Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 28
staklega vel fyrir strandblak á
höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum
mánuði en vellirnir hafi engu að síð-
ur verið vel nýttir. „Fyrir tveimur
árum stofnuðum við Strandblak-
félagið, áhugahóp um uppbyggingu
strandblaks á Íslandi. Á fyrstu
tveimur vikunum skráðu 220 manns
sig í félagið og greiddu félagsgjald,
en nú eru yfir 500 manns sem æfa og
leika sér í strandblaki á höfuðborg-
arsvæðinu og strandblakarar og al-
menningur notuðu vellina þar í 1.100
klukkustundir í maí.“
Sporthúsið í Kópavogi setti upp
sandvelli innanhúss fyrir nokkrum
árum en Boot Camp tók síðan yfir
aðstöðuna. Karl segir að mikil þörf
sé fyrir aðstöðu innanhúss, en erfitt
hafi verið fyrir fámennan hóp að
vekja athygli á því. Með stuðningi
Blaksambandsins og Íþrótta-
sambandsins samfara gríðarlegri
fjölgun iðkenda og áhuga Fjölnis hafi
komist skriður á málið og ætla megi
að langþráður draumur verði að
veruleika áður en langt um líður.
Karl bendir á að Alþjóðahand-
knattleikssambandið sé að íhuga að
hefja keppni í strandhandbolta 2024
eða 2028 og ætla megi að HSÍ sendi
lið til keppni. Handboltamenn gætu
því þurft sambærilega inniaðstöðu
fljótlega auk þess sem sandíþróttir á
öðrum sviðum njóti vaxandi vinsælda
erlendis og sá áhugi gæti auðveld-
lega smitast til landsins. „Strand-
handbolti, -fótbolti og -tennis eru til
dæmis vinsælar greinar víða,“ segir
hann.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Áhugamenn um strandblak hér-
lendis hafa unnið að framgangi
íþróttarinnar undanfarin ár og eygja
von um að strandblaksdeild íþrótta-
félags verði að veruleika innan
skamms, en Ungmennafélagið Fjöln-
ir í Reykjavík er með slíka deild í bí-
gerð, að sögn Guðmundar L. Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra
félagsins.
„Við höfum fengið jákvæð við-
brögð frá Íþróttasambandinu og
Blaksambandinu og ráðamenn
Fjölnis eru tilbúnir að stofna deild,
en við þurfum nauðsynlega inni-
aðstöðu, því strandblak er stundað
allt árið,“ segir þjálfarinn Karl Sig-
urðsson, sem hefur verið í farar-
broddi strandblakara frá byrjun.
Mikill áhugi
Karl bendir á að upp úr aldamót-
um hafi mátt telja virka iðkendur á
fingrum annarrar handar og hringja
hafi þurft í fólk til að fá það til að
taka þátt í mótum fyrstu þrjú árin.
Fyrsta Íslandsmótið hafi farið fram
á einum velli í Kópavogi á einum degi
haustið 2004 með þátttöku innan við
30 manns, en á fyrsta móti ársins,
sem fór fram um helgina, hafi 82 lið
verið skráð til leiks eða 164 kepp-
endur, og leikið hafi verið á sjö völl-
um í Reykjavík, Kópavogi og Garða-
bæ frá fimmtudegi til sunnudags.
„Venjulega hefur verið stígandi í
þátttökunni og hún verið mest á Ís-
landsmótinu en það hefur orðið al-
gjör sprenging og þetta er fjölmenn-
asta mótið til þessa,“ segir Karl, en
nýafstaðin keppni fór fram á tveimur
völlum við Laugardalslaug, tveimur
völlum í Fagralundi í Kópavogi og
þremur völlum við Ásgarð í Garða-
bæ. Á höfuðborgarsvæðinu eru auk
þess vellir við Árbæjarlaug og í Mos-
fellsbæ.
Íþróttin er ekki bundin við höfuð-
borgarsvæðið og til dæmis verður
næsta mót á Þingeyri fyrstu helgina
í júlí og síðan á Akureyri. Mótaröðin
nær hámarki með Íslandsmótinu
aðra helgina í ágúst. Karl bendir á að
um 60 vellir séu á landinu og þar af
tíu vellir í Reykjavík og nágrenni.
Hann segir að ekki hafi viðrað sér-
Sprenging í sandinum
Strandblaksdeild í bígerð hjá Fjölni í Grafarvogi
Segja þörf á aðstöðu innanhúss fyrir æfingar allt árið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsta mót ársins Sigríður Eva Arngrímsdóttir og Alda Björg Karlsdóttir.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 449.000,-
L 202 cm Leður ct. 25 Verð 66.000,-
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
BOTANIC model 3185
L 162 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,-
L 192 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Það sem kom mér mest á óvart var umfang persónu-
legra tengsla í stuðningi við knattspyrnuna. Ég vissi
auðvitað af því að peningar kæmu inn í íþróttafélögin
vegna þess að maður þekkir mann. En umfangið kom
mér talsvert á óvart. Yfirgnæfandi meirihluti styrkja til
knattspyrnufélaganna er vegna persónulegra tengsla.
Meira að segja hjá stóru félögunum virðist lítið vera að
sækja til fyrirtækjanna nema tengslin séu fyrir hendi,“
segir Björn Berg Gunnarsson m.a., en hann lauk nýlega
við ritgerð um kostun knattspyrnuliða á Íslandi. »22-23
Íslensku knattspyrnliðin virðast
ekki sterk söluvara sem stendur
ÍÞRÓTTIR MENNING
Vigdís Hrefna Páls-
dóttir og Unnur Ösp
Stefánsdóttir munu
fara með hlutverk
vinkvennanna Elenu
og Lilu í uppfærslu
Þjóðleikhússins á
Framúrskarandi vin-
konu, sem byggist á
Napólísögum Elenu Ferrante, í leikstjórn Yael Farber.
Þjóðleikhúsið leitar af þeim sökum að tveimur stúlk-
um á aldrinum átta til tólf ára til að fara með hlut-
verk vinkvennanna sem börn. Skráningarfrestur er til
og með 15. júní á vef leikhússins. „Við erum ákaflega
spennt að sviðsetja þetta verk sem hefur snert
streng í hjörtum fólks um alla veröld. Það er leitun
að bókaflokki sem hefur náð svo mikilli útbreiðslu á
jafn skömmum tíma. Sagan er hjartnæm, grimm en
einnig falleg,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleik-
hússtjóri í tilkynningu, og tekur fram að starfsmenn
leikhússins hlakki mikið til að vinna með leikstjór-
anum Yael Farber.
Leikprufur fyrir ungar stúlkur