Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 12

Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 18. júní 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 134.98 Sterlingspund 170.6 Kanadadalur 99.48 Dönsk króna 20.481 Norsk króna 14.18 Sænsk króna 14.517 Svissn. franki 142.57 Japanskt jen 1.2576 SDR 186.71 Evra 152.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.1439 Hrávöruverð Gull 1728.35 ($/únsa) Ál 1546.0 ($/tonn) LME Hráolía 38.8 ($/fatið) Brent ● Steven Mnuchin fjármálaráðherra Bandaríkjanna seg- ir að viðræður við forysturíki Evrópu um alþjóðlegan skatt á tækni- fyrirtæki séu komnar í öng- stræti. Sendi hann fjórum evrópskum kollegum sínum bréf þessa efnis. Segir FT að þar með sé lítil von um að sátt ná- ist um skattlagningu fjölþjóðlegra tæknifyrirtækja sem hafa sætt gagnrýni fyrir að greiða of lága skatta á sumum markaðssvæðum í Evrópu. Í bréfi sínu ítrekaði Mnuchin hótanir Bandaríkja- stjórnar um að hækka tolla á evrópskan innflutning ef ríki álfunnar láta verða af því að leggja sérstaka skatta á tækni- fyrirtæki. Myndu slíkir skattar einkum beinast að bandarískum tæknirisum á borð við Apple, Google og Facebook. OECD hefur reynt að miðla málum í deilunni um netskatta og m.a. lagt til víðari heimildir til að skattlegja sölu- hagnað þvert á landamæri. Myndi sú málamiðlun m.a. veita Bandaríkjastjórn möguleika á að leggja nýja skatta á evr- ópska lúxusvöruframleiðendur sem hagnast vel á að selja vörur sínar á Bandaríkjamarkaði en greiða skatta af hagnaðinum í Evrópu. ai@mbl.is Bandaríkin hyggjast stöðva netskatt Steven Mnuchin STUTT BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Vísbendingar eru um fyrstu merki umskipta í komum erlendra ferða- manna til Íslands og benda samtöl við fólk innan greinarinnar til þess að útlendingar séu mjög áhugasamir um að heimsækja landið. Eva Jósteinsdóttir, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Center Hotels, segir bókunum ekki hafa fjölgað að neinu ráði en aftur á móti berist hót- elkeðjunni fjöldi fyrirspurna frá fólki sem hafði tekið frá gistingu í sumar og ekki enn afbókað. „Okkur virðist sem erlendir ferðamenn séu að bíða átekta og vilji sjá hvernig gengur þessar fyrstu tvær vikur eft- ir að landið var opnað með skim- unum við komu. Við bíðum spennt eftir að sjá bæði hvernig flugfram- boðið mun þróast og hvernig gengur að selja í vélarnar og getum svo sannarlega tekið á móti miklu fleiri ferðalöngum,“ segir hún. Center Hotels rekur sjö hótel á höfuðborgarsvæðinu en fjórum þeirra hefur verið lokað vegna hruns í komum ferðamanna. Framkvæmd- ir standa yfir við áttunda hótelið og var opnun þess frestað frá sumri yfir á haustmánuði. Eva hefur haft spurnir af því að hótelum á lands- byggðinni gangi ágætlega að fylla herbergi af gestum um helgar enda virðast landsmenn hafa einsett sér að ferðast vítt og breitt um Ísland í sumar. „Okkar vandi er að öll okkar hótel eru í miðborg Reykjavíkur og um 85% þjóðarinnar búa í innan við 15 mínútna fjarlægð frá okkur. Við höfum þó náð ágætis árangri með tilboðum sem tvinna saman gistingu, kvöldverð á þeim skemmtilegu veit- ingastöðum sem við starfrækjum og notalega stund í heilsulind. Hafa ófá pör á höfuðborgarsvæðinu notað tækifærið til að gera sér glaðan dag í miðbænum og gista hjá okkur frek- ar en að taka leigubíl heim.“ Eva segir að tekjutap undanfar- inna mánaða hafi vissulega verið mikill skellur fyrir Center Hotels. „En við erum brött og ætlum að komast í gegnum þetta. Hitt er ljóst að það er ekki ólíklegt að áhrif kór- ónuveirufaraldursins verði sumum hótelum um megn enda ekki auðvelt að lifa það af að klippt skuli á allar tekjur nánast á augabragði. Mikið hefur verið fjárfest í greininni á und- anförnum árum og klárt að hjá sum- um mjög flottum fyrirtækjum er svigrúmið svo lítið að þau standa áfallið ekki af sér.