Morgunblaðið - 23.06.2020, Síða 29

Morgunblaðið - 23.06.2020, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Breski leikarinn Ian Holm, sem margir þekkja einkum sem hobbit- ann Bilbó Baggins í kvikmyndunum Hringadróttinssögu og Hobbita- þríleiknum, er látinn 88 ára að aldri. En auk þess að vera þekktur fyrir leik í kvikmyndum var Holm einn dáðasti skapgerðarleikari Breta á sviði síðustu áratugi, og ekki síst fyrir rómaða túlkun á persónum eftir Shakespeare og Harold Pinter. Þótti hann geta túlkað jöfnum höndum hina blíðustu karaktera sem þá brjál- uðustu. Fyrsta kvikmyndahlutverk Holm var í The Fixer (1968) og sama ár lék hann í kvikmyndagerð Peters Hall af Draumi á Jónsmessunótt. Árið 1981 var hann tilnefndur til Óskars- verðlauna fyrir hlutverk sitt sem þjálfarinn í Chariots of Fire. Meðal annarra kvikmynda sem Holm lék í má nefna Night Falls on Manhattan (1996), The Sweet Hereafter (1997), Joe Gould’s Secret (2000) og margir minnast hans í hlutverki vélmennis í Alien (1979) sem Ridley Scott leik- stýrði. Þá lék hann til að mynda Napóleon í Time Bandits (1981), lækni konungs í The Madness of King George (1994) og föður vísinda- mannsins í Mary Shelley’s Franken- stein sem Kenneth Branagh leik- stýrði. Branagh hefur ausið Holm lofi fyrir einstaka leiktækni en þeir léku saman í kvikmyndum og líkti Bra- nagh þeirri reynslu við að leika tennis með einhverjum sem væri miklu betri í íþróttinni; það væri aldrei að vita hvaðan boltinn bærist en það væri alltaf spennandi og óvænt. Holm lék mörg Shakespeare- hlutverk á sviði á sínum langa ferli en hvað rómuðust var túlkun hans á Lé konungi. Breskir leikhúsunnendur tengja hann þó ekki síst við leikrit Harolds Pinter sem hann þótti túlka með meistaralegum hætti. Snemma sló hann í gegn fyrir leikinn í The Homecoming en eftir að hafa tekið sér fimmtán ára hlé frá sviðsleik, sök- um sviðshræðslu, sneri hann aftur ár- ið 1993 og þótti túlka aðalpersónu Moonlight meistaralega. Tveimur ár- um síðar hlaut Holm Laurence Oli- vier-verðlaunin fyrir túlkun á Lé. Sagði hann það að leika Lé vera eins og að „klífa Everest án súrefnis“. Leikarinn Ian Holm látinn AFP Dáður Ian Holm við frumsýningu kvikmyndar um Tolkien í fyrra.  Var kunnur sem hobbitinn Bilbó og Lér konungur Spænski rithöfundurinn Carlos Ruiz Zafón er látinn úr krabbameini, 55 ára að aldri. Hann sendi árið 2001 frá sér skáldsöguna sem nefnist á íslensku Skuggi vindsins og er ein söluhæsta spænska skáldsaga allra tíma. Skuggi vindsins hefur verið þýdd á tugi tungumála og selst í meira en 15 milljónum eintaka. Samkvæmt The New York Times hefur aðeins Don Kíkóti eftir Cervantes selst betur af spænskum skáldsögum. Söguna skrifaði Za- fón í Kaliforníu þar sem hann var lengi búsettur en hann lætur hana gerast í fæðingarborg sinni, Barselóna. Er hún skrifuð sem saga sem gerist í sögu og er víða komið við, meðal annars í spænsku borgarastyrjöldinni. Skuggi vindsins var fyrsta sag- an í fjórleiknum „Grafreitur gleymdra bóka“ sem Zafón lauk fyrir fjórum ár- um með útkomu sögunnar sem nefnist á ensku The Labyrinth of Spirits. Sigrún Ástríður Eiríksdóttur hefur þýtt fyrstu þrjár, Skugga vindsins (2005), Leik engilsins (2009) og Fanga himinsins (2014). Höfundur Skugga vindsins allur Carlos Ruiz Zafón Yfirvöld í Alaska sendu fyrir helgi öfluga þyrlu að Denali-þjóðgarðinum í óbyggð- um ríkisins og létu hana hífa upp og flytja á brott ryðgaða rútu sem er þekkt sem Fairbanks Bus 142 og öðlaðist frægð vegna bókarinnar Into the Wild eftir Jon Krakauer og samnefndrar kvikmyndar sem Sean Penn leikstýrði 2007. Bókin fjallar um sanna og harmræna sögu Christophers McCandless, ungs manns sem hélt einn inn í skóga Alaska og svalt í hel í þessari rútu í ágústmánuði árið 1992. Síðan hefur rútan orðið vinsæll áfangastaður ævintýrafólks sem reynir að fara á slóðir McCandless. Tveir ferða- langar hafa drukknað í nálægu fljóti og þá hafa björgunarsveitir verið kallar til að minnsta kosti fimmtán sinnum til að leita að fólki er stefndi að rútunni. Rútan er árgerð 1946 og var upphaf- lega notuð í borginni Fairbanks. Árið 1960 var henni ekið inn í skóg að Stam- pede-skógarstígnum, þar sem hún var notuð af verkamönnum sem unnu þar við slóðagerð, en í kjölfarið var hún yfirgefin. Yfirvöld ákváðu að fjarlægja rútuna eftir að seinni göngumaðurinn drukknaði í fyrra á leið að henni. Ryðguð rútan var sett á pallbíl og ekið á brott en stjórnend- ur þjóðgarðarins eru sagðir velta fyrir sér að gera hana aðgengilega sem safngrip. Í rútunni var ferðataska sem þeir sem fjar- lægðu rútuna töldu hafa verið í eigu McCandless en systir hans neitar því. Hins vegar kunni að vera í henni dagbæk- ur sem hún og fleiri hafi skilið þar eftir. Fjarlægðu rútuna  Varð eftirsótt eftir Into the Wild AFP Flutt Í ljósmynd, sem Þjóðvarðlið Alaska dreifði, má sjá hvar þyrla lyftir rútunni sem varð fræg vegna örlagasögu Christophers McCandless. Gítarinn sem bandaríski tónlistar- maðurinn Kurt Cobain, höfuðpaur hljómsveitarinnar Nirvana, lék á á hinum víðkunnu „Unplugged“- tónleikum MTV-sjónvarpsstöðvar- innar árið 1993, var sleginn hæst- bjóðanda á uppboði fyrir sex millj- ónir dala, um 826 milljónir króna. Tónleikarnir voru teknir upp fimm mánuðum áður en Cobain féll fyrir eigin hendi. Gítarinn, sem er af tegundinni Martin D-18E var keyptur af Peter Freedman, stofnanda Rode- hljóðnemaverksmiðjunnar og hefur hærra verð aldrei verið greitt fyrir gítar á uppboði. Fyrra met var sett í fyrra þegar fjórar milljónir dala voru greiddar á góðgerðaruppboði fyrir gítar sem David Gilmour, gítarleikari Pink Floyd, átti. Freedman hyggst ferðast með gítarinn um heiminn og sýna hann. Hann sagði þetta hafa verið „ein- stakt tækifæri til að eignast ein- stakt hljóðfæri“. Á gítarkassanum er mynd af umslagi plötu með hljómsveitinni Poison Idea. AFP Verðmætur Gítarinn og gítartaskan. „Unplugged“-gítar Kurts Cobain var seldur á uppboði fyrir metfé

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.