Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 30

Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ etta var fyrst og fremst til að safna peningum fyrir há- skólanámi, þetta virtist vera stysta leiðin. En svo er það ættin, afar manns og pabbi hafa ver- ið sjómenn,“ útskýrir hann og bætir við að stefnan sé sett á að hefja nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri í haust. Kristján hefur stundað sjó- mennsku í tvö ár og þó að þetta hafi byrjað sem leið til þess að safna fyrir skólagöngu fór áhuginn á sjósókn vaxandi með starfinu. „Maður byrjaði á skipum í Eyjum og fékk svo fasta stöðu á Breka í fyrra. Ég ætlaði mér þá að fara í nám [síð- asta haust] og hætti á Breka en fór á milli frysti- togara, til að mynda Hrafns Svein- bjarnar og Blængs. Ég hafði alltaf áhuga á að taka myndir og þegar ég var á Blængi var skítabræla allan tímann, maður var með vélina uppi og maður náði alltaf góðum augnablikum. Karlar að vinna erfiðisvinnu og fá ölduna yfir sig á meðan þeir eru að húkka bakstroff- inu í, í öryggislínu, með flotvesti, hjálm og í stígvélum með stáltá. Það er geggjað að ná þessum augnablik- um.“ Farið að birta Það er mikill fengur að eiga sér áhugamál sem hægt er að stunda um borð eins og að taka ljósmyndir, að sögn Kristjáns. „Það hefur reynst ágætlega og körlunum finnst skemmtilegt að sjá myndir af sér vera að vinna. Þetta eru ekki upp- stilltar myndir og eru af hlutunum eins og þeir gerast. Maður tekur aldrei eina mynd og hún verður geggjuð. Maður tekur kannski hundrað myndir og velur fimm. Þetta fannst mér vera ágæt til- breyting. Ég keypti eina Canon-vél og fór með hana á sjó og hugsaði að það væri engan veginn hægt að ná einhverjum almennilegum myndum. Síðan hafa komið rosalegar myndir með ofankomu, öldum og viðbjóðs- legu veðri. Ætli það toppi ekki í vetur að vera með svart-hvítar myndir í erfiðum aðstæðum sem hafa lýst vetrinum. […] Í vetur voru þær bara dökkar, mennirnir þreyttir og koma allir inn blautir og skítkaldir. Þá end- urspegla myndirnar það. Þetta er allt erfitt, það þarf að standa hverja öldu og passa sig á hverri stundu.“ Kristján kveðst nú vera að vinna með annað viðfangsefni enda komið mun betra veður og verður þar með bjartari yfir myndunum sem hann hyggst taka í sumar. „Það er byrjað að birta til og kominn smá sumarfíl- ingur í mann.“ „Geggjað að ná þessum augnablikum“ Kristján Birkisson Það getur verið margt sem dregur fólk í sjó- mennsku en það var fjárfesting í framtíðina fyrir Kristján Birkisson, háseta á Breka VE.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.