Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 22

Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is T ilkynnt var 24. apríl að skipu- lagðri dagskrá á sjó- mannadaginn í Reykjavík og Hátíð hafsins hefði verið af- lýst vegna aðstæðna í samfélaginu sem sköpuðust vegna faraldursins. Er þetta í fyrsta sinn í áttatíu og tvö ár sem allri hátíðardagskrá er aflýst í Reykjavík, en sjómannadagurinn var fyrst haldinn 1938. Hálfdan Henrýsson, formaður Sjó- mannadagsráðs, segir um erfiða ákvörðun að ræða. „Þetta var leiðin- legt. Við höfðum samband við al- mannavarnir og okkur var ráðlagt þetta. Já, þetta var erfitt.“ Hann minnir á að þó svo að skemmt- anahaldi hafi verið aflýst verði sjó- mannadagurinn í Reykjavík nýttur til að minnast látinna sjómanna eins og venja er. „Sem betur fer verður sjó- mannamessa í Dómkirkjunni, henni verður útvarpað og hún verður með hefðbundnum hætti að mestu leyti. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar lesa úr ritningunni og biskup flytur þar ræðu. Það hefur alltaf verið skrúðganga frá safnaðarheimilinu að Dómkirkjunni, en hún fellur niður.“ Þá verður ekki formleg athöfn við minningaröldu sjómanna í Fossvogs- kirkjugarði. „Okkur finnst voðalega erfitt að gera þetta,“ segir Hálfdan, sem minnir þó á að fólki sé frjálst að mæta þangað á sunnudagsmorgni þrátt fyrir að ekki sé skipulögð dag- skrá. Hann segir að þrátt fyrir að skipulag hafi riðlast sé auðvitað hægt að halda daginn hátíðlegan með vin- um og fjölskyldu. „Við beinum því til fólks að það geri það og það getur far- ið niður á höfn. Þar verða ekki hátíð- arhöld, en þar verður flaggað og skreytt eins og við getum gert.“ Einnig verður sjómannadagsblað Sjómannadagsráðs gefið út. Enn mikið um slysfarir Sjómannadagurinn hefur verið nýtt- ur til þess að minnast látinna sjó- manna og segir Hálfdan að það sé fagnaðarefni að andlátum á sjó hafi fækkað mikið á undanförnum árum. „Það er einn sem hefur látið lífið á þessu ári, sjómaðurinn í Vopnafirði. Við reiknum frá sjómannadegi frá sjómannadags. Sem betur fer hefur þetta gjörbreyst með tilkomu slysa- varnaskóla sjómanna, betri skipa- kosti og veiðistjórnun sem á mikinn þátt í því, það er alveg áreiðanlegt að menn sækja sjóinn allt öðruvísi en gert var hér áður fyrr.“ Mikilvægt er að styðja við árang- urinn á sviði öryggi sjómanna, að sögn hans. „Ég vona að það verði ekki slegið slöku við í því og heldur bætt í. Því miður er enn talsvert um slysfarir á sjó þótt það séu ekki allt dauðsföll.“ Sýnt skilning Spurður hvort hann hafi orðið var við óánægju eða að fólki hafi fundist leitt að þurfa að sleppa hátíðarhöldum segir formaðurinn svo ekki vera. „Ég hef ekki heyrt neinn taka þessu illa. Þetta er ástand sem við höfum ekki ráðið við. Það skilja þetta allir og við erum bara undir sömu sök seldir og aðrir varðandi hátíðarhöld. Niðri á höfn hafa um 20 til 40 þúsund manns komið saman og það væri þvert á all- ar reglur. En svo er verið að rýmka þetta í Dómkirkjunni. Við ræddum við fólkið þar, sem ætlaði að stýra kirkjuhald- inu svo að reglum yrði fylgt, en nú kann að verða breyting þar á.“ Í ljós þess að hátíðarhöld falla nið- ur á þessu ári finnst blaðamanni ástæða til þess að spyrja Hálfdan hvort ekki verði boðið til heljarinnar veislu á næsta ári. „Jú, við hljótum að reyna að bæta í,“ segir hann og hlær. „Ég býst alveg við því og þá verður engin veira, vonum við. Við stefnum auðvitað á að ekki verði slegið slöku við.“ Á hverju ári er boðið í kaffi á Hrafnistu og hvetur Hálfdan fólk til að koma og hitta ættingja sína en þó í samræmi við þær reglur sem í gildi eru. Erfið ákvörðun að aflýsa hátíðarhöldum Það er óhætt að segja að kórónuveirufarald- urinn muni setja svip sinn á sjómannadaginn, að minnsta kosti í Reykjavík. Morgunblaðið/Hari Fjölmenni hefur mætt á hátíð hafsins í Reykjavík sem haldin hefur verið samhliða sjómannadeginum.  