Morgunblaðið - 23.06.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.06.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þekkt er aðtiltekin orðog froðu- kenndir frasar yfirtaka pólitíska umræðu. Sumt er ekki nýtt í málinu og gæti gengið ef notkunin væri hófstillt. En frasar sem detta inn í allt tal stéttarinnar sem við það er kennd fletur allt út. Orðið framtíðarsýn er dæmi þessa og náði því að verða óskiljanlegt eftir nokkurra ára ofnotkun. Það dugði ekki að ræðumenn drægju athygli að sinni alltumlykjandi „framtíðarsýn“. Orðið þótti tilvalið til árása á andstæð- ingana enda þeir iðulega og oftast nær sekir um alvar- legan skort á framtíðarsýn. Orðið hafði, þegar þarna var komið sögu, tekið yfir stefnu til skemmri tíma og út öldina eftir vali, í bland við hugleið- ingar og draumóra um fróm- ar óskir almennt og öllum til handa. Þeir sem fylgdust sæmilega með skynjuðu að nýja orðið var hjálpartæki fyrir þá sem vissu ekki hvað- an veröldin kom, hvar hún stóð, hvert hún stefndi og hvað menn vildu gera í því. Sleppa mátti að útlista stefnumörkun upp á gamlan máta með því að nefna „fram- tíðarsýnina“ samfellt í flaumnum sem vall fram og fordæma svo í bláendann „hina“ fyrir ömurlegan skort sinn á sýninni. Annað orðið var gagnsæi. Stjórn þeirra Steingríms og Jóhönnu var ein mesta pukurstjórn sem landsmenn muna frá síðari tímum. En hún taldi að á móti því kæmi ef hún væri uppfull af því orði og hún væri fánaberi þess í tilverunni. Hún lét Moskvu- Jón semja handa sér siðferð- isreglur og slíkum var veifað í tíð þeirrar ríkisstjórnar, sem hafði þó ekki siðferðis- styrk til að segja af sér á miðju kjörtímabili þegar hún hafði ekki lengur starfhæfan meirihluta á þingi og tafði illilega endurreisn efnahags- lífsins, sem beið næstu stjórnar. Viljinn segir frá umræðu sem varpar ljósi á tvöfeldnina á þessum bæ: „Björn Bjarnason fv. ráð- herra vekur athygli á nýút- kominni bók Péturs Hrafns Árnasonar (Þórarinssonar) sagnfræðings um sögu Vinstri hreyfingarinnar –– græns framboðs á fyrstu tuttugu starfsárum flokksins 1999-2019 á vefsíðu sinni. Í bókinni Hreyfing rauð og græn – saga VG 1999 til 2019 er sögð saga hreyf- ingar „sem um- breyttist frá því að vera lítill, áberandi andófs- flokkur í að verða sá næst- stærsti á Alþingi og leiðandi í ríkisstjórn,“ svo vitnað sé til kynningar á vefsíðu flokks- ins. Í bókinni er m.a. leitast við að segja frá hatrömmum innanflokkserjum í tíð vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Steingríms J. Sig- fússonar á árunum eftir hrun, þegar formaðurinn Stein- grímur J. er fjármálaráð- herra. „Á fundi 13. apríl [2011] var, samkvæmt tillögu Katr- ínar Jakobsdóttur, ákveðið að fá vinnustaðasálfræðing til að aðstoða hópinn [þingflokk VG] við að bæta andrúms- loftið. En því var „tekið mis- vel í þingflokknum og ótt- aðist ég að viðkomandi hafi sjálfur þurft að leita sér að- stoðar eftir að hafa kynnst þingflokki VG,“ sagði Katrín Jakobsdóttir við bókarhöf- und í maí 2018 (s. 232). Og enn hafði formaður VG þessi orð um ástandið: „Þetta líkt- ist einna helst langri spennu- senu úr Indiana Jonesmynd þar sem einn rúllandi steinn- inn á eftir öðrum sótti að manni“. Rifjað er aukinheldur upp brotthvarf þingflokks- formannsins Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem var gerð áhrifalaus meðan hún var í fæðingarorlofi: Steingrímur J. sagði henni við komuna úr orlofinu í apríl 2011 að Árni Þór gæti ekki hugsað sér að víkja úr for- mannsstólnum en hún ætti að segja út á við að hún vildi heldur sinna börnunum betur! Um þetta segir bókar- höfundur: „Þessi gjörningur [að fella Guðfríði] vakti mikil viðbrögð bæði innan flokks og í samfélaginu og fannst mörgum súrt að kyngja því að flokkur sem kenndi sig við kvenfrelsi skyldi ekki hafa í heiðri anda fæðingarorlofs- laganna.