Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 15:04 100% „Friðlýsing Geysissvæðisins er fyrir heiminn allan enda er þetta eitt þekktasta hverasvæði veraldar. Vernd þess er fyrir okkur en ekki síður komandi kynslóðir,“ segir Guð- mundur Ingi Guðbrandsson um- hverfisráðherra. Undirrituð var í gær, við hátíðlega athöfn á þjóð- hátíðardaginn, friðlýsing þessa svæðis sem er í Haukadal í Biskups- tungum, Fjölmargir hverir og laug- ar eru á svæðinu, þekktastir þeirra Geysir og Strokkur. Á svæðinu er einnig hverahrúður á stóru sam- felldu svæði. Virkni svæðisins er veruleg og Strokkur slær aldrei slöku við og gaus reglulega meðan á athöfninni stóð. Að mati kunnugra hefur Geysis- svæðið í Haukadal hátt gildi með til- liti til vísinda, fræðslu og upplifunar. Sína sögu um svæðið segir að meiri- hluti erlendra ferðamanna sem koma til landsins heimsækir staðinn, enda þótt fáir hafi verið í ferðum að undanförnu. Af hverum, til viðbótar við Strokk og Geysi, má nefna Blesa, Sóða, Litla-Geysi, Litla-Strokk, Vig- dísarhver, Háahver og Sísjóðanda. Einnig Óþerrisholu, sem dregur nafn sitt af þeirri trú manna að hún gjósi helst þegar óþurrkatíð er að hefjast, og Konungshver, sem kom upp árið 1847, þegar Kristján kon- ungur IX var þarna á ferð. Helgi Kjartansson, oddviti Blá- skógabyggðar, segir friðlýsingu Geysissvæðisins bæði þarfa og mik- ilvæga. Raunar hafi meðal fólks í sveitinni rétt eins og annarra alltaf verið borin mikil virðing fyrir þess- um stað og fólki verið umhugað um vernd hans. „Þær tilfinningar sem fólk hér ber til staðarins eru festar á blað með friðlýsingu og henni fylgir ábyrgð. Hér hefur verið mikið álag síðustu árin og umhverfið látið talsvert á sjá, en nú vænti ég þess að gerðar verði úrbætur. Unnin verður verndar- áætlun fyrir svæðið, nýtt deiliskipu- lag og vonandi geta framkvæmdir við mikilvæga stígagerð hér hafist á næsta ári.“ sbs@mbl.is Friðlýsing fyrir heiminn  Geysissvæðið fær grið  Vernd fyrir komandi kynslóðir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Friðlýsing Við hátíðlega athöfn á Geysissvæðinu í gær. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- ráðherra, Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri umhverfisráðu- neytis og lengst til hægri er Helgi Kjartansson oddviti í Bláskógabyggð. „Maður verður að nota birtuna og ylinn,“ sagði Guðmundur Magnús- son, bóndi í Káraneskoti í Kjós, í gær. Fjölskyldan var að rúlla heyi af fyrstu hekturunum sem þar voru slegnir, í kappi við tímann, því ein- hverjar spár gerðu ráð fyrir lítils háttar rigningu í dag. Guðmundur sló á þriðjudag og miðvikudag til þess að geta nýtt þá daga sem spáð var að yrðu nokkurn veginn þurrir. Svo er spáð rigningu um helgina. Fleiri bændur í Kjós- inni hófu slátt í fyrradag. Meðal þeirra var Kristján Oddsson, bóndi á Neðra-Hálsi, en þar var myndin tekin. Víða er sláttur hafinn í mjólkurframleiðsluhéruðum, meðal annars á Suðurlandi og í Eyjafirði. Guðmundur segir að grasið sé mjög vel sprottið og segist hann ekki muna eftir jafn þéttu og góðu grasi. Reiknar hann með met- uppskeru í sumar. Þá segir hann að miklu muni að bændur á Suður- og Vesturlandi hafi ekki lent í sömu hörmungum með kal og bændur norðanlands og austan. Kúabændur víða um land eru byrjaðir að afla heyja fyrir skepnur sínar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verður að nota birtuna og ylinn ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.