Morgunblaðið - 10.07.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.07.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 ✝ Jósep Rósink-arsson fæddist að Snæfjöllum í Snæfjallahreppi við Ísafjarðardjúp 15. júní 1932. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 30. júní 2020. Foreldrar Jóseps voru Rósinkar Kol- beinn Kolbeinsson, f. 24. júní 1891, d. 5. nóvember 1956, og Jakobína Rósinkara Gísladóttir, f. 31. maí 1896, d. 24. apríl 1960. Systkini Jóseps eru Ólafur, f. 28. september 1917, d. 24. mars 1987, Gestur Oddleifs, f. 23. ágúst 1920, d. 29. júní 1998, Guðmundur, f. 27. janúar 1924, d. 19. apríl 1989, Kristný Ingigerð- ur, f. 26. febrúar 1927, d. 30. janúar 2017, Sigurborg María Jónný, f. 25. september 1928, d. 1. júlí 2019, Elísabet, f. 26. sept- ember 1933, d. 24. mars 2020, Hilmar, f. 2. ágúst 1935, d. 30. september 1996, Sigríður Mar- grét, f. 14. nóvember 1937 og Hafsteinn Þór, f. 22. mars 1941. Jósep trúlofaðist hinn 15. júní 1958 Helgu Traustadóttur, f. 13. febrúar 1936, d. 12. september 1971. Foreldrar hennar voru Trausti Sveinsson og Hólmfríður Jónsdóttir. Börn Jóseps og Helgu eru: 1) Hólmfríður Rósa, f. 2. des- ember 1958, d. 28. febrúar 2013, og í Unaðsdal við Ísafjarðardjúp. Hann naut heimagönguskóla á barnsaldri samanlagt í um 10 mánuði, stundaði nám við Hér- aðsskólann í Reykjanesi einn vet- ur 1949-50, stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaðan búfræðiprófi 1953. Hann vann einn vetur á kennslu- býli í Svíþjóð, stundaði fram- haldsnám við Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaðan búfræðikandídatsprófi 1957. Jósep vann á Hvanneyrar- búinu sumarið 1952, vann á jarð- ýtu á vegum Ræktunarsambands Borgarfjarðar 1954-55 og starf- aði sem ráðunautur Stranda- manna 1957-59. Hann festi kaup á jörðinni Fjarðarhorni í Bæj- arhreppi 1959 og stundaði þar búskap allt til 2001. Meðfram bú- skapnum vann hann mörg sumur á jarðýtu á vegum Rækt- unarsambands sveitanna. Jósep sat í stjórnum Búnaðar- félags Bæjarhrepps, Búfjár- tryggingasjóðs Bæjarhrepps og Kaupfélags Hrútfirðinga, þá var hann fulltrúi á aðalfundum Stéttarsambands bænda og á Búnaðarþingi. Að loknum búskap fluttist Jósep til Reykjavíkur, hann var jafnframt alla tíð stoð og stytta dóttur sinni og tengdasyni við búskapinn á Fjarðarhorni meðan kraftar hans leyfðu og jafnvel lengur. Útför Jóseps fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 10. júlí 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. maki Sigurður Jó- hann Geirsson, 2) Gísli Jakob, f. 6. október 1960, maki Þórdís Mjöll Reyn- isdóttir, 3) Ingi- mundur Þór, f. 26. apríl 1963, 4) Kol- beinn Jósepsson, f. 10. október 1964, maki Harpa Sveins- dóttir. Uppeldis- sonur Jóseps og sonur Helgu, er Sveinn Trausti Guðmundsson, f. 3. maí 1956, maki Guðný Aðalbjörg Jóns- dóttir. Jósep kvæntist hinn 12. maí 1980 Rósu Petru Jensdóttur, f. 11. maí 1929, d. 21. nóvember 1993. Foreldrar hennar voru Jens Pétur Eriksen og Sigríður Amalía Njálsdóttir. Dætur Rósu Petru eru Ingibjörg, Sigurbjörg og Svanhildur (d. 10. janúar 2016). Jósep og Rósa slitu sam- vistir árið 1988. Barnabörn Jóseps