Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 52

Morgunblaðið - 06.06.2020, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í dag er allt of óalgengt að finna megi konur í áhöfnum íslenskra skipa. Þær eru síðan enn færri sem hafa unnið á skipum nán- ast allt sitt líf eins og Inga Fanney Egilsdóttir, stýrimaður á Lagar- fossi. Áhuginn kviknaði á unglingsár- unum þegar Inga komst að því að jafnöldrur hennar sem fengu að slást með í för á humarveiðibátum voru að þéna langtum betur en önnur ungmenni sem hún þekkti. Á löngum ferli hefur Inga komið víða við, bæði á fiski- og flutningaskip- um, sem kokkur, háseti, annar stýrimaður, fyrsti stýrimaður og yfirstýrimaður. Hún var meira að segja skipstjóri í nokkra daga á 100 manna ferðamannaferju og var send til Namibíu af íslenskum stjórnvöldum til að vera stýrimaður á rannsóknarskipi þar. Hún fann sér líka mann í sjómannastétt og eignaðist með honum son en það var eina skiptið sem Inga fór í land í lengri tíma. „Ég hafði reiknað það út að ef þáverandi vinnuveitandi minn myndi flytja mig á annað skip gæti ég haldið áfram störfum en verið minna á sjó, en slík breyting kom ekki til greina þegar um hana var beðið og ég man hvað ég var fúl, mest út í sjálfa mig, verandi í stjórn stýrimannafélagsins, yfir því að í samningum stýrimanna var ekkert að finna um hvað gera ætti við ólétta stýrimenn.“ Góð sátt um skiptingu verka á heimilinu Núna er Inga rúmlega sextug og á stöðugri ferð á milli Íslands og Evrópulanda á skipum Eimskips. Hún unir sér vel á sjónum, liggur ekkert á að breyta til og bendir á að þó að starfi sjómannsins fylgi ákveðnir ókostir þá séu kostirnir líka margir. „Hér áður fyrr, fyrir tíma gámavæðingarinnar, gafst oft tími til að skoða sig um í borgum og bæjum á meðan verið var að ferma og afferma. Það gerist ennþá, t.d. ef verið er að flytja járn- blendi, að ef byrjar að rigna þarf að loka lestinni í hvelli því eitruð gös geta myndast ef járnblendið blotn- ar. Er þá ekki um annað að velja en að bíða þar til styttir upp og stund- um gefst þá tækifæri til að svipast um nágrenni hafnarinnar. Man ég sérstaklega eftir ferð til Chicago fyrir mörgum árum þar sem sækja þurfti farm af þurrefni sem sturt- aðist í lestina af svo miklum krafti að mikið reykský þyrlaðist upp og þurfti að gera hlé á störfum um leið og birti til fram í myrkur. Fyrir vikið gat ég kíkt á Chicago-borg. Hjá Eimskip er ég ekki í slíkum flutningum núna. Við erum á skip- um sem eru í mjög föstum og hröð- um áætlunum og engar tafir nema vegna mjög slæms veðurs.“ Inga og eiginmaður hennar áttu ekki í neinum vanda með að skipta á milli sín húsverkum og uppeld- isskyldum og ríkti góð sátt um það fyrirkomulag sem var á heimilis- haldi þeirra og störfum, en ætt- ingjar og vinir hlupu í skarðið þeg- ar vinnuskyldur þeirra sköruðust. „Það var gaman að sjá að fyrir vik- ið urðu hann og sonur okkar enn nánari og hafa fengið að kynnast vel þegar þeir voru tveir einir heima. Maðurinn minn ákvað á end- anum að skipta um starfsvettvang og vera alfarið í landi,“ segir Inga. „Því miður var það algengt, og er að sumu leyti enn, að sjómenn missa oft af því að tengjast börn- unum sínum því þeir eru svo lengi í burtu og nánast eins og gestir þá sjaldan þeir eru í landi.“ Gervihnattasíminn bara notaður á aðfangadag Blessunarlega er starf sjómannsins mun fjölskylduvænna í dag en það var fyrir 20 eða 30 árum og segir Inga það hreinlega frábært að sjá sjómenn ræða við maka sína og börn í gegnum myndfundaforrit. Sumir hafi það fyrir reglu að bjóða börnunum sínum góða nótt fyrir háttinn hvern einasta dag og jafn- vel lesa fyrir þau sögur fyrir svefn- inn. „Af er það sem áður var þegar fátt annað var í boði en að hringja í gegnum gervihnött og hefur mín- útugjaldið sennilega verið í kring- um þúsundkall. Gervihnattasímann notuðu sjómenn varla nema þegar börnin þeirra fermdust eða til að hringja stutt símtal heim á að- fangadag,“ segir Inga. „Vinna sjómannsins hefur líka þann kost að þegar maður er heima, þá er maður heima. Vinnan er búin og fátt sem truflar það að geta átt gæðastundir með fjöl- skyldu og vinum. Sonur okkar hafði einmitt á orði að eftir að faðir hans hætti að sigla og fékk sér vinnu í landi, þá varð hann minna sýnilegur heima fyrir,“ segir Inga en minnir á að á meðan fólk er á sjó þá sé ekkert sem heitir að stökkva í land ef eitthvað bjátar á. „Það er kannski það erfiðasta; að ef eitt- hvað kemur fyrir heima; ef einhver nákominn manni veikist eða slasast, þá er ekkert sem sjómaðurinn get- ur gert annað en að vera í sam- bandi símleiðis, og ekki hægt að komast aftur heim fyrr en túrnum er lokið.“ Hvað á að gera við ólétta stýrimenn? Inga Fanney Egilsdóttir hefur unnið á sjónum frá því hún var táningur. Starfinu fylgja bæði kostir og gallar, sér- staklega þegar kemur að því að halda sam- bandi við ástvini í landi. Inga Fanney í vinnunni. Hún segir tæknina hafa gert starfið mun fjölskylduvænna. Morgunblaðið/Hari Lagarfoss við Sundahöfn. „Vinna sjómannsins hefur þann kost að þegar maður er heima, þá er maður heima. Vinnan er búin og fátt sem truflar það að geta átt gæðastundir með fjölskyldu og vinum,“ segir Inga Fanney. Inga var þriðja konan til að setjast á skólabekk hjá Stýrimannaskólanum, en hún var á báðum áttum um það hvort hún ætti að frekar að fara í háskólanám og hafði sótt um á báðum stöðum. „Jónas Sigurðsson, sem þá var skólastjóri Stýrimannaskólans, frétti af umsókn minni og hringdi í mig persónulega til að tjá mér að hann hefði skráð mig í bekk fyrir lengra komna, þar sem ég væri þeg- ar með stúdentspróf og orðin tvítug, og sagði mér hvenær ég ætti að mæta. Ég sló til en var ekki alveg viss í minni sök þar til ég kom í skólann og uppgötvaði hvað mér þótti námið skemmtilegt. Hef ég aldrei séð eftir þessu vali.“ Skólastjórinn hringdi í hana

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.