“ (S. 231.) Þess er svo auðvitað við þetta að bæta, að sami Stein- grímur J. er nú forseti Al- þingis og lýsir brúnaþungur reglulega áhyggjum sínum af kvenfrelsisbaráttunni og jafnréttismálum almennt…“ Það gerir hann örugglega. Nema hvað? Katrín Jakobsdóttir taldi að vinnustaða- sálfræðingur þyrfti áfallahjálp eftir að hafa kynnst þingflokki VG} Gagnsær sýndarskapur S tundum er ágætt að staldra við og horfa á það sem vel er gert, til dæm- is hvernig fámenn þjóð tekst á við stór og vandasöm verkefni. Land- helgisgæslan er ágætt dæmi um það hvernig við Íslendingar tökumst á við stór verkefni. Ísland er ríflega 100 þúsund ferkíló- metrar að stærð og efnahagslögsaga okkar er 200 sjómílur. Þetta er gríðarlegt flæmi utan um litla þjóð. Ég átti þess kost á dögunum að taka þátt í æfingu hjá Landhelgisgæslunni þar sem æfð var björgun á hafi úti. Það er gott að fá tæki- færi til að sjá með eigin augum verkefnin, að- stæðurnar, mannskapinn og hvernig sá tækja- búnaður sem Landhelgisgæslan býr yfir reynist. Þar er allt til fyrirmyndar. Landhelgisgæslan sinnir margvíslegum verkefnum á sjó og landi og er einn þeirra þátta samfélagsins sem við höfum tilhneigingu til að gefa lítinn gaum þar til þörfin kallar. Mikilvægt er að vera vakandi og gleyma ekki mikilvægi slíkra stofnana samfélagsins með- an allt leikur í lyndi. Slík vangá getur reynst dýrkeypt þegar ógn steðjar að. Bættur skipakostur, stórstígar framfarir í öryggis- málum sjómanna, aukin menntun og þjálfun og nákvæm- ari veðurspár hafa orðið til þess að slysum á sjó hefur fækkað verulega undanfarna áratugi. Það er fagnaðaefni. Þegar kemur að öryggi landmanna verða þó sífellt til nýjar áskoranir. Aukinn áhugi fólks á ferðalögum um fjöll og firnindi okkar fallega lands kalla á aukinn viðbúnað og aukna viðbragðsgetu. Vöxtur í ferðaþjónustu jók álag á margs konar innviði og þó hlé sé á því í bili má búast við að ferða- mönnum fjölgi á ný með tilheyrandi álagi á við- bragðsaðila. Illviðri síðasta vetrar, snjóflóð og jarðhræringar minna okkur á að íslensk nátt- úra býr ekki aðeins yfir magnþrunginni fegurð heldur eru hún einnig óblíð og óútreiknanleg. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að eiga öfl- uga Landhelgisgæslu með góð tæki og þraut- þjálfað fólk. Hlutverk Landhelgisgæslunnar er víðtækt. Þar má nefna öryggis- og löggæslu og eftirlit á hafinu, leit og björgun, sjúkraflutninga, sprengjueyðingu, sjómælingar og sjókorta- gerð, aðstoð við löggæslu, aðstoð við almanna- varnir, samskipti við erlendar strandgæslur og svo má lengi telja. Landhelgisgæslan nýtur verðskuldaðs trausts almenn- ings samkvæmt könnunum undanfarin ár. Kjörorð hennar „Við erum til taks“ er vel viðeigandi og nær utan um það sem skiptir mestu í starfseminni; að viðhalda þjálfuðum mannskap og tækjum til að geta brugðist hratt við þegar þörfin kallar. Við sem förum með málefni Landhelgisgæsl- unnar gerum okkur grein fyrir mikilvægi hennar og vilj- um svo sannarlega vera til taks fyrir hana hér eftir sem hingað til. