Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 15

Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 Þegar verkskipt borgarsamfélag var í örri mótun á Íslandi 20. aldar urðu til margvís- legar þarfir sem þurfti að sinna. Meðal annars komu skrifstofuvél- ar til sögunnar sem stórjuku af- köst við reiknings- hald og bréfaskrif. Lengst af var ein- göngu um að ræða ritvélar og frumstæðar reiknivélar en síðar komu til sögunnar bókhaldsvélar og loks tölvur sem þróuðust svo ört að vart er til það svið mann- lífsins í samtíma okkar sem ekki er tölvuvætt. Í allri þeirri sögu sem tekin hefur verið saman um upphaf og þróun upplýsinga- tækninnar hér á landi stendur nafn eins manns upp úr sem brautryðjanda. Það er nafn Ott- ós A. Michelsen, en í dag eru lið- in 100 ár frá fæðingu hans. Ottó var fæddur á Sauðárkróki árið 1920, sonur hjónanna Jörgens Franks Michelsen og Guðrúnar Pálsdóttur. Jörgen var danskur að uppruna, úrsmiður að mennt og fékkst einnig við gullsmíði. Haldið utan á óvissutímum Það var einlægur vilji for- eldra Ottós að þau systkinin helguðu krafta sína iðngreinum. Samt sem áður var erfitt að komast á samning sem iðnnemi í miðri heimskreppu og margir um hvert lærlingspláss. Þegar sumri hallaði 1938 var Ottó að verða úrkula vonar um að kom- ast til náms þegar honum bauðst skyndilega að halda til Þýska- lands að læra viðgerðir á rit- vélum og reiknivélum sem Egill Guttormsson heildsali hafði um- boð fyrir. Ottó hélt utan til Zella-Mehlis í Thüringen og var um veturinn í starfsnámi hjá Mercedes Büro- Maschinen, sem var einn stærsti framleiðandi skrifstofuvéla í heiminum á þeim tíma. Heim kominn vorið 1939 hélt Ottó á síld norður í landi en fór aftur suður til Reykjavíkur eftir ver- tíðina. Þar rann upp fyrir honum að hann yrði að bæta við sig þekk- ingu á fleiri tegundum ritvéla og reiknivéla. Hann ákvað því að halda aft- ur utan, þvert á vilja ættingja sinna og vina, sem töldu hann ekki með réttu ráði í ljósi hern- aðarframvindunnar á megin- landinu. Innlyksa á stríðsárunum Ottó hélt til Kaupmannahafn- ar og fékk fljótlega vinnu í fagi sínu. Með stríðinu jókst gríðarlega eftirspurn eftir hvers kyns vinnuafli í Þýskalandi og úr varð að Ottó komst aftur á samning hjá sínum fyrri vinnuveitanda þar í landi. Ottó var falið að annast við- gerðir skriftvéla vítt og breitt um Þýskaland og hann var því á stöðugu ferðalagi næstu árin. Hann sóttist eftir því að fá að flytjast til Danmerkur en þeirri beiðni var synjað. Sumarið 1944 ákvað hann loks að flýja og fór huldu höfði í Kaupmannahöfn um nokkurt skeið. Danirnir tóku hin þýsku próf- skírteini Ottós ekki gild og hann varð því að láta sér lynda að vinna næstu tvö árin sem „fram- haldsnemi“ í Danmörku á lús- arlaunum en tókst að drýgja tekjurnar með því að kaupa not- aðar skrifstofuvélar sem hann gerði upp og seldi. Í árdaga tölvualdar Heimkominn frá námi árið 1946 hóf Ottó þegar að vinna í iðngrein sinni og stofnaði Skrifstofu- vélar hf. en tveim- ur árum síðar fékk hann umboð fyrir vörur hins alþjóð- lega stórfyrirtækis International Busi- ness Machines, skammstafað IBM. Öll gagnavinnsla þess tíma fór fram á gataspjöldum, en segja má að haust- ið 1964 hafi tölvuöld haldið inn- reið sína hér á landi þegar Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurbæjar fengu af- henta vélasamstæðu frá IBM og Háskóli Íslands sömuleiðis. Tölva Háskólans