Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining áhitabreytist eftir aldri? ThermoScan7eyrnahita- mælirinnminnveit það.“ BraunThermoScan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarfélagið var illa í stakk búið til að ráða við svo viðamikið verkefni sem uppbygging kísilvers United Silicon í Helguvík var. Mikilvægt er að draga lærdóm af þeim hrakförum sem áttu sér stað við uppbygging- una. Svo segir í bókun sem tíu af ell- efu fulltrúum í bæjarstjórn Reykja- nesbæjar lögðu fram á fundi bæjar- stjórnar í fyrrakvöld. Fulltrúi Mið- flokksins lýsti öndverðri skoðun og sagði að þáverandi meirihluti hefði borið ábyrgð á því hvernig fór. Bæjarráð ákvað fyrir tveimur ár- um að láta gera úttekt á stjórnsýslu- háttum Reykjanesbæjar vegna upp- byggingar kísilversins, í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar, þar sem gerðar voru athugasemdir við samskipti stofnana ríkisins við Unit- ed Silicon, og athugasemda Skipu- lagsstofnunar við eftirlit bæjarins. Skýrslan var lögð fram í bæjarráði fyrir nokkru og rædd í bæjarstjórn í fyrrakvöld. Annmarkar á byggingarleyfum Meginniðurstaða skýrsluhöfund- ar, Lúðvíks Arnar Steinarssonar lög- manns, var að annmarkar hefðu ver- ið á skipulagsferli og við útgáfu byggingarleyfa. Deiliskipulag hefði heimilað byggingu mannvirkja sem voru hærri en umhverfismat gerði ráð fyrir. Þá hefðu byggingarleyfi verið gefin út í andstöðu við deili- skipulag þar sem hæð samkvæmt samþykktum teikningum var 1,2 metrum meiri en heimilt var sam- kvæmt skipulagi. Tekið er fram í niðurstöðum skýrslunnar að ekkert sé í samskipt- um fyrirtækisins eða forvera þess við bæinn sem gefi tilefni til að ætla að annarleg sjónarmið hafi ráðið för hjá stjórnendum eða starfsmönnum bæjarins. Í bókun bæjarfulltrúanna tíu eru þessar meginniðurstöður raktar. Einnig kemur fram að svo virðist sem mikil pressa hafi verið sett á embættismenn um að afgreiða erindi framkvæmdaraðila með hraði og það leitt til verulegra mistaka. Vísað er til umfjöllunar í skýrslunni um að Reykjanesbær hefði skuldbundið sig með samningi til að afgreiða um- sóknir um byggingarleyfi innan sex virkra daga. Megi því ljóst vera að pressa hafi verið á að afgreiða um- sóknir eins fljótt og auðið var en tek- ið fram að engin heimild sé fyrir stjórnvöld til að semja fyrirfram um slíka málsmeðferð. Margrét Þórarinsdóttir, bæjar- fulltrúi Miðflokksins, lýsti sig ósam- mála niðurstöðu hinna bæjarfulltrú- anna og sagðist telja að Reykjanes- bær hefði verið í stakk búinn til að takast á við verkefnið. Ólöglegar pólitískar ákvarðanir þáverandi meirihluta hefðu verið meginástæða þess hvernig fór. Vísaði hún þar til samningsins um sex daga frest til að afgreiða umsóknir. „Niðurstaða skýrslunnar er sláandi og áfellisdóm- ur yfir stjórnsýslu bæjarins,“ segir í bókun sem hún las upp. Hefðu getað beðið um frest Baldur Guðmundsson, bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, einn tíumenninganna, tók fram að hann hefði ekki vitað af sex daga ákvæðinu en sagði einkennilegt að svona mikið væri gert úr þeim þætti. Heilbrigð skynsemi segði að þetta ákvæði væri ekki ástæða mistakanna. Ef starfs- maður hefði ekki ráðið við að af- greiða mál innan þessa frests hefði honum verið í lófa lagið að greina frá því og biðja um meiri tíma. Aldrei hefði komið til þess. Hann benti einn- ig á að margir fleiri hefðu komið að uppbyggingunni í Helguvík en meiri- hluti sjálfstæðismanna í bænum. Réðu illa við svo stórt verkefni  Tíu fulltrúar af ellefu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar segja mikilvægt að læra af hrakförum við upp- byggingu kísilvers  Pressa um hraða afgreiðslu byggingarleyfa sögð hafa leitt til verulegra mistaka Morgunblaðið/Eggert Helguvík Starfsemi kísilvers United Silicon hefur lengi legið niðri. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Vísbendingar eru um að Grímsvötn búi sig nú undir eldgos. Af þeim sökum mun vísindaráð almanna- varna hittast á fundi í dag til að ræða nýjustu mælingar á svæðinu auk þess sem farið verður yfir stöðuna á Reykjanesskaga. Ráðið hittist síðast á fundi 10. júní sl. en sökum aðstæðna í Grímsvötnum þótti ástæða til að boða annan fund í dag. Að sögn Magnúsar Tuma Guð- mundssonar, prófessors í jarðeðlis- fræði, er lítið hægt að lesa í boðun fundarins. „Þetta þýðir bara að það þurfi að fara yfir stöðuna varðandi Grímsvötn. Ég held að það sé ekki ástæða til að lesa eitthvað í það. Það er ekkert sem segir að þetta muni skella á akkúrat núna,“ segir Magnús og bætir við að tíma taki fyrir gos að myndast. Slíkt taki að lágmarki viku. Ekki sé þó ólíklegt að gjósa muni á svæðinu. „Það gæti gerst en gerist ekki alltaf. Við þurfum að vera við því búin að þetta geti gerst,“ segir Magnús. Öskufall slæmt fyrir skepnur Spurður hvort gos á svæðinu sé áhyggjuefni kveður Magnús nei við. Ekki séu líkur á því að gos nærri Grímsvötnum geti valdið mjög miklum skaða. „Þetta eru yfirleitt lítil eða meðalstór gos. Málið er að Gríms- vötn eru svo langt frá byggðu bóli að þetta veldur sjaldan miklum skaða. Aftur á móti er ekki gott að fá öskufall af gosi í Grímsvötnum yfir byggðir eða skepnur.“ Gosið getur í Grímsvötnum  Fundað í dag vegna vísbendinga um eldgos á svæðinu Morgunblaðið/RAX Jökull Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls. „Þetta er gríðarlega mikill heiður og ég er stoltur af því að taka við þessu fyrir hönd þess stóra hóps sem hefur unnið að þessu verkefni í svo langan tíma,“ segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Hann var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í gær, á þjóðhátíðardaginn, ásamt hin- um tveimur úr þríeykinu svokallaða, Ölmu D. Möll- er landlækni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Alls fengu 14 fálkaorðuna í gær en þeir eru auk þríeykisins: Anna Dóra Sæþórsdóttir prófessor, Bárður Hafsteinsson skipaverkfræðingur, Einar Bollason fv. formaður KKÍ og stofnandi Íshesta, Ellý Katrín Guðmundsdóttir fv. borgarritari, Helgi Björnsson leikari og tónlistarmaður, Hildur Guðnadóttir tónskáld, Hulda Karen Daníelsdóttir kennari og formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, Jón Sigurðs- son fv. rektor, seðlabankastjóri og ráðherra, Sigrún Þuríður Geirsdóttir þroskaþjálfi og Sigurborg Ingunn Einarsdóttir fv. hjúkrunarfor- stjóri og ljósmóðir á Eskifirði. Tekur stoltur við fálkaorðunni fyrir hönd hópsins Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir „Eru ekki allir sexí?“ sagði Helgi Björnsson, tónlistarmaður og leikari, þegar hann lauk þakkarræðu sinni eftir að hann hafði verið útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur 2020 við athöfn í Höfða. Hann hafði skömmu áður tekið við fálkaorðunni fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar. „Ég held að ég sé ekki alveg búinn að melta þetta. Það tekur örugglega smástund að átta sig á þessu öllu saman. Þetta er svo mikið að maður verður bara pínulítið feiminn og staldrar við og hugsar hvort þetta sé nú alveg rétt hjá þeim,“ segir Helgi og heldur áfram: „Þetta er um leið hvatning til betri verka. Maður lítur á það þannig, að svona virðingarvottur sé eitthvað sem maður nýtir […] til að vanda sig meira og gera betur.“ Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Borgarlist Dagur B. Eggertsson og Helgi Björns í sólinni við Höfða. Hvatning til betri verka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.