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Við erum til taks Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Um þessar mundir er unn-ið að því að á vegumborgaryfirvalda að aukagagnsæi og skapa að- gengilegra ferli varðandi styrkja- úthlutanir Reykjavíkurborgar. Til grundvallar er lögð skýrsla sem starfshópur mannréttinda- og lýð- ræðisráðs sendi frá sér í síðasta mánuði. Í skýrslunni kemur fram að heildargreiðslur vegna styrkja- samninga námu í fyrra rúmum milljarði króna. Þá eru ótaldir sam- starfssamningar og þjónustusamn- ingar borgarinnar sem námu um 13 milljörðum króna. „Ég hef lengi haft áhyggjur af styrkjaúthlutun hjá borginni. Margar úthlutanir eru ágætar, fag- legar og vel rökstuddar, en aðrar eru mjög óskýrar og ómarkvissar,“ segir Örn Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Örn segir að í ljósi þess að Reykjavíkurborg veiti afar háar fjárhæðir í styrki sé mikilvægt að vel sé staðið að úthlutuninni. „Ekki bara fyrir umsækjendur, heldur líka hefur þetta verið vandamál fyrir þá sem sjá um að úthluta, sér- staklega okkur sem viljum vanda okkur og fara vel með þessar háu upphæðir. Maður hefur oft verið hissa og stundum alveg gáttaður á ákvörðunum meirihlutans varðandi styrkveitingar,“ segir Örn. Hann kveðst fagna því að skýrslan sé komin fram með tillögum um margvíslegar úrbætur á þessu sviði. Helstu verkefni starfshópsins voru að samhæfa regluverk um út- hlutanir styrkja, að tryggja sýni- leika umsókna og veittra styrkja Reykjavíkurborgar og koma á raf- rænu umsóknarferli. Hópurinn tók saman yfirlit yfir alla styrki og reglur borgarinnar með því að kalla eftir upplýsingum frá fagsv- iðum. Markmiðið var að samhæfa regluverk og ná yfirsýn yfir verk- efni hópsins. Niðurstaða starfshóps er að farið verði í aðgerðir til þess að auka gagnsæi og eftirlit með samningum og úthlutunum styrkja, tryggja sýnileika og einfalda að- gengi íbúa að styrkjum. Í tillögum hópsins kemur meðal annars fram að setja þurfi upp styrkjavef á reykjavik.is. Markmiðið er að til verði einn raf- rænn ferill sem hægt verður að nota fyrir alla styrki borgarinnar. Reglur um styrki borgarinnar verði samhæfðar, sér í lagi þau skilyrði sem umsækjendur þurfa að upp- fylla til að njóta styrkúthlutunar, skil gagna/afurða við verklok og eftirlit. Gefin verði út Styrkjahand- bók með leiðbeiningum fyrir um- sækjendur um styrki og hins vegar handbók fyrir starfsfólk borgar- innar um afgreiðslu og meðhöndlun styrkja. Reglur verði samræmdar. Á styrkjavefnum verður birt hverjir fá úthlutað styrkjum og birtar verða upplýsingar um sam- starfs- og þjónustusamninga á vefnum. Styrkjum úr borgarsjóði verði framvegis úthlutað tvisvar á ári í gegnum nýtt rafrænt um- sóknarferli, sem alltaf er opið til að auka aðgengi og jafnræði þeirra sem hafa áhuga á styrkjum. Fagráð munu þó áfram geta veitt svokallaða skyndistyrki vegna verkefna eða viðburða sem upp kunna að koma með litlum fyrir- vara. Auglýsingar um styrkjaút- hlutun borgarinnar verða birtar í viðeigandi miðlum hverju sinni, þar sem tekið er mið af markhópum. Athygli vekur að felld er niður regla um að auglýsa þurfi úthlutun styrkja í dagblöðum. Auka gagnsæi við styrkveitingar Morgunblaðið/Ómar Styrkir Ef allt er talið fara rúmlega fjórtán milljarðar króna í alls konar styrkjagreiðslur á vegum Reykjavíkurborgar á hverju ári. Örn Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, hef- ur lengi barist fyrir úrbótum í styrkjamálum. Hann segir að betur sé vand- að til úthlutana stærri styrkja, eins og á velferðarsviði þar sem skýrt skilgreind viðmið séu not- uð til að ákveða úthlutanir og velja á milli umsækjenda. „Í öðrum tilfellum er þetta mjög ómarkvisst og ógagnsætt. Stundum hefur maður á tilfinn- ingunni að um geðþótta- ákvörðun sé að ræða,“ segir hann. Hann segist lengi hafa gert athugasemdir við þessi vinnubrögð og kallað eftir breyt- ingum og núna loksins hilli undir það. „Það er stundum hlustað á nöldrið í okkur í minnihlutan- um,“ bætir hann við. „Stundum er hlustað“ STYRKIR BORGARINNAR Örn Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.