Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Þ
að hefur gengið á ýmsu í vet-
ur og í mars var tekin
ákvörðun hjá sumum út-
gerðarfélögum, meðal ann-
ars hjá Samherja, um að biðja áhafn-
ir um að vera lengur um borð í
skipum fyrirtækisins til þess að
draga úr hættu á smitum vegna kór-
ónuveirufaraldursins og þannig
tryggja rekstur skipanna. Í þessu
fólst að sjómenn tóku fleiri túra í röð
og komu ekki í land á meðan landað
var. Átakið var gert í sátt við fé-
lagsmenn Sjómannafélags Eyja-
fjarðar sem töldu þetta leið til þess
að tryggja að sjómenn héldu launa-
tekjum sínum.
„Þetta gekk vonum framar, tókst
mjög vel og það náðist að halda
þessu gangandi allan þennan tíma.
Skipin hafa nánast ekkert stoppað.
Menn eru fimmtán til átján daga á
sjó áður en þeir fá leyfi. Margir fóru
í launakerfi, þeir voru þá á launum
þrátt fyrir að vera heima, en ég held
að flestir hafi hætt þessu núna um
mánaðamótin eða ætli að hætta eftir
sjómannadag. Einhverjir ætla að
halda launakerfinu gangandi hjá
sér,“ segir Trausti Jörundarson, for-
maður Sjómannafélags Eyjafjarðar.
„Ég hef ekki heyrt að margir
væru óánægðir með þetta, ef þá
nokkur. Þetta var jákvætt skref svo
að menn héldu vinnu og launum.
Þessir menn sem eru á þessum skip-
um hérna eru bara þannig gerðir að
þeir taka þetta bara á hnefanum
meðan þess þarf. Mjög duglegir ein-
staklingar, allir sem einn.“
Hann segir lítið verða um hátíð-
arhöld þennan sjómannadag í Eyja-
firði. „Ég held að það sé bara messa
á sunnudagsmorgun og svo ekkert
meir. Áhafnirnar ætla nú að fara
eitthvað saman. Ég held að menn
ætli sér nú að gera sér glaðan dag,
held að það sé meiningin hjá lang-
flestum. En þetta er eins og um allt
land þar sem búið er að blása allt
af.“
Tregða í viðræðum
Trausti segir efst á baugi nú vera
kjaraviðræður sjómanna, en hann
kveðst ekki með öllu sáttur við fram-
gang þeirra. „Það er lítið sem ekkert
hægt að tala við SFS (Samtök fyrir-
tækja í sjávarútvegi), þeir svara ekki
neinu og þetta er í mjög skrýtinni
stöðu. Ég er nýr í þessu og skil ekki
af hverju er ekki einu sinni hægt að
ræða málin. Það er ekki reynt að fá
mann á fundi til þess að tala saman
og ná einhverjum sameiginlegum
grundvelli fyrir viðræður.
Nú er sumarið að koma og það
gerist örugglega ekki mikið þá. Ekki
búið að gerast mikið í Covid. Þannig
að ég vænti þess að þetta fari á fullt
skrið í haust, í lok ágúst eða byrjun
september. Þá hlýtur þetta að fara í
gang og vonandi getum við klárað
þetta fyrir áramót. Þetta er það sem
ég vil meina að sé hægt að gera, en
svo er ekkert víst að það séu allir
sem eru sammála því. Það er nú
kominn nýr formaður SFS og það
hlýtur eitthvað að gerast með nýjum
mönnum.“
Brenndir af samningsleysi
Í ljósi þess að lítið hefur gerst í við-
ræðum að undanförnu spyr blaða-
maður hvort félagsmenn séu orðnir
óþreyjufullir. „Menn eru brenndir af
því að vera samningslausir í næstum
sjö ár. Svo kemur nýr kjarasamn-
ingur og þar voru bókanir í sem átti
að klára fyrir júlí 2019. Það gekk
ekki vegna ágreinings um veikinda-
mál og annað. Ég held að menn vilji
sjá að það komi nýr kjarasamningur
sem þeir geti allavega kosið um,
hvort þeir vilji hann eða vilji eitthvað
annað. Þetta finnst mér mikilvægast
og að sýna með þessu fram á að sam-
skipti útgerða og sjómannafélaga
séu í lagi, sem þau eru náttúrlega
ekki þegar hlutirnir eru unnir
svona,“ svarar Trausti. Þá sé það svo
að þegar aðrar stéttir hafi verið
samningslausar í hálft ár verði „allt
vitlaust“ að sögn hans. „Við erum
búnir að vera samningslausir í hálft
ár og það er ekkert að gerast, það
boðar enginn neina fundi eða neitt.“
Hann fullyrðir að nýjasta útspil
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sé
að þau hafi ekki lengur umboð til
þess að gera kjarasamning við sjó-
menn. „Þetta er náttúrlega bara
þvættingur. Þetta eru þeirra hags-
munasamtök, þannig að ég held að
við ættum að geta samið við þá.
