Morgunblaðið - 23.06.2020, Page 24

Morgunblaðið - 23.06.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020 75 ára Lára er Ólafs- firðingur en býr í Reykjavík. Hún vann í 38 ár hjá Halldóri Jóns- syni heildverslun og síðan hjá Áskirkju. Maki: Ómar Freyr Þórisson, f. 1947, vél- virki og fyrrverandi leigubílstjóri hjá Hreyfli. Börn: Petrea Aðalheiður, f. 1973, og Óm- ar Örn, f. 1984. Barnabörnin eru Mikael Viktor Magnason, Anna Lára Magnadótt- ir og Viktor Freyr Ómarsson. Foreldrar: Axel Pétursson, f. 1912, d. 1959, sjómaður í Ólafsfirði, og Petrea Aðalheiður Rögnvaldsdóttir, f. 1908, d. 2008, húsmóðir í Ólafsfirði. Lára Sigurbjörg Axelsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér finnst álagið í vinnunni vera orðið fullmikið. Haltu áfram og einbeittu þér að því sem er framundan á veginum. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu óttann ekki hindra þig í að ná takmarki þínu. Reyndu ekki að skerast úr leik heldur leggðu þig allan fram. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Viljirðu leita í einveruna skaltu láta það eftir þér og vertu ekkert að afsaka þig fyrir öðrum. Brostu og líttu frekar á já- kvæðu hliðarnar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Miklar annir eru hjá þér þessa stundina. Taktu vinnuna aðeins minna al- varlega og einbeittu þér að því að hugsa vel um viðskiptavini þína, skjólstæðinga og vini. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nýstárlegar hugmyndir um bætta heilsu freista þín. Gefðu þér tíma til að melta hlutina. Sýndu því áhuga, þakkaðu fyrir þig og brostu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er hollt að setjast niður af og til og velta fyrir sér, hvað maður vill fá út úr lífinu, bæði í leik og starfi. Losaðu um og þú munt sjá að lífið er þess virði að taka einhverja áhættu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hógværð er góður kostur en þú mátt samt ekki láta fólk misnota góðvild þína. Leyfðu sjálfri þér að eiga það. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það sem þú kallar dekur finnst öðrum nauðsynlegt viðhald. Hugsaðu þig vel um áður en þú undirritar eitthvað. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú munt njóta þess að versla fyrir heimilið eða fjölskyldumeðlimi í dag. Rétt takmark sogar þig til sín eins og segull. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fátt er dýrmætara í lífinu en að eiga góða vini svo leggðu þig fram um að halda þeim. Hafðu það í huga nú þegar þú tekst á við þetta mikilvæga verkefni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu við þegar deilur um viðkvæm mál- efni hafa farið úr böndunum. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi svo það er best að hafa allt á hreinu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Valmöguleikar þínir eru miklir, djúp- ir og háir. Taktu því vel eftir og reyndu að skilja kjarnann frá hisminu. L ilja Skarphéðinsdóttir er fædd 23. júní 1950 á Húsavík og ólst þar upp í stórum systk- inahópi. „Ég á góðar minningar úr æskunni. Ég var í sveit sem barn í Hvammi í Þistilfirði hjá móðurbróður mínum Birni og konu hans Hönnu. Ég byrjaði fermingarsumarið að vinna í frysti- húsinu og fór síðar að vinna í vefn- aðarvörudeild kaupfélagsins. Ég veitti síðar forstöðu fyrsta dagheim- ilinu sem rekið var á Húsavík frá haustinu 1970, þá tvítug að aldri, gegndi því starfi til 1973.