Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 41
skeiðið og svo í lokin stóð hann upp
og vildi fá að tjá sig. Ég leyfði hon-
um það og þá sagði hann: Ég er bú-
inn að sjá í hvaða villuvef ég hef ver-
ið, því ég hef alltaf sagt að ég hafi
ekkert að læra en ég vissi lítið sem
ekki neitt,“ rifjar hann upp. „Þetta
hefur alltaf verið í mínum huga einn
af þessum eftirminnilegu vendi-
punktum fyrir þessa menn sem
þráuðust við og sáu loks ljósið sem
lýsti fyrir þá veginn fram á við.“
Hann telur stjórnvöld hafa gegnt
mikilvægu hlutverki í að tryggja ör-
yggisfræðslu fyrir sjómenn þar sem
þau hafa með lögum og reglugerðum
fest hana í sessi. Jafnframt bendir
hann á þann feng að Slysavarna-
félaginu hafi verið gefin tvö skóla-
skip. „Þetta er framlag til öryggis-
fræðslu og við fáum styrk frá ríkinu
sem er niðurgreiðsla svo að nám-
skeiðin geta verið ódýrari fyrir sjó-
menn. Stjórnvöld eiga því mjög mik-
inn þátt í að efla öryggi sjómanna.
Síðan tóku stjórnvöld þau skref að
setja á endurmenntunarkröfu í ör-
yggisfræðslu fyrir sjómenn og 2003
tók hún gildi. Þá voru engar aðrar
þjóðir komnar svo langt. Við vorum
á undan öðrum þjóðum að gera
kröfu um endurmenntun á fimm ára
fresti. Það tók smá tíma að koma
mönnum í þá rútínu en nú rúllar
þetta í gegn. Menn koma hérna á
fimm ára fresti og engin undantekn-
ing á því.“ Hann segir samt að ein-
hverjir kunni að vera á sjó nokkra
daga umfram útgefinn frest vegna
aðstæðna en lögskráningarkerfi sem
starfrækt er komi í veg fyrir að
hægt sé að vera á sjó til að komast
hjá námskeiðum.
Þrýstingur í samfélaginu
Spurður hvort þessi þrjóska og
feimni við öryggismálin sé horfin
svarar Hilmar því játandi. „Maður
heyrir ekkert lengur neitt svoleiðis.
Það sem meira er sé ég að þegar
birtar eru myndir á þessum sam-
félagsmiðlum, eins og Facebook og
Twitter, af einhverjum sem er að
gera eitthvað sem er ekki alveg í lagi
hvað varðar öryggið eru menn alveg
strax farnir að benda á það. Þetta
segir mér að menn eru miklu meira
vakandi yfir þessu. Hér áður fyrr sá
ég stundum á samfélagsmiðlum
spurt: Hvað haldið þið að Hilmar
segi við þessu?“ segir hann og skellir
upp úr. „Maður var orðinn hálfgerð
grýla, en núna spyrja menn hvers
vegna viðkomandi er ekki með
hjálm, af hverju ekki í skóm, af
hverju ekki svona eða hinsegin. Ef
það er ekki í lagi með öryggismálin á
einhverri mynd fá þeir athugasemd-
ir, það er þessi hugarfarsbreyting
sem hefur orðið og sannarlega aukið
öryggi hjá okkar mönnum.“
Enn mörg slys
Þrátt fyrir að dauðsföllum á sjó hafi
fækkað gífurlega á undanförnum ár-
um verður talsverður fjöldi skráðra
slysa á hverju ári. „Eitt er skráð slys
og hitt hverjar afleiðingarnar eru.
Við höfum alltaf hvatt til þess að
menn tilkynni óhöpp og slys sem
þeir verða fyrir vegna þess að af því
drögum við ákveðinn lærdóm. Við
lærum forvarnir af því hverju aðrir
hafa hafa lent í. Það er ekki þar með
sagt að öll þessi slys á sjó séu bóta-
skyld eða alvarleg. Auðvitað er hvert
einasta skys alvarlegt, það er ekki
spurning. En ég hef verið í rann-
sóknanefnd samgönguslysa frá
árinu 1995 og þar hef ég séð alveg
gríðarlega breytingu á eðli slysanna
og afleiðingum þeirra. Hér áður fyrr
sáum við miklu meira af því að sjó-
menn yrðu öryrkjar í kjölfar slysa,
menn misstu limi og þess háttar.
Þetta sér maður varla í dag.
Hins vegar höfum við tekið eftir
því að það sem hefur verið að gerast
og aukist dálítið hjá okkur í rann-
sóknum á sjóslysum er að menn
sigla á land af því að þeir sofna. Þeir
eru orðnir þreyttir og halda sér ekki
vakandi og enda uppi í fjöru, sem er
háalvarlegt mál.“
Hann er spurður hvað sé til ráða í
þessum efnum, enda sé það ljóst að
ekki er fýsilegt að ná hvíld á sjó.
