Morgunblaðið - 10.07.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 10.07.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 ✝ Júlíníus HeimirKristinsson fæddist 22. júní 1940 á Dalvík. Hann lést á heimili sínu 30. júní 2020. Heimir var sonur hjónanna Sigur- laugar Jónsdóttur (f. 14. okt 1901, d. 16. júní 1980) og Kristins Jónssonar (f. 21. september 1896, d. 20. júní 1973.). Hálf- bræður hans samfeðra voru Þorsteinn, Guðjón, Jónatan, Haukur og Valur. Alsystkini hans voru Hildigunnur og Níels Heiðar. Heimir kvæntist Valborgu Stefaníu Sigurjónsdóttur frá Vopnafirði (f. 24.12. 1939, d. 20.6. 1993) árið 1962. Þau bjuggu lengst af á Dalvík. Þau eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Sindri Már (f. 18.11. 1964), gift- ur Sigríði Matthildi Aradóttur. Þeirra börn eru: 1a) Sindri Rafn, giftur Elínu Jónsdóttur. skólastjóra á Húsabakka í Svarfaðardal árið 1972. Árið 1981 flutti hann ásamt fjölskyld- unni til Dalvíkur á ný og hóf kennslu við grunnskólann þar. Hann stundaði tónlistarnám í Reykjavík einn vetur. Heimir vann ýmis störf á sumrin í kennsluhléum, s.s. til sjós og sem atvinnubílstjóri. Auk þessa sinnti hann ökukennslu frá árinu 1968. Hann var frétta- maður Sjónvarps í nokkur ár og fréttaljósmyndari auk þess sem hann starfaði sem blaðamaður og ritstjóri hjá Bæjarpóstinum um tíma. Hann starfaði enn fremur í Versluninni Sogni á Dalvík í tvö ár. Heimir var virkur í alls kyns félagsstarfi og var m.a. í hreppsnefnd Dalvík- urhrepps um tíma, sat í stjórn UMF Svarfdæla, stjórn Kennarasambands Norðurlands Eystra og Tónlistarskóla Dal- víkur. Hann söng um árabil í Karlakór Dalvíkur. Heimir flutti á Svalbarðsströnd árið 1999 og kenndi í nokkur ár við Valsár- skóla. Heimir bjó á Akureyri frá árinu 2005 og tók m.a. virkan þátt í félagsstarfi eldri borgara. Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, 10. júlí 2020, kl. 13.30. Börn þeirra eru Matthildur Magda- lena og Theódór Rafn. 1b) Dagur og 1c) Valborg Sunna. 2) Sigrún Vilborg (f. 22.3. 1970), gift Þórhalli Kristjáns- syni. Börn þeirra eru: 2a) Kristján Máni og 2b) Júlíana Valborg. 3) Sig- urlaug Elsa, gift Sigurjóni Sveinssyni. Börn þeirra eru: 3a) Bríet, 3b) Þengill og 3c) Logi. Heimir kvæntist Gunni Ringsted frá Akureyri (f. 12. febrúar 1947) þann 6. sept- ember 2008. Þau bjuggu á Akur- eyri. Heimir tók landspróf frá Héraðsskólanum á Núpi árið 1958 og lauk síðan kennaraprófi frá Kennaraskólanum árið 1962. Það ár tók hann við skólastjóra- stöðu í Barnaskólanum í Hrísey. Ári seinna hóf hann störf sem kennari við Barnaskólann á Dal- vík, þar til hann réði sig sem „Komdu lambið mitt!“, sagði hann. Og út skottaðist ég með krullurnar við hlið pabba. Í veiði í Laxá í Aðaldal, heim til Jóhanns og Sissu, á Sökku til Olgu og Þor- gilsar, í byggingavöruverslun, á botnfrosna Hrísatjörnina að leika okkur á bílnum, að brasa. Bara eitthvað. Á unglingsárunum fækkaði ferðunum og ég hafði með öllu týnt húmornum fyrir lambatengingunni. En það leið hjá! Fiskibollurnar hans eru best- ar, enda þriðjungur þeirra lauk- ur! Hann elskaði íslenskt smér, – eins og hann hefði sagt það. Svo mikið að öðrum fannst nóg um. Saltað, reykt og sigið. Óblönduð berjasaft, harðfiskur með smjöri (sem var í raun smjör með harð- fiski ef horft er til skammta- stærða), kartöflur í öll mál, lamb og fiskur. Hvað þarf meira? Alls ekki kjúkling