Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 Brasilíski knattspyrnumað- urinn David Luiz átti eina skelfi- legustu innkomu sem ég hef séð í íþróttaleik þegar Manchester City vann 3:0-sigur gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Luiz kom inn á á 24. mínútu og tuttugu mínútum síðar mistókst honum að hreinsa frá marki með þeim afleiðingum að City komst yfir. Í upphafi síðari hálfleiks braut hann svo af sér innan teigs og fékk að líta rauða spjaldið. Eftir frammistöðu Luiz fór ég að rifja upp íþróttaviðburði sem ég hef horft á í gegnum tíðina og slæmar innkomur tengdar þeim. Mér er það alltaf mjög minnis- stætt hversu skelfileg vítaskytta körfuknattleiksgoðsögnin Shaq- uille O‘Neal var, á fyrri hluta fer- ilsins í það minnsta. Maðurinn var óstöðvandi í teignum og það eina sem virkaði til að hægja á honum var að „Hack-a-Shaq“. Þá voru hæfileikaminni leik- menn, sem oftar en ekki voru í yfirþyngd, settir inn á til þess að eins að brjóta á honum og senda hann á vítalínuna. Að leita að slæmum innkomum á íþrótta- leiki er líka ágætis skemmtilesn- ing út af fyrir sig. Hver man ekki eftir því þegar ítalski framherj- inn Simeone Zaza var sendur inn á á EM 2016 í Frakklandi í átta liða úrslitum gegn Þýskalandi á lokamínútum framlenging- arinnar. Zaza átti að taka víti í víta- spyrnukeppninni en endaði á að þruma boltanum upp í rjáfur eft- ir hlægilega kjánalegt tilhlaup. Þessi skipting toppar marga lista á veraldarvefnum í dag en fyrir mér er ekkert sem toppar skiptingu Loga Ólafssonar, þá- verandi landsliðsþjálfara, í Eist- landi 24. apríl 1996 þegar hann skipti Eiði Smára Guðjohnsen inn á fyrir Arnór Guðjohnsen í fyrsta sinn sem feðgar hefðu getað spilað saman landsleik. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is ÞÝSKALAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Sara Björk Gunnarsdóttir, lands- liðsfyrirliði í knattspyrnu, varð í gær þýskur meistari með liði sínu Wolfsburg. Er þetta í fjórða skipti á fjórum árum sem Sara verður þýskur meistari með liðinu. Sara lék allan leikinn í 2:0-sigri á Frei- burg á heimavelli og er Wolfsburg nú með 58 stig, átta stigum meira en Bayern München þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Sara og stöllur hafa spilað gríð- arlega vel á leiktíðinni og unnið 19 af 20 deildarleikjum og enn ekki tapað leik. Þá er Wolfsburg sömu- leiðis komið í bikarúrslit og átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Ljúft að klára þetta núna „Þetta hefur alltaf verið mark- miðið okkar. Það hefur verið mikið álag að spila tvo leiki í viku; mið- vikudaga og laugardaga í þrjár vikur. Það er búið að vera mjög mikið af leikjum og mjög mikið af æfingum og það er mjög ljúft að geta klárað þetta núna þegar það eru enn tveir leikir eftir í deildinni, það er ákveðinn léttir,“ sagði Sara við Morgunblaðið rétt eftir leik. Wolfsburg lék gegn Jena 1. mars og fór deildin í tæplega þriggja mánaða frí vegna kórónuveirunnar í kjölfarið. Hún hófst á ný hinn 29. maí og hefur Wolfsburg leikið sex leiki í öllum keppnum síðan og unnið þá alla með markatölunni 22:1. „Mér finnst þetta vera fyllilega verðskuldað. Við spiluðum mjög vel fyrir áramót og erum búnar að vera langbestar á þessu tímabili. Það er svo rosalega sætt að vinna þetta fjórða árið í röð. Ég er að fara í sumar