Morgunblaðið - 10.07.2020, Page 22

Morgunblaðið - 10.07.2020, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 Atvinnuauglýsingar Álnabær Verslunarstarf Starfskraftur óskast í verslun okkar í Síðumúla 32, Reykjavík. Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18 alla virka daga. Áhugasamir sendi umsókn á ellert@alnabaer.is Raðauglýsingar Nauðungarsala UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Keflavík, 0,0097% ehl., Vesturbyggð, fnr. 212-3404, þingl. eig. Melkorka Marsibil Felixdóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, fimmtudaginn 16. júlí nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 8. júlí 2020 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 13:30 - Föstudagsviðburð Sumarhópsins okkar. Þau bjóða upp á fræðslu um sögu miðbæjarins með honum Stefáni Pálssyni sagnfræðingi. Frír taxi á staðinn og kaffi á eftir á Vitatorgi. Mánudaginn 13. júlí verður sumarhátíð hópsins á Aflagranda og hefst hún kl. 13:30. Allar veitingar í boði hússins og allir velkomnir. Árskógar Hádegismatur kl. 11:30-13. Kaffisala kl. 14:45-15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið sími: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8:50. Hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30-11:30. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum eftir samfélagssátt- málanum, þannig höldum við áfram að ná árangri. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45-15:15. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Gerðuberg 3-5 Kl. 08:30-16:00 opin handavinnustofa, kl. 10:00-12:00 prjónakaffi Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Hreyfiþjálfun með sjúkraþrjálfara kl. 9:30. Kennsla í notkun snjallsímatækja 10:30- 11:30. Bíósýning á myndinni The Intouchables kl. 13:15. Korpúlfar Gönguhópar ganga frá Borgum og inni í Egilshöll kl. 10:00. Þórdís Sigurðardóttir verður með hláturjóga klukkan 14:00, endilega mætið. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag kemur sumarhópurinn til okkar og við ætlum að spila Kubb (eða Boccia - fer eftir veðri), klukkan 10:30, og eftir hádegi verður spilaður hinn bráðskemmtilegi teiknileikur Pictionary. Ekki er gerð krafa um sérstaka teiknihæfileika. Leiksýningin „Endalausir þræðir" verður sýnd klukkan 17:00 á 2. hæð á Vitatorgi, aðgangur er ókeypis og allir aldurshópar velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur! Seltjarnarnes Dagskráin í dag er svona. Kl. 10:30 er kaffispjall í króknum. Kl. 11:00 er leikfimi í salnum á Skólabraut. Kl. 13:30 er samsöngur í salnum á Skólabraut. Kl. 14:00 er spurningargleði og samvera. Hlökkum til að sjá ykkur og eigið góða helgi. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bíó kl. 13.00 (verður í boði með auglýsingu í Selinu). Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Toyota Auris til sölu Nýskr. 11/2007. Ek. 82 þús. km. Bensín, beinsk., 5 gíra, 4ra dyra, dökk blár. 4 ný heilsársdekk/vara- dekk. Næsta skoðun 2021. Smurbók(/þjónustubók. Reyklaust ökutæki. Topp eintak. Verð kr. 690.000. Upplýsingar í síma 899 2599. Bílar mbl.is alltaf - allstaðar Ertu að leita að STARFS- FÓLKI? 75 til 90 þúsund manns, 18 ára og eldri, lesa blöð Morgunblaðsins með atvinnuauglýsingum í hverri viku* Þrjár birtingar á verði einnar Birt í atvinnublaði Morgunblaðsins í aldreifingu á fimmtudögum Birt í atvinnublaði Morgunblaðsins á laugardegi. Birt á mbl.is Sölufulltrúi Richard Richardsson, atvinna@mbl.is, 569 1391 * samkvæmt Gallup jan.-mars 2019 óskaplega sterkur og hugrakkur. Lífið er ekki alltaf einfalt og oft finnst manni það óréttlátt í misskiptingu sinni. Síðustu árin var Jóni Skúla skenkt mótlæti í ýmsum myndum og stóð hann eins og sönn hetja í þeim ólgu- sjó. Sérstaklega tók það sárt að ekki var alltaf hjálp að fá þar sem hennar var vænst. Hugsunin um að Jón Skúli hafi nú kvatt þennan heim er mér nánast óyfirstíganleg. Að sama skapi er þakklætið fyrir að hafa kynnst þessum yndislega manni svo óendanlega djúpt. Skarðið sem hann skilur eftir er komið til að vera og öllum ljóst sem þekktu hann að enginn kemur í hans stað. Okkar góðu samtöl tek ég nú sem veganesti á leiðinni áfram og næri hjartað með þeim. Hef góða ástæðu til að rifja upp, heyra í hugskotum innilega vinarkveðju og þakka fyrir að hafa átt slíkan vin. Ég veit að ég er ekki einn um það þegar ég segi: Ég mun sakna þín alla mína daga minn kæri. Baldur Jóhannesson. Það var mikið áfall fyrir okk- ur félagana að heyra af fráfalli Skúla okkar. Við í samtökunum minnumst hans með hlýhug og söknuði. Við sem höfum fylgt honum erum sammála um að Skúli hafi verið einstakur kar- akter með hlýtt hjartalag. Hann var einstaklega hjálpsamur og vingjarnlegur, ávallt tilbúinn til þess að hlusta og vera til staðar fyrir aðra. Hann var alltaf já- kvæður og brosið hans var bráð- smitandi. Ekki var hægt annað en brosa við að hlusta á Skúla tala með sitt glaðværa fas. Gott dæmi um hjálpsemi hans var þegar hann hélt utan um barnapössun fyrir kvennafundi sem haldnir voru á laugardögum í Gula húsinu. Drifkrafturinn var mikill hjá Skúla og dró hann aðra stráka með sér til að að- stoða stúlkurnar til að þær ættu auðveldara með að komast á fundinn. Þetta þótti honum góð leið til þess að starfa og gefa af sér. Þeir strákar sem að því komu lýsa þessum stundum sem ógleymanlegum og skemmtileg- um. Þrátt fyrir að það hafi farið að halla undan fæti hjá Jóni Skúla á síðustu árum þá viljum við minn- ast hans á þann hátt sem hann snerti við lífi okkar og þeirra góðu stunda sem við áttum með honum. Við hugsum til hans með þakklæti og erum afar sorg- mædd yfir því að hann hafi farið svona snögglega frá okkur. Söknuðurinn er sár en minning- arnar um góðan dreng lifa um ókomin ár. Við viljum minnast hans með bæn sem hann fór alltaf með þegar hann leiddi aðra í gegnum 3. sporið: „Guð. Ég fel mig þér á vald. Svo þú getir mótað mig og gert við mig það sem þér þóknast. Leystu mig úr fjötr- um sjálfshyggjunar svo ég megni bet- ur að gera vilja þinn. Taktu frá mér erfiðleikana svo sigurinn yfir þeim geti orðið þeim sem ég vil hjálpa vitnis- burður um mátt þinn, kærleika og lífið með þér. Hjálpaðu mér að fara æv- inlega að vilja þinum.“ (A.A bókin bls. 60-61) Við vottum fjölskyldu Skúla okkar innilegustu samúðarkveð- ur. Fyrir hönd félaga Skúla úr samtökunum, Illugi Torfason Hjaltalín. Jón Skúli Traustason Elsku amma, við kveðjum nú klett- inn okkar með söknuð í hjarta og þakklæti í huga fyrir alla þá gleði og hlýju sem þú gafst okk- ur. Það sem þú hefur náð að fylla hjörtu okkar systkinanna með gæsku þinni, ást og óbilandi þolinmæði í gegnum árin. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur, hjálpaðir okkur með svo margt og það er okkur ofarlega í minni hvað faðmur þinn var mjúkur og hlýr. Við eigum ótal ljúfar minn- ingar af þér sem eru okkur svo dýrmætar. Það var ávallt eitt- hvað fyrir stafni og alltaf jafn gaman að bauka eitthvað með þér í gegnum tíðina, hvort sem það var að ferðast um landið með ykkur afa, kíkja í matjurta- garðinn á Lindó og ná í smælki með matnum eða ferskar gul- rætur til að narta í, fylgjast með þér í matseldinni eða aðstoða við baksturinn. Aldrei höfum við smakkað betri flatkökur eða kjötbollur í brúnni en þær sem þú gerðir. Við fengum aðstoð og leið- beiningar við hannyrðir sem við vorum að fást við og máttum svo búast við því að vera mæld í bak og fyrir þegar þú varst að prjóna nýjar lopapeysur á okk- ur. Það var svo gott að koma til ykkar í Afahús á Djúpó eða í ró- legheitin í Tjarnó. Þar stóðuð þið í dyragættinni og tókuð á Anna Elín Einars- dóttir Haukdal ✝ Anna Elín Ein-arsdóttir Haukdal fæddist 10.7. 1931 Hún lést 8.6. 2020. Anna Elín var jarðsett 15. júní 2020 í kyrrþey. móti okkur með bros á vör, því dyrnar stóðu alltaf opnar og við gátum komið við hvenær sem okkur datt í hug, hvort sem það var eftir skóla, um helgar, í næturgist- ingu eða bara til þess eins að koma í bað. Amma, þú varst fyrirmynd okkar í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú kenndir okkur ótalmargt sem verður gott veganesti fyrir okk- ur út í lífið. Við munum ávallt minnast þín með hlýjum hug, þú varst og verður að eilífu einstök. Þín Anna Lilja, Gísli, Dögg og Styrmir. Kveðja til ömmu Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sæla lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þakklæti, kærleikur og ljúfar minningar sem munu fylgja okk- ur um ókomna tíð eru okkur í sinni og hjarta þegar við kveðj- um móður og ömmu. Benedikta, Vilhjálmur Sigursteinn, Bjarni Einar, Sigurður Haukur og Jóhann Auðunn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.