Morgunblaðið - 14.07.2020, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 4. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 164. tölublað 108. árgangur
ALVARLEG
STAÐA
BÓKAÚTGÁFU PAKKAFERÐIR Á SÉRKJÖRUM
HLYNUR ÍSLANDS-
MEISTARI Í FIMM
GREINUM
GRÍÐARLEG EFTIRSPURN 4 SLÓ 37 ÁRA MET 27EVRÓPSK SKÝRSLA 29
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Árangur hefur náðst með samn-
ingum Sjúkratrygginga Íslands og
Tannlæknafélags Íslands um gjald-
frjálsar tannlækningar barna sem
undirritaðir voru árið 2013, að sögn
Jóhönnu Bryndísar Bjarnadóttur,
formanns Tannlæknafélags Íslands.
Þannig hefur skemmdum og fyllt-
um tönnum hjá tólf ára börnum
fækkað á undanförnum áratug.
Árið 2005 voru skemmdar tennur
hjá tólf ára börnum í virku eftirliti
að meðaltali 0,55 talsins, að því er
fram kemur í Talnabrunni, frétta-
bréfi landlæknis.
Árið 2013 voru þær 0,50 en árið
2018 fækkaði þeim í 0,29.
Eftir árið 2013 fækkaði skemmd-
um tönnum jafnt og þétt; strax árið
2014 var meðal-
fjöldinn farinn úr
0,50 í 0,39.
Jóhanna vænt-
ir þess að samn-
ingurinn verði
framlengdur í
janúar 2021 en
hann fellur ann-
ars úr gildi í lok
þess mánaðar.
„Við finnum
það alveg hvað ástandið hefur breyst
gífurlega á undanförnum árum, með
tilkomu barnasamningsins. Það hef-
ur verið skerpt á forvarnastarfi og
börn mæta frekar í skoðun og þá er
hægt að grípa inn í miklu fyrr,“ segir
Jóhanna, sem bendir á að áður en
samningurinn tók gildi hafi börn
ekki haft jafnan aðgang að tann-
læknaþjónustu. »14
Færri skemmdar
og fylltar tennur
Árangursríkur samningur við SÍ
Jóhanna Bryndís
Bjarnadóttir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skarphéðinn Steinarssson ferða-
málastjóri segir áætlað að fjöldi er-
lendra ferðamanna í ágúst verði 25%
af fjöldanum í ágúst í fyrrasumar.
Hingað komu um 252 þúsund er-
lendir ferðamenn í ágúst í fyrra. Ef
spáin gengur eftir munu því koma 63
þúsund erlendir ferðamenn í ágúst.
Skarphéðinn segir fleiri erlenda
ferðamenn hafa komið í skimun á
Keflavíkurflugvelli í júlí en reiknað
var með þegar ferðalög hófust á ný.
Skýr ferðavilji erlendis
„Fjöldinn er þegar umfram það
sem menn gerðu ráð fyrir í afkasta-
getu í skimun í þessum mánuði. Þeir
sem eru með puttann á púlsinum í
sölu- og markaðsmálum erlendis
segja okkur að það sé klár ferðavilji
hjá nokkrum þjóðum, sérstaklega,
Dönum, Þjóðverjum og Norðmönn-
um. Og jafnvel líka Hollendingum,“
segir Skarphéðinn. En nú er rætt
um að fjölga þjóðum sem verða
undanskildar skimun í Keflavík.
Tölur Isavia vitna um hæga stíg-
andi í fluginu. Samtals 16 komur og
brottfarir voru frá Keflavíkurflug-
velli 15. júní en alls 40 í gær.
Geta annað miklu meira
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir flugvöllinn geta
annað miklu fleiri farþegum.
„Í þessu samhengi er rétt að hafa í
huga að afkastageta Keflavíkurflug-
vallar er 26 lendingar á klukkustund
og við getum tekið við um 40 þúsund
farþegum á dag. Afkastageta skim-
unar og greiningar heilbrigðisyfir-
valda er tvær vélar á klukkustund og
2.000 sýni á dag. Við erum því að
starfa á 4-5% af afkastagetu.“ »12
Spáir áframhaldandi
fjölgun ferðamanna
Ferðamálastofa reiknar með 63 þús. ferðamönnum í ágúst
40
16
Umferð um KEF
Samtals komur og brottfarir á
Keflavíkurflugvelli 15.6.-13.7.
40
30
20
10
15. júní 13. júlí 2020
Heimild: Isavia
Áhöfnin á nýjum Dettifossi fékk hlýjar móttökur er skipið
kom til hafnar í Reykjavík síðdegis í gær. Flutningaskipið var
smíðað fyrir Eimskip í Taicang í Kína, en það er stærsta skip
sem hefur verið í þjónustu íslensks skipafélags, 2.150 gáma-
einingar að stærð. Nýja skipið kemur í stað tveggja eldri
skipa, Laxfoss og Goðafoss, sem voru seld á síðasta ári. Edda
Rut Björnsdóttir, markaðsstjóri Eimskips, segir það hafa
gríðarmikla þýðingu fyrir fyrirtækið að fá nýja skipið, sem sé
í senn stærra, öflugra og umhverfisvænna. Það verður aðal-
lega í siglingu milli Íslands og Skandinavíu, og Íslands og
Grænlands, en um síðarnefnda legginn á Eimskip í samstarfi
við grænlenska félagið Royal Arctic Line. »6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýjum Dettifossi fagnað við komuna til landsins