eru, Jósep Magnússon, Kristján Magnússon, Andrés Smári Magnússon, Helgi Pétur Magnússon, Þorbjörg Helga Sigurðardóttir, Sigur- björg Rós Sigurðardóttir, Bjarki Fannar Kolbeinsson, Karen Ósk Kolbeinsdóttir, Helga Sveins- dóttir, Karl Sveinsson, Einar Trausti Sveinsson (d. 2011)og Eva Lísa Sveinsdóttir. Jósep ólst upp að Snæfjöllum Í dag, 10. júlí, kveðjum við pabba og tengdapabba okkar. Efst í huga okkar er umhyggja hans og ást. Aldrei kom hann tómhentur í heimsókn, ís og ávextir í dós eða eitthvað annað góðgæti. Það er okkur ómetan- legt að hafa hlotnast sá heiður að eyða síðasta aðfangadegi og ára- mótum með honum. Sögurnar frá hans yngri árum mundi hann fram á síðasta dag eins og gerst hefðu í gær. Hann var mikill sögumaður og bjó yfir miklum fróðleik, hafði alla tíð sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og mikla réttlætis- kennd, mátti ekkert aumt sjá án þess að rétta út hjálparhönd. Við trúum að pabbi hafi ekki viljað enda sitt æviskeið á annan veg, að geta verið rólfær fram á síðasta dag, svífa svo sársauka- lítið inn í draumalandið í faðmi ástvina, hann gat ekki hugsað sér að vera upp á aðra kominn, kvaddi síðla kvölds, vildi auðvitað ekki láta okkur hafa fyrir því að sitja hjá honum fram á nótt. Elsku pabbi og tengdapabbi, nú ertu kominn í faðm ástkærrar konu þinnar Helgu og ykkar ást- kærrar dóttur, Rósu okkar, dótt- ur, sem báðar kvöddu allt of snemma. Minning þín og þeirra lifir í hjörtum okkar. Kolbeinn og Harpa. Elsku afi, nú hefur sól þín sest í síðasta skipti. Þinn dagur gaf mér dýrmætar minningar um svo margt. Skemmtileg samtöl, rök- ræður, sagnir af samferðarfólki þínu, gamanmál, vísur af öllum gerðum, innilegan hlátur og sanna væntumþykju. Ég er viss um að nóttin þín verður björt, eins og sumarnóttin sem bæði tók á móti þér inn í heiminn og faðm- aði þig á leiðinni út úr honum. Ég hef litið upp til þín frá því ég man eftir mér og reyndar leng- ur en það. Sem dæmi um þetta fékk Jósep bróðir minn þann heiður að heita í höfuðið á þér. Eftir að þú kvaddir okkur minnti Jósep bróðir minn mig á að ég hefði fyrst sagt nafnið hans þegar þú komst í heimsókn til okkar þegar ég var mjög lítill. Ég hljóp þá til þín og tók á móti þér með því að segja „Jósep afi“ og taka utan um þig. Þetta var súrsæt minning fyrir stóra bróður minn, sem fannst fram hjá sér gengið. Þú hafðir enda einstakt lag með börn og ekki er langt síðan börnin mín tvö léku sér með þér og vildu sýna þér allt dótið sitt. Þú brostir, spurðir og hlóst með þeim, sýndir þeim sannan áhuga. Börn hafa þann eiginleika að tengja við væntumþykju og greina snöggt þegar einhver vill gefa af sér með því að veita þeim það dýrmætasta sem þau vita, athygli og tíma. Ég mun reyna að halda í heiðri þau lífsgildi sem mér finnst þú hafa staðið fyrir. Lífsgleði, vinnu- semi, þrautseigju, þakklætis- kennd, hreinskilni, einlægni og kannski smá þrjósku. Þessu blandaðir þú saman með mikilli og djúpri samkennd með fólki. Þú vildir hjálpa, umfram allt til að gera öðrum gott. Takk fyrir mig afi, við sjáumst í sumarnóttinni. Helgi Pétur Magnússon. Elsku afi. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn. Allar þær stundir sem við áttum saman eru mér dýrmætar. Minningarnar sem eru efst í huga mér þessa dagana eru þegar við systur vor- um í heimsókn hjá þér í sveitinni og fengum að fara með þér á rauða pallbílnum út í Kaupfélagið á Borðeyri. Í þeim ferðum keyptir þú alltaf nammi fyrir okkur og það var oftar en ekki blár ópal. Einnig eru öll matarboðin okk- ar síðustu tvö ár okkur ofarlega í huga. Fyrsta skiptið sem þú bauðst mér í mat hafðir þú grill- kjöt í matinn og bauðst mér grænar baunir með, ég sagði þér að ég væri meira fyrir maísbaunir og eftir það hafðir þú alltaf maís- baunir á boðstólum fyrir mig, sama hvað var í matinn. Það var nokkuð oft hjá þér hangikjöt með kartöflum og uppstúf og svo voru maísbaunirnar á sínum stað. Ég fékk það ekki af mér að segja þér að ég borðaði ekki maísbaunir með hangikjöti þótt mér þætti þær mjög góðar, sérstaklega ekki þar sem ég vissi að þú keyptir þær alltaf bara fyrir mig og send- ir mig með afganginn af dósinni heim því þú borðaðir þær ekki sjálfur. Þú bauðst alltaf upp á eftirrétt, sem ég var mjög ánægð með þar sem ég er mikill sætindagrís, og það kom mér því á óvart þegar þú sagðir mér að þú værir ekki mikið fyrir sætindi. Sérstaklega þar sem í hvert einasta skipti sem þú komst í sveitina eftir að mamma og pabbi tóku við búskapnum gafstu okkur systrum eitthvert nammi og alltaf þegar ég fór í heimsókn til þín varstu með nammi í skál á eldhúsborðinu. Í matarboðum okkar sagðirðu mér oft sögur frá þínum yngri ár- um. Ég hefði verið til í að vera fluga á vegg í öllum þeim ævin- týrum sem þú lentir í á ævi þinni en er ánægð að ég fékk allavega að heyra sögur af einhverjum þeirra. Í síðustu heimsókn minni töl- uðum við um að fara saman á æskuslóðir þínar á Snæfjalla- strönd, því miður fengum við ekki að fara í þá ferð en þegar ég fer í hana veit ég að þú verður með mér. Þú tókst mér alveg eins og ég er, ég viðurkenni það fúslega að ég var frekar stressuð yfir að segja þér frá sambandi okkar Hönnu þar sem þú tilheyrir þess- um „gamla skóla“ sem oft er talað um. En ég þurfti ekki að hafa neinar áhyggjur, þú sagðir mér bara að þú skildir ekki allt þetta fólk sem væri á móti þessu, það gastu bara engan veginn skilið. Afi, þú varst engum líkur, þessi 25 ár sem ég fékk að hafa þig í lífi mínu eru mér ómetanleg. Ég er fegin að þú varst ekki rúmliggj- andi og illa haldinn í langan tíma því þú varst ekki gerður fyrir það að sitja með hendur í skauti og mega ekkert gera. Þú hefur alltaf verið á fullu, allt þitt líf. Alltaf að hjálpa öllum og gera það sem þú gast fyrir þá sem þér þótti vænt um en áttir erfitt með að þiggja hjálp sjálfur. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, sama hvað, ég trúi því að þið mamma séuð núna uppi á himnum í einhvers konar fjárragi með tilheyrandi skemmt- un, syngjandi og dansandi með viskíið við hönd sem er mögulega örlítið vatnsblandað. Því í fjárrag- inu leið ykkur best og þið höfðuð bæði gaman af söng og dansi. Hvíldu í friði, elsku afi. Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir. Elsku afi minn, ég trúi því varla enn þá að þú sért farinn frá okkur. Minningarnar sem ég á með þér eru ótalmargar og er ég fyrir það þakklát. Fyrstar koma í hugann minningarnar um ferð- irnar í kaupfélagið á Borðeyri þar sem okkur systrum tókst yfirleitt að fá þig til að kaupa smá nammi, oftar en ekki bláan opal eða smar- ties og oft áttirðu lager af bláum opal í sveitinni sem þú laumaðir að okkur barnabörnunum. Seinna var það þannig að við systur feng- um alltaf smá sælgæti þegar þú fórst úr sveitinni. Ég unni mér alltaf vel í sveitinni hjá þér og átt þú eflaust stóran þátt í því að ég ákvað að gerast bóndi. Þegar mamma, pabbi, Sibba og ég flutt- um svo í sveitina var ég komin heim. Þú varst eina foreldri for- eldra minna sem ég náði að kynn- ast, fyrir það er ég þakklát, við barnabörnin þín og barnabarna- börnin þín erum heppinn að hafa fengið að kynnast þér. Ég vildi aðeins að þú hefðir fengið að hitta hann Sæmund Hólmar minn áður en þú fórst, en ég veit þú vakir yf- ir honum sem og öllum þínum af- komendum. Takk afi fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þorbjörg Helga Sigurðardóttir. Jósep Rósinkarsson ✝ Benedikt Hall-grímsson fædd- ist í Glerárþorpi 23. júní 1940. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 30. júní 2020. Hann var sonur hjónanna Hallgríms Benediktsonar, f. 11.8. 1916, d. 12.4. 1995 og Sveinu Randíðar Jak- obsdóttur, f. 5.11. 1911, d. 7.11. 1967. Hálfbróðir Benedikts var Brynjar Axelsson, f. 6.5. 1931, d. 16.6. 2019. Benedikt kvæntist 31.12. 1961 Hrafnhildi Sólveigu Þorsteins- dóttur. Foreldrar Hrafnhildar voru Þorsteinn Sigurjón Jóns- son, f. 21.5. 1914, d. 25.7. 1990 og Steingerður Júlíana Jósavins- dóttir, f. 6.7. 1919, d. 31.10. 2007 Börn Benedikts og Hrafnhild- ar eru: dísar er Halldís Hörn og saman eiga þau Ólaf Ísar og Jónas Balt- asar. 5) Steingerður Sveindís, f. 8.6. 1971. Eiginmaður hennar er Lárus Orri Sigurðsson. Synir þeirra eru Sigurður Marteinn, Aron Kristófer og Sveinn Ár- mann. 6) Hólmdís Ragna, f. 27.10. 1973, maki Ólafur Freyr Hall- dórsson, sonur Hólmdísar er Ísak Máni Grant. Börn Ólafs eru Halldór, Þórarinn og Þórhildur. Benedikt lauk barnaskóla- prófi og fór ungur til sjós. Hann stundaði sjómennsku mest allt sitt líf, sem háseti á togurum á Akureyri og nágrenni, og síðar trilluútgerð. Bótin var honum hugleikin og átti hann þar ver- búð og góða vini. Benedikt eign- aðist gröfu og vann víða við bor- anir og mokstur um árabil. Síðar vann hann í Krossanesi og Nóta- stöðinni svo eitthvað sé nefnt. Benedikt var listrænn og fór á efri árum á námskeið til að læra að mála, og liggja mörg mál- verkin eftir hann hjá ættingjum og vinum. Útför Benedikts fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. 1) Hallgrímur Sveinar f. 27.8. 1961, eiginkona hans er Kristbjörg Kolbeinsdóttir, börn Hallgríms eru Hulda, Hrafnhildur, Benedikt Snorri. Börn Kristbjargar eru Sandra, Arn- þór, Björgvin og Sigríður. Saman eiga þau soninn Þormar Þór. 2) Þorsteinn Steinar, f. 31.12. 1964, eiginkona hans er Petrea Olsen Richards, börn þeirra eru Benedikt Viktor og Elma Dís. 3) Hafdís Hrönn, f. 30.01. 1967, eiginmaður hennar er Magnús Magnússon. Sonur Haf- dísar er Birkir Þór, saman eiga þau Magnús Breka. 