Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020
60 ára Kristín er úr
Vesturbæ Kópavogs en
býr í Austurbænum.
Hún er iðjuþjálfi, MSc.,
frá Háskólanum í Lundi
og er framkvæmdastjóri
og stofnandi Janusar
endurhæfingar og fram-
kvæmdastjóri þróunar hjá Hjartavernd.
Maki: Brynjólfur Y. Jónsson, f. 1955, bækl-
unarlæknir.
Börn: Siggeir Fannar, f. 1980, Jón Hjalti, f.
1984, og Ragnheiður Dóra, f. 1985. Barna-
börn eru orðin fimm.
Foreldrar: Siggeir Ólafsson, f. 1916, d.
1987, húsasmíðameistari í Kópavogi, og
Fanney Tómasdóttir, f. 1930, húsmóðir,
búsett í Kópavogi.
Kristín Hanna
Siggeirsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur gert of miklar kröfur til
sjálfs þín og annarra. Ekki láta það draga
kjark úr þér því þetta eru skilaboð um að
þú eigir að bíða eftir betra tækifæri.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ástæðulaust að láta smá-
munina vefjast fyrir sér. Hvort sem það
tengist einhverju sem þú átt eða einhverju
sem þú kýst að kaupa.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það gengur náttúrlega ekki að
ræða ekki málin við þá sem þú þarft að
eiga samstarf við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur góðan byr í seglin en
þarft að gæta þess að fara ekki fram úr
sjálfum/sjálfri þér. Hafðu þetta hugfast
þegar þú gengur fram á vettvangi dagsins.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki eigin vangaveltur draga
athygli þína um of frá verkefnum dagsins.
Blandaðu þér því ekki í vandamál annarra
að óþörfu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft á hreyfingu að halda til að
losa um spennuna sem hefur safnast upp
í þér. Reyndu að brosa og sýna öðrum þol-
inmæði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú ert nógu ákveðinn og bjartsýnn
ætti það að reynast þér leikur einn að láta
drauminn rætast. Ekki hlusta á þína innri
rödd sem varar þig við hættunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það gæti verið vandasamt að
velja réttu leiðina þegar fleiri en ein eru í
boði. Reyndu að virkja aðra með mannúð
þinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er dagurinn til þess að
halda upp á. Mundu að góð vinátta er gulli
betri. Eins og oftast í þannig leit skiptir
fólkið sem hjálpar þér meira máli en fund-
urinn sjálfur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu í samræðum við aðra að
frelsi þitt nær ekki lengra en þangað sem
frelsi hins tekur við.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér líður vel og þú lítur til-
veruna björtum augum. Talaðu skýrt og
tæpitungulaust og þá færðu undirtektir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú þegar tæknin hefur tekið flest
völd verður þú að fylgjast með sem aðrir
og tileinka þér það sem hún hefur upp á
að bjóða.
G
erður Kristný Guðjóns-
dóttir er fædd 10. júní
1970 í Reykjavík og ólst
upp í Safamýri. „Ég var
sílesandi sem krakki og
fór snemma að skrifa sögur. Ég á
kvæði frá því að ég var tíu ára, enda
heillaðist ég af Skólaljóðunum og
byrjaði snemma að yrkja vísur. Mér
fannst það gaman.“
Gerður Kristný var í Álftamýrar-
skóla, varð stúdent frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð 1989 og lauk
BA-prófi í frönsku með almenna bók-
menntafræði frá Háskóla Íslands í
febrúar 1992. Lokaritgerðin fjallaði
um ljóðabókina Les fleurs du mal eft-
ir Charles Baudelaire. Að því loknu
lauk hún námi í hagnýtri fjölmiðlun
frá sama skóla.
Gerður var blaðamaður í áratug,
var í sumarafleysingum á Tímanum
tvö sumur og svo hjá tímaritaútgáf-
unni Fróða og þar af ritstjóri tíma-
ritsins Mannlífs í sex ár.
