Morgunblaðið - 18.06.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
Á undanförnum árum hafa
verið mikil brögð að því að auð-
menn, bæði íslenskir en þó ekki
síður erlendir, kaupi upp land-
areignir hér á landi og eru sum-
ir þeirra komnir með umtalsvert
eignarhald á sína hendi, sumir
gríðarlegt. Þetta hefur farið
mjög fyrir brjóstið á mörgum
leyfi ég mér að fullyrða, þótt
ekki hafi mótmæli verið mjög
sýnileg. Nýlega afhenti kona úr
Hafnarfirði, Jóna Imsland, for-
sætisráðherra tíu þúsund undir-
skriftir þar sem aðgerða var krafist. Hún
sendi einnig alþingismönnum, hverjum og
einum, persónulegt bréf sömu erinda. Þetta
kom fram í einhverjum fjölmiðlum þótt þeir
hafi flestir lagt sitt af mörkum til að þessi
mótmæli mættu fara fram í kyrrþey.
Stjórnmálamenn skynja þó undirliggjandi
ólgu vegna landakaupa auðmanna og segjast
vilja stemma stigu við þessari þróun. Nú er
sagt að stjórnarfrumvarpi forsætisráðherra
sé ætlað að svara þessu kalli. Því miður fer
því fjarri að svo sé og veldur frumvarpið
miklum vonbrigðum.
Frumvarpið ekki gegn
eignasamþjöppun …
Verði frumvarpið að lögum mun það ekki
stöðva eignauppkaup og samþjöppun í eign-
arhaldi á landi í samræmi við það sem látið
hefur verið í veðri vaka í opinberri umræðu.
Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að
stuðla að því að landnýting sé í samræmi við
skipulagslög og markmið sem sveitarfélög og
löggjafarvaldið setur, svo sem varðandi mat-
vælaframleiðslu. Þá er lögð áhersla á skrán-
ingu eignarhalds. Allt góðra gjalda vert en
hefur ekki með takmörkun á eignarhaldi að
gera.
Gagnrýni mín á frumvarp forsætisráðherra
byggist einkum á því sem nú skal rakið.
… og ekki gegn landakaupum
erlendra auðkýfinga
Með frumvarpinu er algerlega horfið frá
þeirri stefnumótun sem fólst í reglugerð og
frumvarpi sem hún byggðist á og ég lagði
fram sem innanríkisráðherra árið 2013.
Landakaup erlendra aðila heyrðu undir
innanríkisráðuneytið þannig að sá þáttur einn
kom til minna kasta beint sem ráðherra.
Nú var það svo, og er enn, að kaup útlend-
inga utan EES á landi eru bönnuð að formi
til þótt ráðherra sé lögum samkvæmt heimilt
að veita undanþágu. Grunnreglan er sú að
einungis íslenskum ríkisborg-
urum og þeim sem eiga hér lög-
heimili eru heimil landakaup.
Eftir að EES-samningurinn
gekk í gildi árið 1993 stóðu
margir í þeirri trú að réttur
EES-borgara skyldi vera hinn
sami og íslenskra ríkisborgara
varðandi kaup á landi.
Þetta vildi ég láta kanna til
hlítar enda mjög eindregið á því
máli að ekki ætti að flytja eign-
arhald á landi út fyrir landstein-
ana. Þetta væri þeim mun
brýnna eftir tilkomu laga um
rannsóknir og nýtingu á auðlind-
um í jörðu 57/1998 þar sem lögfestur er eign-
arréttur landeigenda á þeim auðlindum sem
kunna að finnast í landi þeirra: „Með auðlind-
um er í lögum þessum átt við hvers konar
frumefni, efnasambönd og orku sem vinna má
úr jörðu, hvort heldur í föstu, fljótandi eða
loftkenndu formi og án tillits til hitastigs sem
þau kunna að finnast við … Eignarlandi
fylgir eignarréttur að auðlindum í jörðu…“
Þar með öðlaðist eignarréttur á landi ríkari
efnahagslega og pólitíska þýðingu sem frá-
leitt er að horfa framhjá í þessu samhengi. Í
frumvarpi ríkisstjórnarinnar er ekki horft til
þessa sem skyldi. Leyfi ég mér að fullyrða að
flestir höfðu búist við öðru í ljósi yfirlýsinga
um hið gagnstæða.
