Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020
Við Reykjavíkurhöfn Það var fallegt veður á höfuðborgarsvæðinu í gær og margir nutu útiverunnar. Við Reykjavíkurhöfn fögnuðu skipverjar á Dögun því eflaust að fá smá byr í seglin.
Eggert
Útgjaldasinnar
hugsa með hryllingi til
þess að róttæk upp-
stokkun verði á skipu-
lagi ríkisins. Hagræð-
ing og endurskipu-
lagning ríkisrekstrar
veldur útgjaldasinnum
(sem finnast í flestum
stjórnmálaflokkum)
pólitískri ógleði.
Kannski er það skilj-
anlegt þegar haft er í huga að þeir
trúa því að hægt sé að leysa flest
vandamál samfélagsins með aukn-
um útgjöldum. Ekkert vandamál er
svo lítið eða stórt að ekki sé hægt
að leysa það með því að opna fjár-
hirslur ríkisins betur. Ef þær reyn-
ast tómar er alltaf hægt að gefa út
víxla á framtíðina – velta kostnað-
inum yfir á komandi kynslóðir.
Tímabundnar efnahagsþrenging-
ar vegna kórónuveirunnar breyta
lífsviðhorfi útgjaldasinna í engu. Ef
eitthvað er styrkjast þeir í trúnni á
áhrifamátt síhækkandi útgjalda og
umsvifa ríkisins. Útgjaldasinnar
eru samkvæmir sjálfum sér í a.m.k.
einu: Þeir eru skattaglaðari en aðr-
ir – alltaf tilbúnir með tillögur um
auknar álögur á fyrirtæki og heim-
ili. Og hvernig má annað vera?
Skattaglaðir útgjaldasinnar telja
sig vita að ríkið sé upphaf og endir
flestra lífsgæða. Aukin umsvif rík-
isins og annarra opinberra aðila eru
því ekki aðeins æski-
leg heldur beinlínis
nauðsynlegt markmið
til að auka velsæld.
Í velferðarríki
skattaglaðra útgjalda-
sinna skiptir stærð
þjóðarkökunnar
(landsframleiðslunnar)
ekki mestu heldur
hversu stóra skeið hið
opinbera sker af henni
og tekur til sín. Í hug-
arheimi þeirra er vel-
ferðin meiri þegar
sneið ríkis og sveitarfélaga er 50%
af 2.000 milljarða þjóðarköku en ef
hún er 40% af 3.000 milljörðum.
Engu skiptir þótt minni sneiðin sé í
raun 200 milljörðum stærri. Hlut-
fallsleg stærð ríkissamneyslunnar
skiptir mestu en ekki verðmæti
kökusneiðarinnar.
Það á því ekki að koma á óvart að
meiri áhersla sé lögð á að stækka
sneið hins opinbera af þjóðar-
kökunni en að baka stærri köku –
auka landsframleiðsluna – tryggja
meiri verðmætasköpun.
Harðari átök
Hér skal því haldið fram að póli-
tísk átök – markalínur stjórnmál-
anna – muni á komandi árum fyrst
og síðast snúast um viðhorf út-
gjaldasinna og talsmanna aðhalds í
opinberum fjármálum – milli
skattagleðinnar og hófsemdar í
álögum á fyrirtæki og heimili. Þessi
átök hafa alltaf verið til staðar en
flest bendir til að þau harðni í að-
draganda kosninga á komandi ári
og í eftirleik þeirra.
Í einfaldleika sínum er hægt að
segja að tekist verði á um þjóð-
félagsgerðina – um lífskjör almenn-
ings til langrar framtíðar.
Við sem stöndum andspænis
skattaglöðum útgjaldasinnum og
viljum stíga á útgjaldabremsuna
höfum átt í vök að verjast. Við
glímum við andstæðinga sem njóta
dyggs stuðnings sérhagsmuna sem
telja hagsmunum sínum best borg-
ið með að kerfið þenjist út – að
hlutfallslega kökusneiðin sé stærri
þótt kakan sjálf kunni að vera
minni.
