Morgunblaðið - 10.07.2020, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.07.2020, Qupperneq 13
AFP Lögleysa Callamard gerir grein fyrir niðurstöðu sinni um víg Soleimani. Drónaárás Bandaríkjahers á ír- anska hershöfðingjann Qasem So- leimani við alþjóðaflugvöllinn í Baghdad í Írak 3. janúar, sem varð honum að aldurtila, gekk í berhögg við alþjóðalög. Þetta segir Agnes Callamard, sérfræðingur Samein- uðu þjóðanna í drápum sem hafin eru yfir lög, eða extrajudical kill- ings, í skýrslu sinni um atburðinn. Mótmæla harðlega Utanríkisráðuneyti Bandaríkj- anna mótmælir þessari niðurstöðu harðlega og segir hana hreinlega gefa hryðjuverkamönnum frjálsar hendur, en í síðustu viku gáfu stjórnvöld í Íran út handtökuskipun á hendur Donald Trump Banda- ríkjaforseta auk 35 annarra emb- ættismanna og brigsla þeim þar um manndráp og hryðjuverk. Þungum sökum borinn Soleimani, sem talinn var einn valdamesti maður Írans, fórst við tíunda mann í árásinni í janúar og kallaði Trump Bandaríkjaforseti hann helsta hryðjuverkamann heimsins, hvar sem niður væri bor- ið, auk þess að bera hann þeim sök- um að hafa síðustu tvo áratugi lagt á ráðin um árásir á og einnig ráðið af dögum hundruð amerískra borg- ara og hermanna. Veikti ítökin í Írak Hershöfðinginn féll í árás sem gerð var á bílalest hans skömmu eftir að hann lenti á flugvellinum í Írak árdegis 3. janúar. Meðal ann- arra fórnarlamba drónaárás- arinnar var Abu Mahdi al Muhand- is, æðsti yfirmaður írösku PMF-hersveitanna, og var dauði hans talinn veikja ítök Írana í Írak svo um munaði. Kveður víg Soleim- ani lögleysu ÍRAK Park Won-soon, borgarstjóri Seoul, höfuðborgar Suður-Kóreu, fannst látinn í gær, en hans hafði þá verið leitað síðan á fimmtudaginn. Lík Won-soon fannst skammt frá Bugak-fjalli í norðurhluta landsins og hefur suðurkóreska lögreglan ekki enn opinberað dánarorsök borgarstjórans. Samstarfskona Won-soon hafði, skömmu áður en borgarstjórinn hvarf, sakað hann opinberlega um kynferðislega áreitni, en suðurkór- eskir embættismenn þegja þunnu hljóði um hvort þær ásakanir hafi eitthvað með andlát borgarstjórans að gera. Óvanaleg háttsemi Tvær grímur tóku að renna á sam- starfsfólk borgarstjórans í vikunni sem leið þegar hann mætti ekki til starfa, sem Kim Ji-hyeong borg- arfulltrúi tjáði AP-fréttastofunni að væri ákaflega óvanaleg háttsemi af hálfu borgarstjórans sem að sögn fulltrúans yrði sjaldnast misdægurt. Lee Byeong-seok, sem hefur orð fyrir lögreglunni í Seoul, sagði Won- soon hafa komið fyrir sjónir eftirlits- myndavéla klukkan 10:53 á fimmtu- dagsmorguninn en eftir það hafi borgarstjórans hvergi orðið vart þrátt fyrir að 600 lögreglumenn hafi leitað hans með aðstoð dróna og hunda eftir að tilkynnt var um hvarf hans á fimmtudaginn. Þekktur að baráttu sinni Borgarstjórinn látni var lögfræð- ingur að mennt og fyrstur í embætti borgarstjóra Seoul til að sitja sitt þriðja kjörtímabil í röð. Enn fremur var Won-soon að sögn þeirra er til þekkja þekktur fyrir baráttu sína í þágu minnihlutahópa og gegn spill- ingu, að því er suðurkóreskir fjöl- miðlar greina frá. AFP Fannst látinn Lögreglumenn í Suð- ur-Kóreu bera lík borgarstjórans. Borgarstjóri Seoul fannst látinn í gær  Sakaður um kynferðislega áreitni FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Nýja Mallorca línan komin í sýningasal Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Umsóknum um atvinnuleysisbætur í Bandaríkjunum fækkaði nokkuð í síð- ustu viku, miðað við það sem á undan er gengið, þrátt fyrir að atvinnuleysi í landinu hafi ekki verið meira síðan í kreppunni miklu fyrir tæpri öld. Þriðju viku júnímánaðar voru 32,9 milljónir Bandaríkjamanna í atvinnu- leit sem ekki er örgrannt um að lítinn árangur muni bera á næstunni þar sem atvinnulíf landsins er sem lamað í greipum kórónuveirunnar. Látið ekki blekkjast Hagfræðingar sem Reuters-frétta- stofan hefur leitað álits hjá