var gríðarstór fjárfesting, andvirði fimm til sex íbúða, og því fór fjarri að skólinn hefði fjárhagslega burði til kaupanna. Ottó beitti sér því fyrir því að IBM í Bandaríkj- unum gæfi eftir 60% af kaup- verði tölvunnar og yrði það kall- að háskólaafsláttur. Það varð úr og Framkvæmdabankinn undir forystu dr. Benjamíns H.J. Ei- ríkssonar lagði til það sem upp á vantaði. Þessar nýju vélar gengu und- ir ýmsum nöfnum en árið 1965 kom dr. Sigurður Nordal pró- fessor fram með orðið tölva, sem festist í sessi. Útibú IBM stofnað Þjónustu við skýrsluvélar fylgdi umstang sem óx með hverju árinu. Sífellt þurfti að flytja inn nýjar og dýrar vélar IBM sem Skrifstofuvélar leigðu út. Úr varð að íslensk stjórn- völd veittu leyfi til stofnunar útibús IBM á Íslandi sem leigði vélar og hugbúnað og veitti þjónustu á þessum búnaði. Þetta var sami háttur og IBM hafði á hvarvetna í heiminum, svo að þetta féll vel að fyr- irkomulagi hins alþjóðlega fyrirtækis. IBM á Íslandi leit dagsins ljós og Ottó var ráðinn forstjóri þess. Það segir sitt um það álit sem Ottó naut hjá stjórnendum hins alþjóðlega fyrirtækis að Skrifstofuvélar, í eigu hans, héldu áfram umboð- um fyrir skrifstofutæki frá IBM. Þetta fyrirkomulag var lík- lega einsdæmi hjá IBM í heim- inum á þessum tíma. Fyrirtæki í sérflokki IBM á Íslandi laut ströngum reglum móðurfyrirtækisins. All- ir starfsmenn urðu að lesa og staðfesta að þeir hefðu lesið siðareglur IBM og reglur giltu um klæðaburð. Erlendir sér- fræðingar voru fengnir til að kenna kerfisfræði og forritun, en engin kennsla í þessum fög- um fór þá fram í skólum hér- lendis. Nýráðnir starfsmenn voru sendir á námskeið í skólum IBM austan hafs og vestan. Brátt hafði myndast svo mikil þekking að hægt var að veita fullkomna fræðslu um búnað IBM fyrir íslenskan markað. Hjá IBM var notast við af- kastahvetjandi kerfi, menn gátu notið kaupauka og var boðið upp á veglegar utanlandsferðir ef tilteknum árangri var náð. Þetta var algjör nýlunda hér á landi. Fyrirtækinu vegnaði vel, veitti um eitt hundrað manns vinnu þegar mest lét og var einn hæsti skattgreiðandi í höf- uðborginni. Það var í samræmi við stefnu IBM að vera hvar- vetna „góður borgari“. Fyrir- tækið skyldi greiða skatta þar sem starfsemin átti sér stað. Íslenska stafrófið Í árdaga íslenskrar skýrslu- tækni blasti við augljós vandi: Vélbúnaðurinn var gerður fyrir enskumælandi markað þar sem bókstafir eru 26 en þeir eru 10 til viðbótar í íslensku. Ottó ræktaði sambönd við fjölmarga útlendinga. Meðal þeirra var Þjóðverjinn Wilhelm F. Bohn, sem starfaði hjá IBM í Þýskalandi og hafði umsjón með gerð stafataflna. Ottó gat komið því til leiðar gagnvart Bohn og yfirmönnum IBM að íslensku stafirnir yrðu hafðir með í nýrri alþjóðlegri stafatöflu. Þetta var Ottó mikið kappsmál enda hafði hann metnað fyrir hönd lands og þjóðar. Ekkert kemur af sjálfu sér Ottó hafði sem ungur maður strengt þess heit að hann skyldi umfram allt gera kröfur til sjálfs sín fremur en gera kröfur til annarra, en sem yfirmaður gerði hann vitaskuld ríka kröfu um iðni og starfshæfni. Ekkert kæmi af sjálfu sér – vinna yrði fyrir öllu. Í tímaritsviðtali árið 1981 lagði hann svo út af þess- um hugrenningum: „Ég hef allt- af verið þeirrar skoðunar, að í vinnunni ætti að felast gleði, en þessa afstöðu finnst mér verið að rífa niður hin síðari ár. Ég tel, það mestu dásemd, sem hægt að er að hugsa sér, að vera frískur og geta unnið, – lagt eitthvað af mörkum til þjóðar- búsins.