Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 13
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ákvörðun norðurkóreskra stjórn-
valda um að láta sprengja í loft upp
samvinnustofnun Kóreuríkjanna í
Kaesong á þriðjudaginn hefur vakið
nokkra undrun, en sérfræðingar í
málefnum landsins telja hana ein-
ungis einn lið í nýrri „herferð“ Norð-
ur-Kóreumanna, sem eigi að gefa
þeim yfirhöndina og jafnvel knýja
fram einhvers konar eftirgjöf frá
Suður-Kóreu og Bandaríkjunum.
Þá bendir ákvörðunin einnig til
þess að þeirri „þíðu“ sem komst á í
samskiptum Norður-Kóreumanna
við alþjóðasamfélagið sé lokið, en
fyrr í mánuðinum ákváðu þeir að
slíta öll samskipti við Suður-Kóreu.
Kim Yo-jong, systir Kims Jong-uns,
leiðtoga Norður-Kóreu, hefur látið
hörð orð falla í garð nágrannanna í
suðri á síðustu dögum, og meðal ann-
ars kallað Moon Jae-in, forseta Suð-
ur-Kóreu, „lepp“ Bandaríkjamanna
og látið í veðri vaka að forsetinn sé
geðveikur, en norðurkóresk stjórn-
völd kenna Moon um að hafa ekki
fengið Bandaríkjastjórn til að létta á
refsiaðgerðum sínum gegn Norður-
Kóreu.
Vildi bæta samskiptin
Almennt er talið að ásakanir
Norður-Kóreu hljóti að teljast von-
brigði fyrir Moon Jae-in, sem hefur
sett góð samskipti við Norður-Kór-
eumenn á oddinn í forsetatíð sinni.
Hann hefur meðal annars fundað
þrisvar með Kim Jong-un, en engir
leiðtogar Kóreuríkjanna tveggja
höfðu fyrir þann tíma hist augliti til
auglitis oftar en einu sinni.
Samvinnustofnunin var liður í því,
en hún var sett á fót í september árið
2018 í kjölfar sögulegs leiðtogafund-
ar Kims Jong-uns og Moons Jae-ins í
apríl sama ár, þar sem þeir undirrit-
uðu samkomulag um bætt samskipti
ríkjanna tveggja.
Á þeim tíma var vonast til að sam-
komulagið gæti orðið fyrsta skrefið í
átt að varanlegu friðarsamkomulagi,
en ríkin tvö eiga tæknilega séð enn í
ófriði, þar sem Kóreustríðinu lauk
1953 með vopnahléi.
Stofnunin varð því ígildi sendiráðs
ríkjanna, þar sem fulltrúar beggja
gátu hist með nær engum fyrirvara
til þess að ræða mál sem snertu sam-
skipti ríkjanna. Ákvörðunin um að
sprengja byggingu stofnunarinnar í
loft upp er því vissulega táknræn, en
hún hafði staðið auð frá janúar síð-
astliðnum vegna kórónuveirufarald-
ursins. Það vakti hins vegar meiri
áhyggur, að Kim Yo-jong hótaði því
einnig að Norður-Kóreumenn
myndu senda herlið aftur að landa-
mærum ríkjanna, sem eiga að vera
laus við allt herlið.
Fordæma yfirlýsingar hennar
Kim Yo-jong hefur þótt með ein-
dæmum yfirlýsingaglöð á síðustu
vikum, og hafa hótanir hennar nú í
tvígang orðið að veruleika einungis
örfáum dögum síðar.
Stjórnvöldum í Suður-Kóreu virð-
ist hins vegar vera nóg boðið, en þau
sögðu að yfirlýsing hennar um að
Moon forseti væri geðveikur væri
fyrir neðan allar hellur. „Við vörum
við því að við munum ekki lengur
þola fáránlegar yfirlýsingar og gerð-
ir norðursins,“ sagði talsmaður for-
setans, og varnarmálaráðuneyti
landsins hefur heitið því að Norður-
Kórea muni gjalda fyrir það, rjúfi
landið fyrri loforð sín.
Ekki fylgdi sögunni hvernig það
yrði gert, en víst er að friðarferli síð-
ustu tveggja ára er svo gott sem
runnið út í sandinn.
Friðarvonir beygðar í duftið
Samvinnustofnun Kóreuríkjanna sprengd í loft upp Hótanir systurinnar verða að veruleika
AFP
Á varðbergi Suðurkóreskir landgönguliðar sjást hér á varðgöngu um eyj-
una Yeonpyeong, en hún liggur nærri landamærum Kóreuríkjanna.