Lagaumhverfið tekur breytingum
Sífellt er verið að gera breytingu á lögum,
bæði lagatexta og síðan einnig túlkun lag-
anna. Þegar vatnalögunum var breytt upp úr
aldamótum var viðkvæði þess ráðherra sem
gekkst fyrir breytingunum að verið væri að
aðlaga lögin „dómapraxís“ undangenginna
áratuga sem verið hefði í þá átt að styrkja
einkaeignarrétt.
Innan EES-umhverfisins gerist hið sama.
Dómahefð þróast og getur þokað okkur frá
upphaflegum markmiðum stjórnmálanna eða
þá að ófyrirséð þróun veldur því að málin
taka aðra stefnu en menn ætluðu.
Margir höfðu af því áhyggjur þegar Ísland
gekkst undir EES-skilmálana að hætta væri
á því að erlendir peningamenn myndu kaupa
hér upp land í stórum stíl. Aðrir töldu slíkar
áhyggjur ástæðulausar, bæði væri lítil hætta
á að þetta gerðist í þeim mæli að teljandi
væri og þótt svo færi þá gæti það varla skipt
sköpum þótt eignarhald á landi færðist út
fyrir landsteinana í einhverjum mæli.
Þegar svo virtist sem síðari hópurinn hefði
haft rétt fyrir sér, lítil ásókn varð í land, þá
breyttust viðhorfin og slakað var á kröfum
varðandi eignaraðild útlendinga.
Allt breytist
Það er svo á síðustu tíu árum að grundvall-
arbreyting á sér stað að tvennu leyti. Ásókn
auðkýfinga í íslenskt land tekur heljarstökk
og síðan koma til sögunnar breytingar á
orkulöggjöf ESB og ýmsar ófyrirséðar nýj-
ungar. Þannig er nú tekist á um að hvaða
marki yfirvöld geti haft afskipti af vindmyllu-
görðum sem norskir fjárfestar hafi hug á að
reisa hér á landi.
Lagaumhverfið er af þessum sökum í þró-
un og um áherslur innan þess eru átök. Í
þessu mótunarstarfi hljóta stjórnvöld hverju
sinni að marka sér skýra stefnu um áherslur.
Endurmat á að vera á dagskrá nánast dag
hvern!
Á árinu 2012 vildi ég vita frá færustu sér-
fræðingum sem völ væri á hvort unnt væri að
takmarka eignarhald erlendra auðmanna
(innlent eignarhald heyrði undir annað ráðu-
neyti) frá því sem þá var og vildi ég sérstak-
lega horfa til EES-borgara enda höfðu aðrir
hreinlega ekki aðgang nema með undanþág-
um sem fyrr segir.
Færustu sérfræðingar
Tvær vandaðar skýrslur voru unnar, ann-
ars vegar úttekt þeirra Valgerðar Sólnes lög-
fræðings og Eyvindar G. Gunnarssonar, þá
dósents nú prófessors, og hins vegar þeirra
Stefáns Más Stefánssonar, prófessors við
lagadeild Háskóla Íslands, og Jens Hartvigs
Danielsen, prófessors við lagadeild háskólans
í Árósum í Danmörku. Megininntakið í niður-
stöðum þessara fræðimanna var að EES-
samningurinn hefði verið stórlega oftúlkaður
hvað varðar rétt EES-borgara til landa-
kaupa.
Í skýrslu þeirra Stefáns Más og Jens Hart-
vigs kom skýrt fram að þær breytingar sem
gerðar hefðu verið hér á landi til rýmkunar á
landakaupum EES-borgara hefði ekki þurft
að gera til að fullnægja EES-samningnum,
enda hefði fjármagnsflæði yfir landamæri
(frjálst flæði fjármagns) jafnan átt að skoðast
í ljósi samspils við aðra þætti „fjórfrelsisins“,
þ.e. hvort það þjónaði markmiðum hins innri
markaðar um frelsi til fólksflutninga,
staðfesturéttar og viðskipta með vörur og
þjónustu. Ákvæði 72. greinar stjórnarskrár-
innar um rétt til að takmarka fjárfestingar
erlendra manna í landareignum stæði því
óhaggað gagnvart EES-borgurum.
