Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 49
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 49
UMHVERFISVERÐLAUN
ATVINNULÍFSINS
Brim er stoltur handhafi Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2019.
Með skýrri sýn, virðingu fyrir umhverfi okkar og ómetanlegu starfsfólki, hefur okkur
tekist að verða leiðandi í umhverfismálum á Íslandi. Verðlaunin eru okkur hvatning til
að ganga enn lengra í sátt og samlyndi við náttúruna - takk fyrir okkur!
Brim óskar sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
til hamingju með daginn!
Morgunblaðið/Eggert
myndast, því við sjáum það t.d. á
verði á Bretlandsmarkaði að þegar
þorskflak er komið í kæli í stórmark-
aði og búið að draga frá álagningu,
flutningskostnað, hlut sjómanna og
aðra kostnaðarliði, þá vantar u.þ.b.
þúsundkall upp á kílóverðið, og virð-
ast einhverjir milliliðir á leiðinni fá
jafnmikið í sinn hlut af hverju kílói
og sjómennirnir hljóta.“
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Ó
skar Sveinn Friðriksson
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri fram-
leiðslu- og þjónustufyr-
irtækisins KAPP ehf. og
tekur því við starfinu af Frey Frið-
rikssyni, eiganda félagsins, sem ver-
ið hefur framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins frá stofnun þess. Freyr
mun gegna hlutverki stjórnarfor-
manns og samhliða því sinna öðrum
verkefnum fyrir fyrirtækið.
KAPP selur og þjónustar kæli-,
frysti- og vinnslubúnað ásamt því að
framleiða og smíða ryðfríar vörur
fyrir matvælaiðnaðinn. Það fram-
leiðir meðal annars OPTIM-ICE-
ísþykknivélar sem eru vinsælar í
fiskiskipum og fiskvinnslum. Þykja
ísþykknivélarnar hafa hraða kæl-
ingu og eiginleika sem fara mjög vel
með hráefnið. Þá selur KAPP og
þjónustar einnig Carrier-kæli og
frystivélar á bíla og vörukassa ásamt
því að vera umboðsaðili Schmitz
Cargobull-flutningavagna hér á
landi.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um
43 talsins og hefur það aðsetur í
Garðabæ. ,,Ég er fullur tilhlökkunar
að takast á við spennandi starf hjá
metnaðarfullu fyrirtæki. KAPP hef-
ur styrkt stöðu sína á samkeppnis-
miklum markaði undanfarin ár. Það
eru spennandi tímar fram undan og
mikið af tækifærum í þessum geira,“
segir Óskar sem starfaði áður sem
forstöðumaður alþjóðasviðs Eim-
skips og stýrði kæli- og frystiflutn-
ingsmiðlun félagsins síðastliðin 10
ár. En Óskar var á þeim tíma með
aðsetur í Hollandi.
Óskar, sem er menntaður sjávar-
útvegsfræðingur frá Háskólanum í
Tromso í Noregi, hefur lengst af sín-
um starfsferli unnið fyrir Eimskip
og hefur starfað fyrir félagið í Hol-
landi, Bandaríkjunum og Kanada.
Hann starfaði einnig hjá Sölku fiski-
miðlun í fimm ár.
Óskar Sveinn ráðinn
framkvæmdastjóri KAPP
Óskar Sveinn Friðriksson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra KAPP ehf. Áður
starfaði hann meðal annars sem forstöðumaður alþjóðasviðs Eimskips.