Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
50 ára Ólafur ólst upp
í Mosfellsbæ en býr í
Reykjavík. Hann er
stúdent frá MS og lauk
burtfararprófi frá FÍH.
Ólafur er trommuleik-
ari m.a. í Nýdönsk,
Todmobile, Dúndur-
fréttum og í leikhúsum, og tónlistarkenn-
ari við FÍH og Skólahljómsveit Austur-
bæjar.
Maki: Elva Brá Aðalsteinsdóttir, f. 1977,
sálfræðingur hjá Heilsuklasanum.
Börn: Freyja Hólm, f. 2005, Una Hólm, f.
2008, og Einar Hólm, f. 2012.
Foreldrar: Einar Hólm Ólafsson, f. 1945,
fv. skólastjóri Öskjuhlíðarskóla, búsettur
í Mosfellsbæ, og Vilborg Árný Einars-
dóttir, f. 1946, d. 2018, þroskaþjálfi.
Ólafur Hólm Einarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sannleikurinn er sagna bestur og
það skaltu hafa í huga gagnvart þínum
nánustu. Galdurinn er að taka hlutunum
með jafnaðargeði og brosa.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú græðir meira á því að vera fólki
innan handar og greiða því leið en að
setja stól í götu þess. Einbeittu þér að
þeim verkefnum sem fyrir liggja og þá sjá
aðrir þínar bestu hliðar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur frumlegar hugmyndir
um það hvernig þú getir aukið tekjur þín-
ar. Láttu ekki einkalíf og atvinnu ganga á
hlut hvort annars.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér hafa gefist mörg tækifæri að
undanförnu til að kynnast nýjum hlutum
og hitta skemmtilegt fólk. Engin spenna
er í loftinu og því skaltu taka lífinu með ró.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er nauðsyn að finna tíma fyrir
sjálfan þig. Leitaðu þér hjálpar svo þú
megir komast aftur á þinn stað í lífinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Djúpar og innilegar samræður við
vin þinn opnar þér nýja sýn á mál sem á
hug þinn allan þessa dagana. Stuttar
ferðir, samtöl við samstarfsfólk og samn-
ingaviðræður munu halda þér við efnið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú verður fyrir alls konar áhrifum frá
vinnufélögum þínum, sem allir vilja fá þig
á sitt band. Enginn er eyland og þú þarft
félagsskap eins og aðrir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki gefa loforð sem þú getur
ekki staðið við. Sýndu þolinmæði ef illa
stendur á hjá einhverjum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gerðu nú eitthvað fyrir sjálfan
þig án þess að fá sektarkennd. Nýttu
þetta tækifæri til að gera eitthvað nýtt og
óvenjulegt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú hræðist peninga er mjög
erfitt að þéna þá. Vertu ögrandi og hag-
aðu þér eins og þú vilt að félagar þínir
geri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn í dag er heppilegur
fyrir viðskipti og samninga. Ræddu þau
vandamál sem upp koma við vini þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Komandi vikur verða lifandi og
skemmtilegar. Gamla rútínan hentar ekki
þeirri manneskju sem þú ert orðinn.
vísindasamstarf þjóðanna.
Í tilefni af opnun sýningarinnar
Vatnið í náttúru Íslands 1. desember
2018 gaf Pétur Náttúruminjasafni Ís-
lands bókasafnið sitt. Það telur um
500 titla af fágætum fræðiritum um
fyrst og fremst vatnalíffræði, eftir
evrópska náttúrufræðinga, frá 17. öld
vallavatn – undraheimur í mótun.
Pétur hefur síðan gefið fleiri slíkar
bækur út um þetta efni. Árið 2012
hlaut Pétur verðlaun Jóns Sigurðs-
sonar forseta fyrir framúrskarandi
fræðistörf á sviði vatnalíffræði í Dan-
mörku og á Íslandi og að hafa lagt
fram mikilvægan skerf til að styrkja
P
étur Mikkel Jónasson
fæddist 18. júní 1920 í
Reykjavík og ólst upp í
Vesturbænum. Í barn-
æsku eyddi hann mörg-
um sumrum sem smali á bænum Mið-
felli við Þingvallavatn hjá afa sínum
og ömmu. Þessi dvöl varð honum
mikill innblástur þegar hann fékk síð-
ar tækifæri til rannsókna á Íslandi.
Eftir barnaskólanám í Reykjavík
gekk hann í Gagnfræðaskóla Reykja-
víkur og varð stúdent frá MR 1939.
Hann varð magister í dýrafræði 1952
við Kaupmannahafnarháskóla og
fékk síðan námsstyrk frá hinum al-
menna vísindasjóði danska ríkisins
frá 1953 til 1957.
Pétur byrjaði sem aðstoðarmaður
við vatnalíffræðistofnun Kaup-
mannahafnarháskóla í Hillerød.