Frumvarp og reglugerð
Á grunni þessarar rannsóknarvinnu lagði
ég fram frumvarp sem tók af öll tvímæli um
að skilyrði fyrir landakaupum á Íslandi væru
þau að viðkomandi væri íslenskur ríkis-
borgari eða með lögheimili á Íslandi, en rétt-
ur slíks manns skyldi „einskorðast við eign-
arrétt eða afnotarétt yfir fasteign hér á landi
til að halda þar heimili og frístundahúsi til að
dveljast þar, enda fylgi slíkum fasteignum
einungis venjuleg lóðarréttindi, en ekki önnur
réttindi, svo sem veiðiréttur eða vatnsrétt-
indi …“
Frá þessu skilyrði mætti víkja gagnvart er-
lendum aðilum, og gilti þá einu hvort þeir
kæmu frá EES-ríkjum eða annars staðar frá,
að uppfylltum tilteknum skilyrðum þó þannig
að ekki fylgdu „veiðiréttur og vatnsréttindi“.
Varðandi EES-borgara segir ennfremur í
frumvarpstextanum að þeim skuli „heimilt að
nýta sér rétt til fjármagnsflutninga … að því
marki sem honum er það nauðsynlegt til rétt-
arins til frjálsra fólksflutninga, staðfesturétt-
ar eða þjónustustarfsemi. Ráðherra setur í
reglugerð nánari fyrirmæli um til hvaða fast-
eigna þessi réttur tekur og framkvæmd rétt-
arins að öðru leyti.“
Það sem kemur á óvart
Frumvarp og reglugerð fóru nú í þriggja
mánaða kynningarferli, opið öllum, en að því
búnu var frumvarpið lagt fyrir þingið og
reglugerð sett. Í kjölfar stjórnarskipta vorið
2013 var reglugerðin afnumin án kynningar
eða umræðu, einfaldlega sagt að lögfræðingar
hefðu talið hana vera „á gráu svæði“ og EES
hefði óskað eftir greinargerð. Engum átti að
þurfa að koma á óvart að málið væri talið
vera á gráu svæði og óskir um rökstuðning í
Brussel áttu ekki heldur að þurfa að koma á
óvart.
Það sem hins vegar hefur komið á óvart er
viljaleysið til að standa á þeim málstað sem
lagafrumvarpið og reglugerðin voru reist á
og láta reyna á rétt okkar. Enn meir kemur á
óvart að í stjórnarfrumvarpinu sem nú er fyr-
ir Alþingi skuli ekki reynt að sporna sérstak-
lega gegn fjárfestingum erlendra auðmanna í
landi og þar með orku, vatni og öðrum auð-
lindum Íslands.
Í síðari grein minni geri ég grein fyrir
ýmsu sem snýr að uppkaupum íslenskra og
erlendra auðmanna á íslensku landi.
Eftir Ögmund Jónasson
» Verði frumvarpið að lögum
mun það ekki stöðva eigna-
uppkaup og samþjöppun í
eignarhaldi á landi í samræmi
við það sem látið hefur verið í
veðri vaka.
Ögmundur
Jónasson
Höfundur var innanríkisráðherra.
Ríkisstjórnin heftir ekki landakaup auðmanna
„Í dag leikur geisli um Grafar-
vog.“ Þessi orð úr vígslusálmi
séra Sigurbjörns Einarssonar
biskups, við lag Þorkels sonar
hans, hljómuðu við vígslu Graf-
arvogskirkju fyrir réttum tutt-
ugu árum. Stundin í kirkjunni
var einstaklega hátíðleg þegar
þáverandi biskup Íslands, séra
Karl Sigurbjörnsson, vígði kirkj-
una. Prestar Grafarvogssafn-
aðar, séra Vigfús Þór Árnason,
séra Sigurður Arnarson og séra
Anna Sigríður Pálsdóttir, þjón-
uðu fyrir altari. Séra Guðmundur Þorsteinsson
dómprófastur og viðstaddir biskupar þjónuðu
við altarisgönguna.
Kirkjukór Grafarvogskirkju og Unglingakór
kirkjunnar sungu undir stjórn Harðar Braga-
sonar organista og kórstjóra og Oddnýjar Jónu
Þorsteinsdóttur kórstjóra. Fjöldi annarra tón-
listarmanna tók þátt í vígsluathöfninni.
Sóknarnefndarfólkið þau Bjarni Kr. Gríms-
son formaður, Sigurður J. Kristinsson, formað-
ur byggingarnefndar, Hildur Gunnarsdóttir rit-
ari og Valmundur Ingi Pálsson gjaldkeri fluttu
ritningarorð.
Í vígsluathöfninni afhenti Davíð Oddsson for-
sætisráðherra kirkjunni að gjöf glerlistaverk
eftir okkar heimsþekkta listamann Leif Breið-
fjörð. Glerlistaverkið, sem er altarisgluggi, er
gjöf frá ríkisstjórn Íslands og sérstaklega til-
einkað æsku landsins á þúsund ára afmæli
Kristnitökunnar á Þingvöllum árið 1000.
Forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu við af-
hendingu verksins:
„Að tillögu minni og Finns Ingólfssonar, þá-
verandi ráðherra, ákvað ríkisstjórnin að færa
fjölmennasta söfnuði landsins að gjöf það stór-
brotna glerverk sem hér blasir við
og er kóróna þessarar kirkju.
Verkið lofar meistarann, glerlista-
manninn Leif Breiðfjörð, en fyrst
og síðast lofar það meistarann sem
þessi kirkja og allar aðrar kirkjur
og kristilegt starf er helgað.
Þegar Lionshreyfingin minntist
50 ára afmælis hreyfingarinnar á
Íslandi í Grafarvogskirkju í apríl
2001 sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son, þáverandi forseti Íslands, m.a.
í ræðu sinni að hann stæði fyrir
framan listaverkið Kristnitakan á
Þingvöllum árið 1000 og sagði:
„Þetta er nýjasta þjóðargersemin
sem Íslendingar hafa eignast.“
Gísli Sigurðsson, myndlistarmaður og rit-
stjóri Lesbókar Morgunblaðsins, komst svo að
orði í grein um Grafarvogskirkju á árinu 2000:
„Steindur gluggi Leifs Breiðfjörð í kór er ekki
aðeins mesta skart kirkjunnar, heldur má telja
að verkið sé, ásamt altaristöflu Nínu Tryggva-
dóttur í Skálholtsdómkirkju, það kirkjulista-
verk á landi hér sem hvað best hefur tekist.“
Fleiri listaverk voru einnig vígð á vígsludegi
kirkjunnar og má þar nefna altarissett bæði
fyrir altari í kapellu kirkjunnar og aðalaltari
kirkjunnar ásamt skírnarskálum, að ógleymd-
um forkunnarfögrum bæna- og friðarstjaka í
anddyri kirkjunnar. Það er gull- og silfursmið-
urinn Stefán Bogi Stefánsson sem hannaði og
smíðaði alla kirkjugripina. Þess má geta að
hann hefur smíðað kirkjugripi í einar 40 kirkjur
hér á landi. Steinsmiðurinn Þór Sigmundsson
vann altari kirkjunnar, prédikunarstól og skírn-
arfont sem arkitektar kirkjunnar teiknuðu.
Á vígsludegi bárust margar góðar gjafir frá
velunnurum kirkjunnar og leyfi ég mér að
nefna hér sérstaklega Safnaðarfélag Grafar-
vogskirkju sem stofnað var á ársafmæli safn-
anda vígslunnar, nánar tiltekið frá 17. júní, þeg-
ar Karl biskup hvíslaði að mér eftir vígslu-
æfinguna: „Heldur þú Vigfús að þetta takist?
