Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 23

Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 23
tækjum þá má ekki vanta mat á fjár- hagslegum árangri. Slíkt virðist hins vegar ekki fylgja kostun á íslenskum knattspyrnufélögum. En ef um sam- félagslega ábyrgð er að ræða þá þarf svo sem ekki að vera fjárhagslegur ávinningur af samstarfinu,“ bendir Björn á. Er þetta sjálfbært? Spurður um hvort eitthvað hafi kom- ið honum á óvart, nefnir Björn eitt at- riði sérstaklega. „Það sem kom mér mest á óvart var umfang persónulegra tengsla í stuðn- ingi við knattspyrnuna. Ég vissi auðvit- að af því að peningar kæmu inn í íþróttafélögin vegna þess að maður þekkir mann. En umfangið kom mér talsvert á óvart. Yfirgnæfandi meiri- hluti styrkja til knattspyrnufélaganna er vegna persónulegra tengsla. Meira að segja hjá stóru félögunum virðist lít- ið vera að sækja til fyrirtækjanna nema tengslin séu fyrir hendi. Þetta tel ég vera áhyggjuefni. Hjá stóru fyrirtækjunum er markaðs- setning og samfélagsleg ábyrgð að verða formfastari. Málin fara í gegnum ferla og nefndir. Í auknum mæli er fag- lega staðið að því í hvað fjármunirnir skuli fara. Þar af leiðandi verður erf- iðara fyrir félögin að toga í persónulega spotta og redda sér peningum. Ég get ekki ímyndað mér að sjálfbært sé að stór hluti tekna íslenskra knatt- spyrnuliða, sem er kostun, byggist á því að hægt sé að nýta sér persónuleg tengsl. Ef félögin vilja sækja tekjur með öðrum leiðum þá þurfa þau að gera sig að betri söluvöru. Þau eru að einhverju leyti meðvituð um það og ein- hver þeirra eru lengra komin í þessu en önnur. Á hinn bóginn er íslenskur veru- leiki þannig að knattspyrnufélögin hafa tæplega bolmagn til að ráða starfs- mann til að fylgjast með vörumerkinu og vera í markaðsstörfum. Þetta er því ákveðið vandamál,“ segir Björn og þegar hann talar um persónuleg tengsl þá er sem dæmi um að ræða tengsl á milli stjórnarmanna í félögum og háttsettra einstaklinga í fyrirtækj- unum, en einnig að stjórnendur fyr- irtækja hafi tengingar við félögin. Hafi sjálfir verið í félaginu, eigi börn í félaginu eða eitthvað slíkt. Hægt að nýta upplýsingarnar Björn Berg er þeirrar skoðunar að hollt sé fyrir fólk í knattspyrnuhreyf- ingunni að átta sig á þessari stöðu. „Ég sá fyrir mér að niðurstöður þessa verkefnis gætu orðið gagnlegar og nauðsynlegar. Ég held að við séum á þeim tímapunkti að fólk þurfi að heyra þetta. Fólk hjá félögunum áður en styrkirnir þorna upp og fólk hjá fyrirtækjunum áður en þau útiloka knattspyrnuna sem möguleika á markaðssetningu. Verkefnið gæti jafnvel orðið ein- hvers konar handbók, bæði fyrir fé- lögin og fyrirtækin, til að skilja betur hvað hinn aðilinn er að hugsa. Ég held að það sé heilbrigt því þar er ekki nægilega mikill skilningur á milli. Í verkefninu er að finna upplýsingar um þetta. Ég tel því að gagnsemin í þessu sé ótvíræð. Ég heyri hjá mörgum félögum að erfiðara sé að sækja styrki. Þá ættu þau ef til vill að velta því fyrir sér að nálgast þetta á faglegri hátt. Reyna að nálgast fyrirtækin á annan hátt. Fyrirtækin geta á móti kynnt sér bet- ur hvað félögin hafa fram að færa. Þar gætu leynst tækifæri sem fyrirtækin hafa ekki nýtt sér,“ segir Björn Berg Gunnarsson. Morgunblaðið/Íris Meistarakeppni Frá leik KR og Víkings í Vesturbænum á dögunum. spila. Í