Hann varð síðan dósent, deildarstjóri,
prófessor og síðan 25 ár sem prófess-
or emeritus. Hann fékk doktorsgráðu
við Kaupmannahafnarháskóla árið
1972 á grundvelli ritgerðar þar sem
hann skoðaði vistfræði botndýralífs-
ins í Esrum-vatni. Síðan stjórnaði
Pétur samnorrænum þverfaglegum
rannsóknum á Mývatni og Þingvalla-
vatni.
Á þessum 100 ára degi getur hann
litið til baka yfir langan og fallegan
feril í vatnalíffræðinni. Þar til hann
varð 95 ára var áhuginn ræktaður
með því að mæta á rannsóknarstof-
una í Háskólanum í Kaupmannahöfn
en síðan hefur starfsemin farið fram
við skrifborðið á heimili hans.
Pétur nýtur mikillar virðingar í vís-
indasamfélaginu. Greinar hans hafa
margar endað á lista yfir „citation
classics“ í vatnalíffræði. Hann hefur
verið ritstjóri fremstu alþjóða-
tímarita og um árabil verið formaður
Alþjóðavísindafélags vatnalíffræð-
inga, SIL. Hann var sæmdur Nau-
mann-Thienemann-orðunni frá SIL,
sem á heimsvísu er ein æðstu verð-
laun ferskvatnslíffræðinga. Hann er
einnig meðlimur í vísindafyrirtækjum
í Danmörku, Noregi og á Íslandi. Ár-
ið 2001 varð Pétur heiðursdoktor við
raunvísindadeild Háskóla Íslands.
Árið 2003 fengu Pétur og Páll Her-
steinsson íslensku bókmenntaverð-
launin í flokki vísindarita fyrir Þing-
og fram á 21. öld, sem fá söfn geta
státað af.
Vatnalíffræði hefur verið aðal-
áhugamál Péturs allt hans líf. Hann
stendur upp á hverjum degi og sest
við skrifborðið sitt heima hjá sér til að
einbeita sér að þeim atriðum sem
hann á eftir að skrifa um varðandi
Þingvallavatn og vinna betur í þeim
niðurstöðum sem hann hefur komist
að til að geta skýrt þær betur. Það er
því ýmislegt sem Pétur á eftir ógert.
Pétur vill taka fram að lokum að
hjartað slær enn á Íslandi, þó að hann
hafi lifað heilan mannsaldur í Dan-
mörku ásamt fjölskyldu sinni.
Fjölskylda
Pétur kynntist í Danmörku Dóru
Gunnarsdóttur, f. 4.11. 1926 í Reykja-
vík, d. 2.2. 2018 í Gentofte í Dan-
mörku, ritara Sáttmálasjóðs. Þau
gengu í hjónaband 29.5. 1964. For-
eldrar Dóru voru hjónin Gunnar
Árnason, f. 27.4. 1892, frá Tréstöðum
í Hörgárdal, d. 20.12. 1984, verka-
maður og Guðrún Halldórsdóttir, f.
18.8. 1895 í Pálsseli í Laxárdal, Dal.,
Pétur Jónasson, prófessor emeritus við Kaupmannahafnarháskóla – 100 ára
Stórfjölskyldan Við afhendingu verðlauna Jóns Sigurðssonar árið 2012. Frá vinstri í efri röð eru Margrét, Kristín,
Pétur og Dóra. Frá vinstri í fremri röð eru barnabörnin Liv, Marcus og Peter.
Honum líkar vatn …
Bókaviðburður Pétur ásamt Vigdísi Finnbogadóttur þegar hann ánafnaði
Náttúruminjasafni Íslands bókasafn sitt árið 2018.
40 ára Arnór ólst upp
í Austur-Ey í Laugar-
dal í Árnessýslu. Hann
er lögfræðingur frá HÍ
og með MA-gráðu í
sagnfræði frá HÍ. Arn-
ór er yfirlögfræðingur
hjá sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu.
Maki: Sigrún Gunnarsdóttir, f. 1983, ís-
lenskukennari í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla.
Dætur: Ingunn Lilja, f. 2007, Hallfríður
Helga, f. 2010, Birgitta Steinunn, f. 2014,
og Ragnheiður Kristín, f. 2016.
Foreldrar: Snæbjörn Þorkelsson, f.
1956, og Helga Jónsdóttir, f. 1959,
bændur í Austur-Ey.
Arnór Snæbjörnsson
Til hamingju með daginn
Sauðárkrókur Svavar Logi
fæddist 5. júní 2019 á Ak-
ureyri. Hann vó 3.734 g og
var 50 cm langur. Foreldrar
hans eru Berglind Rós
Guðmundsdóttir og Helgi
Már Svavarsson.
Nýr borgari