Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 43

Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 43
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 43 breyttist og hjá mörgum lét útivist- arbakterían á sér kræla. Vegna veðurfarsins á Íslandi lá beinast við hjá mörgum að klæðast skjólgóðum fatnaði frá 66°Norður í útilegum og fjallgöngum. „Fyrirtækið mætti þessari eftirspurn með þróun á vönduðum útivistarfötum sem ávallt hafa verið framleidd með sjálfbærni að leiðarljósi. Útivistarfatnaður hef- ur vegið þyngra í starfsemi fyrir- tækisins síðustu áratugi og með fjölgun ferðamanna á Íslandi hefur hróður vörumerkisins farið víðar,“ segir Elín. „Vinsældir landsins og skírskotun vörumerkisins til þess hefur haft jákvæð áhrif á uppbygg- ingu vörumerksins 66°Norður víðs vegar um heiminn.“ Elín segir að nú, eins og áður, séu þarfir sjómanna hafðar að leið- arljósi í framleiðslu skjólfatnaðar hjá 66°Norður. Fyrirtækið ýmist framleiðir eða flytur inn nánast allt það sem fiskvinnslufólk og sjómenn þurfa við vinnu sína, frá skóm og sokkum til húfna og hanska og allt þar á milli. „Við höfum lagt áherslu á að framleiða vel hannaðan vinnu- fatnað sem endist lengi, þjónar hlutverki sínu vel og er þægilegur. Flíkur eins og Þór-sjóbuxurnar, sem áður hétu Herkúles, eru gott dæmi um þessa klassísku hönnun enda sjómannafatnaður sem allir þekkja og góð reynsla er af,“ segir hún. „Það skiptir okkur miklu máli að sjómenn treysta fatnaðinum frá okkur. Ég tel að það hafi átt vissan þátt í árangri fyrirtækisins að ís- lenskir sjómenn hafa ávallt gert miklar kröfur um gæði og notagildi fatnaðarins. Það er aðdáunarvert hvað íslenskir sjómenn hafa haldið mikilli tryggð við merkið í tæpa öld og við hjá 66°Norður erum ákaflega stolt af því.“ Þurftu að fara aftur að teikniborðinu Tryggð sjómanna við vörur 66°Norður kemur ekki af sjálfu sér og segir Elín að hönnuðir fyrir- tækisins leiti í sífellu leiða til að koma enn betur til móts við þarfir stéttarinnar. Gott dæmi um þessa vöruþróun eru nýir sjógallar gerðir úr þægilegra efni. „Við viljum reyna að gera klassíska gallann enn betri með efni sem er vatnsþétt en gefur betur eftir og auðveldar fólki hreyfingu við störf sín. Þróun þess- arar nýju línu sýnir hversu miklu máli það skiptir að við getum starf- að náið með sjómönnum. Fyrstu sjóbuxurnar sem komu á markað virkuðu ekki nógu vel og fórum við því aftur að teikniborðinu til að betrumbæta hönnunina. Fatnaður- inn er hannaður hér á Íslandi og framleiddur í okkar eigin verk- smiðjum í Evrópu sem gerir vöruþróun auðvelda.“ Þá þarf hönnunin líka að taka til- lit til breyttra tíma um borð í skip- unum og segir Elín að sjófatnaður 66°Norður sé til í öllum stærðum frá XS upp í 4XL sem endurspeglar m.a. að æ algengara er að finna megi konur í áhöfnum skipa. „Fatn- aðurinn þarf líka að halda í við nýj- ustu tækni og bættum við t.d. á sín- um tíma nýjum vasa við sjóbuxurnar svo að fólk hefði góðan stað til að geyma snjalltækin sín,“ segir hún. „Síðast en ekki síst þarf vinnufatnaður fólks, bæði á sjó og landi, að vera klæðilegur. Þar er framúrskarandi hönnunarteymi okkar svo sannarlega með puttann á púlsinum. Eitt er að fólk geti sinnt vinnu sinni í fatnaði sem held- ur líkamanum þurrum og hlýjum, en það er enn betra ef fatnaðurinn klæðir fólk líka vel.“ Á mörgum skipum, um allan heim, klæðast sjómenn fatnaði 66°Norður frá toppi til táar.Ódagsett mynd af vöskum sjómönnum. Vinnan hefur alltaf kallað á góðan fatnað. Þegar þú kaupir fisk í matinn tekur atvinnulífið kipp. Þegar fisksalinn fer í klippingu tekur það annan kipp. Þegar rakarinn kaupir í matinn á netinu kemur kippur sem heldur áfram og stækkar þegar lagerstarfsmaðurinn fer með fjölskyldunni í helgarferð til Ísafjarðar í sumar. Allt í einu er allt komið af stað á ný. ATVINNULÍFIÐ ER LÍF OKKAR ALLRA Þegar þú velur íslenskt tekur atvinnulífið við sér!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.