staðinn hefur HK endurheimt Guðmund Þór Júlíusson og Hafstein Briem, sem misstu af síðasta tímabili vegna meiðsla. Þá skiptir miklu að varnarmaðurinn reyndi Hörður Árnason fékkst til að hætta við að hætta og verður með í sumar. Brynjar Björn Gunnarsson er með þokkalega sterkan 17 manna hóp til umráða en það verður lykilatriði fyrir Kópavogsliðið að meiðsli verði í lág- marki, og að það nái að halda sama ferskleika og fleytti því í gegnum síð- asta tímabil. Agaður varnarleikur og hraður sóknarleikur verður eflaust áfram aðalsmerki HK-inga. Tíunda sæti væri stórsigur Uppgangur Gróttu síðustu tvö árin er eitt mesta ævintýri í íslenskum fótbolta á seinni árum. Félagið sem aldrei hafði náð lengra en að vera í botnbaráttu í 1. deild er komið í hóp þeirra bestu eftir að hafa farið upp úr 2. deild á tveimur árum og unnið óvæntan en glæsilegan sigur í 1. deildinni á síðasta tímabili. Seltirningar mæta til leiks með nánast sama lið og í fyrra, og nær óbreytt frá því það endaði í 2. sæti 2. deildar 2018. Þeir segja jafnframt að leikmenn þeirra fái ekki greidd laun og Grótta er samkvæmt því eina al- gjöra „áhugamannaliðið“ í deildinni. Þá er liðið kornungt, enginn leik- maður er eldri en 26 ára, og það hef- ur vakið athygli fyrir góðan og vel skipulagðan fótbolta undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar síð- ustu tvö árin. Nú er Ágúst Þór Gylfa- son tekinn við af honum og fær það erfiða hlutverk að reyna að halda lið- inu í úrvalsdeildinni í ár. Takist Gróttu að ná 10. sætinu mun það telj- ast stórsigur fyrir Ágúst og hans stráka. Aðeins fimm leikmenn í hópnum hafa komið við sögu í efstu deild, og samtals spilað þar 25 leiki, allir sem ungir varamenn hjá KR og Breiða- bliki. Sá leikmaður sem mesta at- hygli vakti þó í fyrra var framherjinn Pétur Theódór Árnason, sem sprakk út og skoraði alls 24 mörk í deild og bikar, þar sem hann varð marka- hæsti leikmaðurinn í báðum keppn- um. Kornungur markvörður, Hákon Rafn Valdimarsson, hefur vakið at- hygli, en hann er unglingalandsliðs- maður og tekur virkan þátt í spili liðsins út frá vörninni. Engar væntingar í Grafarvogi Fjölnismenn eru komnir aftur í efstu deild eftir eins árs fjarveru en óhætt er að segja að þeir séu með það lið sem minnstar væntingar eru gerð- ar til. Fæstir utan Grafarvogs virðast reikna með því að Fjölnir eigi nokkra möguleika á að halda sæti sínu í deildinni í sumar og það gæti reynst Ásmundi Arnarssyni og hans unga liði vel að hefja mótið á þeim for- sendum. Fjölnir varð fyrir mikilli blóðtöku því þrír þeirra leikmanna sem áttu einna mestan þátt í velgengni liðsins í 1. deildinni í fyrra eru farnir. Mið- vörðurinn öflugi Rasmus Christian- sen sneri aftur til Vals eftir árs láns- dvöl og Albert Ingason, framherjinn reyndi sem var markahæsti leik- maður liðsins í fyrra, ákvað að fara frekar niður í 2. deild en að snúa aft- ur í úrvalsdeildina. Þá varð Fjölnis- liðið fyrir því áfalli á lokametrunum að fyrirliðinn Bergsveinn Ólafsson tilkynnti að hann væri hættur að spila fótbolta. Fjölnir endurheimti hins vegar miðvörðinn Torfa Tímoteus Gunnarsson sem var í láni hjá KA og fékk miðjumanninn Grétar Snæ Gunnarsson frá Ólafsvík. Að öðrum kosti þarf Ásmundur að treysta á að ungir leikmenn liðsins springi út, ásamt því að Guðmundur Karl Guð- mundsson og Hans Viktor Guð- mundsson sýni bestu hliðar sínar. Í Fjölnisliðinu eru annars margir efnilegir leikmenn sem gætu nýtt tækifærið vel í sumar. Þá hefur Jón Gísli Ström skorað 70 mörk í neðri deildunum og Fjölnir þarf á því að halda að hann springi út í efstu deild.  