með góðum samgöngum. Aukin skilvirkni miðar að því að hið opinbera þjóni betur einstaklingum og fyrirtækjum. Kjósendur verða að sannfærast um að einfaldara stjórnkerfi ríkisins lækki kostnað heimila og fyrirtækja og auki tekjur ríkisins til lengri tíma sam- hliða því sem ráðstöfunartekjur heimilanna hækka. Áskorun Sjálfstæðisflokksins er í senn einföld og erfið: Að leiða end- urskipulagningu á fjárhag og rekstri ríkisins, skapa lífvænlegt umhverfi fyrir verðmætasköpun og frjálst atvinnulíf. Aðeins þannig verða lífskjör almennings bætt og búið í haginn fyrir komandi kyn- slóðir. Verkefnið er tvíþætt. Annars vegar að auka tekjurnar með því að örva atvinnulífið — hleypa nýju súrefni inn í fyrirtækin með lægri sköttum og einfaldara regluverki (stækka þjóðarkökuna). Og hins vegar að hagræða í rekstri ríkisins, skera upp stjórnsýsluna og straumlínulaga, samhliða því sem reksturinn er endurskipulagður (minnka sneiðina hlutfallslega). Við ætlum sem sagt að fá meiri og betri þjónustu fyrir hverja krónu sem fer út í ríkissjóði. Upp- stokkun ríkisrekstrar felur ekki að- eins í sér að forgangsraða út- gjöldum og tryggja hagkvæma nýtingu fjárveitinga, heldur ekki síður betri nýtingu ríkiseigna m.a. með því að umbreyta eignum í fé- lagslega og hagræna innviði. Hags- munum almennings og fyrirtækja er t.d. betur borgið með því að nýta fjármuni í umfangsmiklar umbætur í samgöngum en að binda þá í fjár- málafyrirtækjum eða flugstöð. Þannig er ríkið betur í stakk búið til að sinna grunnskyldum sínum af kostgæfni. Gegn öllum hugmyndum af þessu tagi standa skattaglaðir útgjalda- sinnar – og þeir munu beita þeim vopnum sem þeim hugnast. Það mun reyna á pólitísk þrek sjálfstæðismanna að standa gegn háværum kröfum um aukin útgjöld og hærri skatta. Í pólitískri glímu er mikilvægt að menn „þori að hugsa sjálfstætt, fylgja hugsun sinni eftir og átti sig á því, að fátt næst fyrirhafnarlaust“, svo vitnað sé í orð Bjarna heitins Benedikts- sonar þegar 25 ára afmæli lýðveld- isins var fagnað. Sjálfstæðismenn mæta áskorunum komandi missera og ára best með þessi orð í huga. Eftir Óla Björn Kárason » Áskorun Sjálfstæðis- flokksins er einföld: Að leiða uppstokkun í rekstri ríkisins, skapa lífvænlegt umhverfi fyr- ir verðmætasköpun og frjálst atvinnulíf. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Uppskurður er nauðsynlegur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.