Þetta virðist allt vera í bölvuðu
rugli.“
Þá telur Trausti að aðferðir sam-
taka útgerðarmanna séu til þess
fallnar að draga úr trausti milli
samningsaðila. „Í kjarasamningnum
sem rann út 1. desember var hækk-
un á skiptaprósentu úr 70% í 70,5%
vegna vinnu við bókanir og þegar
bókanirnar klárast ekki þá vilja þeir
meina að þeir geti einhliða lækkað
skiptaprósentuna niður í 70%. En
þar sem nýr kjarasamningur er ekki
gildandi þá hlýtur sá gamli að gilda
þar til nýr er undirritaður, en þetta
vilja þeir meina að þeir geti einhliða
ákveðið. Það væri eins og við mynd-
um einhliða fella úr gildi nýsmíða-
álagið. Þetta er sama vitleysan. Það
eru engar einhliða ákvarðanir þegar
tveir eru að semja.“
Mikilvægt að hittast
„Það á að vera hægt að setjast niður
og ræða málin. Það þarf að hífa
samningaviðræður á hærra plan, þar
sem menn setjast niður ákveðinn
dag og svo er talað í heilan dag. Síð-
an hittast menn aftur eftir viku og
eru þá kannski komnir með ein-
hverjar fleiri spurningar úr bakland-
inu á báða vegu.
Þetta er ekki bara fyrir okkur sjó-
menn, heldur líka fyrir þá að fara
með til sinna vinnuveitenda sem eru
útgerðarfélögin og viðra þær til-
lögur sem koma fram,“ útskýrir for-
maðurinn.
Trausti kveðst vera formaður
stærsta sjómannafélags innan Sjó-
mannasambands Íslands, í fram-
kvæmdastjórn þess og samn-
inganefnd. „Ég er búinn að vera í
þessu í eitt og hálft ár og hef aldrei
farið á fund með SFS. Aldrei hitt
þetta fólk. Mér finnst þetta bara
stórfurðulegt. Valmundur (formaður
Sjómannasambandsins) og Hólm-
geir (framkvæmdastjóri sambands-
ins) hafa séð um að hitta þá en það
er aldrei þannig að við mundum hitt-
ast öll og fara yfir þessi mál, mér
finnst það bara skrýtið.
Ég vil bara fá að vita hvað þeir
vilja og fá að hitta þetta fólk til að
ræða um hvað er hægt og hvað ekki.
Færa samningaviðræður inn í nú-
tímann og hætta að rífast úti í hverju
horni. Um það snúast samninga-
viðræður, þær fara ekki fram í blöð-
um heldur þurfa menn að vera ein-
hvers staðar saman og tala saman,“
segir hann og bætir við að hann telji
marga vera á sömu skoðun.
„Þetta á ekki að þurfa að vera
svona, að það sé svona erfitt að koma
á tveim til þrem fundum á mánuði,“
segir Trausti og bætir við að það
væri allra hagur að það væri búið að
gera nýjan samning áður en sá fyrri
rynni út „Það var planið með þessum
bókunum, en svo gekk það ekki upp
og þá er bara eins og það þurfi ekk-
ert að ræða þetta.“
Að lokum vill Trausti koma kveðj-
um til allra sjómanna frá Sjómanna-
félagi Eyjafjarðar og óska þeim til
hamingju með sjómannadaginn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Með samhentu átaki tókst að halda fiskiskipum á sjó þrátt fyrir kór-
ónuveirufaraldurinn, að sögn formanns Sjómannafélags Eyjafjarðar.
„Þetta á ekki að þurfa að vera svona“
Sjómönnum í Eyjafirði tókst með samhentu átaki
í samstarfi við útgerðir að halda skipum gangandi
á faraldurstímum. Næsta verkefni er að takast á
við tregðu í kjaraviðræðum, að sögn formanns
Sjómannafélags Eyjafjarðar.
Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir sjómenn
brennda eftir að hafa verið kjarasamningslausir í sjö ár. Hann telur of mikla
tregðu í gangi kjaraviðræðna og vonar að þær fari á fullt í haust.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson