Morgunblaðið - 23.06.2020, Side 8

Morgunblaðið - 23.06.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020 Sérkennilegt er að fylgjast meðþví hvernig sumir verkalýðs- forkólfar nálgast umræður um lífs- kjarasamningana og setja jafnvel fram hótanir, sumar undir rós, um að þeim verði sagt upp enda hafi ekki allar forsendur þeirra gengið eftir.    Nú er þaðeflaust svo að mörg fyrirtæki myndu gjarn- an vilja snúa við klukkunni og semja aftur vitandi um þær breyttu forsendur sem þau standa frammi fyrir en voru ekki þekktar þegar samningarnir voru gerðir.    Samningarnir skiluðu miklumhækkunum til launamanna, einkum þeirra sem lægst hafa laun- in, og miklu meiri hækkunum en at- vinnulífið stendur undir í dag.    Í grein sem framkvæmdastjóriSamtaka atvinnulífsins skrifaði á dögunum í Morgunblaðið kom fram að um 400 milljarða króna vantaði inn í hagkerfið. Þetta er gríðarlegt fé og augljóst að ef þessi staða hefði verið þekkt þegar samið var hefðu samningar orðið með allt öðrum hætti. Engar forsendur hefðu verið fyrir launahækkunum, umræðan hefði snúist um hvort lækka ætti laun og þá hve mikið.    En framtíðin var ekki þekkt þáfrekar en nú. Það breytir því ekki að þegar aðstæður hafa snúist á haus er sjálfsagt að allir, þar með taldir forystumenn í verkalýðs- hreyfingunni, taki mið af því í um- ræðum um kjaramál dagsins. Menn komast ekki mikið nær því að hafa vit eftirá, sem hlýtur að vera eftir- sóknarvert. Útfærsla á eftiráspeki STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Verkfræðistofan Verkís mun sjá um óháða rýni á hönnun og framkvæmdum vegna Fornebubanen, stærsta neðanjarðarlestarverkefnis í Noregi í seinni tíð. Verkefnið er mjög umfangsmikið og er heildarkostnaður við það rúmlega 16 milljarðar norskra króna, eða um 225 milljarðar íslenskra króna. Frá þessu er greint á heimastofu verk- fræðistofunnar. Fram kemur að leiðin, sem liggur frá Major- stuen til Fornebu, verður rúmlega átta kílómetra löng. Byggðar verða sex lestarstöðvar neðanjarð- ar sem verða hluti af leiðinni. Hægt verður að flytja allt að átta þúsund manns á klukkustund, en ferðatími er áætlaður 12 mínútur. Framkvæmdir hefjast síðar á þessu ári og er áætlað að hægt verði að taka lestina í notkun árið 2027. Með nýju lestarkerfi neðanjarðar er íbúum á svæðinu gefinn kostur á góðum og skilvirkum samgöngum. Þá er hægt að draga úr bílaumferð á vegum og þar af leiðandi mengun. Verkefnið þykir mikilvægt fyrir framtíðarvöxt Óslóarsvæðisins. Á næstu sex árum munu að jafnaði 8-10 starfs- menn Verkís starfa við þetta verkefni. Falið stórt verkefni í Noregi  Verkís annast óháða rýni vegna Fornebubanen Ljósmynd/verkis.is Fornebulínan Byggðar verða sex nýjar neðan- jarðarlestarstöðvar á átta km leið frá Majorstuen. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Eliza Reida forsetafrú er meðal ríf- lega 26 þúsund Íslendinga sem kos- ið hafa utan kjörfundar í ár. Er það jafnframt umtalsvert meira en á sama tíma í fyrra þegar um 20 þús- und Íslendingar höfðu greitt at- kvæði. Stærstur hluti atkvæða í ár kemur frá kjósendum á höfuð- borgarsvæðinu eða rétt ríflega 20 þúsund. Forsetafrúin kaus utan kjör- fundar í Smáralind í gærmorgun þar sem henni var fylgt eftir af fjölda ljósmyndara. Hún var í fylgd sona sinna Sæþórs Peters og Don- alds Gunnars. Ákvað hún að kjósa utan kjörfundar til að minna á að fólk mætti skila atkvæði sínu snemma. Getur slíkt jafnframt ver- ið hentugt fyrir einstaklinga sem eru bundnir eða að heiman á kosn- ingadeginum sjálfum. Þá verður sömuleiðis mikið um að vera hjá forsetafrúnni á laugardag þegar kosningarnar fara fram. Forsetafrúin kaus utan kjörfundar í Smáralind Morgunblaðið/Hallur Már Forsetafrú Eliza Reid kaus utan kjörfundar í Smáralind í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.