né pasta. Það var tæpast matur! Svona fyrstu 70 ár- in hans í það minnsta. Tónlist, píanóspil og söngur einkenndu pabba. Frá því ég man eftir mér þá höfum við sungið við undirleik hans. Lögin hans Fúsa voru þar í miklu uppáhaldi. Mögulega hafa engir á jarðríki flutt Litlu fluguna oftar en þeir félagar pabbi og Jóhann Dan! Þá voru þeir í essinu sínu, essinu! Ár- lega förum við stórfjölskyldan saman austur til Bakkafjarðar og dveljum þar í rafmagnslausu húsi lengst inni í dal. Þar sem flugurn- ar suða, hrossagaukurinn hneggj- ar og áin niðar. Þar eru fleiri ess! Svo sem þegar pabbi spilaði á harmonikkuna og stýrði söng stórra sem smárra. Fram í heið- anna ró er eitt af föstu númerum stundarinnar. Vem kan segla líka. Undanfarin ár hafa yngri fjöl- skyldumeðlimir prófað nikkuna og tekið nokkur lög. Með æfing- unni næst það hjá þeim að spila heila kvöldstund eins og afi þeirra gerði, enda maðurinn í áratuga þjálfun. Pabbi var iðinn maður. Alltaf að dunda eitthvað og dútla. Síð- ustu ár spilaði hann t.d. í hljóm- sveit sem lék fyrir gamla fólkið og fór víða í þeim erindagjörðum, m.a. í sinn heimabæ Dalvík. Hann var ákaflega skapandi og sýndi það á ótal vegu. Eftir hann liggur stórt myndasafn auk þess sem hann samdi nokkur lög og sálm. Þann 7. mars sl. var formleg opn- un á ljósmyndasýningu með verk- um pabba í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Opnunin hófst á tónleikum, þar sem lög pabba voru flutt auk nokkurra annarra af uppáhaldslögum hans. Þar spil- aði hann sjálfur eitt lag undir söng Óskars Péturssonar frá Álftagerði. Karlakór Dalvíkur flutti m.a. lagið Mín leið. Seinna færði pabbi okkur systkinunum textann á blaði og skrifaði hjá: „Sko“ – „Líka mín leið.“ Þessi opnunardagur var töfrum líkast- ur fyrir okkur öll. Móttökurnar hjá sveitungum okkar voru ein- stakar. Þessi dagur skipti pabba öllu máli. Hann flokkaði daginn sem einn af þeim stóru í hans lífi. Ég flokka hann þar líka. Ég fæ bara læk niður bakið við tilhugs- unina! Þakklæti er mér efst í huga. Fyrir þá óbilandi trú sem pabbi hafði á okkur systkinum í upp- vextinum. Þá hvatningu sem við fengum frá honum. Sjálfstæðið. Tónlistina. Gleðina. Jákvæðnina. Sköpunarkraftinn. Allan harð- fiskinn. Svo ekki sé minnst á fiski- bollurnar! Leiðin hans pabba er sam- tvinnuð minni leið. Áfram gakk! Hjartansþakkir! Elsa. Takk fyrir allt var hvíslað. Koss á enni. Saman. Pabbi minn. Þú varst svo margt. Þú varst hvetjandi og hafðir trú á okkur. Ég þakka þér endalaust fyrir það. Þú varst skapandi, handverksmaður, tón- skáld, ljóðskáld og ljósmyndari. Þú varst jákvæður, hrifnæmur, rómantískur og þú elskaðir okk- ur, landið þitt og smáfuglana. Þú áttir tunglið. Það þekktu þig ein- hvern veginn allir. Þú tókst hlutina stundum lengra en aðrir, og í fjölskyldunni ólust barnabörnin upp við að heyra „það á enginn svona afa“. Þú kenndir okkur á lífið, og svo ótalmörgum öðrum líka. Þú kenndir okkur gildi vináttu og gleði! Við sungum saman fyrir stuttu eins og svo oft, fjölskyldan þín og kærir vinir. Við sungum um vin- áttuna. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Stundin var dýrmæt því svo vorum við ekki lengur saman. Við Þórhallur, Kristján Máni og Júlíana Valborg erum öll ríkari að hafa fengið að vera samferða þér. Takk pabbi minn fyrir allt sem þú varst okkur. Sigrún. Afi Heimir, eða afi skafi eins og við kölluðum hann, átti alltaf ís. Alveg sama hvenær við komum til hans. Honum fannst þó vera einn galli á ís, hann var svo kaldur. Helst vildi hann setja sinn ís í ör- bylgjuofninn og hita hann aðeins upp! Afi skafi var alltaf glaður og sýndi okkur hvað honum þótti vænt um okkur. Hann var góður maður. Hann var líka góður tón- listarmaður. Þegar við hugsum um afa er hann að spila á píanó eða á harmonikku og hvetja okk- ur til að syngja á meðan. Við átt- um alltaf að syngja hátt og snjallt, því að afi var ekkert fyrir raul. Hann vildi heyra almennilega í okkur! Minning hans mun lifa áfram með okkur. Í hvert skipti sem við munum heyra Litlu fluguna sungna mun afi koma upp í hug- ann. Litla flugan Lækur tifar létt um máða steina. Lítil fjóla grær við skriðu fót. Bláskel liggur brotin milli hleina. Í bænum hvílir íturvaxin snót. Ef ég væri orðin lítil fluga, ég inn um gluggann þreytti flugið mitt, og þó ég ei til annars mætti duga ég eflaust gæti kitlað nefið þitt. (Sigfús Halldórsson / Sigurður Elías- son) Afi skafi var mikill kennari í sér og hefur alltaf verið það. Þeg- ar ég (Bríet) hugsa um afa hugsa ég um það sem hann kenndi mér. Þegar ég var fimmtán ára reyndi hann að kenna mér að keyra bein- skiptan bíl. Sama hvað það gekk illa og hvað ég drap oft á bílnum sagði hann mér alltaf hvernig ég gæti bætt mig og að ég væri að standa mig vel. Einnig mun ég alltaf muna sex sinnum töfluna út af lagi sem hann kenndi mér til að muna þá töflu. Næst þegar ég drep á bíl eða þarf að raula lagið til að muna hvað sex sinnum sjö er, þá mun hugurinn reika til afa skafa. Elsku afi! Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og með okkur. Við munum sakna þín mik- ið. Ástarkveðja, Bríet, Þengill og Logi. „Sæl frænka, Júlíníus hér!“ Þannig heilsaði Heimir föður- bróðir minn, hress í bragði þegar hann hringdi. Það er skrítin til- hugsun að heyra hvorki í honum né hitta framar og eiga við hann gott spjall. Ég á sannarlega eftir að sakna þess að hlusta á hann tala tæpitungulaust um ýmis mál- efni, þar á meðal sjúkdóminn sem lék hann svo grátt undanfarna mánuði. Og aldrei var húmorinn langt undan. Hann gat séð spaugilegar hliðar á flestum mál- um, ekki síst því sem sneri að honum sjálfum. Oftar en ekki var erindið að fylgjast með hvernig mér liði, það mat ég mikils og mun ekki gleyma. Nú eru þau öll horfin á braut, börn Kristins afa, systkinin átta frá Dalvík og með þeim ein kyn- slóð í föðurfjölskyldunni. Þau ól- ust ekki öll upp saman og áttu misjafnt líf, með beinum brautum og líka brekkum, eins og gengur. Minnisstæð nú eru orð sem Car- men heitin frænka okkar lét falla fyrir mörgum árum á þá leið að þau systkinin væru öll góðar manneskjur, af því að þau létu sér annt um aðra. Það finnst mér lýsa þeim öllum einkar vel. Minning- arnar eru margar og ég hugsa til þeirra allra með hlýhug og sökn- uði. Heimi frænda var margt til lista lagt, hann var mikill stemningsmaður og kunni að gleðjast og gleðja aðra, handlag- inn í betra lagi og hafði næmt auga fyrir ljósmyndun og gat fangað dýrmæt augnablik á ein- stakan hátt. Síðast en ekki síst var hann mjög tónelskur og samdi m.a. lög, má þar nefna fal- legt lag við sálm Valdimars V. Snævarr, Heilagi Guðssonur. Eftirfarandi fallegar línur sendi Heimir okkur Guðjóns- börnum, með nótum að því lagi, sem sungið var við útför móður okkar: „Sálmurinn