„Fólk þarf sannarlega að huga að
því þegar lagt er á sjóinn að það
gengur ekki að hafa verið vakandi í
10 til 15 tíma og skella sér svo á sjó-
inn í aðra 14. Ef það er bara einn
maður á, þá er ekkert til skiptanna
að fara að sofa eða hvíla sig. Það þarf
alltaf að vera einhver sem fylgist
með siglingu skipsins,“ segir Hilmar
og bendir á að þótt það séu tveir eða
fleiri um borð verði allir sem koma
að siglingu skips að hafa tilskilin
réttindi og því takmarkast möguleiki
til þess að skiptast á til að ná hvíld á
meðan siglt er. „Þá eru 14 tímarnir
nokkuð langur tími. Þú mátt hvorki
fljúga flugvél né keyra vörubíl í
þennan tíma einn. Þetta er langur
tími án hvíldar.“
Í desember síðastliðnum var sam-
þykkt á Alþingi frumvarp um að
minnka mönnunarkröfur um borð í
bátum sem voru yfir 12,5 metrar og
voru mörk mönnunarkröfunnar
færð upp í 15 metra. Spurður hvort
hann telji þessa þróun til þess fallna
að draga úr öryggi líkt og sumir hafa
haldið fram svarar Hilmar: „Ég ætla
bara að benda á að við erum að fá
báta upp á land vegna þess að menn
eru sofandi við stjórnvölinn. Ef
menn ætla að fækka um borð í skip-
unum meira en orðið er mun það
ástand ekki lagast. Við verðum alltaf
að hugsa málið út frá öryggissjón-
armiðum og öryggissjónarmiðið
hlýtur að vera að menn séu vakandi
um borð í skipunum á meðan þeim
er siglt. Ef við ætlum að standa vörð
um vinnu- og hvíldartímaákvæði
sem eru í gildi getum við ekki gert
það nema lög og reglur styðji það.
Þess vegna þurfum við að huga að
því hversu langt við ætlum að fara í
því að fækka mönnum um borð, bæði
réttindamönnum og öðrum skipverj-
um.“
Ekki hættur
Hilmar segir öryggismálin aldrei
átaksverkefni þar sem um er að
ræða viðvarandi verkefni. „Átaks-
verkefnum lýkur þegar ákveðnum
áfanga er náð en okkar áfanga hjá
Slysavarnaskólanum lýkur aldrei.
Eins og ég segi þá hef ég aldrei út-
skrifað nemanda í þessi 29 ár sem ég
er búinn að vera hér, því það er ekki
hægt að útskrifast úr öryggismálum.
Við verðum alltaf að vera að. […] Við
megum ekki gleyma okkur í unnum
sigrum. Þótt við höfum náð góðum
árangri í banaslysum á sjó megum
við ekki hvika frá því að halda uppi
öflugu starfi. Það þarf svo lítið til að
breyting verði á.“
Það eru spennandi tímar um þess-
ar mundir hjá skólanum, að sögn
skólastjórans. „Við erum að vinna
með slökkviliði höfuðborgarsvæð-
isins að því að koma upp nýju æf-
ingasvæði til slökkvistarfa fyrir sjó-
menn og slökkviliðið. Þar erum við
að fara í umhverfisvænan æfinga-
búnað, byggja æfingahús og nota
gas til íkveikju. Þetta er gríðarstórt
verkefni.“ Auk þess er unnið að því
að koma upp hermi eða samlíki sem
á að nota til að þjálfunar í siglingu
báta og björgunarfara við mismun-
andi aðstæður, en herminn fær skól-
inn að gjöf í gegnum Tækniskólann.
Hilmar kveðst binda miklar vonir
við tækið sem hann segir geta skilað
mikilli þekkingu til þeirra sem munu
nota það.
Þá segir hann það draum að fá
nýtt skólaskip. „Það er nú ferja sem
er að losna fljótlega sem heitir Herj-
ólfur, hann gæti hentað vel fyrir
okkar starfsemi í stað Sæbjargar,
sem var smíðuð 1974. Hún er orðin
nokkuð gömul.“
Spurður hvort það sé þrjóska eða
ástríða sem hafi haldið honum í
starfi við skólann í 29 ár svarar
Hilmar að það sé tvímælalaust
ástríða. „Fyrir mér er þetta lífsstíll
og ég hlakka til hvers einasta dags
sem ég mæti í vinnuna. Auðvitað
verð ég ekki endalaust í starfi, það
er alveg ljóst, en þetta er svo gefandi
starf. Þess vegna er ég ekki hættur,“
segir hann og hlær.
Ljósmynd/Slysavarnaskóli sjómanna
Sæbjörg er skólaskip Slysavarnaskólans. Skólastjórinn bindur vonir við að hægt verði að fá nýtt skólaskip og nefnir meðal annars gamla Herjólf sem einn möguleika.
Ljósmynd/Slysavarnaskóli sjómanna
Unnið er að því að koma upp nýju æfingasvæði fyrir slökkvistörf.
Ljósmynd/Slysavarnaskóli sjómanna
Slysavarnaskóli sjómanna er 35 ára á þessu ári og hefur gríðarlegur fjöldi sjómanna sótt skólann.
lokið
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum