Morgunblaðið - 23.06.2020, Síða 26
2. UMFERÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kópavogsbúinn Valgeir Valgeirsson
átti stórleik fyrir HK þegar liðið
gerði sér lítið fyrir og vann 3:0-sigur
gegn Íslandsmeisturum KR í 2. um-
ferð úrvalsdeildar karla, Pepsi Max-
deildarinnar, á Meistaravöllum í
Vesturbæ á laugardaginn síðasta.
Valgeir, sem verður 18 ára gamall
í september, skoraði fyrsta mark
HK í leiknum gegn KR og lagði upp
annað markið fyrir Birki Val Jóns-
son. Hann fékk tvö M hjá Morgun-
blaðinu fyrir frammistöðu sína.
Þrátt fyrir að vera einungis 17 ára
gamall á Valgeir að baki 22 leiki í
efstu deild fyrir HK þar sem hann
hefur skorað 5 mörk.
„Maður bjóst kannski ekki alveg
við því að þetta myndi enda 3:0,“
sagði Valgeir við Morgunblaðið. „Við
höfðum engu að síður fulla trú á því
að við gætum lagt KR að velli, líkt og
við gerðum í Kórnum á síðustu leik-
tíð þegar við unnum þá 4:1.
Við fórum því inn í leikinn með
það að markmiði að taka þrjú stig og
það gekk eftir. Sigurinn gegn þeim í
Kórnum á síðustu leiktíð gaf okkur
mikið og það var góð tilfinning að
fara inn í leikinn á laugardaginn og
vita að við gætum unnið þá.“
Umtal hefur áhrif
Valgeir skoraði 3 mörk í tuttugu
leikjum í efstu deild síðasta sumar
en hann hefur nú þegar skorað 2
mörk í tveimur leikjum í sumar.
„Ég er í miklu betra standi núna
en á síðustu leiktíð. Ég get verið al-
veg hreinskilinn með það að ég bjóst
ekki við því að spila jafn mikið og ég
gerði síðasta sumar. Ég skoraði þrjú
mörk og markmiðið er að gera
ennþá betur núna.
Ég er búinn að æfa mjög vel í all-
an vetur og ástæðan fyrir því er
fyrst og fremst sú að ég vil komast í
atvinnumennsku. Ég stefni þess
vegna á það að standa mig vel fyrir
HK og fara svo út í atvinnumennsku
eftir sumarið, ef allt gengur eftir.“
Valgeir hefur verið mikið á milli
tannanna á fólki enda ekki oft sem
ungir strákar koma inn í efstu deild
af jafn miklum krafti.
„Allt umtal hefur áhrif en ég vil
samt ekki meina að þetta hafi stigið
mér til höfuðs. Ég passa mig og þeg-
ar vinir mínir sem dæmi ætla að
segja mér frá einhverri umræðu sem
hefur skapast í hinum og þessum
umfjöllunarþáttum þá einfaldlega
hætti ég að hlusta. Ég vil ekki detta í
þann gír að ég fari að halda að ég sé
allt í einu orðinn besti leikmaður
liðsins, því ég vil vera með hausinn
rétt skrúfaðan á.
Aðrir leikmenn í deildinni vita
mun meira um mig núna en í fyrra
þegar ég kom inn í deildina sem
óskrifað blað. Ég finn það að liðin
eru farin að taka fastar á mér og ég
virðist eiga auðveldara með að pirra
menn núna en á sama tíma í fyrra.“
Valgeir hefur einsett sér það alla
tíð að mæta ákveðinn til leiks þegar
hann spilar fótbolta.
„Alveg frá því að ég var lítill
strákur í fótbolta hef ég alltaf mætt
alveg brjálaður til leiks í þá leiki sem
ég spila. Ég er lítill og léttur miðað
við flesta aðra í deildinni og ég þarf
þess vegna að vera grimmur inni á
vellinum.
Ég reyni að láta finna aðeins fyrir
mér og ef ég hefði ekki gert það á
síðustu leiktíð sem dæmi hefði ég
klárlega ekki náð þeim árangri sem
ég gerði. Ég mun þess vegna halda
áfram að mæta brjálaður til leiks í
alla þá leiki sem ég spila. Svo geta
menn vonandi fyrirgefið það í leiks-
lok þegar dómarinn hefur flautað
leikinn af.“
Hlustar á líkamann
Valgeir fór meðal annars til
reynslu til Bröndby og AaB í Dan-
mörku síðasta haust en hann ítrekar
að hann sé meðvitaður um hættuna
sem getur fylgt því að æfa of mikið.