Leikmannahópa liðanna sex og allar breytingar á liðunum má sjá á mbl.is/sport. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Svipuð? Miðvörðurinn Hallgrímur Jónasson skallar frá marki í leik KA og Fylkis í Lengjubikarnum í vetur. Liðunum er spáð sjöunda og áttunda sæti. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020  Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson hefur samið við KA-menn um að leika með þeim á komandi keppnistímabili en hann hef- ur leikið með Stjörnunni undanfarin tvö ár. Steinn, sem er þrítugur sóknar- maður, lék áður með Víkingi í Ólafsvík, ÍBV, Fram, HK og Val, sem og með Notodden í Noregi og seinnipart vetrar lék hann með Koblenz í þýsku D- deildinni. Steinn hefur leikið 128 leiki í efstu deild og skorað 31 mark, og ætti að fylla skarð Elfars Árna Aðalsteins- sonar sem leikur ekki með KA í sumar vegna meiðsla.  Markvörðurinn reyndi Ben Foster hefur skrifað undir nýjan samning til tveggja ára við enska knattspyrnu- félagið Watford. Hann er 37 ára gamall og hefur varið mark liðsins í úrvals- deildinni undanfarin tvö ár, og lék áður með því í tvö ár sem lánsmaður frá Manchester United. Foster, sem hefur leikið átta landsleiki fyrir England, hóf ferilinn undir stjórn Guðjóns Þórðar- sonar hjá Stoke árið 2001 en var seld- ur til United fyrir eina milljón punda fjórum árum síðar án þess að hafa náð að spila aðalliðsleik fyrir Stoke.  Enski knattspyrnumaðurinn Adam Lallana hefur framlengt samning sinn við Liverpool til loka tímabilsins og getur því leikið með meistaraefnunum í síðustu níu umferðunum í sumar. Lallana er 32 ára og hefur leikið með Liverpool frá 2014 en samningur hans átti upphaflega að renna út í lok þessa mánaðar.  Ada Hegerberg, besta knattspyrnu- kona heims, hefur gert nýjan styrktar- samning við íþróttavöruframleiðand- ann Nike. Hin norska Hegerberg er 24 ára gömul en samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar er samningurinn til tíu ára. Þá er hann metinn á eina milljón evra en Hegerberg var áður samningsbundin Puma.  Ítalski knattspyrnumaðurinn Mario Balotelli var sendur aftur heim þegar hann hugðist mæta á æfingu hjá ítalska liðinu Brescia í gærmorgun. Balotelli er sagður hafa gengið að æf- ingasvæði Brescia en eftir stutt sam- tal við starfsmann félagsins hafi hann haldið aftur á braut. Á dögunum var sagt í ítölskum fjöl- miðlum að félagið hefði rekið hann fyrir að sinna ekki æfingum þegar hlé var gert vegna kórónuveirunnar. Leik- maðurinn kvaðst þá hafa verið þjáður af magaverkjum. Gazzetta dello Sport segir að Balotelli hafi sent félaginu vottorð frá lækni í gærkvöld þar sem fram kæmi að hann væri búinn að jafna sig. Vottorðið hafi hins vegar ekki borist nægilega snemma til að Balotelli væri tryggður fyrir meiðslum á æfingunni. Balotelli gekk til liðs við Brescia í ágúst 2019. Hann hefur skor- að 5 mörk í 19 leikjum í A-deildinni á yfirstand- andi tímabili en Brescia, þar sem Birkir Bjarnason er einnig meðal leikmanna, situr á botni deild- arinnar. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.