taka greiningaraðilum þó allan vara á að líta á fækkun umsókna í byrjun júlí sem tákn um betri tíma, þjóðhátíðar- dagurinn 4. júlí sé inni í tímabilinu og þótt hann hafi borið upp á laugardag í ár sé meginreglan jafnan sú, að valt sé að treysta tölfræðigögnum kring- um stórhátíðir. Eins og Morgunblaðið fjallaði um í gær glímir fjöldi ríkja í Bandaríkjun- um nú við stjórnlausa útbreiðslu kór- ónuveirunnar og náði tala smitaðra í landinu þremur milljónum á þriðju- daginn auk þess sem dánartíðnilíkan Washington-háskólans spáir voveif- legum tölum þegar til hausts og vetr- ar er litið. „Umsóknum um atvinnuleysisbæt- ur hefur ef til vill fækkað kringum þjóðhátíðardaginn, en látið ekki blekkjast, efnahagsvandræðum landsins er hvergi nærri lokið,“ segir Chris Rupkey, yfirhagfræðingur Mit- subishi UFJ Financial Group, eða MUFG, í New York, í samtali við Reuters-fréttastofuna. „Heildarfjöldi þeirra, sem eru án vinnu og neyðast til að draga fram lífið á atvinnuleys- isbótum, er sá mesti sem við höfum séð fram að þessu í faraldrinum. 4,8 milljónir nýrra starfa Aðrir hagfræðingar, sem Reuters hefur leitað til, komust að þeirri nið- urstöðu, að búast hefði mátt við 1.375.000 nýjum bótaumsóknum í síð- ustu viku. Þær urðu þó ekki fleiri en 1.314.000 sem fræðingar telja þó ekki gefa tilefni til bjartsýni, frá miðjum júní til loka þriðju viku þess mánaðar fjölgaði umsóknum um 1.411.000 og sé fækkun umsókna kringum þjóðhá- tíðina því í besta falli dægursveifla. Í síðustu viku greindu bandarísk stjórnvöld þó frá því, að 4,8 milljónir nýrra starfa hefðu litið dagsins ljós í júní, sem reyndar er besti árangur á þeim vettvangi síðan tekið var að halda vinnutölfræði árið 1939. Fyrir- tæki séu nú að ráða á ný starfsfólk, sem sagt var upp um miðbik mars- mánaðar þegar skórinn tók að kreppa. AFP Kyrr kjör Leigubílar án verkefna í stæði í Brooklyn í New York. Færri umsóknir villuljós  Bótaumsóknum fækkaði í Bandaríkjunum  Hagfræðingar segja slíkt vanalegt við hátíðir  Tæpar 33 milljónir án vinnu  4,8 milljónir nýrra starfa urðu til í júní Ítölsk yfirvöld íhuga nú hvort þau hyggist fara að dæmi Breta, Frakka og fleiri vestrænna þjóða og ann- aðhvort banna eða takmarka að ein- hverju leyti aðgengi kínverskra Huawei-farsíma að 5G-netkerfi sínu, en greint hefur verið frá því síðustu daga, að í kjölfar nýrra reglna í Bandaríkjunum, er snúa að við- skiptum við Huawei, hafi bresk og frönsk stjórnvöld ákveðið að taka ör- yggismál gagnvart kínverska tækni- risanum til endurskoðunar. Ítölsk stjórnvöld hafa þó ekki tek- ið ákvörðun í málinu, en sæta, að sögn Reuters-fréttastofunnar, áköf- um þrýstingi frá Washington um að snúast á sveif með stjórnvöldum vestra og loka alfarið á síma Huawei. „Málið er til umræðu hjá ítölskum stjórnvöldum,“ segir ónefndur heim- ildarmaður Reuters sem þekkir til, en áður hefur ítalska dagblaðið La Repubblica greint frá því að Luigi Di Maio, utanríkisráðherra Ítalíu, hafi fundað um Huawei-málið í síð- ustu viku með sendiherra Banda- ríkjanna í Róm. Ræddu málin óformlega „Ítölsk stjórnvöld undirbúa nú stefnubreytingu eins og sum Evr- ópuríki önnur,“ skrifar La Repub- blica og getur þess enn fremur að Roberto Gualtieri, ráðherra efna- hagsmála, og Lorenzo Guerini varn- armálaráðherra hafi rætt málið sín á milli, óformlega þó. Tortryggni undirrótin Dagblaðið greinir einnig frá því að ítalski stjórnarflokkurinn Fimm- stjörnuhreyfingin, Movimento 5 Stelle, hafi tekið til skoðunar hvort til greina komi að loka á Huawei- farsímana, en undirrót tortryggni Vesturlanda í garð kínverska fyrir- tækisins snýr meðal annars að því hvort hugbúnaður símanna sé búinn svokölluðum bakdyrum sem geri Kínverjum kleift að njósna um not- endur. Ítalir íhuga einnig útlegð Huawei  Málið til umræðu hjá stjórnvöldum  Ráðherrar stinga saman nefjum AFP Umdeilt Fræjum efans er sáð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.