hefur m.a. verið sunginn á seinni árum við andlát sem gengið hafa nærri mér, sent syrgjendur til huggunar. HK“ Nú sendum við Magnús elsku Gunni, Sindra Má, Sigrúnu, Elsu og þeirra fjölskyldum huggun og innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Júlíníusar Heimis frænda míns. Sjúkleikans þungbæru þjáningarspor eru gengin. Þrautunum lokið og gröfina hræðast skal engin. Dauðinn er líf. Drottinn vor styrkur og hlíf. Vissan um framhaldslíf fengin. (Valdemar V. Snævarr) Eygló Guðjónsdóttir. Í dag kveð ég góðan vin. Það var glaður og skemmtileg- ur hópur er útskrifaðist frá Núpi árið 1958, er haldið hefur mjög vel saman allar götur fram á þennan dag. Frá þeim tíma höfum við Heimir verið vinir, þar sem traust, umhyggja, hlýja og virð- ing hvors fyrir öðrum sat í fyr- irrúmi. Eigi skemmdi það fyrir að móðir mín var ættuð frá Bakka í Svarfaðardal og ég var þar í sum- ardvöl í sex ár. Þú ættaður og uppalinn á Dalvík; þekktir þar hvern mann og hverja þúfu. Eins leigðir þú hjá foreldrum mínum í eitt ár er þú varst í Kennaraskól- anum. Þú sagðir mér margar góð- ar og skemmtilegar sögur af ykk- ar samskiptum. Oft sagðir þú mér þessa sögu: Móðir mín kallaði á karl sinn er var að ryksuga en tafðist eitthvað við verkið uppi hjá ykkur leigjendum á laugar- degi. „Magnús, ertu ekki að verða búinn?“ „Já, ég er alveg að koma, Sóla mín.“ Kennsla var þitt ævistarf er þú stundaðir með miklum sóma. Það var líka mitt ævistarf. Þetta allt batt okkur traustari böndum. Það var þungur harmur er þú misstir konu þína, Valborgu, frá þremur börnum. Ég og fjölskylda mín gistum oft hjá ykkur er við heimsóttum Dalinn fagra. Svo myndaðist smá vík milli vina; heimsóknir urðu strjálli en samband okkar rofnaði aldrei. Eftir að þú kynntist seinni konu þinni Gunni tókum við aftur upp fyrri þráð. En 27. júní gleymi ég aldrei meðan ég lifi. Gunnur hringdi í mig um tíuleytið um kvöldið og sagði að Heimir vildi ræða við mig. Við áttum yndislegt samtal í þrjátíu mínútur. Ég skynjaði það að nú væri komið að leiðarlokum hjá vini mínum Heimi. Hann bað mig að skila kveðju til allra er hann þekkti. Þetta var ljúfsár stund. Gunnur hringdi og tilkynnti mér að Heimir hefði látist aðfara- nótt mánudagsins 29. júní. Þá kom tár á hvarm. Heimir var sviphreinn, greind- ur vel og listhneigður og afar greiðvikinn. Í fyrra þegar við Helga vorum í heimsókn hjá þeim hjónum kom hann gustmikill heim. Ég spurði hvað hann hefði verið að „grafla“. Þá sagði hann á sinn hægláta máta: „Ég var að spila fyrir gamla fólkið á Hlíð.“ Hann náði því blessaður að verða áttræður hinn 22. júní sl. Hann átti góða ævi sáttur við Guð og menn. Gunnur reyndist Heimi afar vel í veikindum hans er eftir var tekið. Hún hlúði að honum allt til hinstu stundar. Þökk sé henni. En nú er ganga þín á þessari jörð á enda runnin og þú heldur á vit feðra þinna. Gunni, þinni elskulegu konu, börnum og öðrum ástvinum þín- um sendum við Helga okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Ég felli tár, en hví ég græt? Því heimskingi ég er! Þín minning hún er sæl og sæt, og sömu leið ég fer. (Kristján Jónsson) Heimir minn, þú átt góða heim- komu vísa. Eyjólfur Magnússon Scheving. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Haustið 1972 hófum við Heimir Kristinsson störf við Húsabakka- skóla í Svarfaðardal, hann sem skólastjóri en undirritaður sem kennari. Þar með hófst samstarf okkar, kynni og vinátta. Heimir hafði nokkra reynslu af skólastjórnun en hann hafði starf- að sem slíkur við Grunnskólann í Hrísey. Húsabakkaskóli var heimavistarskóli og var að ganga í gegnum ákveðnar breytingar sem Heimir leiddi af lipurð. Þetta haust varð sú breyting á skóla- málum í Svarfaðardal að nem- endahópurinn varð fjölbreyttari. Hafin var kennsla 7 og 8 ára barna og skyldu þau jafnframt vera á heimavist eins og aðrir nemendur skólans. Til þessa hafði verið litið svo á að aðstæður í sveitinni væru ekki þannig að börn gætu hafið skólagöngu svo ung þrátt fyrir ákvæði laga frá 1946 um skólaskyldu. Þetta ný- mæli lagði mikla ábyrgð og skyld- ur á starfsfólk skólans og ekki síst skólastjórann og gat starfsdagur- inn því oft verið langur. Auk skipulags kennslu þurfti að finna leið til að nýta sem best naumt skammtað fjármagn til umsjónar og gæslu barnanna utan kennslu- tíma. Í litlum sveitaskóla í þá tíð var starf skólastjórans fjölþætt, en auk kennsluskyldu, sem nam liðlega hálfu kennarastarfi, var skólastjóri leiðtogi í sínum skóla, hann annaðist samskipti við hags- munaaðila skólans, hafði með höndum skipulag skólaaksturs, umsjón fasteigna og staðarhald. Öll þessi hlutverk leysti Heimir af kostgæfni og þurfti oft að ganga í ólík hlutverk. Skólahúsnæðið var barn síns tíma og þarfnaðist lag- færinga við og hóf Heimir fljót- lega að vinna að úrlausn. Fékk hann því framgengt að umbætur voru gerðar á heimavistum og mötuneyti skólans. Hann var vak- inn og sofinn yfir því að bæta að- stæður nemenda og kennara. Ekki verður um Heimi fjallað án þess að minnst sé á forgöngu hans um lagfæringu og endur- gerð á Sundskála Svarfdæla, elstu yfirbyggðu sundlaug á land- inu. Sem skólastjóri vann hann að endurreisn skálans og rann blóðið að nokkru til skyldunnar en faðir hans var aðalforvígismaður að byggingu skálans á þriðja áratug síðustu aldar auk þess að starfa þar um árabil við sundkennslu. Er Heimir lét af starfi sem skólastjóri Húsabakkaskóla réðst hann sem kennari við Dalvíkur- skóla. Þar hófst samstarf okkar að nýju og höfðu nú orðið hlut- verkaskipti okkar á milli. Heimir var einkar laginn sem almennur barnakennari en jafnframt hafði hann lagt sig eftir stærðfræði- kennslu í yngri og eldri deildum grunnskóla. Það var gott að hafa Heimi að samstarfsmanni, hann var bón- góður ef leita þurfti aðstoðar við einhver úrlausnarefni innan skól- ans og skjótur til ákvarðana, reyndar svo að stundum varð að hafa hemil á. Hann var fjölhæfur og glaðvær að eðlisfari, kunni frá mörgu spaugilegu að segja, var músíkalskur og hafði ágæta söng- rödd. Við leiðarlok þakka ég Heimi samstarf og samfylgd. Margs er að minnast og margs að sakna. Ég færi börnum hans, eiginkonu og aðstandendum innilegar sam- úðarkveðjur. Trausti Þorsteinsson. Júlíníus Heimir Kristinsson HINSTA KVEÐJA Núna ertu horfinn Heimir, hegðun þinni enginn gleymir og því sem löngu liðið er. Þú varst annars engum líkur, ákaflega kærleiksríkur, góður vinur varstu mér. Fyrir þér margir féllu í stafi, fögnuði stýrðir dægrin löng, þú varst svo mikill gleðigjafi, gladdir aldna með spili og söng. Nú hefur sál þín á himnum vaknað, þótt hér sé þín líka ákaft saknað, friðurinn aldrei frá þér víki, í faðmi Drottins í himnaríki. (Bj.Þ.) Björgúlfur Þorvarðarson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.