„Það er mikilvægt að lenda ekki í
ofþjálfun, sérstaklega núna, þar sem
það er spilað mjög þétt. Þegar mað-
ur er ungur og dreymir um atvinnu-
mennsku þá er maður duglegur að
æfa aukalega sjálfur. Ég er meðvit-
aður um að ég þarf að passa mig,
sérstaklega eftir síðasta tímabil, þar
sem líkaminn sagði mér í þrígang að
ég þyrfti að bremsa mig af.
Ég er með háleit markmið fyrir
framtíðina og tel mig geta farið mjög
langt ef ég held mínu striki. Ég þarf
að taka þetta skref fyrir skref og
vera skynsamur. Ég hef mikla trú á
mér en það er líka mikilvægt að
passa upp á hausinn og að hann sé
alltaf í lagi. Þegar ég fer út þá vil ég
fara í lið þar sem ég er í aðalliðinu,
ekki í unglingaakademíu, því ég vil
æfa og spila með fullorðnum leik-
mönnum og Norðurlöndin gætu
hentað mjög vel í það,“ bætti Valgeir
við en hann missir væntanlega af
tveimur næstu leikjum HK í deild-
inni eftir að hafa meiðst á öxl í leikn-
um við KR.
Lítill, léttur
og grimmur
HK-ingur
Valgeir Valgeirsson átti stórleik gegn
Íslandsmeisturum KR í Vesturbænum
Morgunblaðið/Hari
Meiddist Valgeir Valgeirsson hefur skorað í tveimur fyrstu leikjum HK í
deildinni en missir væntanlega af tveimur næstu leikjum liðsins.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020
England
Manchester City – Burnley .................... 5:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Staðan:
Liverpool 30 27 2 1 66:21 83
Manch.City 30 20 3 7 76:31 63
Leicester 30 16 6 8 59:29 54
Chelsea 30 15 6 9 53:40 51
Manch.Utd 30 12 10 8 45:31 46
Wolves 30 11 13 6 43:34 46
Sheffield Utd 30 11 11 8 30:28 44
Tottenham 30 11 9 10 48:41 42
Crystal Palace 30 11 9 10 28:32 42
Arsenal 30 9 13 8 41:41 40
Burnley 30 11 6 13 34:45 39
Everton 30 10 8 12 37:46 38
Newcastle 30 10 8 12 28:41 38
Southampton 30 11 4 15 38:52 37
Brighton 30 7 11 12 34:41 32
Watford 30 6 10 14 28:45 28
West Ham 30 7 6 17 35:52 27
Bournemouth 30 7 6 17 29:49 27
Aston Villa 30 7 5 18 35:58 26
Norwich 30 5 6 19 25:55 21
Ítalía
Fiorentina – Brescia................................ 1:1
Birkir Bjarnason lék fyrstu 55 mínút-
urnar með Brescia.
Bologna – Juventus ................................. 0:2
Andri Fannar Baldursson var ónotaður
varamaður hjá Bologna.
Staða efstu liða:
Juventus 27 21 3 3 52:24 66
Lazio 26 19 5 2 60:23 62
Inter Mílanó 26 17 6 3 51:25 57
Atalanta 26 15 6 5 74:35 51
Roma 26 13 6 7 51:35 45
Napoli 26 11 6 9 41:36 39
Danmörk
Fallkeppnin, 1. riðill:
Lyngby – OB............................................. 1:2
Frederik Schram sat allan tímann á
bekknum hjá Lyngby.
Aron Elís Þrándarson lék ekki með OB
vegna meiðsla.
OB 39, SönderjyskE 33, Lyngby 33,
Silkeborg 20.
Þrjár umferðir eftir. Tvö efri liðin fara í
umspil um Evrópusæti, tvö neðri í umspil
um fall.
Svíþjóð
Sirius – Häcken........................................ 2:2
Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik-
mannahópi Häcken.
B-deild:
Brage – Sundsvall.................................... 1:2
Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik-
mannahópi Brage.
Grikkland
Larissa– Volos.......................................... 3:1
Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn
með Larissa.
Úkraína
Dynamo Kiev – Kolos Kovalivka ........... 2:1
Árni Vilhjálmsson kom inn á sem vara-
maður á 62. mínútu og skoraði mark Kolos.
Spánn
Villarreal – Sevilla .................................... 2:2
Leganés – Granada .................................. 0:0
Staða efstu liða:
Barcelona 30 20 5 5 69:31 65
Real Madrid 30 19 8 3 57:21 65
Sevilla 31 14 11 6 44:32 53
Atlético Madrid 30 13 13 4 38:22 52
Þýskaland
Undanúrslit, fyrri leikur:
Oldenburg – Alba Berlín .................... 63:92
Martin Hermannsson skoraði 12 stig,
tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar hjá
Alba Berlin.
Seinni leikurinn fer fram á morgun,
sigurliðið samanlagt fer í úrslit.