Vígslan er jú á morgun.“ Á þeirri stundu voru
um hundrað iðnaðarmenn að störfum í kirkj-
unni. Önnur stund þennan dag er einnig
ógleymanleg. Ég var á leið til skírnarathafnar
hjá sóknarbarni sem býr rétt hjá kirkjunni. Á
leiðinni þangað hélt ég að það hefði sprungið á
öllum dekkjum en bifreið mín hreyfðist mjög
óeðlilega svo ekki sé meira sagt. Allt í einu
heyrði ég svo kirkjuklukkurnar hringja í fyrsta
sinn. Ég var nokkuð hissa og fór til baka að
kirkjunni. Þá kom í ljós að Suðurlandsskjálftinn
frægi hafði gengið yfir og kirkjuklukkurnar
hringdu í fyrsta sinn vegna áhrifa frá lands-
skjálftanum.
Við lok þessar hugleiðingar er eðlilegt að
vitna í orð Karls biskups er hann sagði m.a. í
prédikun sinni við vígsluna: „Það fer einkar vel
á því að kirkjan skyldi vígð á þessum degi, á
þrenningarhátíð. Það er hátíð sem dregur fram
kjarnaatriði kristinnar kenningar og trúarlífs.
Þrenningarkenningin svokallaða að Guð er einn
og þrennur – faðir, sonur og heilagur andi,
skaparinn, frelsarinn, huggarinn, hún er ekki
ávöxtur heilabrota fræðimanna og spekinga,
hún er sprottin úr trúarreynslunni. Þetta er
játning sem tjáð er í bæn og tilbeiðslu og þakk-
argjörð.“
Slík þakkargjörð var í hugum safnaðarfólks-
ins, sem fyllti kirkjuna sína á vígsludegi, er við
tókum undir sálm séra Sigurbjörns biskups,
sem var gjöf hans til kirkjunnar á þeim degi.
Í dag leikur geisli um Grafarvog,
um götur og nes og sund.
Hann sendur er hæstum himni frá
á heilagri náðarstund.
Tuttugu ára vígsluafmæli Grafarvogskirkju
Eftir Vigfús Þór Árnason » Þá kom í ljós að Suðurlands-
skjálftinn frægi hafði geng-
ið yfir og kirkjuklukkurnar
hringdu í fyrsta sinn vegna
áhrifa frá landsskjálftanum.
Vigfús Þór
Árnason
Höfundur er fyrrverandi sóknarprestur.
aðarins í júní 1990 og hefur starfað ötullega síð-
an. Í tilefni vígslunnar færði félagið kirkjunni að
gjöf altarissett á aðalaltari kirkjunnar ásamt
fullbúnu eldhúsi sem þjónar safnaðarsölum
hennar.
Það er mikið starf að byggja nýja kirkju og til
gamans má geta þess að byggingarnefnd kirkj-
unnar hélt 376 formlega fundi. Það tók söfnuðinn
aðeins níu ár að byggja upp Grafarvogskirkju og
tel ég að samstarf allra sem að verkinu komu
hafi gengið einstaklega vel. Það þurfti eðlilega
að taka lán til að settu marki yrði náð en kirkj-
unni hefur þó ávallt tekist að standa í skilum
ásamt því að reka öflugt safnaðarstarf í rúm 30
ár. Kirkjan hefur fengið mikið lof fyrir arkitekt-
úr sinn en það voru arkitektarnir Finnur Björg-
vinsson og Hilmar Björnsson sem teiknuðu
kirkjuna og mun Hilmar fjalla um arkitektúr
kirkjubyggingarinnar í þessari afmælisgrein.
Það er margt sem kemur upp í hugann þegar
litið er til vígsludagsins. Vígsluathöfninni var
sjónvarpað á öldum ljósvakans, en það er í eina
skiptið sem kirkjuvígsluathöfn hér á landi hefur
verið sjónvarpað í beinni útsendingu. Það gerði
SkjárEinn á sínum tíma. Síðar sjónvarpaði
SkjárEinn aftansöng beint frá Grafarvogskirkju
á aðfangadagskvöld í nokkur ár. Stöð 2 tók svo
við í fjölmörg ár. Ég veit að margir Íslendingar,
bæði hér heima og erlendis, vona að framhald
eigi eftir að verða á þeirri beinu útsendingu.
Einnig er margt sem kemur upp í hugann
þegar rifjaðar eru upp minningar frá aðdrag-