Fyrsta bókin, ljóðabókin Ísfrétt,
kom út árið 1994 en Gerður Kristný
starfaði lengi jöfnum höndum sem
ritstjóri og rithöfundur. „Undanfarin
16 ár hef ég verið skáld og rithöf-
undur í fullu starfi en skrifa jafnframt
greinar um íslenskar bókmenntir í
Bokmagasinet, sem fylgir norska
dagblaðinu Klassekampen um helgar
og sinni formennsku nefndar um Ís-
lensku menntaverðlaunin.
Ég tók þátt í smásögukeppnum í
menntaskóla og háskóla. Stundum
komst ég á blað en stundum ekki. Það
skipti samt engu máli því ég var
löngu farin að líta á mig sem skáld,“
segir Gerður Kristný, spurð hvenær
hún hafi ákveðið að verða rithöf-
undur.
Alls hefur Gerður skrifað 27 bæk-
ur; ljóðabækur, barnabækur, skáld-
sögur, ferðabók, ævisögu og smásög-
ur. Auk þess samdi hún söngleikinn
Ballið á Bessastöðum sem frum-
sýndur var á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins í febrúar 2011 og svo hefur
hún þýtt fjórar bækur. Næsta haust
kemur út 28. bókin eftir Gerði Kristn-
ýju en það er barnabókin Iðunn og afi
pönk. „Nú er pönkkynslóðin komin í
ömmu- og afahlutverkið. Það þarf að
fjalla um það eins og hvað annað.“
Gerður var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna fyrir ljóða-
bækurnar Höggstað, Sálumessu og
Blóðhófni en sú síðastnefnda hlaut
verðlaunin árið 2010. Hún var einnig
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandráðs og hefur verið gefin
út í sex löndum, nú síðast á spænsku.
Þá hefur Gerður til dæmis hlotið
Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvars-
sonar og Ingibjargar Sigurðardóttur,
Ljóðstaf Jóns úr Vör, Barna- og ung-
lingabókaverðlaun Vestnorræna
ráðsins fyrir Garðinn, Blaðamanna-
verðlaun Íslands fyrir Myndina af
pabba – Sögu Thelmu og Bókmennta-
verðlaun Halldórs Laxness fyrir Bát
með segli og allt.
„Mér finnst gaman að ferðast og
lesa bækur,“ segir Gerður, spurð út í
áhugamálin. „Skemmtilegast er að
Gerður Kristný skáld – 50 ára
Fjölskyldan Kristján, Gerður, Hjalti og Skírnir í Edinborg haustið 2017.
Bækurnar nálgast að verða 30
Bókmenntahátíð Gerður með norsku rithöfundunum Monu Høvring og
Per Petterson á bókmenntahátíðinni í Lillehammer vorið 2019.
Morgunblaðið/Golli
Skáldið Gerður Kristný kemur með nýja barnabók í haust.
30 ára Arnór er
Reykvíkingur, ólst
upp í Grafarvogi en
býr í Grafarholti.
Hann er að ljúka við-
skiptafræðinámi frá
HÍ og er vörustjóri
hjá Vodafone Stöð 2.
Maki: Elva Margrét Árnadóttir, f. 1990,
flugfreyja hjá Air Iceland Connect.
Dætur: Ísabella Eir, f. 2015, og Heið-
dís Björk, f. 2019.
Foreldrar: Theodór Sveinjónsson, f.
1971, knattspyrnuþjálfari hjá Víkingi,
og kokkur í Kelduskóla, og Guðlaug
Gísladóttir, f. 1970, leikskólakennari í
Lyngheimum. Þau eru búsett í Reykja-
vík.
Arnór Fannar
Theodórsson
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Heiðdís Björk Arnórsdóttir
fæddist laugardaginn 12. október
2019 kl. 15.37 í Reykjavík. Hún vó
3.155 g og var 47,5 cm löng. Foreldrar
hennar eru Arnór Fannar Theódórs-
son og Elva Margrét Árnadóttir.
Nýr borgari