Spánn
Úrslitakeppnin, B-riðill:
Zaragoza – Andorra ......................... 93:113
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 5 stig,
tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar hjá
Zaragoza.
Staðan: Valencia 4, Real Madrid 4, San
Pablo Burgos 4, Gran Canaria 4, Andorra
2, Zaragoza 0.
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 3. umferð:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Tindastóll ............. 18
Framvöllur: Fram – ÍR............................. 18
Fagverksv.: Afturelding – Árborg...... 19.15
Eimskipsvöllur: SR – Valur................. 19.15
Egilshöll: Vængir Júpíters – KR ........ 19.15
Vivaldiv.: Grótta – Höttur/Huginn ..... 20.15
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Kópavogsvöllur: Breiðablik – KR....... 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Þróttur R ....... 19.15
Kaplakriki: FH – Selfoss ..................... 19.15
Enski boltinn á Síminn Sport
Leicester – Brighton................................. 17
Tottenham – West Ham....................... 19.15
Í KVÖLD!
Manchester City vann afar sann-
færandi 5:0-sigur á Burnley á
heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í
fótbolta í gærkvöld. Jóhann Berg
Guðmundsson lék ekki með Burn-
ley vegna meiðsla. Phil Foden og
Riyad Mahrez skoruðu tvö mörk
hvor fyrir City og David Silva
komst sömuleiðis á blað. City hefur
nú unnið þrjá 5:0-heimasigra á
Burnley í röð. Úrslitin þýða að
Liverpool getur tryggt sér titilinn á
heimavelli City þegar liðin mætast
2. júlí næstkomandi, vinni þau bæði
næsta leik.
City sýndi Burn-
ley enga miskunn
AFP
Tvenna Phil Foden skoraði tvö
mörk fyrir Manchester City.
Martin Hermannsson og samherjar
hans hjá Alba Berlín í þýska körfu-
boltanum eru komnir með annan
fótinn í úrslitaeinvígi um meistara-
titilinn eftir sannfærandi 92:63-sigur
á Oldenburg í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum en leikið var í
München í gærkvöld. Íslenski lands-
liðsmaðurinn átti fínan leik og skor-
aði tólf stig, tók sjö fráköst og gaf
sex stoðsendingar. Fer síðari leik-
urinn fram annað kvöld en saman-
lögð úrslit úr tveimur leikjum gilda.
Þarf Oldenburg því að vinna upp 29
stiga mun til að fara í úrslit.
Martin á leiðinni
í úrslitaeinvígi
Ljósmynd/Euroleague
Úrslit Martin og Alba Berlin eru svo
gott sem komin í úrslitaeinvígið.
Enginn af þeim 11 leikmönnum sem eru í liði 2. umferðar Pepsi Max-
deildar karla í fótbolta hjá Morgunblaðinu var í liði 1. umferðar.
HK á flesta leikmenn í liðinu, þrjá talsins, eftir 3:0 sigurinn á KR-ingum á
Meistaravöllum á laugardagskvöldið. Eitt M á liðið féll niður í blaðinu í
gær en það fékk Birkir Valur Jónsson.
Aron Bjarki Jósepsson, miðvörður KR, lék sinn 200. deildaleik gegn HK.
Af þeim eru 116 fyrir KR í efstu deild en 84 fyrir Völsung í 2. og 3. deild.
Óttar Bjarni Guðmundsson, miðvörður ÍA, lék sinn 200. deildaleik gegn
FH. Af þeim eru 56 fyrir ÍA, Stjörnuna og Leikni R. í efstu deild, 128 fyrir
Leikni R. í 1. deild og 16 fyrir KB í 3. deild.
Steven Lennon úr FH er markahæsti leikmaður deildarinnar eftir tvær
umferðir með 3 mörk. Valgeir Valgeirsson, HK, Stefán Teitur Þórðarson,
ÍA, og Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA, eru með 2 mörk.
Steven Lennon og Jónatan Ingi Jónsson úr FH og Valgeir Valgeirsson úr
HK eru efstir í M-gjöfinni með 3 M hver eftir tvær umferðir. vs@mbl.is
Enginn tvisvar í úrvalsliðinu
2. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
3-5-2
Sigurður Hrannar Björnsson
HK
Jónatan Ingi Jónsson
FH
Birkir Valur Jónsson
HK
Damir Muminovic
Breiðabliki Mikkel Qvist
KA
Kaj Leo i Bartalsstovu
Val
Halldór Orri
Björnsson
Stjörnunni
Þorsteinn Már
Ragnarsson
Stjörnunni
Sigurður Egill
Lárusson
Val
Valgeir
Valgeirsson
HK
Daníel
Hafsteinsson
FH