Það þarf sterk bein og pólitískt
þrek til að standast þann þrýsting
sem gæslumenn sérhagsmuna
beita. Og þrýstingurinn kemur ekki
síst frá þeim sem betur eru settir í
samfélaginu. Þeir sem lakast eru
settir eru ekki háværastir. Hóf-
semd í kröfugerð um aukin útgjöld
fer ekki eftir fjárhagsstöðu.
Áskorun Sjálfstæðisflokksins
Það skiptir miklu að stjórnmála-
menn og -flokkar sem berjast fyrir
hagkvæmari ríkisrekstri og nýt-
ingu almannafjár nái kjósendum
(skattgreiðendum) á sitt band.
Færa verður rök fyrir því hvernig
hagræðing í ríkisrekstri sé vörn ís-
lenska velferðarkerfisins til lengri
tíma, gefi möguleika á að efla
menntakerfið, byggja undir lög-
gæslu og styrkja byggðir landsins
með góðum samgöngum. Aukin
skilvirkni miðar að því að hið
opinbera þjóni betur einstaklingum
og fyrirtækjum. Kjósendur verða
að sannfærast um að einfaldara
stjórnkerfi ríkisins lækki kostnað
heimila og fyrirtækja og auki
tekjur ríkisins til lengri tíma sam-
hliða því sem ráðstöfunartekjur
heimilanna hækka.
Áskorun Sjálfstæðisflokksins er í
senn einföld og erfið: Að leiða end-
urskipulagningu á fjárhag og
rekstri ríkisins, skapa lífvænlegt
umhverfi fyrir verðmætasköpun og
frjálst atvinnulíf. Aðeins þannig
verða lífskjör almennings bætt og
búið í haginn fyrir komandi kyn-
slóðir.
Verkefnið er tvíþætt. Annars
vegar að auka tekjurnar með því að
örva atvinnulífið — hleypa nýju
súrefni inn í fyrirtækin með lægri
sköttum og einfaldara regluverki
(stækka þjóðarkökuna). Og hins
vegar að hagræða í rekstri ríkisins,
skera upp stjórnsýsluna og
straumlínulaga, samhliða því sem
reksturinn er endurskipulagður
(minnka sneiðina hlutfallslega).
Við ætlum sem sagt að fá meiri
og betri þjónustu fyrir hverja
krónu sem fer út í ríkissjóði. Upp-
stokkun ríkisrekstrar felur ekki að-
eins í sér að forgangsraða út-
gjöldum og tryggja hagkvæma
nýtingu fjárveitinga, heldur ekki
síður betri nýtingu ríkiseigna m.a.
með því að umbreyta eignum í fé-
lagslega og hagræna innviði. Hags-
munum almennings og fyrirtækja
er t.d. betur borgið með því að nýta
fjármuni í umfangsmiklar umbætur
í samgöngum en að binda þá í fjár-
málafyrirtækjum eða flugstöð.
Þannig er ríkið betur í stakk búið
til að sinna grunnskyldum sínum af
kostgæfni.
Gegn öllum hugmyndum af þessu
tagi standa skattaglaðir útgjalda-
sinnar – og þeir munu beita þeim
vopnum sem þeim hugnast.
Það mun reyna á pólitísk þrek
sjálfstæðismanna að standa gegn
háværum kröfum um aukin útgjöld
og hærri skatta. Í pólitískri glímu
er mikilvægt að menn „þori að
hugsa sjálfstætt, fylgja hugsun
sinni eftir og átti sig á því, að fátt
næst fyrirhafnarlaust“, svo vitnað
sé í orð Bjarna heitins Benedikts-
sonar þegar 25 ára afmæli lýðveld-
isins var fagnað. Sjálfstæðismenn
mæta áskorunum komandi missera
og ára best með þessi orð í huga.
Eftir Óla Björn
Kárason » Áskorun Sjálfstæðis-
flokksins er einföld:
Að leiða uppstokkun í
rekstri ríkisins, skapa
lífvænlegt umhverfi fyr-
ir verðmætasköpun og
frjálst atvinnulíf.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Uppskurður er nauðsynlegur