Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Sérvaldar steikur á grillið,
Úrvals hamborgarar með brauði,
Krydd, sósur og ýmsar grillvörur
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Friðbert Friðbertsson, forstjóri
Heklu, hefur fest kaup á húsi sem áð-
ur var í eigu kínverska sendiráðsins.
Endurbætur á húsinu eru þegar
hafnar og er stefnt að því að koma
húsinu í upprunalegt horf, en íbúar
Vesturbæjar hafa lengi gagnrýnt
kínverska sendiráðið fyrir vanrækslu
hússins; það hafi verið orðinn sam-
komustaður katta, rotta og veggja-
krotara, auk þess sem garðurinn hafi
ekki verið sleginn til margra ára.
„Ég fagna því mjög að þetta hús sé
komið í góðar hendur. Það er sorg-
legt að sjá hvað það hefur drabbast
mikið niður á undanförnum árum,
því miður. Þetta er veglegt hús. Það
er mikið gleðiefni að það verði tekið í
gegn og lagt í löngu tímabæra við-
gerð,“ segir Pétur Ármannsson arki-
tekt, sem hefur verið Friðberti til
ráðgjafar um framkvæmdirnar.
Húsið var byggt árið 1945 af Oddi
Jóhannssyni, sem var jafnan kennd-
ur við efnalaugina Glæsi. Voru glæsi-
hallir sem þessar jafnan kallaðar
kanslarahallir af alþýðu bæjarins.
Kínverska sendiráðið festi kaup á
húsinu árið 1973 og hafði þar höfuð-
stöðvar þar til það flutti í Bríetartún
árið 2012. Húsið hefur að mestu stað-
ið autt síðan. Byggingin er hönnun
Einars Sveinssonar, eins virtasta
arkitekts Íslands á 20. öld.
„Þetta er mjög dæmigert hús í
hans stíl og með íburðarmestu hús-
um sem hann teiknaði. Hann teiknaði
allar tegundir af húsnæði, til dæmis
Hringbrautarblokkirnar í nágrenni
við Björnsbakarí og síðan skipulagði
hann Melahverfið. Það má segja að
þetta sé hans hverfi,“ segir Pétur í
samtali við Morgunblaðið.
Átti Einar ríkan þátt í að móta
ásýnd Reykjavíkur á 20. öld og var
ráðinn húsameistari Reykjavíkur.
Byggingar sem eftir hann standa eru
meðal annars Melaskóli, Laugarnes-
skóli og Borgarspítalinn, en hann var
einnig brautryðjandi í hönnun íbúð-
arhúsa um og eftir síðari heims-
styrjöld.
Til stendur að færa húsið í upp-
runalegt horf og gæti það því orðið
ekki ósvipað húsinu sem stendur við
hlið þess, sem er uppgert og var
einnig hönnun Einars Sveinssonar.
Steining, gluggar og þakið
„Það væri gaman ef það væri gert
upp þannig að það væri sem líkast
húsinu við hliðina, sem er byggt eftir
sömu teikningu og fallega steinað,“
bendir Pétur á, en upphaflega var
húsið með steiningu sem síðan var
málað yfir.
„Mér skilst að það eigi að endur-
gera steininguna og gera við glugga
og þak, þannig að húsið verði sem lík-
ast því sem það var í upphafi, með
smávægilegum breytingum sem
trufla ekki útlit hússins frá götu alla-
vega,“ segir Pétur að lokum.
Gamalt sendiráðshús
lifnar við að nýju
Kínverska sendiráðið búið að selja eign sína við Víðimel
Ljósmynd/Íris Jóhannsdóttir
Endurbætur Húsið sem var í eigu kínverska sendiráðsins hefur lengi staðið
autt. Líkast til þarf að skipta um glugga, þak og steiningu á húsinu.
Kanslarahallir Húsið við hlið gamla sendiráðsins er einnig hönnun Einars
Sveinssonar og hefur verið gert upp. Húsin standa við Víðimel.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Ég treysti henni ekki fyrir for-
mennsku í nefndinni allt frá því að
hún var kosin. Frá þeim tíma hefur
vantraustið bara aukist,“ segir
Brynjar Níelsson, nefndarmaður í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og
þingmaður Sjálfstæðisflokks. Vísar
hann í máli sínu til afsagnar Þórhild-
ar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns
Pírata, úr embætti formanns nefnd-
arinnar. Ástæðu afsagnarinnar
sagði Þórhildur vera linnulausar
árásir og valdníðslu meirihluta
nefndarinnar.
