Morgunblaðið - 23.06.2020, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020
Um næstu helgi
gengur þjóðin til
kosninga og velur sér
þjóðarleiðtoga í lýð-
ræðislegum kosn-
ingum. Þá stendur
val okkar um að veita
Guðna Th. Jóhannes-
syni, núverandi for-
seta Íslands, áfram-
haldandi umboð til að
gegna þessu mikil-
væga virðingaremb-
ætti. Síðastliðin fjögur ár hefur
hann sýnt og sannað að hann
stendur undir nafni sem sannur
leiðtogi þjóðarinnar í blíðu og
stríðu. Frá fyrsta degi í embætti
varð ljóst að þar var kominn þjóð-
höfðingi sem höfðaði sterkt til al-
mennings í landinu. Einlægir per-
sónutöfrar Guðna, velvild,
glaðværð, heiðarleiki, manngæska
og réttsýni birtast í öllum hans
embættisverkum. Hann er sann-
arlega maður fólksins, hafinn yfir
dægurþras stjórnmálanna, sannur
og einlægur í öllum sínum verk-
um. Og víst er að Guðni Th. Jó-
hannesson fer ekki í mann-
greinarálit þegar hann kemur
fram fyrir hönd þjóðarinnar. Það
hefur hann sýnt og sannað með
því að leggja stórum sem smáum
málefnum lið, svo sem málefnum
hinsegin fólks, fatlaðra, krabba-
meinsgreindra eða barna og ung-
menna, svo fátt eitt sé nefnt. Við
sjáum hann á íþróttakappleikjum,
í gleðigöngunni, perlandi arm-
bönd fyrir krabba-
meinsveikt ungt fólk
og klæðast röndóttum
sokkum, í heimsókn
hjá eldri borgurum,
plokkandi rusl á al-
mannafæri, hlaupa í
Reykjavíkurmaraþon-
inu eða bara hjóla
með börnunum sínum
um Álftanesið. Við
fylgjumst líka með
honum sem fulltrúa
þjóðarinnar á inn-
lendum sem erlendum
vettvangi við hlið eiginkonu sinn-
ar, Elizu Reid, og fyllumst stolti
yfir glæsileika þeirra. Forseta-
frúin hefur einnig verið afar virk
sem slík og lagt hinum ýmsu góðu
málefnum lið, svo eftir hefur verið
tekið. Þegar við stöndum frammi
fyrir vali á forseta næstu fjögur
árin er ekki erfitt að taka ákvörð-
un. Þess vegna hvet ég fólk til að
nýta sér kosningaréttinn og
tryggja Guðna Th. Jóhannessyni
örugga kosningu, landi og þjóð til
heilla.
Maður fólksins
Eftir Ragnheiði
Davíðsdóttur
Ragnheiður
Davíðsdóttir
»Hann er sannarlega
maður fólksins,
hafinn yfir dægurþras
stjórnmálanna, sannur
og einlægur í öllum
sínum verkum.
Höfundur er blaðamaður.
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS
HJÓLALÁSAR
FRÁ TRELOCK
Sjáðu úrvalið og veldu lásinn
sem hentar þér á www.lykillausnir.is
Hinn 23. júní ár
hvert er haldið upp á
ólympíudaginn í yfir
200 löndum sem eru
með ólympíunefndir.
Hátíðahöld eru með
ýmsum hætti eins og
að hvetja ólympíufara
og alla aðra til að
hreyfa sig sérstaklega
þennan dag með
hressilegum göngu-
eða hlaupatúr og hug-
leiða ólympíuhugsjónirnar frið á
jörðu, heiðarleika, samkennd svo og
íþróttamannslega framkomu innan
vallar sem utan.
Alþjóðaólympíunefndin ákvað á
fundi sínum 1948 í Sorbonne í París
að halda skyldi árlega ólympíudag
um allan heim til að minnast sam-
þykktar 23. júní 1894 um endur-
vakningu nútíma ólympíuleika í
Grikklandi 1896. Markmiðið var að
hvetja til þátttöku í íþróttum um all-
an heim óháð aldri, kyni eða íþrótta-
legri getu.
Undanfarna áratugi hafa ólympíu-
dagarnir hjálpað til við að kynna ól-
ympíuhugsjónina með ólíkum við-
burðum á sviði íþrótta, menningar,
lista og menntunar. Ólympíuhlaup
er sérstaklega vinsælt þennan dag.
Seinustu árin hafa ólympíudagarnir
þróast meir og meir í átt að almennri
hreyfingu, lærdómi og nýsköpun.
Þannig hafa ólympíunefndir í mörg-
um löndum skipulagt ólympíu-
dagana í nánu samstarfi við bæjar-
félög, íþróttafélög og skóla víða um
landið þar sem ungt fólk hittir af-
reksíþróttafólk landa sinna.
Á Íslandi er það hlutverk Íþrótta-
og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ)
að skipuleggja þennan dag í sam-
starfi við Samtök íslenskra ólympíu-
fara (SÍÓ) en einnig er
hægt að halda upp á
daginn á öðrum dögum
sem verður gert á Ís-
landi í ár eins og golf-
keppni í september fyr-
ir ólympíufara og
fjölskyldur þeirra. ÍSÍ
og SÍÓ eru áhugasöm
um að fjölga ólympíu-
dögum hérlendis ár
hvert í samstarfi við
bæjarfélög, íþrótta-
félög og skóla um land
allt og hvetja áhuga-
sama aðila til að hafa
samband. ÍSÍ og SÍÓ eru þegar í
samstarfi við frjálsíþróttaráð
Reykjavíkur um grunnskólamótið í
frjálsum í september sem ólympíu-
dag sem vonandi verður fastur við-
burður. Þess vegna gætu alþjóðleg
unglingamót hérlendis tengst ól-
ympíudeginum með merki ÍSÍ og
SÍÓ með ólympíuhringjunum.
