Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
E
inn af útskriftarnemendum skólans í
ár er hinn 18 ára gamli Einar Berg-
mann Daðason, en hann var skemmt-
anastjóri nemendafélags skólans á
síðasta skólaári og er jafnframt fyrrverandi
gjaldkeri sama félags.
Þegar 200 mílur slógu á þráðinn til Einars
var hann að sjálfsögðu staddur úti á sjó,
nánar tiltekið á varðskipinu Tý. „Ég var að
útskrifast á föstudaginn síðasta og er núna í
afleysingum á varðskipinu sem háseti. Það
má segja að ég sé á milli skipa, þar sem ég
er ekki kominn með neitt fast pláss í sum-
ar,“ segir Einar.
Mesta reynslu hefur Einar að eigin sögn
af störfum um borð í farþegaferjum, skipum
eins og Breiðafjarðarferjunni Baldri og
Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi.
En hvenær kviknaði áhuginn á sjó-
mennskunni?
„Sjómannsferillinn hófst þegar ég fékk
vinnu í eldhúsinu á Baldri þegar ég var í ní-
unda bekk og bjó í Stykkishólmi. Svo var ég
einnig að veiða bláskel og grásleppu á bát
sem gerður var út frá Hólminum.“
Þá segist Einar einnig hafa tekið nokkra
túra á togara.
Fjölskylda Einars flutti til Vestmannaeyja
í hitteðfyrra og þar tók stjúpfaðir hans við
sem skipstjóri á Herjólfi. „Ég fylgdi honum
bara um borð.“
Vegna veirunnar hefur Einar ekki fengið
pláss á Herjólfi nú í sumar, eins og upp-
haflega stóð til. „Það setti strik í reikning-
inn.“
Störfin sem Einar vann á Herjólfi voru að
hans sögn aðallega lestun og afferming
skipsins, einkum af bíladekki. „Svo var mað-
ur talsvert í viðhaldsvinnu, að mála og halda
öllu tipptopp.“
Nýttist námið vel um borð í Herjólfi?
„Já, það gerði það. Sérstaklega þegar
maður tók vakt uppi í brú. Maður þarf að
halda útvörð eins og segir til um í alþjóða-
siglingareglunum. Það þarf að vera auka-
maður í brúnni sem aðstoðar stýrimanninn.“
Það kom aldrei neitt annað til greina
Spurður um ástæðuna fyrir því að hann hafi
valið að fara í skipstjórnarnám segir Einar
að í raun hafi aldrei neitt annað komið til
greina. „Ég var búinn að ákveða þetta mjög
snemma, strax í leikskóla. Fjölskylda mín á
hús á Flatey á Breiðafirði, og ég hef alltaf
verið viðloðandi sjóinn. Þetta er mjög eðlileg
leið fyrir mig að fara í námi.“
Námið hófst hjá Einari eftir að grunn-
skóla lauk. Skipstjórnarskólinn er hluti af
Tækniskóla Íslands sem er framhaldsskóli.
„Ég tók stýrimannanámið, námsstig B, og
stúdentspróf samhliða.“
Eins og fram kemur á heimasíðu Tækni-
skólans öðlast nemendur á námsstigi B skip-
stjórnarréttindi á fiskiskipum styttri en 45
metrar í innanlandssiglingum og á flutn-
inga- og farþegaskipum að 500 brúttó-
tonnum í strandsiglingum.
Spurður um framhaldið og hvort hann
hyggist mennta sig frekar á þessu sviði seg-
ir Einar að framhaldið sé óákveðið. Freist-
andi sé að bæta við sig auknum réttindum,
til dæmis á varðskipum. „Mig langar líka að
öðlast einhverja iðnmenntun. Það er gott að
hafa möguleika á starfi í landi líka.“
Einar segir að níu nemendur hafi útskrif-
ast úr dagskóla í skipstjórnarnáminu nú í
vor. „Í heildina útskrifuðust 23 nemendur,
en flestir stunda námið í dreifnámi, sem er
fjarnám. Það hentar mörgum sem eru
kannski til sjós, og eiga fjölskyldur, og eiga
erfiðara um vik að fara í dagskólann.“
Spurður um atvinnumöguleika eftir að
námi lýkur segir Einar að þeir séu ágætir.
„Það virðist alltaf vera þörf á stýrimönnum
á fiskveiðibáta. Svo er einnig hægt að fá
störf erlendis. Það er einmitt stefnan hjá
mér að fara út í heim og skoða mig aðeins
um. Þetta er nám sem nýtist alþjóðlega og
maður getur unnið hvar sem er.“
Skemmtiferðaskipin heillandi
Einar segir að sá starfsvettvangur sem
heilli hann mest erlendis séu skemmti-
ferðaskipin, enda þekki hann farþegaflutn-
inga vel af störfum sínum á Baldri og Herj-
ólfi hér á landi. „Þessi skip heilla mig
rosalega. Þau eru alltaf dálítið mikilfengleg,
og svo held ég að þetta sé þægileg vinna.
Það er sjaldan einhver bræla, og ég held að
það gæti verið gaman að fá að ferðast en
vera á launum á sama tíma.“
Félagslífið í Skipstjórnarskólanum var
gott á námstíma Einars, enda var hann
sjálfur atkvæðamikill á þeim vettvangi.
„Auk þess að hafa verið gjaldkeri og
skemmtanastjóri var ég ritstjóri útskriftar-
blaðsins. Þegar ég byrjaði í skólanum var
mjög góður andi í byggingunni. Við vorum
alltaf með sérstaka kaffistofu, og vélstjórn-
arnemendur, sem eru í sama húsi, voru
einnig með sína eigin kaffistofu. Þetta gerði
að verkum að maður var fljótur að kynnast
öllum. Nú er búið að taka kaffistofurnar í
burtu vegna plássleysis í skólanum, og
leggja þær undir fundarherbergi og prent-
herbergi. Þetta hefur áhrif á andann í skól-
anum.“
Einar segist aðspurður að lokum mæla
eindregið með skipstjórnarnáminu fyrir
ungt fólk, þar læri menn til dæmis mikið um
stjórnun og að axla ábyrgð á sér og öðrum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Var ákveðinn strax í leikskóla
Sjómannslífið hefur heillað
margt ungt fólk í gegnum
tíðina, en þeir sem áhuga
hafa á að leggja sjómennsk-
una fyrir sig geta skráð sig í
Skipstjórnarskólann og lært
þar um hinar margvíslegu
hliðar fagsins.
Einar Bergmann Daðason er nýútskrifaður
úr Skipstjórnarskólanum og leysir nú af
sem háseti á varðskipinu Tý. Hann kveðst
stefna út í heim til að skoða sig um.