Kjarnorkudeila í hart og ásakanir á víxl
Tveggja ára sáttaferli í uppnámi
Heimildir: AFP Photos/KCNA/Saul Loeb/Kim Hong-Ji
Þeir undirrita óljóst orðað
samkomulag um kjarnorku-
afvopnun, sem Trump segir
vera sögulegan árangur
Trump boðar einhliða að
hætt verði við heræfingar
Bandaríkjanna og Suður-
Kóreu
Kim hættir tilraunum með
kjarnaodda og eldflaugar
Donald Trump Bandaríkja-
forseti og Kim Jong-un,
leiðtogi Norður-Kóreu
hittast í fyrsta sinn
N-Kóreumenn afhenda lík meira en
50 hermanna sem féllu í Kóreustríðinu
Singapúr
12. júní, 2018
27. júlí
Trump og Kim
hittast í
annað
sinn
27. febrúar, 2019
Hanoi
Norður-Kórea
hefur tilraunir með
eldflaugar á nýjan
leik
18. apríl
Trump hittir Kim á landamærum
Kóreuríkjanna og stígur í örstutta
stund inn fyrir landamæri N-Kóreu
30. júní
Vladimír Pútín Rússlands-
forseti fundar með Kim í
fyrsta sinn. Litið er á fundinn
sem svar við fundi Trumps og
Kim í Hanoi
25. apríl
Norður-Kórea slítur öllum samskiptum
við Suður-Kóreu og sprengir upp
samvinnustofnun
ríkjanna
Júní 2020
Leiðtogafundinum slitið snemma
þar sem Trump og Kim greinir á um
hvað Norður-Kórea ætti að gefa
í skiptum fyrir afnám refsiaðgerða
28. febrúar
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
Lögreglumaðurinn Garrett Rolfe,
sem skaut Rayshard Brooks, þel-
dökkan mann, til bana í Atlanta í
Georgíuríki í Bandaríkjunum, hefur
verið ákærður. Felur ákæran í sér
manndráp af gáleysi, en fleiri þús-
und íbúar Atlanta hafa undanfarið
mótmælt morðinu á Brooks. Umtals-
verðar aðgerðir voru nú um helgina
þar sem um 15 þúsund manns fylltu
götur borgarinnar og mótmæltu
kynþáttahatri og lögregluofbeldi.
Forsaga málsins er sú að Rolfe
ásamt öðrum lögreglumönnum var
kallaður til á veitingastaðinn
Wendy’s þar sem Brooks hafði legið
sofandi í bíl sínum. Var hann jafn-
framt sagður hafa hindrað umferð á
bílastæðinu utan við staðinn.
Við komuna á vettvang var lög-
reglumönnunum fljótt ljóst að
Brooks væri undir áhrifum áfengis. Í
kjölfarið var gerð tilraun til að hand-
taka hann, en hann streittist á móti.
Í átökunum náði Brooks rafbyssu af
öðrum lögreglumanninum. Var hann
eltur af lögreglumönnunum sem eru
sagðir hafa skotið Brooks með raf-
byssu. Óljóst er hvað gerðist í fram-
haldinu en á myndbandsupptöku,
sem ekki var beint að átökunum, má
heyra skoti hleypt af.
Ákærður fyrir
manndráp í Atlanta
AFP
Veitingastaður Staðurinn þar sem Brooks var sagður skotinn til bana.
Kim Yo-jong fæddist 27. sept-
ember 1987 og er yngsta barn
Kims Jong-ils, sem leiddi Norð-
ur-Kóreu frá 1994 og til dánar-
dags 2011. Hún og bróðir henn-
ar numu bæði við skóla í Sviss,
og er samband þeirra systkina
sagt mjög náið. Hún var sér-
stakur sendifulltrúi hans á vetr-
arólympíuleikunum í Seúl, höf-
uðborg Suður-Kóreu, árið 2018,
og var einnig í fylgdarliði Kims á
leiðtogafundum hans með
Trump Bandaríkjaforseta og
Moon, forseta Suður-Kóreu.
Á síðustu mánuðum hefur
hún látið sífellt meira að sér
kveða á opinberum vettvangi og
hafa verið miklar vangaveltur
um að hún sé næst í „erfðaröð“
Kim-fjölskyldunnar, falli Kim
Jong-un frá.
Þá er talið líklegt að yfirlýs-
ingar hennar nú í aðdraganda
árásarinnar hafi átt að styrkja
stöðu hennar gagnvart yfir-
stjórn norðurkóreska hersins og
öðrum „haukum“ í æðstu stjórn
landsins.
Harðsnúin systir
harðstjórans
KIM YO-JONG
Úrval fræsivéla
og fylgihluta