“ Lilja gekk í Barna- og Gagn- fræðaskóla Húsavíkur og tók síðar ljósmæðrapróf frá Ljósmæðraskóla Íslands 29. september 1979. Lilja hefur unnið sem ljósmóðir við Sjúkrahús Húsavíkur, nú Heil- brigðisstofnun Norðurlands í rúm 40 ár. „Ég stimplaði mig formlega út 16. júní síðastliðinn en á kannski eftir að leysa af. Síðustu tólf árin höfum við sinnt mæðraeftirliti og ungbarnaeftirliti á Húsavík en börn- in fæðast ekki lengur hjá okkur.“ Lilja er í kvenfélagi Húsavíkur til 50 ára, Kirkjukór Húsavíkurkirkju og Sólseturskórnum sem er kór eldri borgara á Húsavík og er einnig formaður Félags eldri borgara á Húsavík og nágrennis. „Þetta er mjög virkt og gott 300 manna félag. Við eigum gott félagsheimili sem heitir Hlynur. Það er opið flesta virka dag og þar eru ýmar uppá- komur haldnar.“ Lilja sat í bæjar- stjórn Húsavíkur 1990-1994, en hafði verið varabæjarfulltrúi áður og hún hefur sinnt ýmsum nefndar- störfum fyrir bæjarfélagið. „Svo sat ég einn bæjarstjórnarfund í fyrra sem varamaður, ég var í 7. sæti á listanum og hélt ég yrði alveg laus við að sitja bæjarstjórnarfundi. Félagsmálin taka eiginlega allan tímann minn,“ segir Lilja spurð út í áhugamálin. „En auðvitað eru það fjölskyldan og vinir sem ég sinni mest. Ég á átta barnabörn í Noregi og er því búin að leggja mikið til Noregs. Ég fer þangað einu sinni eða oftar á ári að heimsækja þau og börnin mín.“ Fjölskylda Eiginmaður Lilju var Eymundur Kristjánsson, f. 12.10. 1945, d. 18.12. 2018, bifvélavirki, vélstjóri, öku- kennari og vörubílstjóri. Foreldrar hans voru hjónin Sólveig Indriða- dóttir frá Ytra Fjalli í Aðaldal, f. 13.5. 1910, d. 16.9. 2000 og Kristján Halldórsson, f. 10.8. 1884 á Syðri- Brekkum, d. 21.11. 1957, bændur á Syðri-Brekkum á Langanesi. Börn Lilju og Eymundar: 1) Kristján Eymundsson, f. 1.2. 1969, framkvæmdastjóri og eigandi bygg- ingafyrirtækisins FaktaBygg, bú- settur í Stavanger í Noregi, kona hans er Marian Knudsvik, fram- kvæmdastjóri Magu Design í Stav- anger. Börn þeirra eru Lilja Rún, f. 12.5. 1995, Helga Björg, f. 4.8. 1998, Kaja, f. 11.3. 2005, Freyr, f. 1.8. 2009 og Frida Sofie, f. 14.5. 2011; 2) Ásta Eir Eymundsdóttir, f. 18.7. Lilja Skarphéðinsdóttir ljósmóðir – 70 ára Við Laxá í Aðaldal Lilja með maríulaxinn í Hólmavaði. „Ég kann greinilega betur að halda á ungabarni en laxi.“ Hefur lagt mikið til Noregs 17. maí Ásta Eir, Lilja og Kristján á þjóðhátíðardegi Norðmanna í fyrra. Ljósmóðir Lilja í heimavitjun að vigta nýjan Þingeying. 50 ára Guðmundur er Eyrbekkingur en býr á Selfossi. Hann er vél- smíðameistari frá Fjöl- brautaskóla Suður- lands og vinnur á Vélaverkstæði Þóris. Maki: Valgerður Soffía Gísladóttir, f. 1971, bókari og rekur ferðaþjónustufyrirtækið RPC. Börn: Gísli Jóhannes, f. 1991 og Svan- hildur, f. 1993. Barnabörn eru Árný Ósk og Rebekka Sól Gísladætur, og Valgerður Sara Friðriksdóttir. Foreldrar: Grétar Óskarsson, f. 1949, vann hjá Vegagerðinni, og Svanhildur Guðmundsdóttir, f. 1949, húsmóðir. Þau eru búsett á Eyrarbakka. Guðmundur Stefán Grétarsson Til hamingju með daginn Hella Viktoría Mist Al- marsdóttir fæddist 23. júní 2019 á Selfossi og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó 3.180 g og var 50,5 cm löng. For- eldrar hennar eru Almar Magnússon og Ína Karen Markúsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.