Að sögn Brynjars á afsögnin sér
eðlilegar skýringar. Í sporum Þór-
hildar hefði hann sjálfur farið sömu
leið. „Hún hafði takmarkað traust
og nú þegar höfðu þrír lýst því yfir
að þeir treystu henni ekki. Sjálfur
hefði ég farið sömu leið í hennar
stöðu. Þegar fólk nýtur ekki trausts
er rökrétt að segja af sér,“ segir
Brynjar og bætir við að mikilvægt
sé að formaður framangreindrar
nefndar njóti trausts nefndarmanna.
„Þegar fólk er hér í pólitískri bar-
áttu til að koma höggi á pólitíska
andstæðinga er nefndin lítils virði í
mínum huga. Mér finnst mikilvægt
að fólk njóti trausts og þar skiptir
engu hvort viðkomandi kemur úr
meirihlutanum eða stjórnarandstöð-
unni.“
Nú á mánudag greindi Jón Þór
Ólafsson frá því að hann gerði ráð
fyrir að taka við formennsku af Þór-
hildi. „Samkvæmt samningum sem
gerðir voru í upphafi þings fer þing-
flokkur Pírata með formennsku,“
sagði Jón Þór.
Aðspurður segir Brynjar að hann
muni ekki styðja Jón Þór til for-
mennsku. „Hugmyndir þeirra eru
með þeim hætti að þau eru ekki
réttu aðilarnir til að leiða þetta
starf. Ég mun ekki styðja hann til
formennsku,“ segir Brynjar.
Mun ekki styðja
nýjan formann
Skilur afsögn fyrri formanns mjög vel
Jón Þór
Ólafsson
Brynjar
Níelsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ferskur íslenskur eldislax sem flytja
átti ásamt frystum humri og þorski
með beinu flugi til Kína síðastliðinn
sunnudag var dreginn til baka á síð-
ustu stundu vegna nýs kórónuveiruf-
araldurs í Kína. Laxinn hefði að öll-
um líkindum ekki komist inn í landið
og verið eytt vegna hræðslu Kín-
verja við að kórónuveira geti borist
til landsins með laxi. Fannst annar
markaður fyrir þessa sendingu.
Kórónuveira hefur fundist á
skurðarborðum heildsala í Peking,
höfuðborg Kína. Þótt Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin telji ekki líkur
á að veiran hafi borist til landsins
með ferskum laxi eða umbúðum hans
taldi stofnunin nauðsynlegt að rann-
saka málið. Kínverjar gera nú meiri
heilbrigðiskröfur við innflutning á
laxi en venjulega og hefur innflutn-
ingurinn stöðvast, eins og gerðist
þegar fyrri faraldurinn reið yfir.
Hefur þetta haft mikil áhrif á
fyrirtæki sem flutt hafa lax til Kína.
Bakkafrost, stærsta laxeldis-
fyrirtæki Færeyja, er eitt af þeim en
Færeyingar fluttu lax að verðmæti
20 milljarða íslenskra króna til Kína
á síðasta ári. Samtökin Global Salm-
on Initiative (GSI), sem Bakkafrost
á aðild að ásamt laxeldisfyrirtækjum
um allan heim, sendu af þessu tilefni
frá sér yfirlýsingu þar sem fram
kemur að eitt veirusmit hafi fundist
á skurðarbretti á matvælamark-
aðnum í Xinfadi. Ekki sé vitað um
neina kórónuveirumengun úr vatni
eða matvælum og óhætt sé fyrir fólk
að borða lax, eins og annan fisk.
Fóru 63 ferðir til Kína
Flutningsmiðlunin DB Schenker
hefur að undanförnu flutt lax og aðr-
ar sjávarafurðir með beinu flugi til
Kína, í tengslum við flutning á
vörum fyrir heilbrigðiskerfin í Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Farþegaþot-
ur frá Icelandair voru notaðar við
flutningana. Valdimar Óskarsson
framkvæmdastjóri segir að eftir-
spurn eftir heilbrigðisvörum frá
Kína hafi minnkað stórlega og hafi
fluginu nú verið hætt í bili. Voru
farnar 63 ferðir í heildina.
Svo vill til að hlé hefur verið gert á
slátrun í báðum stóru laxaslátur-
húsum landsins, á Bíldudal og
Djúpavogi. Þess vegna hefur sölu-
stöðvun til Kína ekki áhrif á útflutn-
ing íslensku eldisfyrirtækjanna, eins
og er. Valdimar segir að vonandi
verði Kínverjar búnir að átta sig á
því innan ekki langs tíma að lax ber
ekki kórónusmit. Hann segir að þótt
ekki hafi verið ákveðnar fleiri ferðir
til Kína sé áfram áhugi á samvinnu
við Icelandair, þegar tækifæri gef-
ast.
AFP
Peking Pökkuðum fiski raðað í sjávarafurðadeild stórmarkaðar.
Ekki áhrif á út-
flutning frá Íslandi
Lax selst ekki í Kína vegna veirunnar