og það er geggjað að enda þetta svona,“ sagði Sara, en hún hefur gefið það út að hún yfir- gefi Wolfsburg eftir tímabilið. Hef- ur hún m.a. verið orðuð við Evr- ópumeistara Lyon og Spánar- meistara Barcelona. Gott að geta klárað deildina Sara er ánægð með að fá að klára tímabilið áður en hún rær á önnur mið, en kvennadeildum víðs- vegar í Evrópu var aflýst vegna kórónuveirunnar. „Það var mjög gott að geta spilað deildina. Ég get rétt ímyndað mér hvernig það yrði ef við hefðum ekki getað klárað deildina eða bikarinn, það hefði léttilega getað gerst. Það hefði verið leiðinlegt að enda síðasta árið þannig.“ Hún segir Wolfsburg hafa verið í betri stöðu en mörg önnur lið eftir hléið þar sem liðið gat æft saman í sjö vikur fyrir fyrsta leik. Hún hrósaði liðsfélögum sínum fyrir að koma í góðu standi til baka eftir langa pásu. Finnur fyrir þreytu „Það var ótrúlega erfitt að mæta aftur og spila svona mikið eftir þetta hlé. Staðan er mjög skrítin því það gildir ekki það sama fyrir öll lið og mér finnst það ekki sann- gjarnt. Við fengum sjö vikur til að æfa áður en þetta byrjaði á meðan sum lið fengu bara tvær vikur. Svo eru mörg lið ekki með eins stóran og breiðan hóp og við. Við getum skipt fimm leikmönnum án þess að missa einhver gæði. Við æfðum all- ar ótrúlega vel á meðan við vorum heima og í sóttkví og komum allar mjög undirbúnar fyrir þennan mjög stífa kafla. Það skiptir miklu máli. Á meðan hefur maður séð meiðsli í hinum liðunum. Það er mikil hætta á meiðslum þegar þú ert frá í svona langan tíma og byrj- ar svo af þessum krafti. Maður finnur fyrir þreytu líkamlega og maður þarf að ná einhverri hvíld núna,“ sagði landsliðsfyrirliðinn. Titillinn í ár var frábrugðinn hinum þremur Þýskalandsmeistaratitlum Söru þar sem leikirnir hafa farið fram fyrir luktum dyrum síðustu vikur. Sara viðurkennir að það sé furðu- leg tilfinning að fagna án áhorf- enda. „Það var stórfurðulegt að vera ekki með neina áhorfendur. Það gerir ótrúlega mikið að spila fyrir stuðningsmennina. Maður saknar andrúmsloftsins í kringum leikina; fyrir leiki, eftir leiki og í upphitun. Maður skilur af hverju þetta er svona, en þetta er öðru- vísi. Því miður er það voðalega tak- markað hvað við megum fagna. Við erum í klefanum núna að fá okkur einn eða tvo bjóra og svo erum við að panta pítsu og svo förum við heim. Þetta er rosalega strangt. Við fáum svo verðlaunin eftir síð- asta leikinn á móti Leverkusen.“ Vill kveðja Wolfsburg með átt- unda titlinum á fjórum árum Wolfsburg á þrjá leiki eftir af tímabilinu í Þýskalandi; tvo deild- arleiki og síðan bikarúrslit gegn Essen hinn 4. júlí. Sara getur því unnið tvöfalt fjórða árið í röð með Wolfsburg. Essen er í sjötta sæti deildarinnar með 28 stig og Wolfs- burg því töluvert sigurstranglegra. Markmið Söru er að kveðja félagið með átta titlum á fjórum árum. „Við viljum klára síðustu tvo deild- arleikina vel og taka svo bikarinn. Við byrjun á deildinni og þar eig- um við Bayern í næsta leik og við viljum auðvitað vinna þær. Við eig- um svo bikarúrslitaleikinn 4. júlí. Það væri geggjað að enda þetta hjá Wolfsburg með tvo titla. Ég myndi ekki kvarta yfir átta titlum á fjór- um árum,“ sagði Sara. Óvissa með Meistaradeildina Hefur Sara lítið viljað tjá sig um hvað tekur við eftir tímann hjá Wolfsburg, en í gær var staðfest að Meistaradeild Evrópu verður leik- in 21.