4) Eydís Björk, f. 3.9. 1968, eiginmaður hennar er Halldór Ólafur Halldórsson. Dóttir Ey- Elsku besti pabbi minn, ég trúi því varla að það sé komið að leið- arlokum hjá þér og ég þurfi að kveðja þig í hinsta sín. Mig langar að þakka þér fyrir svo margt. Þú vildir allt fyrir alla gera og varst alltaf til í að rétta hjálparhönd. Takk fyrir allar útilegurnar og veiðiferðirnar sem þú og mamma fóru með okkur, allan skarann. Þær eru margar góðar minning- arnar af ferðalögunum sem þið fóruð með okkur í á Rúbbatjúbba. Þú og mamma hjálpuðuð mér mikið meðan ég var í háskólanum, við mæðginin fengum að búa í Litla-Hrauni í góðu yfirlæti hjá ykkur mömmu, fyrir það er ég ykkur ævinlega þakklát. Þetta voru góðir og dýrmætir tímar, þú vildir allt fyrir okkur mæðginin gera og þér fannst nú ekki leið- inlegt að fá að hafa „litlakall“ hjá ykkur. Sækja í leikskólann, passa, kenna honum að veiða eins og þú kenndir mér þegar ég var lítill. Þú varst svo duglegur að lesa fyrir hann og þær voru ófáar sögurnar sem þú last fyrir barna- börnin, það var ekki hægt að lesa fyrir þau sömu bækurnar því þau vildu alltaf fá afa útgáfu sem þú einn vissir hvernig var. Seinna þegar við Ísak fluttum í Skarðs- hlíðina áttir þú það til að koma við hjá mér eftir að þú hafðir skutlað mömmu í vinnuna og moka snjó- inn af bílnum mínum áður en ég færi í vinnuna. Þú vildir aldrei láta hafa neitt fyrir þér. Þú gladdist þegar öðr- um vegnaði vel og þú fylgdist grannt með stóra hópnum þínum, börnum og barnabörnum þú varst stoltur af þínum stóra hópi. Ég vil þakka þér fyrir alla ást- úð, hlýjuna og hugulsemi sem þú sýndir mér og Ísak alla tíð. Ég gat alltaf leitað til þín ef eitthvað var að eða mig vantaði ráð og þú sagðir við mig „ekki hafa áhyggj- ur af þessu við finnum leið“ það var svo gott að heyra þessi orð. Ég var yngsta barnið þitt í stórum hópi og þó að ég hafi verið orðin fullorðin og sjálf orðin móð- ir var ég samt alltaf litla barnið þitt. Ég kveð þig að sinni, elsku pabbi minn, með þinni setningu, Gakkt þú á guðs vegum, elsku pabbi minn. Föðurminning Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Þín dóttir, Hólmdís (Hólma). Benedikt Hallgrímsson Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega einginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS PÉTURSSONAR tryggingasölumanns, sem lést þriðjudaginn 31. mars. Sveinfríður Ólafsdóttir Björn Þór Þorsteinsson Arna Pétursdóttir Páll Jökull Þorsteinsson G. Agata Jakobsdóttir Pétur Ómar Þorsteinsson Mikael Þór Björnsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, systir, dóttir og tengdadóttir, ERLA DÍS ARNARDÓTTIR textílkennari, textílhönnuður, varð bráðkvödd mánudaginn 6. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Reynar Kári Bjarnason Ísafold Eva Reynarsdóttir Halldóra Móey Reynarsdóttir Bjarney Ósk Reynarsdóttir Lovísa Arnardóttir Hafdís Arnardóttir Ólafur Snær Ólafsson Örn Geir Arnarson Eygerður Sunna Arnardóttir Sigríður Ósk Jónsdóttir Ólafur S. Björnsson Örn Geirsson Steinunn Hreinsdóttir Bjarni Reynarsson Jóhanna Einarsdóttir Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.