“ Hann taldi brýnt að skapa meiri samstöðu launþega og atvinnurekenda og vinna gegn þeim áróðri að vinnan gæti ekki verið gleðigjafi því slíkar fullyrðingar væru beinlínis rang- ar. Ottó lét af störfum sem for- stjóri IBM árið 1982 og á þeim tíma unnu á bilinu 60 til 70 manns hjá IBM. Starfsmenn Skrifstofuvéla voru þá milli 40 og 50. Árið 1992 fór fram róttæk endurskipulagning á IBM og til varð öflugt íslenskt hlutafélag, Nýherji, sem nú ber nafnið Origo. Fjölskyldumaðurinn Kona Ottós var Gyða Jóns- dóttir, fædd 1924. Gyða var heimilisiðnaðarkennari og hafði numið við listaskóla í Noregi og Finnlandi. Þau áttu fjögur börn. Elstir eru tvíburarnir Kjartan, sem var prófessor í Ósló, en hann lést 2010, og Óttar kerf- isfræðingur. Þá kom Helga Ragnheiður hjúkrunarfræðingur og yngst í systkinahópnum er Geirlaug grunnskólakennari. Fyrir átti Ottó Helgu Ursulu Ehlers, blaðamann í Köln, og Theodór Kristin, sem er við- skiptafræðingur. Starf í þágu kirkjunnar Óhætt er að segja að Ottó hafi verið einn dyggasti þjónn kirkjunnar í leikmannastétt. Hann sat í stjórn Hjálparstofn- unar kirkjunnar frá stofnun til ársins 1984, þar af sem formað- ur síðustu fjögur árin. Mestu störfin í þágu kirkjunnar vann hann þó í sinni sókn sem for- maður byggingarnefndar Bú- staðakirkju. Eftir að Ottó lét af störfum sem forstjóri gafst honum tóm til að sinna líknarmálum. Árið 1982 skipulagði hann söfnunar- átak Krabbameinsfélagsins sem gafst einstaklega vel og árið eft- ir efndi hann til söfnunar fyrir hjartveika telpu sem þurfti á hjartaígræðslu að halda. Sú fjár- mögnun tókst einnig vel og ígræðslan heppnaðist sömuleið- is. Þrátt fyrir ferðalög vítt og breitt um heiminn undi Ottó sér hvergi jafn vel og í Skagafirði, en sjálfur komst hann svo að orði um æskustöðvarnar: „Það er svo undarlegt að þó ég sé bú- inn að ferðast víða um heiminn þá hef ég aldrei nokkurs staðar orðið eins gagntekinn af fegurð eins og í Skagafirði. Ég hef aldr- ei getað slitið þær taugar sem ég á til Skagafjarðar og alltaf langar mig norður og alltaf fæ ég endurnæringu af því einu að koma og vera fyrir norðan og hitta þar alla mína tryggu vini, sem ég hef átt frá barnæsku.“ Ottó lést 11. júní árið 2000. Björn Jón Bragason. Ottó A. Michelsen Ottó í vélasal IBM í Skaftahlíð árið 1981. Ottó með konu sinni, Gyðu Jónsdóttur, á síðari hluta sjötta áratugarins. Aldarminning Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR SIGURÐSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 28. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. júní klukkan 11. Helgi Eyjólfsson Sveindís Sveinsdóttir Dagur Garðars Guðrún Sigurðardóttir Guðrún Garðars Guðmundur Vikar Einarsson Margrét Garðars Mölk Rúnar Mölk Helga María Kristinsdóttir Sigurður Garðars Sigrún Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KOLBEINN ODDUR SIGURJÓNSSON, lést á Hlévangi 27. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 12. júní klukkan 13. Aðstandendur Ástkær bróðir okkar og frændi, JÓNAS INGIMARSSON, dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, lést 31. maí. Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 13. júní klukkan 13:30. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Guðrún Ingimarsdóttir Steingerður Ingimarsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.