-30. ágúst á Spáni. Wolfsburg er í átta liða úrslitum keppninnar og á liðið að mæta skoska liðinu Glasgow City. Sara vildi ekki tjá sig um hvort hún stefndi á að klára Evrópukeppnina með Wolfsburg. „Ég get ekki sagt mikið um það núna, það er svolítið flókið,“ sagði Sara Björk Gunn- arsdóttir. Erum búnar að vera langbestar á tímabilinu  Sara Björk Þýskalandsmeistari fjórða árið í röð  Vill einn bikartitil í viðbót Ljósmynd/Wolfsburg Þýskalandsmeistarar Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar fögnuðu innilega í leikslok. Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, tilkynnti í gær nýjar dag- setningar á frestuðum lands- leikjum vegna kórónuveirunnar. Karla- og kvennalandslið Íslands spila mikilvæga leiki síðari hluta árs. Hinn 8. október mætast Ísland og Rúmenía í umspili um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla sem fram fer á næsta ári. Sigurvegari leiksins mun svo mæta annaðhvort Búlgaríu eða Ungverjalandi á úti- velli hinn 12. nóvember. Sigurveg- ari síðari viðureignarinnar vinnur sér inn sæti á Evrópumeist- aramótinu. Fari svo að Ísland kom- ist á EM, sem nú fer fram sumarið 2021, verður landsliðið með Portú- gal, Frakklandi og Þýskalandi í riðli og leikið verður í Búdapest í Ungverjalandi og München í Þýskalandi. Þjóðadeild UEFA hefst hinn 5. september og fær Ísland heimsókn frá Englandi á Laugardalsvöll í fyrstu umferð. Verður riðill Íslands leikinn frá 5. september til 15. nóv- ember. Ásamt Íslandi og Englandi eru Danmörk og Belgía einnig í riðlinum. Kvennalandsliðið heldur leik áfram í F-riðli í undankeppni Evr- ópumótsins í september, október, nóvember og desember. Er fyrsti leikur gegn Lettlandi á heimavelli 17. september og lokaleikurinn á útivelli gegn Ungverjalandi 1. des- ember. Ísland er með fullt hús stiga eins og Svíþjóð, en bæði lið hafa leikið þrjá leiki. Átti lokamótið að fara fram á næsta ári, en fer þess í stað fram 6.-31. júlí árið 2022. Landsliðin snúa aftur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mark Íslenska kvennalandsliðið snýr aftur í undankeppni EM. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Umspil Íslenska karlalandsliðið mætir Rúmeníu í umspili. Evrópukeppnir UEFA verða með breyttu sniði í ár vegna afleiðinga kórónuveiru- faraldursins. Í Meistaradeild- inni verða ekki spilaðir tveir leikir í forkeppn- inni né fyrstu þremur umferð- unum í undankeppninni eins og tíðkast hefur. Verður dregið um hvort liðið fái heimaleik. Í undan- keppni Evrópudeildarinnar verður fyrirkomulagið svipað nema að ekki verða spilaðir tveir leikir í um- spilinu um laust sæti í riðlakeppn- inni heldur verður einungis spil- aður einn leikur. Fyrsta umferð í undankeppni Meistaradeildarinnar verður spiluð 18. og 19. ágúst og eru Íslandsmeistarar KR fulltrúi Ís- lands í ár. FH, Víkingur Reykjavík og Breiðablik taka þátt í undan- keppni Evrópudeildarinnar og spila í 1. umferð 27. ágúst. Íslandsmeistarar Vals í kvenna- flokki taka þátt í Meistaradeild Evrópu í ár en undankeppni fyrir útsláttakeppnina verður spiluð dagana 7.-13. október á þessu ári. Úrslitaleikurinn mun fara fram í Gautaborg í Svíþjóð, þann 16. maí 2021. Einn leikur í stað tveggja í Evrópukeppni Óskar Örn Hauksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.