Sjómannadagsráð var stofnað 25. nóvember 1937. Það sinnir í dag velferðarmálum sjómanna og er jafnframt leiðandi aðili í öldr- unarþjónustu á landinu. Ásamt dótturfélögum sínum; Hrafnistu, Naustavör, Happdrætti DAS og Laugarásbíói, veitir Sjó- mannadagsráð á annað þúsund manns í fimm sveitarfélögum daglega öldrunarþjónustu. Frá stofnun Sjómannadagsráðs til dagsins í dag hafa 1.328 sjómenn farist við störf sín og er sjó- mannadagurinn meðal annars til- einkaður minningu þeirra.  Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins hefur allt frá árinu 1938 staðið að skipu- lagðri dagskrá á sjómannadaginn með minningarathöfn um drukkn- aða sjómenn, skrúðgöngu að Dómkirkjunni, þar sem árleg sjó- mannamessa fer fram auk heiðr- unar sjómanna. Aldrei fyrr í sögu Sjómannadagsráðs hafa þessir viðburðir fallið niður. Áralöng hefð Morgunblaði/Arnþór Birkisson Hálfdan Henrýsson, formaður Sjómannadagsráðs, vonar að fólk haldi daginn hátíðlegan þótt engin skipulögð dagskrá sé að þessu sinni. Morgunblaðið/Hari Eins og fram hefur komið hefur skipulögð dagskrá hátíðarhalda aldrei verið blásin af með sama hætti og nú í sögu sjómannadags- ins. Það hefur þó gerst í sögu dagsins að heimsviðburðir samtímans hafi sett svip sinn á hátíðarhöldin. Þann 2. júní árið 1940 átti að halda sjó- mannadaginn í Reykjavík í þriðja sinn, en þrátt fyrir að hátíðarhöld væru samkvæmt dagskrá voru fáir togarasjómenn í landi á þessum tíma. Tæpum mánuði fyrr, 10. maí, hafði seinni heimsstyrjöldin borist til Íslands með hernámi Breta en aðstæður í heiminum voru strembnar og var mikilvægt að togarar og verslunarskip héldu áfram að sækja sjó- inn til þess að sjá landinu fyrir nauðsynjum. Talið er að 159 til 229 Íslendingar hafi lát- ist á stríðsárunum af orsökum sem tengja má stríðinu. Af þeim 159 dauðsföllum sem vitað er að komu til vegna hernaðaraðgerða eru 110 sem má rekja til árása kafbáta á ís- lensk skip eða skip sem voru í þjónustu ís- lenskra fyrirtækja. Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 2. júní 1940 segir: Þegar sjómennirnir völdu sinn hátíðisdag, varð fyrsti sunnudagur í júní- mánuði fyrir valinu. Þessi dagur var valinn með tilliti til þess, að þá væru flest fiskiskip í höfn. Vetrarvertíð var liðin, en síldveiði ekki byrjuð. Hefir verið svo þá tvo Sjómanna- daga, sem hér hafa verið haldnir, að nálega allur togaraflotinn hefir legið í höfn. Þeir og áhafnir þeirra settu svip sinn á Sjó- mannadaginn. Nú verða fáir eða engir togarar í höfn á Sjómannadaginn. Verður þess vegna allt annar blær yfir hátíðarhöldum í dag en áður. Togararnir eru ýmist á veiðum eða í förum milli landa. Sjómennirnir eru að gegna skyldustörfum í þágu lands og þjóðar. En þótt blærinn verði annar yfir Sjó- mannadeginum í dag en undanfarið, mun dagurinn verða óskiftur hátíðisdagur allra bæjarbúa. Vitundin um það, að margir sjó- menn eru nú fjarverandi vegna skyldustarf- anna, ætti ekki að verða til þess að draga úr þátttöku almennings í hátíðahöldunum. Við vitum öll, hver þessi skyldustörf eru. Við vit- um, að það eru íslensku sjómennirnir, sem hafa lagt líf sitt í hættu undanfarna mánuði, eftir að hinn ægilegi hildarleikur braust út. Íslenska þjóðin væri illa á vegi stödd nú, ef enginn sjómaður hefði fengist til að fara um borð í skipin, sem hafa siglt um hættusvæðin og fært þjóðinni lífsbjörg. Þetta er skyldu- starf sjómannsins í dag. Öll íslenska þjóðin þakkar í dag hinni dugmiklu sjómannastétt fyrir hennar starf, og forsjóninni fyrir það, hversu vel og giftusamlega hefir tekist. […] Öll þjóðin sameinast í dag í þakklæti, virð- ingu og lotningu til sjómanna. Heimsstyrjöldin setti svip á sjómannadaginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.