Á heimsþingi ólympíufara, sem
haldið var í Lausanne í Sviss sl. ár,
voru rædd mörg samfélagsleg verk-
efni sem ólympíufarar voru hvattir
til að styðja. Samtök íslenskra ól-
ympíufara kynntu á þinginu þá hug-
mynd að ólympíufarar um allan
heim hvettu þróunarsamvinnustofn-
anir viðkomandi landa til að bæta
eflingu skipulagðrar íþrótta-
starfsemi við almennan stuðning
þeirra í þróunarlöndum en flest
þeirra styðja aðeins byggingu skóla,
heilsugæslu, vatnsleit, landbúnað
o.fl. Fulltrúum Afríkuríkja leist vel á
þessa hugmynd okkar Íslendinga.
SÍÓ vinnur nú að stofnun íþrótta-
félags við skóla í þorpinu Got Agulu
við Viktoríuvatnið í Keníu sem
byggður hefur verið af íslenskum
fjölskyldum og félagasamtökum í
samstarfi við kennara og nemendur
Verslunarskólans. Um 300 nem-
endur eru núna í þessum skóla. Sem
liður í stofnun þessa íþróttafélags í
Got Agulu tók SÍÓ þátt með mörg-
um öðrum félagasamtökum, fyrir-
tækjum og einstaklingum í að bjóða
fótboltaliði skólans til Íslands á
ReyCup 2019 til að hvetja krakkana
í bænum til íþróttaiðkunar.
SÍÓ myndi vilja sjá kennslu um
ólympíuhugsjónina koma inn í skóla
landsins með fræðslu um mikilvægi
heilbrigðrar sálar í hraustum lík-
ama, frið á jörðu, íþróttamannslega
framkomu jafnt innan sem utan vall-
ar með ótal dæmisögum eins og þeg-
ar Norðmenn lánuðu Ítölum vara-
hlut í bobbsleða þeirra á vetrar-
ólympíuleikum sem varð til þess að
Ítalir unnu gullið en Norðmenn
bronsið. Norðmennirnir kváðust að-
spurðir ekki sjá eftir þessu því í
íþróttum væru allir vinir.
Samtök íslenskra ólympíufara
(SÍÓ) voru stofnuð 1995 og eru allir
þeir Íslendingar sem keppt hafa á
ólympíuleikum félagar. Samtals
hafa 305 Íslendingar keppt á ólymp-
íuleikum síðan í London 1908, en 59
þeirra eru látnir. SÍÓ er aðili að Al-
þjóðasamtökum ólympíufara (WOA;
World Olympians Association) en
samtals hafa um 100.000 einstak-
lingar frá 206 löndum keppt á sum-
ar- og vetrarólympíuleikum frá upp-
hafi.
Eftir Jón Hjaltalín
Magnússon » ÍSÍ og SÍÓ eru
áhugasöm um að
fjölga ólympíudögum
hérlendis ár hvert í
samstarfi við bæj-
arfélög, íþróttafélög og
skóla um land allt.
Jón Hjaltalín
Magnússon
Höfundur er formaður Samtaka
íslenskra ólympíufara.
jhm@simnet.is
Ólympíudagurinn 23. júní til
útbreiðslu ólympíuhugsjóna
Einhver sá mik-
ilvægasti eiginleiki
sem prýtt getur þjóð-
höfðingja er að skilja
stöðu sína: Geta leitt
þjóðina og verið
henni fyrirmynd;
hjálpað henni til
góðra verka um leið
og hann deilir kjör-
um með henni. Þetta
er ekki öllum gefið.
Embættistíð Guðna Th. Jó-
hannessonar undanfarin fjögur ár
hefur fært mér heim sanninn um
að hvort tveggja hefur hann á
valdi sínu.
Hann hefur nálgast embættið
af auðmýkt og virðingu þess sem
skilur að honum ber að inna þjón-
ustu af hendi landi og lýð til
heilla; að embættið – hvers
grunnmerking er þjónusta – helg-
ast af þjónustunni sem það á að
veita.
Vissulega er hann ekki óskeik-
ull; það er enginn – nema
kannski Kim Jong-un, að eigin
mati – en í þeim fáu tilfellum þar
sem betur hefði mátt standa að
málum hefur hann alltaf þorað að
gangast við því og
lært þar af. Það ber
vott um hugrekki og
heiðarleika. Og stjórn-
visku.
Guðni er maður
réttsýnn og hófsamur,
sanngjarn og mjög vel
heima á afar mörgum
sviðum en með yfir-
burðaþekkingu á sögu
og eðli forsetaembætt-
isins og stjórnsýsl-
unnar.
Af ofansögðu finnst mér ljóst að
Guðna sé best treystandi til að
gegna embætti forseta Íslands.
Þess vegna kýs ég Guðna Th.
Jóhannesson.
Af hverju Guðna?
Eftir Svein
Valgeirsson
Sveinn Valgeirsson
»Hann hefur nálg-
ast embættið af
auðmýkt og virðingu
þess sem skilur að
honum ber að inna
þjónustu af hendi
landi og lýð til heilla.
Höfundur er dómkirkjuprestur.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar sem
liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið
er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbein-
ingar fylgja hverju þrepi í skráning-
arferlinu. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig sem notanda í kerfið er
nóg að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka daga
í síma 569-1100 frá kl. 8-18.