Morgunblaðið - 06.06.2020, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 33
Þorskur
Þorskhnakkar
gróft salt
sítrónubörkur skorinn í strimla
timían
svartur pipar
Blandið skornum sí-
trónuberki, salti, timían og
pipar saman, stráið vel yfir
þorskinn og látið standa í
kæli í 35 mín. Skolið saltið af
og setjið í lofttæmi með
reykolíu. Eldið „sous vide“
við 55°C í 10 mín.
Póserað egg
Eldið egg „sous vide“ við
65,5°C í 45 mín.
Dillmajones
2 egg soðin í 4 mín.
dillolía
Maukið eggin með töfra-
sprota og bætið dillolíu
út í smátt og smátt þar
til réttri þykkt er náð.
Kryddið með salti og ep-
laediki.
Perlulaukur
1 poki perlulaukur
200 g eplaedik
200 g sykur
200 g vatn
Skrælið og „blanserið“
perlulaukinn, hitið edik-
blönduna til að leysa upp
sykurinn og hellið yfir.
Rúgbrauð
Rífið niður frosið rúgbrauð
og bakið á 130°C þar til
stökkt.
Dill-vinaigrette
Dillolía
safinn af perlulauknum
epla-parisienne (litlar epla-
kúlur gerðar með par-
ísarjárni)
jurtir; dilltoppar og kerfilslauf
Hrist saman í hlutföllunum
tveir hlutar olía á móti ein-
um hluta af safa.
Saltaður þorskur eldaður í reykolíu
„Póserað“ egg, grásleppuhrogn, dillmajones, súrsaður perlu-
laukur, rúgbrauðsmylja, jurtir og dill-vinaigrette með eplum
AFP
Mynd af japönskum súshíkokki að störfum. Það var í gegnum súshíið að Snædís uppgötvaði ástríðu sína fyrir matargerð.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
R
ekstur Vinnslustöðvar-
innar hf. skilaði hagnaði
upp á um 9 milljónir evra,
jafnvirði 1,2 milljarða
króna, á árinu 2019. Þá
nam framlegð samstæðunnar 2,9
milljörðum króna og jókst um 8,4%
frá fyrra ári og hefur aldrei verið
meiri í evrum talið, að því er fram
kemur í færslu á vef Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum. Þá segir
að árangurinn hafi náðst þrátt fyrir
loðnubrest á síðasta ári og að lítil-
fengleg humarvertíð væri ekki svip-
ur hjá sjón.
„Mikilvæg forsenda góðrar
rekstrarniðurstöðu er vel heppnaðar
fjárfestingar undanfarinna ára,“
segir í færslunni og er bent á að
Vinnslustöðin hefur fjárfest fyrir um
86 milljónir evra eða 11,3 milljarða
króna á síðastliðnum fimm árum.
Þar af 9,1 milljarð króna í varan-
legum rekstrarfjármunum, svo sem
Breka VE, nýju uppsjávarfrystihúsi,
nýrri frystigeymslu og endurnýjun í
skipaflotanum.
Félagið er sagt hafa skilað hagn-
aði öll ár frá 2000 að einu ári undan-
skildu og störf voru 170 árið 2000 en
315 á árinu 2019.
Uppgjör félagsins fyrir 2019 var
kynnt á aðalfundi þess í síðustu viku
og samþykkti aðalfundurinn að hlut-
höfum yrðu greiddar 5 milljónir
evra, um 750 milljónir króna, í arð
vegna ársins 2019. Þá jafngildir arð-
urinn 3% ávöxtun á markaðsvirði
hlutafjár. „Hliðstætt hlutfall var
1,5% vegna arðgreiðslna fyrir árið
2018.“
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur fjárfest fyrir 11,3 milljarða króna á und-
anförnum fimm árum. Meðal fjárfestinganna var nýr Breki VE.
Hagnaður Vinnslustöðv-
arinnar 1,2 milljarðar