“ Þjóðverjar og Danir taka frá bíla í sumar Vísbendingarnar um viðsnúning virðast enn greinilegri í bílaleigu- geiranum. Alexander Haraldsson, framkvæmdastjóri Lotus Car Rent- al, segir að töluvert hafi borist af nýjum bókunum að undanförnu. Bílaleigumarkaðurinn tók að kólna í lok janúar og botnfraus endanlega um miðjan mars en nú eru erlendir viðskiptavinir aftur byrjaðir að huga að því að heimsækja landið. „Mest er fólk að bóka í júní, júlí, ágúst og september en venjulega berast bókanir fyrir sumarmánuðina mun fyrr og fólk því að huga að ferðalögum með skemmri fyrirvara en það gerir venjulega á þessum árstíma,“ segir Alexander. „Að bóka bíl er oft það síðasta sem fólk gerir, eftir að hafa keypt flugmiða og gengið frá gistingu, og sennilega koma þær bókanir sem eru að ber- ast núna frá fólki sem hafði bókað ferð til Íslands fyrir löngu en beðið með að blása ferðalagið af í þeirri von að flug til og frá landinu kæmist í eðlilegt horf.“ Koma pantanirnar einkum frá Evrópu, flestar frá Þýskalandi og Danmörku. Þar á eftir koma Bret- land og Bandaríkin. Áhugavert er að leigutíminn er að jafnaði lengri en í venjulegu árferði og bendir það til að þeir erlendu gestir sem setja stefnuna á Ísland í sumar ætli að hafa lengri viðdvöl. Er það kannski vegna þess að hafa þarf meira fyrir ferðalaginu en venjulega og því eins gott að taka langt og gott frí fyrst verið er að fljúga á milli landa á annað borð. Er meðallengd bókana hjá Lotus í júlí og ágúst nærri 50% meiri en á sama tímabilí í fyrra. Lifnar yfir bílaleigunum Morgunblaðið/Ómar Eftirsjá Mynd úr safni af erlendum ferðamönnum á Þingvöllum. Vonandi streyma þeir bráðum aftur til landsins.  Bílapantanir í júlí og ágúst benda til að ferðamenn hyggist hafa lengri viðdvöl en venjulega  Center Hotels fær margar fyrirspurnir en viðskiptavinir bíða átekta Eva Jósteinsdóttir Alexander Haraldsson Bandaríski matvælarisinn PepsiCo hefur ákveðið að breyta nafni og vörumerki Aunt Jemima-vörulín- unnar vegna tengsla við kynþátta- fordóma. Aunt Jemima-merkið hefur lengi haft sterka stöðu á bandarískum neytendamarkaði en undir það falla einkum pönnukökublöndur og -síróp, auk þurrefnablanda fyrir brauðmeti og grauta sem eiga upp- runa sinn í matarhefð suðurhluta Bandaríkjanna. Quaker Foods, dótt- urfyrirtæki PepsiCo, framleiðir vör- urnar. Aunt Jemima á sér 130 ára sögu og eru umbúðirnar skreyttar með mynd af brosandi svartri konu, en nafnið fékk vörumerkið að láni hjá söguhetju sem oft kom fyrir í gam- anleikjum á 19. öld þar sem hvítir leikarar máluðu sig svarta í framan. Segir Reuters að ímynd Aunt Jem- ima kunni að fara fyrir brjóstið á fólki sem tengir nafnið og vörumerk- ið við staðalmynd af vinalegri svartri þjónustukonu eða barnfóstru hjá hvítri fjölskyldu. Þá er matvælaveldið Mars með það til skoðunar að breyta Uncle Ben‘s-vörumerkinu. Fyrirtækið seg- ist vera að athuga ýmsar leiðir til að þróa vörumerkið en rætur þess liggja allt aftur til ársins 1943. Í vörulínu Uncle Ben‘s má finna hrís- grjón og hrísgrjónavörur af ýmsu tagi auk baunarétta. Umbúðirnar prýðir brosandi aldr- aður svartur maður en nafnið ku vísa til svarts bandarísks bónda sem þótti rækta einstaklega góð hrísgrjón. Sumum kann að þykja vörumerkið móðgandi því það var siður sumra hvítra íbúa suðurríkja Bandaríkj- anna að kalla svarta karlmenn „uncle“ (ísl. frændi) í stað þess að ávarpa þá sem „herra“ eins og aðra menn. ai@mbl.is AFP Rætur Bæði merki og nafn Aunt Jemima þykir minna á úrelt gildi. Aunt Jemima hverfur úr hillum  Ímynd Uncle Ben‘s verður tekin til vand- legrar skoðunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.